Leita í fréttum mbl.is

MAF; retorískur svikahrappurinn Barosso

Hlutabréf franska stórbankans Societe Generale: Paris CAC 40 París, síđustu 6 mánuđi

Ţann fimmta febrúar 2009; Manuel Barosso ađalforingi Evrópusambandsins í viđtali viđ ţýska blađiđ Die Zeit;
 
"Evran er í engri hćttu. Ástandiđ er miklu verra fyrir utan evrusvćđiđ en innan ţess. Evran er mikilvćgt varnarkerfi. Beriđ bara saman Ísland og Írland. 

Eftir ađeins 20 mánuđi er evrubárujárniđ dottiđ ofan í plakatdreng seđlabanka Evrópusambandsins, Írland. Bankana vantar ţar 50 miljarđa evrur í viđbót. Ţeir hafa veriđ ryksugađir innan frá. Allt er ţar ónýtt. Fjárlaghalli Írlands er 32 prósent af landsframleiđslu. Brussel stingur evrusprautunni djúpt í ćđ Írlands. Ţrýstir á og dćlir inn svo sjúklinginn fari nú ekki í fráhvarf og ógni "stöđugleikanum" á öllu dópsvćđi myntbandalagsins. Alls ekki er óhćtt ađ láta renna af sjúklingnum, ţó svo ađ ţađ sé honum fyrir bestu. Hann má ekki fara í fráhvörf.

Should We Expect Another Round Of Bailouts
Trojkan Brussel, AGS og ECB tekur völdin á Írlandi. Heimtar hrikalegan niđurskurđ ríkisins, snarhćkkar skatta, og lćkkar laun.

Írland var fyrirmyndin fallega sem Brussel veifađi í mörg ár sem "tígrisdýri" og stillti ţví út sem glansmyndagínu í útstillingargluggum seđlabanka Evrópusambandsins. 

Og ţegar ţarna er komiđ var Grikklandi algerlega ţrotiđ gjaldiđ. Og svo kom Portúgal. Ţrjú evruríki á skallanum. Mölvuđ og mulin undir myntinni frćgu. 

Og svo er ţađ Ítalía, Kýpur og Spánn. Og Frakkland kannski líka. Allt ţetta á 20 mánuđum. Geri ađrir betur.
 
"Evran er í engri hćttu. Ástandiđ er miklu verra fyrir utan evrusvćđiđ en innan ţess. Evran er mikilvćgt varnarkerfi. Beriđ bara saman Ísland og Írland." 
 
Allt er hugmyndafrćđilega hruniđ í myntbandalagi Evrópusambandsins. Fimm lönd myntsvćđisins hafa ekkert ađgengi ađ peningamörkuđum heimsins. Ekkert. Ţetta er öryggi evrunnar.
 
Á međan hefur íslenska krónuhagkerfiđ sótt sér fé á alţjólegum fjármálamörkuđum á vöxtum sem ţessum löndum getur bara dreymt um ađ fá.  
 
 
Tengt

 
Fyrri fćrsla
 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Elvira Méndez, doktor í Evrópurétti, sagđi í Silfri Egils ađ Barroso hefđi gleymt fólkinu en bara unniđ fyrir fyrirtćkin. Hann lofađi ađ muna eftir fólkinu ef hann héldi djobbinu.

Barroso tókst ađ tryggja sér endur"kjör" (eđa útnefningu) međ ţví ađ taka stöđu gegn Íslandi í Icesave deilunni og ná ţannig stuđningi Breta.

Núna er Barroso á sínu öđru "kjör"tímabili og búinn ađ gleyma bćđi fólkinu og fyrirtćkjunum. Öll vinna ţessa maóista gengur út á ađ reyna ađ bjarga evrunni.

Haraldur Hansson, 13.8.2011 kl. 00:49

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband