Leita í fréttum mbl.is

Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar

Það er mikið gott að fá loksins Bjarna á stól forsætisráðherra

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og því undir flestum kringumstæðum eðlilegt að hann leiði þá ríkisstjórn sem hann er í

Ég vona að það sem eftir er kjörtímabilsins komi vel út fyrir þjóðríki okkar Íslendinga og auki þar með á þá festu í stjórnmálum sem landið okkar þarf svo á að halda

Það er allt of snemmt að spá í næstu kosningar og næstu ríkisstjórn. Og vert er að benda fast og kröftuglega á það að landinu er og verður aldrei stjórnað samkvæmt skoðanakönnunum

Ég óska ríkisstjórninni undir handleiðslu Bjarna Benediktssonar velfarnaðar

Fyrri færsla

Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"


mbl.is Ósáttur við undirskriftalistann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"

M1 Abrams  2024-03-11

Mynd: Bandarískur M1 Abrams skriðdreki ristaður í sléttugrasarúst af Rússum í Úkraínu. Jafnmikið "tækniundur" og hin bandaríska Harpoon skotflaug danska sjóhersins sem "óvart" rústaði nokkrum dönskum sumarhúsum árið 1982 og sem enn á ný veldur sama draugagangi á Stórabelti og þá. Tvö dæmi um steinaldartækni vesturlanda

****

Þegar síldin kom í magni sem um munaði, þá gekk strax illa að manna síðutogarana. Síldin gaf einfaldlega meira af sér en sjómennska á síðutogurum, þó svo að vinnan væri síst skárri eða léttari á síldarbátunum. Og engum datt í hug að vinna við síldasöltun ef ekki fékkst vel borgað fyrir hana, miðað við annað sem ekki var í boði

Frá því rétt um og yfir 1970 gekk illa að fá verkamenn og handlangara í vinnu fyrir múrarastéttina í byggingariðnaði. Þá var verkamannastéttin að hverfa og daglaunamenn heyrðu þá þegar sögunni til. Hafnaverkamenn sömuleiðis

Þeir sem enn reka dekkjaverkstæði verða að breyta rekstrinum hjá sér yfir á breiðari grundvöll þannig að sá mannskapur sem er í vinnu á verkstæðunum snúi sér eingöngu að dekkjaskiptum á meðan ríkisstjórnin er svo innheimsk, illa gerð- og að sér að heimta að allir skipti um dekk á sama tíma og að menn megi ekki aka um á nöglum eins og þeim sýnist, þ.e. allt árið eða svo lengi sem naglarnir halda og munstrið er nógu djúpt

Í gamla daga, eða fram til ca. 1970, skiptu árstíðabundin dekkjaskipti minna máli því þá voru allir með sandpoka og snjókeðjur í skottinu og fóru helst ekki neitt

Hér heima þyrfti að margfalda sektir fyrir að aka á sumar- og heilsársdekkjum í snjó og hálku, en slíkt stendur einmitt fyrir dyrum í Svíþjóð eftir algjört helvíti umferðarhörmunga vetrarins þar í landi. Það er nefnilega ekki að hlýna á norðurhveli jarðar

Þeir sem þjást af inngrónum 101-naglaþyrnum í heilabúum sínum verða að læra að lifa með náttúrunni í stað þess að lifa náttúrulausir og á móti henni

Naglar og meiri naglar er nefnilega málið. Nokian Hakkapeliitta LT3 nagladekkin framleidd í Rússlandi eru bestu vetrardekkin, einkum í hliðarhálku og því einnig í flughálku eins og í vetur. Án þeirra kæmist ég ekki heim til mín og lítið þýðir að bíða eftir sandlausri Vegagerðinni í vesturumdæmi

Ég ætla bara rétt að vona að Íslendingar verði aldrei þannig að þeir sækist eftir að vinna vinnunnar vegna. Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu" ekki störfin

Við verðum aldrei próletaríat

Fyrri færsla

Engir rafbílar segir Apple


mbl.is Íslendingar vilja ekki þiggja störfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband