Leita í fréttum mbl.is

Prófessor Max Otte; evran á 4-6 ár eftir ólifuð. Það verður gott fyrir Evrópu að losna við hana


Prófessor Max Otte var einn fárra manna sem sáu fyrir það fjármálahrun og þá efnahagskreppu sem skall á heiminum á árunum tveimur, 2007-2008.

 
Er þetta þá svona?

Innst inni vita flestir sem hugsa, að dagar evrunnar eru taldir. Hin pólitíska stétt veit þetta þó ekki, ennþá. Fyrir fimm mánuðum vissi stéttin heldur ekki að hún fengi eina helgi til að bjarga evrunni frá upplausn. Þetta gerðist í maí. Financial Times hefur skrifað ágætis þriggja greina seríu um björgunina. 

Það vefst hins vegar dálítið fyrir okkur, sem hugsum, hversu marga daga vil þurfum að telja niður til endaloka evrunnar. Prófessor Max Otte kom með ágætis boð; 4-6 ár. 

Fyrstu viðlagasjóðir til að mæta upplausn evrunnar eru þó komnir á sinn stað, þökk sé Bandaríkjunum.

Síðan vitum við það að Axel Weber seðlabankastjóri Þýskalands vill helst ekki starfið sem nýr bankastjóri seðlabanka Evrópusambandsins. Hann vill ekki starfið.

Þegar mestu og innilegustu áhugamenn og aðdáendur evrunnar, menn eins og Wolfgang Munchau, eru farnir að skrifa opinberlega að þeir sjái þetta gerast, og að þetta sé reyndar að verða óumflýjanlegt, þá er það nokkuð merkilegt. Svo ekki sé meira sagt. Það koma reyndar fram fleiri og fleiri hugsandi menn sem segja að evran VERÐI að fara.
 
Eftir, sem og áður, mun Seðlabanki Íslands og krónan okkar standa.  
 
Tengt efni
 
Fyrri færsla

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Minn litli haus er svosem ekki alveg að skilja þetta, en ef evran er ragbítur og að falli komin og ráðlegt fyrir jaðarþjóðir að hala í sína mynt til að hafa stjórn á eigin efnahag...stenur þá nokkuð eftir fyrir okkur annað en það sem við þegar höfum í efta? Fríverslunar og tollabandalag.

Hann segir að bandalagið geti samt þrifist þótt evran fari. Er hún ekki aðal pointið með bandalaginu. Miðstýrt efnahagskerfi?

Hann nefnir til frjálsa og óhefta verslun og tollmúraleysi, en einnig frjálst flæði vinnuafls, sem er jú ekkert annað en kúgunarverkfæri til að halda launum niðri en ekki eitthvað etnískt mál um fjölmenningu, eins og reynt er að selja fólki.  Akkúrat sá þáttur mun skapa óró og sveiflukenndan efnahag í öllum lönum. Fólk er nefnilega ekki bara ódýr eða dýr orka. Það eru hugsandi verur.  Í reikningsdæminu er samt litið á þetta þannig og það er stór feill. Menn sem benda á þetta eru kallaðir rasistar og þar með er málið útrætt.

Ég fæ ekki betur séð en að sameiginlegur seðlabanki, sem hagar vaxtastigi að kröfu hinna sterku herraþjóða án tillits til ástands hjá minni þjóðum, geti ekki gengið. Akkúrat þetta dilemma eru menn að glíma við nú. 

Ef hækkun stýrivaxta er framkvæmd til að balansera ástand hjá stóru þjóðunum, sem vel gengur og til að jafna amkeppnishæfni við restina af heiminum, þá sviðna hinar veikari þjóðir í jöðrunum.  Litlar lagfæringar í gengi eða vöxtum til handa þjóðverjum og frökkum þýða rússibanasveiflur hjá miðjarðarhafslöndunum t.d.  Sveiflur sem í núverandi ástandi geta gert útaf við þær.  Það er alveg öruggt að almenningur í löndum herraþjóðanna vill ekki greiða mismuninn til að hala þessu útópíska allsherjarjafnvægi. Hlaupa unir bagga, þegar efnahagsjústeringar til handa þjóðverjum setja Portúgala á hausinn t.d.

Ég get rétt ímynað mér ástand okkar og óvissu undir þessum kringumstæðum.

Fríverslunarsamvinnan nægir. Nýtt þriðjaríki er dauðadæmt.  Það er pípudraumur hinna stóru mógúla og bankstera.  Þeir hala að með "fjölmenningunni" nái þeir að koma á sweat shop vinnumarkaði til að keppa við Asíulönd.  Þeir gleyma því þó að ef allir væru með sömu lífskjör og Kínversk alþýða, þá væri enginn markaður til að erja.  

Evrópusambandið er dauðadæmd tilraun græðgisafla til að eignast aðeins meira en allt.   Hún stendur enn öllum til vansa vegna afneitunnar auðrónaaðals og pólitískra lénsherra, sem neita að sjá að þetta gengur ekki.  Einfalt bókhaldsdæmi raunar.

Þessa maskínu verður samt ekki hægt að stoppa fyrr en hún hendist fram af brúninni með tilheyrandi upplausn og hörmungum.

Ástæðan fyrir löngun Íslensks háskólaaðals þarna inn eru styrkir til þeirra og mútur.  Það er ekki flóknara. Allir aðrir sjá sjálfsmorð og undirgang 66 ára frelsis og fullveldis.  

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2010 kl. 07:22

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Afsakið "D" skort.  Sennilega er Brusselkvótinn á þann bókstaf að verða upp urinn.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2010 kl. 07:29

3 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Það væri nú ágætt að kynna fyrir þessum ágæta manni ástandið á íslandi, fyrst hann talar um að fólkið í Grikklandi sé að þjást, og spyrja þá hvort þá sé ekki uppálagt til að bæta kjör Grikkja með því að skera öll laun um 50% sem var sá skellur sem við tókum á okkur í gegnum krónuna.

Ég er nú ansi hræddur um að hann myndi þá draga þessa fullyrðingar um sjálfstæða gjaldmiðla aftur til baka. Ekki það að Þjóðverjar gætu ekki plummað sig vel með sína eigin mynt, auðvitað gætu þeir það og lifað vel, en það er annað mál með Grikkland og Ísland.

Jón Gunnar Bjarkan, 7.11.2010 kl. 07:32

4 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Svo má auðvitað bæta við þetta, þar sem ég sé að Nafni minn Steinar er að gleypa þetta, menn hafa verið að spá falli evrunnar alveg frá því henni var ýtt úr vör. Það eru alls kyns spekingarnar þarna út í heimi, þúsundir manna gefa færi á sér í viðtöl á hverjum degi. Ég get farið á netið núna og fundið 10 manns sem spá falli dollarans, flestir þeirra höfðu "spáð" fyrir kreppunni alveg eins og þessi maður, þetta eru pessimístískir "bears" eins og þeir kallast, alltaf svartsýnir. Ef þú ert svartsýnn nógu lengi þá kemur að því að þú verður hylltur sem messías.

Til að nefna nokkur nöfn sem spáðu fyrir kreppunni og eru fullvissir um algert hrun dollarans: Max Keiser(kom til íslands og spáði fyrir kreppunni), Peter Schiff(spáði fyrir kreppunni og fékk skammir fyrir), Marc Faber, Jim Rogers. Allt fjármálasérfræðingar sem eru handvissir um fall dollarans. Reyndar eru spámenn um fall dollarans í töluvert meira framboði en spámenn um fall evrunnar.

Jón Gunnar Bjarkan, 7.11.2010 kl. 07:45

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jón Gunnar, ígildi Jóns Frímanns:  Hér hafa laun hrunið vegna gengishruns rétt eins og í Grikklandi. Þar hafa laun að auki verið lækkuð í tvígang með tilskipunum. Ekki gengislækkun heldur bein og meðvituð lækkun.  Ertu að ná þessu?

Grískir launþegar eru nú að verða búnir að éta upp sparifé sitt til að standa undir lífsnauðsynjum.  Ástandið þar er margfalt verra en hér í raun. Atvinnuleysi meira og stefnir í algert svartnætti, hvað sem menn reyna að  sporna við og hagræða tölum með handafli, til að fegra myndina.

Þú veist akkúrat ekkert hvað þú ert að tala um, enda sýnist mér á öllu að þú lesir ekkert annað en dogma Evróputrúboðsins.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2010 kl. 08:28

6 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Já ég er að ná þessu vinur. Hvaða heimildir hefurðu fyrir því að laun hafi verið lækkuð í Grikklandi og hversu mikið voru þau lækkuð, hér ertu þá væntanlega bara að tala um opinber laun því gríska ríkið getur ekki lækað laun á frjálsa markaðnum Hvaða heimildir hefurðu svo fyrir því að Grikkir séu að "éta" upp sparifé sitt, samkvæmt venju draga esb andstæðingar svona fullyrðingar út úr rassgatinu á sér, ertu með einhverjar heimildir fyrir þessu?

Það eina sem ég hef heyrt um aðgerðir í launamálum í Grikklandi er að laun opinberra starfsmanna standa í stað.

Mig minnir að atvinnuleysi í Grikklandi sé 9-11%, hefur rétt hækkað í kreppunni á meðan atvinnuleysi hefur margfaldast hérna. Skuldir þessara tveggja ríkja og fjárlagahalli eru mjög svipaðir(eini munurinn er að íslenska ríkið var nánast skuldlaust fyrir kreppu) svo við erum að fara í svipaðar aðgerðir hvað varðar skatthækkanir og niðurskurð. Samdráttur okkar hefur verið meiri, og Grikkir hafa á seinustu 20 árum haft miklu hraðari hagvöxt en íslendingar svo þeir ættu að eiga nokkuð auðveldara með að ráð við skuldirnar.

Hvað er svona rosalega svart við ástandið sem þú sérð ekki hérna á Ísland? 

Það er nú samt gott að mestur rembingurinn er farinn úr ykkur esb andstæðingunum, ekki eruð þið núna of góðir til að miða Ísland við Norðurlönd, helst viljið þið miða okkur við Litháen, Ungverljand and Líbanon. 

Jón Gunnar Bjarkan, 7.11.2010 kl. 08:55

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Einhverjum hér virðist vera illa við ESB andstæðinga. Hér held ég að engum sé illa við ESB en hinsvegar vil ég ekki fara í bandalag vegna þess að ég vil vera sjálfstæður og lifa í sjálfstæðu ríki sem rífst um sín eigin mál innbyrðis enda ekkert annað að gera í skammdeginu. ESB er á hausnum það vita allir. Mér datt í hug að leita uppi hverjar auðlindir þeirra eru þ.e. ESB ríkjanna. Það datt alveg af mér andlitið en þær eru nánast engar fram yfir sjálfsþurftar búskap svo datt ég niður á Fact sheet frá CIA og þar kemur fram að þeir eru svo skuldum vafðir að það er bara hátíð hér á Íslandi miðað við þá. Mér er sama hvaða gylliboð (sem þeir munu gera) sem þeir munu koma með inn vil ek ekki. ESB fékk trilljón dollara lán hjá AGS sem ég vil ekki borga þegar lengra er haldið.

Valdimar Samúelsson, 7.11.2010 kl. 12:12

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ekkert merkilegt hér en þetta lán var miðsumars á þessu ári.

http://skolli.blog.is/admin/blog/?entry_id=1113749

Valdimar Samúelsson, 7.11.2010 kl. 12:16

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Blessaður, googlaðu þetta sjálfur Jón. Laun voru fryst yfir línuna í febrúar og skattar hækkaðir.  Laun voru svo lækkuð hjá opinberum starfsmönnum og fleirum í sumar og síðan með lögjöf yfir línuna í september.  Af hverju heldur þú að óeirðirnar hafi verið á þessum tímapunktum? Af því að fólki fannst það hafa það of fínt?

Grikkir eru með lægri laun en 70% evrópubúa nú, en hafa sama verðlag og í bretlandi, þökk sé EU. 

Þig má minna hitt og þetta um statistík. Atvinnuleysi náði 10% markinu í Febrúar og skreið yfir 12% í ágúst og allt er á fótskriðu fjandans til.

Að þú skulir kvarta yfir að við berum okkur við hina verst settu nú er eins arfavitlaust og allur þinn málflutningur og langlokur.  Væri það vænlegra að bera ástanið við hinar sterkustu?  Litum við þá ekki út eins og ræflar í samanburði?   Það vill annars svo furðulega til að samanburðurinn, sem er marktækur og hæfir okkar stöu er einmitt meðal atkvæðalítilla jaðarþjóða innan evrópusambandsins, þótt þér þykir það óþægilegt. Face it og reyndu svo að lesa eitthvað annað en spunann frá third reich II.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2010 kl. 14:29

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég ráðlegg þér annars að hafa samband við Max Otte og leiðrétta hann. Það væri sannarlega þakkarvert fyrir evrópubúa ef þú rækir þessa vitleysu ofan í hann. Hver veit nema að þín bíði frami í Brössel fyrir vikið.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2010 kl. 14:41

11 Smámynd: Ívar Pálsson

Gunnar, hafðu þökk fyrir góða færslu og myndband sem kveikir í hverri hugsandi manneskju. Jaðar- Evran verður líklegast til, enda vill fólk núna t.d. skipta út írskum Evru- seðlum fyrir þýska Evru seðla þótt þeir eigi að heita sami hluturinn.

Ívar Pálsson, 7.11.2010 kl. 17:47

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið 

Jón Steinar segir: Hann nefnir til frjálsa og óhefta verslun og tollmúraleysi, en einnig frjálst flæði vinnuafls, sem er jú ekkert annað en kúgunarverkfæri til að halda launum niðri en ekki eitthvað etnískt mál um fjölmenningu, eins og reynt er að selja fólki.  Akkúrat sá þáttur mun skapa óró og sveiflukenndan efnahag í öllum lönum. Fólk er nefnilega ekki bara ódýr eða dýr orka. Það eru hugsandi verur.  Í reikningsdæminu er samt litið á þetta þannig og það er stór feill. Menn sem benda á þetta eru kallaðir rasistar og þar með er málið útrætt.

 

 

Það er erfitt að segja þetta skýrar. Þetta er hinn nýi undirklassi Evrópu. Fólkið á vegunum í Evrópu. Eitt, einangrað, frústreað og úr öllu sambandi við sitt nánasta umhverfi. Miklu heiðarlegra væri að reisa bara þrælabúðir. En best væri þó að fólk ynni heima hjá sér á lágum launum því það myndi að minnsta kosti gagnast í eigin þjóðfélagi og laun myndu með tímanum batna. En með atvinnu-flóttamannaaðferðinni batna þau hins vegar aldrei.

Þess utan: hver segir að þessi þjóðfélög hafi efni á að láta ræna frá sér sínu duglega fólki. Þetta er eiginlega dulbúið Tyrkjarán.

Landamæri þjóða gilda einnig fyrir menningu þeirra. Innrásir eru innrásir, sama hvort þær eru gerðar með skriðdrekum, orðum eða pennastrikum. Þessi landamæri útiloka þó alls ekki góða samvinnu geri menn sér grein fyrir mun á menningarheimum.

Góðar kveðjur  

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2010 kl. 20:14

13 Smámynd: Halldór Jónsson

"Sheer lunacy" segir Max Otte um að allir hafi evruna. Össur  lofar atvinnuuppbyggingu á Íslandi þegar það er gengið inn í EU og búið að sækja um evruna?

Er ekki eitthvað nafnorð sem er dregið þessu orði sem Otte notar sem lýsir þá stjórnmálamanninum  Össuri úr því hann aðhyllist þessa stefnu sem Otte er að lýsa á bandinu? Ég er ekki svo góður í útlendunni að ég geti munað það rétt. Þú hjálpar mér kannski Gunnar? 

Halldór Jónsson, 8.11.2010 kl. 00:11

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Halldór.

Alveg sjálfsagt að hjálpa; orðið er EMU-LUNATIC. EMU er skammstöfun sem stendur fyrir The European Monetary Union 

The lunatic is on the grass

The lunatic is on the grass

Remembering games and daisy chains and laughs

Got to keep the loonies on the path

The lunatic is in the hall

The lunatics are in my hall

The paper holds their folded faces to the floor

And every day the paper boy brings more

And if the dam breaks open many years too soon

And if there is no room upon the hill

And if your head explodes with dark forbodings too

I'll see you on the dark side of the moon

The lunatic is in my head

The lunatic is in my head

You raise the blade, you make the change

You re-arrange me 'till I'm sane

You lock the door

And throw away the key (EMU) 

There's someone in my head but it's not me.

And if the cloud bursts, thunder in your ear

You shout and no one seems to hear

And if the band you're in starts playing different tunes

I'll see you on the dark side of the moon

Brain Damage lagið er hér

 

Gunnar Rögnvaldsson, 8.11.2010 kl. 01:23

15 identicon

Í öðru viðtali segir hann að gengi dollars sé of hátt.  Hann segir að það sé engin innistæða í USA fyrir svona háu gengi dollars gagnvart Evru.

Max Otte virðist ekki alveg vita hvar hann stendur.

Hér er viðtalið.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 06:59

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Stefán

Jahá. En ég veit hvar þú stendur Stefán. Þó svo að Angela Merkel segði þér það sama og Max, þá myndir þú getað gert hana tortryggilega með því að benda á eitthvað sem hún sagði áður. Og þú myndir gera það. Fyrir þér er þetta allt saman leikur. 

En þú manst kannski ekki eftir því Stefán, enda liðnir tveir heilir sólarhringar, að ég benti þér á að gengi Þýskalands væri allt of lágt. Það væri falsað í gegnum evruaðild Þýskalands (sjá; hér). Það gerir gengi Bandaríkjadals of hátt. Það er því vel hugsanlega rétt sem Max segir.

Það undrar mig enn að þú skulir halda áfram að kommenta efnahagsmál, svo fullkomlega clueless sem þú ert um þau.  

Gunnar Rögnvaldsson, 8.11.2010 kl. 09:41

17 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Sælir drengir, hafði ekki tíma til að blogga sl tvo daga og stekk því inn í þetta núna.

Já, Jón Steinar. Þetta var einmitt eitthvað sem ég bjóst við, ekki mikið um heimildir fyrir þessu hjá þér. Eins og ég segi, ég hef ekkert heyrt af neinu í launamálum í Grikklandi nema það að laun opinberra starfsmanna standa í stað. 

Nú er ég ekkert að gera lítið úr því að fólk er mótmælum Grikkja gegn niðurskurði og skattahækkunum en þeir eru að taka smá skell miðað við það sem íslendingar eru að taka á sig. Heil þjóðarframleiðsla af skuldum lagðist á ríkið út af okkar kreppu, atvinnulausi jókst um mörg hundruð prósent og fólk tók 50% launalækkun. Svo þetta sé nú ekki nógu slæmt fyrir, þá var slengt mörgum tugum milljóna aukinni skuldabyrði á stóran hóp þjóðarinnar sem var með erlend lán og íslensku lánin hafa væntanlega hækkað um 30% á aðeins tveim árum. Þetta eitt og sér myndi gjörsamlega umturna Evrópskum almenningi þar sem þeir mundu aldrei sætta sig við að vera settir í slík skuldafangelsi. Það er framandi öllum Evrópuþjóðum nema íslendingum að greiða samviskusamlega af húsnæðisláni í 15 ár og sjá höfuðstælinn hækka með hverju árinu, alveg furðulegt fyrirkomulag.

Það væri gaman að sjá svart á hvítu hvað kreppan hefur kostað hverja íslenska fjölskyldu og svo hvað hún hefur kostað hverja Gríska Fjölskyldu. Kostnaður hverrar íslenskrar fjölskyldu hleypur á mörgum milljónum en í raun er fylgir Grísku kreppunni enginn kostnaður, skuldir grikklands eru ekkert að aukast, lán þeirra eru ekkert að hækka og þau eru ekki að taka neinar launalækkanir á sig(ja ég segi ekki neinar launalækkanir þar sem ég hef ekki séð neinar fréttir um það og í fljótu bragði finn ég ekkert um það á netinu). 

"Væri það vænlegra að bera ástanið við hinar sterkustu?  Litum við þá ekki út eins og ræflar í samanburði?" Ja það myndi sýna aðeins meira metnað fyrir íslands hönd ekki satt, en jú jú við myndum auðvitað ekki koma vel út úr því enda okkar nágrannar í Norður Evrópu lang ríkustu þjóðir í heimi, ásamt kannski Kanadamönnum.

Jón Gunnar Bjarkan, 9.11.2010 kl. 06:08

18 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Það er alveg rétt Valdimar Samúelsson að sumum(og þá ertu væntanlega að vitna í mig) hér sé illa við andstæðinga ESB, ekki svo að skilja að mér sé illa við fólk sem vill ekki ganga í ESB, það er þá bara þeirra skoðun og ekkert meira um það að segja.

En mér er mjög illa við það föruneyti bloggara hér á mogganum sem kerfisbundið bera lygaáróður gegn ESB. Að halda því fram að þetta fólk sé ekki á móti ESB eins og þú segir er auðvitað brandara líkast, þessu fólki er meinilla við ESB og Evrópu og alveg ljóst að það vill sjá farir beggja sem verstar á öllum sviðum. Þetta er fólk sem úttalar sig upphrópunarstíl með fordómum og kreddum um ESB og Evrópu, ekki þarftu að fara langt, her að ofan er labbakúturinn Jón Steinar eitthvað að röfla um third reigh II. Allskyns rugl veltur út úr þessum mönnum um kommúnisma, einræðisríki, nýlenduveldi, nasisma og þaðan af verra og hlýtur maður að hafa fulla viðurstyggð og fyrirlitningu fyrir slíku fólki.

Út af einhverjum ástæðum þá gjörsamlega slefa þessir sömu bloggarar af aðdáun út í Bandaríkjamenn út af einhverjum ástæðum. Nú er til dæmis mál í fréttunum varðandi það að Bandaríska sendiráðið stundi njósnir hér á landi og hafi fengið Securitas til að rannsaka ruslið hjá nágrönnunum, manni þætti gaman að sjá hver viðbrögðin hefðu verið hér á blogginu ef ESB hefði staðið fyrir þessum njósnum. 

Varðandi punktana þína.

Þú segir að ESB sé á hausnum, og bætir reyndar svo við að það viti allir. Þessi fullyrðing talar fyrir sig sjálf enda er hún fráleit.

Varðandi tölur CIA world fact book. Í fyrsta lagi þá er þessi "fact" book rekinn á CIA sem veigra sér lítið við að myrða og pynta fólk út í heimi hvað þá að breyta einhverjum tölum hérna eða þarna. Það er til dæmis alþekkt hvernig þeir nota ekki hagtölur heldur spá um(estimation) um hagvöxt og þjóðarframleiðslu, og reyndar þegar árið er liðið og þeir hafa raunverulega þjóðarframleiðslu og hagvöxt, þá birta þeir ekki tölurnar heldur halda spánni inni. Ég gerði einhvern tímann skjóta úttekt á þessum spám, annarsvegar á hagvaxtarspám og framleiðsluspám á höfðatölu(GDP per capita) nokkurra evrópuríkja og bandaríkjanna. Fór aftur 5 ár lagði saman prósentutölur fyrir hagvaxtar tölurnar, tók svo framleiðslutölurnar og bar þær saman eftir þessu fimm ár. Það þarf engann að undra að hagvaxtarspá Bandaríkjanna var langtum jákvæðari en framleiðsluspáin gaf til kynna. Allar Evrópuþjóðirnar höfðu aukið töluvert meira við GDP per capita en USA, meira segja Frakkland. Danir voru til dæmis alltaf með töluvert lægri hagvaxtarspá en USA en samt juku þeir við GDP per capita miklu meira. Pólland var síðan með eitthvað um 3 falda hækkun miðað við USA.

Ísland er ein allra skuldsettasta þjóðin í Evrópu, bara svo það sé á hreinu, fyrst þér finnst svo mikil hátíð í því fólgin. Það er alger óþarfi fyrir þig að leita til CIA til þess að vita það, þetta hefur margoft verið reiknað á íslandi undanfarin 2 ár. Það er hinsvegar hægt að reikna skuldir á 100 vegu sem allar geta gefið mismunandi mynd. En vegna þess að þú hefur mikinn áhuga á skuldum þjóða, þá er hér grein fyrir þig frá virtum hagfræðingi um raunverulega stöðu USA, sumsé verri en í nokkru ESB ríki:

http://www.theglobeandmail.com/report-on-business/commentary/neil-reynolds/the-scary-actual-us-government-debt/article1773879/ 

Jón Gunnar Bjarkan, 9.11.2010 kl. 07:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband