Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012

Reglumynt og regluverk regluverkamanna

Einstakur Derek Jacobi leikur einstakan Alan Turing í myndinni "Breaking the Code" (skyldi atriðið ekki spilast þá er bein krækja á það hér)
 
Í upphafi var okkur sagt að mynt Evrópusambandsins væri stórkostlegt framlag sérfræðingaveldis sambandsins til mannkynssögunnar. Að þessi mynt væri bæði sérstök og einstök því hún væri mynt sem byggði tilveru sína á reglum. Reglugerðarbyggð mynt sem átti að koma í veg fyrir efnahagsleg áföll og lækna sjúkdóma. Útrýma hinu þáverandi 20 ára langtímaatvinnuleysi (nú 30 ára) og koma forstoppuðum hagvexti Evrópu í gang á ný. Sem sagt; regluverk embættismanna átti að lækna Evrópu. Þar á undan hafði samfelldum 25 ára áróðri fyrir dauða þjóðríkisins verið básúnað út í Evrópu af allsherjarmönnum ESB í flestum sínum fyrr- og núverandi myndum. Reglur. 

Þetta er nú hin nýja fæðingarútgáfa kommúnisma og alræðis í Evrópu. Reglur og regluverk áttu — og eiga enn — að leysa eðli og náttúru mannsins af hólmi. Einu sinni enn! Allt Evrópusambandið eins og því var logið að borgurum þjóðríkjanna er nú í vaskinn komið. Skemur og skemur er þess þar að bíða að útbendingar miklar til hins ýtrasta hægris og vinstris hefjist á meginlandi Evrópu á ný. Að svona frá einu til tuttugu og sjö stykkjum geislavirkra bauga Vinstri grænna & Co rigni fólkinu til himins í kjölfar — og frá Brussel séð — himneskra áfalla hins gagnslausa regluverks ESB. Geislabaugar hinna hundrað neyðarfunda regluverksins verða ekki í akademísku askana látnir frekar en mynt Evrópusambandsins var það. Hún var nefnilega regluleg. Reglur.

Líf fólks, efnahagur fólks, tilfinningar fólk og tilvera manna hefur aldrei passað ofan í hvorki vélar né nein reglugerðarbyggð mannvirki á borð við Evrópusamband Sovétríkja. Hið einstæða og mikilvæga framlag Alan Turing til talnaheims raunvísindanna var aldrei upphugsað þessu ofangreinda pólitíska viðfangsefni til höfuðs. Hann og fleiri vísindamenn hugsuðu sér að það væri maðurinn sem mataði tölvurnar og léti þær vinna fyrir sig.

Í heimsmynd Evrópusovétsins er það hins vegar tölva Brusselverksins sem mötuð er á fólkinu í þjóðríkjunum. Eins og í Sovét. Hverjir skyldu nú passa best og beinastir ofan í þessar vélar. Hver skyldi best kunna við sig í datamati? Afskaplega erfið spurning. Hvað segir sagan okkur? Ekki eru það hinir engilsaxnesku né hinn einstaki kapítalismi þeira; og sem regluverkamenn meginlandsins hata mest af öllu
 
Fyrri færsla
 
 
Sjá einnig PS í athugasemd við þessa færslu  

Erlend starfsemi banka evrulanda lokar vegna "evruálagsins"

Bankia auglýsing utan evrusvæðis
10 dögum áður. Bankia varð; stærsta bankahrun í sögu Spánar.
 
Eitt sinn var í vissum bankageira reynt að halda því fram að til væri eitthvað sem heita átti "Íslandsálagið". Þessu var reynt að halda fram þegar lokað var á íslensku bankana á alþjóðlegum peningamörkuðum. Þá kenndu bankamenn Samfylkingarinnar smæð íslenska gjaldmiðilsins um erfiðleika sína og kölluðu hann ýmsum nöfnum úr hinu stóra eiginnafnasafni sínu. Samfylkingin, sem bar uppi sönginn, er enn að syngja hann við farvegsborðhald sjálfra síns í stjórnarráði Íslands.

Kosningasvikaumsókn þjónustuliðs Vinstri grænna inn í eitthvað og út í loftið Evrópusamband, þjónar nú stjórnarráði þessarar Samfylkingar sem göngugrind hryggleysingja —handa hryggleysingjum— og sem látin er slettast á milli beggja enda farvegsborðhaldsins í ráðinu. Ördiskuðum smáréttum fyrir minnsta forsætisráðherra íslenska lýðveldisins er staflað og hellt niður á milli allra hluta sem máli skipta. Lárétt situr hún þarna inni sem minnsti forsætisráðherra veraldar, við borðhald einstæðrar marglyttustjórnar og sem setið hefur klesst í krafti göngugrindarvalda á hinu víðfeðma gjaldmiðilssvæði átjándu stærstu eyjar heimsins.

Nú er staðan hins vegar þannig að dótturfyrirtæki og útbú bankakerfa evrulanda eru að pakka sér saman til að fara heim í brunarústir heimalanda sinna á evrusvæðinu. Erlend starfsemi alþjóðlegra banka evrulanda fær ekki peninga neins staðar til að halda uppi alþjóðlegum bankarekstri utan hins nýja múrs evrusvæðisins
 
Skóflustunga nýja múrsins hófst fyrir alvöru með Erectus-tollmúrirarus sex landa með spægipylsuaðferðum á Messina-ráðstefnunni 1955 — í stað fríverslunar — og í geigvænlegri óþökk Breta sem voru sannir sigurvegarar heimsstyrjaldarinnar, en því miður með stuðningi bláeygðra einfeldninga í Washington, sem þá höfðu fengið nóg af helvíti Evrópu og þurftu einnig að glíma við kommúnista morðmaskínu Sovétríkjanna sem ESB smá saman er að leysa af hólmi — með spægipylsuaðferðum
 
Þeir, evrubankar utan múrsins, hafa hingað til reitt sig á evruinnistæður í heimalöndum sínum sem bakhjarl. Út á þær hafa bankarnir gefið út pappíra í Bandaríkjunum sem síðan voru seldir á þarlendum peningamarkaði. Tilgangurinn var að komast yfir Bandaríkjadali. Þannig útveguðu þessir evrubankar sér fé til erlendrar starfsemi. En nú vilja erlendir peningamarkaðir ekki lengur viðurkenna hvorki hinar áhættusömu evruinnistæður í evrulöndunum, né þann gjaldmiðil sem þær standa í.

Sparifé almennings er nú verið að gera upptækt á evrusvæðinu á Spáni. Þetta er að gerast beint fyrir framan augun á okkur. Hið sama mun gerast í öðrum evrulöndum. Og myntin sjálf fer þá auðvitað niður í hinn alþjóðlega kjallara peningamarkaða og endar þar saman með tíma hennar sem punktur á götuðu spjaldi.

Íslenska krónan verður alþjóðlegur gjaldmiðill á undan mynt evruríkja, sem þá mun líklega hafa breyst í rembu og sem verður álíka illa gjaldgeng á mörkuðum og sovéska rúblan var og kommúnistamynt Kína er. 

Það eina sem þarf til svo ISK verði alþjóðleg mynt, er ný ríkisstjórn með svera hryggsúlu hins íslenska þjóðríkis. Ríkisstjórn sem negld er niður í mold okkar og stendur þar fast sem skínandi varðstöðumaður þjóðríkis allra Íslendinga. Mold okkar.

Stefnuljós tólf (!) manna peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands verður að fara því hún er dansljós. Þess utan þá er Close Encounters of the Third stefnuljósasýning hennar fyrirbæri úr gamalli kvikmynd frá 1977. Þannig merkjasamskipti við hinn alþjóðlega peningaheim eru túlkuð sem neyðarljós og vitsmunaleg firring einfeldninga. Ör vænting.
 
Krækjur
Fyrri færsla
Tengt

Sýndu okkur vini þína og allir vita hver þú ert - eftir kosningar

Hinir vinstripólitísku hælisleitendur samfylkingar Steingríms J. Sigfússonar, Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur, hafa alltaf leitað hælis hjá annað hvort kommúnistum eða ríkiskapítalistum með Lenínlöguðu höfuðfati.

Undir kaldastríðinu var ógerlegt að bera Vestur-Evrópu á borð fyrir kjósendur hins íslenska vinstris, því þá var meginland Vestur-Evrópu "mengað" í augum vinstrisins. Það var mengað sökum stórveldis Bandaríkjanna þar. Mengað af hinu bandaríska stórveldi sem hélt og varðveitti friðinn á þessu meginlandi tapara í hálfa öld. Í þessa hálfa öld var meginland Vestur-Evrópu í hugum vinstrisins eins konar marx-hegelíanskur og sonderwegaður falschfahrer í öfugri átt á hinni náttúrulegu hraðbraut sinni til eilífs kommafasaðs einræðis og langtíma glötunar.

Bandaríki Norður-Ameríku urðu ekki stórveldi af ásetningi. Þau urðu það vegna frelsisins. Sjálfkrafa. Þess vegna hafa flest frelsiselskandi lönd alla tíð kviðið þeim degi er Bandaríkjamenn pakka saman og fara heim. Bandaríkjamenn fara alltaf heim því heima vilja þeir vera. Heima í landi hinna engilsaxnesku frjálsu sem hvergi annars staðar á jörðu er til. Ekkert stórveldi sögunnar hefur haft eins lítlinn vott af imperialimsa byggt inn í sökkul sinn. Að fara heim (exit) er alltaf það eina. Exit Evrópa þrisvar. Exit Japan. Exit Kórea. Exit Indokína. Exit, exit, exit. Og alltaf er brottfarardegi þessum kviðið jafn mikið. 

Nú eru Bandaríkjamenn farnir heim frá Íslandi og helvítisbrölt vinstrisins er því þegar hafið. Nú á að möndla því í gegn sem ekki náðist frá 1918 til 1949 og á kaldastríðsárunum. Kynntur er til Íslandssögunnar einn kosningasvikinn afarkostur í skjóli áfalla; í skjóli bankahruns. Umsókn, aðlögun og smyglun Íslands inn í Evrópusovétið. Ekkert annað er í boði var Íslendingum ekki sagt fyrr en eftir að Vinstri grænir sviku kosningar lýðræðis. En í millitíðinni — og eftir brottför Bandaríkjamanna — springur Evrópusovétsambandið algerlega úr úr skápnum — og í loftið upp — eftir að Múr þess hefur stanslaust fallið í 25 ár frá brusselsku austri og yfir Bandaríkjalaust vestrið í Hegel-þýskri Evrópu. Sem afleiðing vill enginn Íslendingur með fullu viti þar inn. Og innan örfárra ára mun teppabombað Evrópusambland einveldis og einræðis lenda sem sprengjurignt nýtt sovétríki meginlands Evrópu. Þá vilja jafnvel íslenskir fávitar ekki þar inn.

Því er annar kostur kynntur til sögunnar undir stjórnartíðahvörfum hryggleysingjanna Steingríms, Össurar og Jóhönnu; Kommúnistaflokki stærsta einræðisríkis Jarðar er boðið Ísland til sölu. Uppboðs- og landsölusútprungin ríkisstjórn Íslands er einstök skepna. Truntan var kölluð og komin upp í rúm. Hún er kyndling Evrópubitans.

Þjóðkjörnir fulltrúar eiga að gæta og vaka yfir hagsmunum þjóðríkisins eins og sjáaldur augna. Annað er glæpur. Dauði Íslands er vinstrið - og aðsig þess
 
Fyrri færsla
 
 

Erektus marglyttus diktarus

 
Apollo 11 Saturn V  - Bandaríki Norður Ameríku 16 júlí 1969
Aðeins Bandaríkjamenn hafa komist til tunglsins

Kreppuvaldur heimsins —sem áfram er númer ekkert— er Evrópusambandið sjálft og hin síðustu 40 árin í sögu þess. Símaskrá Henry Kissingers þykknar upp í takt við marglyttuformaða og skipulega stækkun vandamála Evrópusambandsins. Stækkunarstjórn Evrópusovétsambandsins sér fyrir því. Rauðhettuð marrar þessi glytta sem brunarúst í heimshafinu. Öllum til ills.

Í þriðja bókhaldsfjórðungi iPhone-uppgjörs þess síma sem Kissinger notar daglega, birtust í gærkvöldi myndir út kirkjugörðum evrusvæðis. Frakkaland er kafnað í sósíalisma Evrópusambandsins. Ítalía er dauðari en áður hún gekk í Evrópusambandið. Írland, Spánn og Portúgal eru lokuð inni og læst úti frá hinum alþjóðlega fjármálaheimi. Grikkland er núllað út í ekki neitt og Þýskaland hefur samkvæmt venju sparað sig í Evrópusambandshel. Þetta er áríðandi. Ætlast er nú sem fyrr til að Engilsaxneskar dráttarvélar Vesturheims dragi jómfrúnaðan ritvélaiðnað kínverja Evrópu í gang á ný; eftir að sogrör þess tæmdi önnur lönd evrusvæðisins í læstu gengisfyrirkomulagi við þetta stærsta elliheimili heimsins.

Alltaf þegar ég hugsa um hina sitjandi ríkisstjórn Íslands detta mér marglyttur í hug. Því meira sem ég hugsa um meðlimi ríkisstjórnarinnar því hrygglausari í huga mér verður þessi aðalmarglytta stjórnmálasögu Íslands. Ríkisstjórnin hefur sest að í fjörum landsins sem slím. Hún hvílir sem klessa ofan á Íslendingum í landi þeirra. Lekur þar um sem illa lyktandi og skaðlegur massi. Nályktin af ríkisstjórninni hefur borist til bræðra okkar Færeyinga og til Grænlands. Kosningasvikarinn Steingrímur J. Sigfússon tekur sér áfram há laun frá almenningi fyrir kosningasvik. Inni í sjálfri sér í stjórnarráðinu flýtur forsætisráðherraínan um í farvegi sínum. Fölnaðir geislabaugar Ögmundar lýsa austrændu rauðu yfir landið. Þetta er allt saman hryllilegt fyrir land okkar sem er undir lagt.

Ágústmánuður verður líklega eins konar Apollo-13 vakning fyrir hina mössuðu evrumiðlaelítu Evrópusambandsins. En hinn óafturkallanlegi og grunnleggjandi lýðfrelsislegi atburðarmunur er auðvitað sá, að evran sprakk á ERM teygjubyssuskotpalli Brusselveldis og lagði Evrópu Evrópusambandsins í rúst. Hún náði aldrei lengra upp en í heilabú nómenklatúru Evrópu. Því verður að stofna þar ekta sovétríki í hvelli svo apinn í evrubúrinu komist nú einn hring inni í höfuðstöðvum marglyttu Íslands í Brussel.

Ekta bílskúrskapítalismi getur allt. Hann fór alla leið til tunglsins, af því að honum langaði til þess. Kommúnistar og ESB-sósíaliseraðar sófaelítur komast hins vegar aldrei lengra en á klósettið til að sturta fólkinu niður
 
Fæðingar- og erfðagallar myntbandalags Evrópusambandsins. The Economist desember 1996
Forsíða The Economist 1996 
 
Fyrri færsla
 
 
 

Evran endurbyggir einræðið

Spánn er að endurreisa Francoveldið undir evrunni. Boðaðar aðgerðir yfirvalda Spánar í Evrópusovétsambandinu hafa nú leitt til þess að í landinu er verið að taka upp efnahags- og peningastjórn sem aðeins er hægt að líkja við efnahagsaðgerðir einræðisstjórnar Francisco Franco hershöfðingja árið 1959, segir spænska dagblaðið El País. Aldrei undir lýðræði á Spáni hafa verkfærin til þessa áður staðið yfirvöldum til boða. Þetta er aðeins hægt að gera undir stjórnarfari evru Evrópusovétsambandsins og undir alræði einræðisherra (e. dictatorship). Spánn á því miður ekki langt að sækja spínósaða ráðgjöf yfir lækinn til aðalstöðva Brusselkremlar. Líkur eru á að sparifé almennings verði gert upptækt í þessum aðgerðum. Og að sjálfsögðu er þetta gert evrunni til svo nefndrar bjargar.

Á meðan láta hámenntaðir hagfræðingar hafa sig út í landakortagerð sem sýna á fram á hvernig einstaka lönd gætu brotist út úr evrunni. Líkja má þessu við veðurkortagerð fyrir fólk sem býr í neðanjarðarbyrgjum. Eins mikilvægt og veðurathuganir eru fyrir íbúa Bunkerlands.

Segjum nú að svo ólíklega vilji til að í Grikklandi geti enn myndast eins konar óformlegt "leyniráð" sem er það samstíga í skoðunum og hafi á sama tíma þau völd —sem ei lengur í reynd eru til í landinu— að "leyniráðið" láti til skarar skríða og að Grikkland segi sig þar með úr evrunni. Athugið að Grikkland er ekki lengur til í eiginlegum skilningi, því fullveldi og sjálfstæði þess hefur verið framselt til Evrópusovétsambandsins. En segjum nú svo að þetta "leyniráð" geti myndast í þinginu og að það á einhvern yfirnáttúrulegan hátt geti teflt fram meirihluta þjóðkjörinna manna til aðgerða. Þetta er nánast útilokað. En segjum nú samt að þetta geti gerst í praxís.

Hér langar mig fyrst til að vita hvernig framkvæmdastjórn þessa ráðs ætli sér að koma nýjum peningum út í 7120 hraðbanka og 4200 bankaútibú landsins. Hvernig ætlar valdið að koma nýjum peningaseðlum út til þessara fleirri en tíu þúsund staða á meðan gríska þjóðin horfir á? Á götum úti í öllu landinu ríktu þá líklega hrikalegar óeirðir og eldar óánægju meðal þorra almennings. Ekki bara vegna myntarinnar sem kom og fór, heldur mest vegna þeirrar stemmingar þjóðsvika sem óhjákvæmilega kæmi upp í kjölfar þeirrar neyðarvarnar sem einmitt þá væri verið væri að grípa til. Gríska þjóðin hefur aldrei verið spurð að neinu er varðar aðild landsins að Evrópusovétssambandinu. Uppsöfnuð fyrirlitning og hatur á valdaelítunni myndi einhvern veginn fá útrás. Einhvern veginn.

Svarið við þessari spurningu hlýtur að vera þetta: líklegt er að aðeins sé hægt að koma seðlum út til þessara þúsunda staða undir ströngu útgöngubanni á allt fólkið í landinu.

Grikkir eiga ekki og búa ekki lengur við stjórnarskrá sem heimilar þeim að hafa neina aðra mynt en evru Evrópusovétsambandsins. Þeir búa við stjórnarskrá ESB —sem enginn þegn í landinu kaus— og í henni stendur að evra sé hin eina löglega mynt landsins. Grikkland yrði því að segja sig úr Evrópusambandinu til þess að taka upp aðra mynt. Enginn veit hvort það sé löglegt eða framkvæmanlegt án þess að grípa þurfi til vopna.

Ansi er ég hræddur um að það eina vald sem nægileg virðing sé borin fyrir og samtímis ótti ríkir af, sé einmitt gríski herinn. Það þyrfti líklega að kalla herinn á vettvang til þess að koma á útgöngubanni. Og til þess að það sé virt svo brynvarin ökutæki hersins gætu komið nýjum peningaseðlum út á nokkur þúsund staði í landinu, frekar samtímis en seinna. Átta menn í hverju ökutæki er all mikill herafli og all mörg vopn. 

Þetta myndi í praxís þýða að komin sé til valda eins konar herstjórn í landinu. Spánn myndi líklega síðar fylgja þessari aðferð eftir að Portúgal myndi nýta sér þennan sama ómöguleika ESB.

Hvað mun þá gerast næst? Og hvað mun Brussel Þýskalands og Frakklands gera þá? Hvernig ætla þeir að innleysa öll veðin? Hvað mun fólkið segja.
 
Ríkisstjórn Íslands og ESB-aðildarsinnar eru tilhangendur andlýðræðislegra afla. Þeim verður að koma frá völdum. 
 
Fyrri færsla
 

Þjóðríkjasósíalismi á yfirþjóðlegu plani ESB

Sósíalismi hefur aldrei haft neitt með fólkið að gera. Hann er í eðli sínu fjandsamur eðlisfari mannsins og var því ekki af mannkyninu uppfundinn né framreiddur fyrr en eltía betur vitandi — og helst hámenntaðra — manna skapaði hann sem tækifæri fyrir sjálfa sig, til að ná völdum yfir tilveru fólksins og því sjálfu. Þið munið öll eftir gömlu Sovétríkjunum þar sem glæpaelíta "gáfumanna" tók öll völd og hélt þeim með fjöldamorðum og hryðjuverkum gegn fólkinu í samfellt sjötíu ár. Sovétríkin eru versta manngerða plága sögunnar. Stjórnkerfi og regluverk hinna betur vitandi var þar afar skilvirkt. Talið er að allt að sjötíu milljón manns hafi misst lífið en fæstir þeirra verið jarðsettir. 

Rómarsáttmálinn og Evrópusamband hans er seinna bindi eins konar yfirverptra sovétríkja Evrópu. Í sáttmálanum stendur að stefnt skuli að "æ meiri samruna" þeirra sem undir hann gangast. En hvað er átt við með hugtakinu "samruni"? Hvað er það sem á að renna saman? Og saman við hvað á það að renna?

Í fréttum er næstum daglega talað um þetta atriði Rómarsáttmálans. Þið takið bara ekki eftir því vegna þess að þá er þetta atriði lokatakmarks sáttmálans — sem aldrei næst — kallað til sögustundar yfir alþýðu manna sem "samhæfing" löggjafar og alveg sérstaklega sem samhæfing "efnahags og peningamála". Samhæfing meiri samhæfing og samþætting. Ef við á þessu plani skilgreinum hugtakið samhæfing þá fáum við út eftirfarandi;

Eitt ríki samþykkir að gera fólki sínu eitthvað slæmt gegn því að annað eða önnur ríki geri eitthvað jafn slæmt og illt við fólkið í sínu ríki. Þetta er það sem kallað er samhæfing. Á ensku kallast þetta "coordination". Þetta eru eins konar sampyntingar. Dæmi: EMS, ERM, EMU, EFS, ECJ og EU.
 
Þegar um ESB er að ræða þá gildir þetta um allt líf fólksins í öllum 27 ríkjum hinnar yfirþjóðlegu samsteypu umboðslauss valds. Árangurinn er þjáning, hörmungar, nauð og fátækt þjóðríkjasósíalisma á yfirþjóðlegu plani. Það er þetta sem samhæfingin gengur út á. 

Þetta er samsærið gegn fólkinu. En það er einmitt það sem sósíalismi gengur alltaf út á. Og hann er á ný orðinn samþvættingur stórtapara í Evrópusambandinu og mun leiða meginland Evrópu til endurnýjaðrar glötunar.
 
Fullt Evrópusamband þéttriðið samhæfðum töpurum: ÞJÁNING
 
Fyrri færsla 
 
 
 

Álfhóll Evrópusovétsambandsins

Kosningaherferð François Mitterrand árið 1981 þegar hann í fyrsta skiptið var kjörinn forseti Frakklands, notaðist meðal annars við slagorðin "hreinn og beinn skilnaður Frakklands við kapítalismann" (e. a clean break with capitalism). Einnig notaðist herferðin við slagorðið "sósíalismi í einu landi".

François Mitterrand, hinn öfgasinnaði hægrimaður, fyrrum andlýðræðislegur Pétainisti, hafði áður verið ráðherra í ríkisstjórnum hins Fjórða í röð misheppnaðra lýðvelda Frakka. Í smástund miðjumaður, en loksins heimkominn sóslíalsti og stefnuskráður málefnalegur félagi kommúnista, sem sátu í ríkisstjórn hans. 

Peningar Frakka eru auðvitað löngu flúnir land og hugtakinu "sósíalismi" hefur verið skipt út með hugtakinu "Evrópa". Það er svona sem "Evrópa" mallar. Þar sem hreinn og beinn skilnaður Evrópu við kapítalismann er nú efst á dagskrá hinna nýju sovétríkja meginlandsins. Aðskilaður yfirvalda frá restinni af lýðræðinu og fólkinu hefur þegar farið fram.

Hagfræðilegur (ha! ha!) ráðgjafahópur ríkisstjórnar hinnar austur-þýsku Angelu Merkel segir að evran í núverandi formi sé sundurtætandi afl á hinu sósíalsírópaða meginlandi Mitterrands og í austrinu hans Helmuts Kohl. Kran der Sonderweg, ja!

Þetta gengur því allt samkvæmt áætlun. Bráðum hefst hinn heimsfrægi stjórnmálalegi stöðugleikaútflutningur Þýskalands til restarinnar af því sem einu sinni var Evrópa og sem vasapókerspilarinn Hans Olaf Heinkel kallar "some other places". Sósíalismi í "einu landi" virkaði auðvitað ekki. Það þarf heila heimsálfu til. Og það vita kommar eins og François Hollande manna best. Hitt form evrunnar verður svo flott. Svo flott og ekki unordentlich.

Fyrri færsla

Ríkisstjórn Íslands tekur upp evru sína og kemst loks í genetískar aðalstöðvar


Ríkisstjórn Íslands tekur upp evru sína og kemst loks í genetískar aðalstöðvar

Ræða frú Thatchers árið 1992 í heild sinni er hér.
 
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar afhentu við upptökuna Þýskalandi seðlaveski sín og öll greiðslukort. Skartgripir Jóhönnu voru bræddir á staðnum í klump og honum skipað út. Steingrímur afhenti föt og bifreiðar sínar, lagði sitt fæðingarvottorð og vandamanna inn og gerðist síðan á staðnum meðlimur í grísk-spænska sjúkrasamlagi evrulands, sem framvegis mun lækna hann. Afgangur Össurar Skarphéðinssonar frá Íslandi var afmyndaður úr loftbelgjasamstæðu hans í ríkisstjórnini sem Co2 afgas. Klæðskerasaumuð föt hans höfðu áður verið lögð pressuð og frímerkt inn í evruríkið svo hann kæmist þar í gegn sem óþekkjanlegur sérfræðingur peningamála. Landhelgi Íslands var í leiðinni og sem frekari trygging tekin af íslensku þjóðinni og gerð upptæk. Öll ganga þau æskufélagar á opinberri framfærslu út úr íslenska lýðveldinu full bjartsýni og trausts til að taka sér bólfestu í austurhluta Berlínarborgar, þar sem fyrrum aðalstöðvar seríu-kommaflokka þeirra voru til húsa áður en hin nýju sovétríki Evrópusambandsins lögðu stássið eins og það í Berlínarmúrsrústir var lagt skömmu áður en það í sjálftið sitt gekk. Meðferðis hafa þau auðvitað sinn úttektarskerf af auðlindum Íslands sem komust jú loksins í þjóðareign þeirra í Evrópusambandinu.
 
"They spent what they didn’t have on what was superfluous", Spanish novelist Elvira Lindo wrote in Madrid’s El Pais newspaper on June 20. "Now all they can think about is cutting what is essential."
 
Krabbameinssjúklingar á Spáni — sem vegna greiðsluþurrðar ríkis og sveitafélaga þar í landi í evrum — eru nú sumir hverjir hættir að fá lyf sín á réttum tíma. Heilbrigðiskerfi landsins er komið 700 daga fram yfir síðasta greiðsludag útgjalda. Þolinmæði þeirra fyrirtækja sem framleiða lyfin ofan í evruparadís brusselskra stjórnmálamanna á Spáni er þrotin. Bjarga þarf nú einstaka sjúklingi út af fyrir sig með staðgreiðslum og sérstökum rauntímalegum SWIFT-bankatilfærslum yfir til lyfjaframleiðenda. Bankakerfið í landinu virkar ekki. Það er gjaldþrotið og evruríkissjóður Spánar hefur tæmt það endanlega til að halda sér ofan á evruflotinu þannig að hægt sé að geðjast og veifa aðalstöðvum evrunnar í Berlín, París og Brussel aðeins lengur. Hvert eitt veif þeirra gæti jú fært landinu heim eina lánsevru í einu. Lyfjaframleiðendur eru jafnvel hættir að taka við "ég skulda þér - I owe you" sjálfsskuldaábyrgðum spænskra yfirvalda á pappír. Þeim er ekki treyst fyrir neinu frekar en manni í skuldafangelsi er treyst fyrir blekpenna og skjalapappír.

Kvensjúkdóma- og fæðingalæknar eru hættir að fá lyf til neyðaraðgerða og erfiðra fæðinga undir keisararíki evrunnar. Sjúkrahússdeildir geta ekki lengur keypt krabbameinslyf handa sjúklingum og þurfa að ganga betligang á milli fjármálafyrirtækja út í bæ í leit að lánsfé til lyfjainnkaupa.

Norðan við stirndar strendur íslenskra bartúrista syðst á Spáni og í klukkustundar lestarfjarlægð frá Madríd, átti að byggja nýtt sjúkrahús handa því héraði í evrulandshluta hinnar öldruðu þjóðar og sem er á stærð við fylkið New Jersey í Bandaríkjunum. Ekkert verður af þessum áætlunum. Hið eina og gamla sjúkrahús landshlutans er þess í stað skorið svo mikið og neyðarlega niður að loka þarf heilum hæðum þess. Sjúklingum er síðan staflað upp sem í lofvarnarbyrgjum væru á meðan atvinnulaus þjóðin nagar af sér evruneglurnar í skjólbeltabandalagi Steingríms Jóhönnu og Össurar. 

Jose Soto forstjóri San Carlos sjúkrahússins í Madríd hefur þurft að skera 5000 manna starfslið sjúkrahússins það mikið niður að aðeins er nú pláss fyrir þúsund sjúkrarúm í stað sextán hundruð og fimmtíu á 18 ára starfsferli sínum í ESB-landi Spánar. Í næsta mánuði þarf hann að skera burt 200 rúm í viðbót og eru þá aðeins 800 af 1650 rúmum eftir í skurðarborðslegu faðmlagi sjúkrahússins við evruna.

Þúsund manna hérað Sotorribas sem samanstendur af átta smábæjum með einu apóteki fyrir þá alla, fær eina heimsókn af einum lækni einu sinni í viku. Þessa heimsókn læknisins og lyfjafræðings vilja yfirvöld skera alveg burt, svo að eina samgöngurúta héraðsins njóti sín betur þegar hún ekur allar hinar þrjár vikulegu ferðir sínar út og inn í evruríkið. Þetta er evrupúðurríki hins nýja sovéts Brussels. Kraftaverk gluggatjaldanna, eins og áður. 

Á síðasta ári þurfu 40 prósent spænsku þjóðarinnar að bíða að meðaltali 60 daga eftir að fá náðarsamlegast að tala við einn þeirra sérfræðimenntuðu lækna sem þessi evruþjóð Spánar menntar og borgar fyrir. Biðlistinn eftir að komast í skurðaðgerð lengdist um 17 prósent á síðasta ári þannig að biðtíminn er nú 73 dagar, að meðaltali. Á meðan tekur 150 miljarða nýbyggður evruflugvöllur sig vel út frá loftbelgjasamstæðu ríkisstjórnarinnar yfir Castellon. Engin flugvél né einn einasti farþegi hefur farið um hann frá því að byggingabólugreftri ECB-Aukaseðlabanka Þýskalands lauk á Spáni. Bólan var í verk sett svo eftirspurn gæti myndast handa svo að segja dauðvona Þjóðverjum í kjölfar sameiningar tveggja þýskra öldrunarhagkerfa. Hamast er við skera burt það sem fólkið á Spáni getur ekki án verið og pörtum þess skipað út til fölnaðs yfirelliheimilis Evrópu í Þýskaralandi. Staðan í Grikklandi er enn verri og þaggað er niður í Portúgal með síberjum ESB.

Hið nýja ríki öreiga heimsins er evruríkið. Ástandið innanlands í nýlendum evrunnar er orðið jafn þöggunarþurfi eins og það var í allri 69 ára sögu örbirgðar öreiga hinna gömlu Sovétríkja komma- og sósíalkratatitta frá 1922 til 1991. En fréttaveitu Bloomberg tókst þó að komast yfir nokkra pappíra úr felulitabúðum Brussels. Bifröst Brussels inn í heim þennan hefur nú skilað af sér afkvæmi sínu; hinu nýja tefloníska stórrki uppgefinnar Evrópu; The NSU

Árið 1992 varaði Margaret Thatcher við þróuninni í Evrópu og sagði í ræðu sinni að "dagar hinna vansköpuðu stórríkja væru liðnir". En í dag er því miður hægt að umskrifa þessa aðvörun Margrétar Thatchers yfir í rauntíma og segja; The day of the artificially constructed megastate has gone has arrived. Því miður my dear Margaret. Þú hafðir rétt fyrir þér og sást hvað myndi verða.

Það er hið sameinandi hatur valdaelítu meginlands Evrópu á Engilsaxnesku frelsi, kapítalisma og lýðræði sem knýr úrverk hinna nýju evrópsku sovétríkja Brussels, ESB, áfram. Og ekkert annað en það. Ekkert annað. Þetta ESB á á ný eftir að verða ferlegt heimsveldi hins evrópska illa.
 
Krækja
 
 
Fyrri færsla
 

Karl-Marx-Stadt er nú í landi x og heitir hvað?

Karl-Marx-Stadt er nú í landi x og heitir hvað

Og ég sem hélt að svona ummæli um bankakerfið ættu aðeins við um þá svo kölluðu óreiðu sem falskt geislabaugs heilagt Þýskaland segist sjá í óþýskum löndum suðursins. Eða að þau ættu helst við um bankakerfi bananalýðvelda. Hvernig getur það verið þessi skýrsla sé um það sem hún er? Hvernig getur verið að þríhyrnt elíta valdamanna —gegnumrotnir bankar í vösum stjórnmálamanna sem fóðra útflutnings iðnaðarmafíu gamla furstaaðalsins og sem nú stendur í háflæddum parísarlegum blómavösum á náttborðum Brusselveldisins — hafi þannig kverkatak á stjórnmálaöflum landsins að þau sitji eins og glansandi peningur í vasa þeirra. Sitji þar eins og vasapeningur. Að flest valdalegt í landinu og í nánasta umhverfi þess sitji við það sama enn þann dag í dag og svo mörgum dögum, miklum hryllingi og ónýtum árum síðan 1871.

Í þessu landi hefur í reynd aldrei verið lýðræði. Aldrei í reynd. Þetta ríki tifar. Það tifar. Það er ásamt maka sínum Evrópu stórhættulegt.

1992 

Evrópusambandið mun leiða til: 

  • Óöryggis og ófriðarhættu
  • Atvinnuleysis
  • Hugarástands þjóðsvika meðal fólksins
  • Þjóðarátaka

Krækja

Financial Times - (bls. 17)

Fyrri færsla

Áhlaupið


Áhlaupið

Ég vinn fyrir fólkið 450
"Ég vinn fyrir fólkið"

Mottó þeirra sem stofna fyrirtæki og hefja rekstur fer nauðsynlega að verða þannig að aldrei ættu þeir að ráða til sín fyrsta starfsmanninn. Kostnaðurinn við fyrsta starfsmanninn í fyrirtækinu er orðinn óyfirstíganlegur. Og hann verður ekki þolanlegur fyrir reksturinn nema þá helst að um dópsölu sé að ræða. Proff fólk í rekstri ræður því aldrei til sín fyrsta starfsmanninn. Það kaupir utanfrá hjá öðrum það sem því vantar og þá helst hjá þeim sem engan starfsmann hafa. Rekvélablaðaþunnt er áleggið í rekstri allra nýrra fyrirtækja orðið. Svona er gjáin búin til og hyldýpið sprengt dýpra og dýpra. Þetta er hin samfélagslega skilvinda í verki, sem skapar misrétti og fátækt. Ólguna sem við sjáum. Fábjánar tölfræðinnar túlka þetta hins vegar í skýrslum sínum sem eins konar frumkvöðlun. Asnar.

Áhlaup hinna talandi stétta sem að mestu leyti eru á framfærslu hins opinbera og hálfopinbera, hér undir allir opinberir fjölmiðlar ásamt hinu massífa pólitíska opinbera hagkerfi stjórnmálamanna, á allt og alla, er allt að drepa. Og þessir aðilar hvetja samtímis almenning til áhlaups á grunnstoðir þjóðfélagsins. Stór hluti þessara talandi og þunnt þegjandi menntastétta nútímans, vinnur markvisst að því að eyðileggja vestræn kapítalistísk hagkerfi. Þetta er sérstaklega erfitt þegar einmitt þessi vestrænu hagkerfi eru í beinni samkeppni við þrælabúðahagkerfi kommúnista og ESB-ríkiskapítalista. Til þess að geta keppt við þræla-hagkerfi komma og ríkiskapítalista undir skemmdarverkastarfsemi hinna talandi opinberu stétta í vestrænum samfélögum — og þar í er sjálf menntaelítan — getur ekkert nýstofnað fyrirtæki með góðu móti leyft sér að ráða til sín fólk í vinnu.

Sósíal Mogens Lykketoft
Aðeins smábrot hinna langskólagengnu úr langgjaldþrota menntastofnunum hins opinbera skólakerfis, fara út í verðmætaskapandi atvinnustarfsemi og þora að taka áhættu. Stærsti hlutinn ætlar sér að lifa á drullumallinu í fyrrgreindum geirum samfélagins; sem vinna nótt sem nýtan dag við áhlaupið á sjálfa sig. Þetta eru að mestu leyti allt helvítis hálf- og heilkommar og DDRÚV'arar í búnkavís. Viðhald þessa fúna skógar krefst þess að ekkert fyrirtæki ráði nokkurn tíma til sín svo mikið sem einn starfsmann. Það er ekki lengur pláss til þess á þeirri rakvélablaðaþunnu egg sem eftir er þegar hinar talandi stéttir hafa tekið sitt. Gjalddagi glötunar nálgast. Á meðan munu hinar talandi stéttir raka til sín auðæfum samfélagsins í nafni "structural changes" - þ.e. í skjóli lygavefsins um þörfina á skipulagsbreytingum (og meiri menntun) á mér og þér. En það er einmitt ekkert að mér eða þér. Meinsemdin liggur hjá hinum impótent talandi stéttum og drullumalli þeirra sem meðal annars heitir ESB (evrópska sovétríki Brussels)
 
Fyrri færsla
 

Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband