Leita í fréttum mbl.is

Í Badedas hjá Angelu Merkel [u]

 
GERMAN 5-YEAR CREDIT DEFAULT SWAPS RISE ABOVE UK CDS FOR FIRST TIME-MARKIT
 
Baðvatnið hjá kanslara Þýskalands ætti að vera friðsæll staður um þessar mundir. Eftir 66 ára samviskubit ætti að vera óhætt að taka sér svona eins og eitt bað. En hvað sjáum við þá? Jú í baðvatninu hjá Angelu Merkel liggur heilt þorp af suðrænum sæluhúsum. Þorparar þess eru allir að drekka af AAA lánshæfnismati því sem Þýskaland hefur unnið fyrir með hörðum höndum og stanslausri þýskri nægjusemi áratugum saman. Í Þýskalandi þýðir orðið ábyrgð það sama og sparnaður.

Hvernig haldið þið að þetta evrópska bað endi? 

Jú, keðjuverkun Poor standards verður sú að lánshæfnismat Frakklands og annarra baðdýra evrusvæðisins verður örugglega lækkað. Þetta er einkar heppilegt því um leið verða bankar baðdýranna lækkaðir í einkunn. Og þeir þurfa einmitt að fjármagna smá smotterís fimm þúsund og fjögur hundruð miljarða evrur af fjárskuldbindingum á næstu 24 mánuðum. 

Hvernig haldið þið að þetta evrópska bað endi? Sem sparnaðarorgía í baðkarinu hjá frú Merkel?
 
Ágústbréfið úr svitabaði herra Niels C. Jensen hjá Absolute Return Partners í Stóra Bretlandi er spennandi lesning - í gufubaðinu; Latest Absolute Return Letter
 
Ha? Hlutabréf að falla? Hvar?
 
Uppfært; Skuldatryggingaálagið á Þýskaland hækkaði í morgun upp fyrir Bretland í fyrsta skiptið í sögunni; FT
 
Tengt
 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband