Leita í fréttum mbl.is

Þjóðstjórnin, sem ekki varð

Íslenskir ESB-aðildarsinnar —fyrst og fremst— ruku upp til handa og fóta er aðalbankastjóri Seðlabanka Íslands, sem kallaður hafði verið á fund ríkisstjórnar Lýðveldisins, leyfði sér í krafti langrar og dýrmætrar reynslu, að impra á möguleikanum á þjóðstjórn til að ráða við það efnahagslega fárviðri sem hlaust að vítaverðum rekstri yfirmanna fjármálastofnana í misþyrmdri einkaeigu. Betur hefðu þingmenn hlustað og tekið eftir, því enn eru þeir heyrnarlausir og jafn umboðslausir og áður í ESB-umsóknarmálinu, sem frá illræmdu upphafi hennar er opinber skömm og stjórnarfarslegt skemmdarverk á Lýðveldinu

Hvernig má það vera að þetta ESB-fólk, sem hrópaði svo hátt, lætur sér vel líka að aðalbankastjóri ECB-seðlabanka Evrópusambandsins ávarpi einstaka þingmenn stærstu aðildarlandanna á einkafundum og lofi þeim hinu og þessu í peningamálum undir fjórum augum. Að aðalbankastjóri ECB-seðlabanka Evrópusambandsins stundi stjórnmál og haldi pólitískar ræður heima og erlendis eins og að um ókjörið konungsvald miðalda og annan reiðmann einræðis Evrópu síðustu aldar væri að ræða. Algerlega án nokkurs umboðs af neinu tagi og þverbrjóti þar með alla þá sáttmála og starfsreglur sem ECB-seðlabanki 14 landa var opinberlega sagður hvíla á. Og þetta kemst allur sá seðlabanki út í gegn margítrekað upp með, sé aðildarland reykfylltra bakherbergja nógu stórt

Þetta er 50 ára pólitísk villimennska Evrópusambandsins í hnotskurn. Í umboðslausa elítuverk það sækir elítan

Fyrri færsla

Frakkar hættir að hugsa - gera eins og þeim er sagt 


Frakkar hættir að hugsa - gera eins og þeim er sagt

Ný-þýsku meginlandi Evrópu hefur þegar eftir útýttri Margréti Thatcher —fyrir tilstuðlan ERM elítu Bretlands— tekist að fá Frakka til að hætta að hugsa. Og það sem meira er, ný-þýskt meginland Evrópu hefur stubbað sér þannig fyrir í hinum gamla öskubakka meginlandsins, sem nú ber heitið ESB, að einnig því hefur meira að segja tekist að segja Frökkum hvað þeir eigi að gera

Námskeið eru nú haldin fyrir forseta Frakklands. Á þau mætir hann á skellinöðru svo að Mercedes Schroeders námskeiðshaldara fái stöðumælendasekt sínum parkerað korrekt við Élysée

Vakúmvél Mið-Evrópu, Þýskalandi, væri vel hugsanlega hægt að þrýsta lengra til sjávar de Gaulles í vestri nú, myndi Pútín hugsa, væri hann ég. Að minnsta kosti þoka því svona eins og nemur einni Króatíu plús Slóveníu, til að byrja með. Því lengra frá Úralfjöllum de Gaulles í austri, því betra

Þetta myndi fá Grosswirtschaftsraum Deutschlands, það er að segja Evrópusambandið AG, til að krefjast að vakúmvél þess í miðri Evrópu yrði loksins blásið í gang á ný

Þeir galningar sem krefjast þess að Ísland verði rykmaur í ryksugupoka Grosswirtschaftsraum Deutschlands, ættu að leita sér aðstoðar við gegn köfnun sem fyrst

Fyrri færsla

Skrúfað fyrir vatnið


Skrúfað fyrir vatnið

Greinin í Morgunblaðinu sem þessi bloggfærsla er tengd, er því miður of grunnhyggin. Málið er dýpra og flóknara en svo að hægt sé að afgreiða það með tilvísan í "þjóðrembu"

Nú berast fréttir af því að yfirvöld í Úkraínu hafi skrúfað fyrir 70 til 80 af hverjum 100 lítrum af neysluvatni sem neytt er á Krím. Hver gerir svona nema fyrirfram brjálaðir menn? Þetta sem átti að vera "eitt og sama fólkið", að þeirra sögn. Þetta er forherðing og stigmögnun; e. escalation

Hrun Sovétríkjanna var eitt, en afleiðingar þess í nútímanum fyrir Rússland, eru allt annað. Rússland mun óhjákvæmilega leitast við að gera við og rétta út gömlu stuðara landsins (buffer-zones), sem taka eiga höggin er koma mættu frá útlandinu. Þessi stuðari er eldra fyrirbæri en hin sálugu Sovétríki - og er ekki nátengdari þjóðrembu en landamæri og landfræðilegir stuðarar annarra ríkja eru, og í þetta skiptið, ekki nærri náttengd hinni fölskvalausu evrópumennisrembu Evrópusambandsins

Aldrei hefur leiðin fyrir brjálaða menn á leið til Moskvu verið eins stutt frá útlöndum og hún er nú. Það eitt hefði fyrir langa löngu átt að hringja öllum viðvörunarbjöllum hjá valdhöfum í Vestur-Evrópu. En þar er bara steinsofið í tímanum og hver minnsti vottur af umhugsun er samstundis seldur á útsölum fyrir ekki neitt

Hefst nú löng og ströng gönguferð Evrópu á heimagerðum jarðsprengjum

Fyrri færsla

"Overblown"

Tengt


mbl.is Á baki þjóðrembudýrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Overblown"

Er evran var sjósett sem mynt og sett í umferð, þá þrútnuðu sívælandi níu rúgbrauðslúðrar ESB-elítunnar út og kynntu þetta fyrirbæri sem galdrapening sem lækna átti veginn til friðarins, sem elítan var þegar að byrjuð að ryðja burt. Peningurinn evra hefur nú reynst íbúum Evrópu verri en gallsteinar

Spáin um hvernig umhorfs yrði í Evrópu eftir reiðtúr evrunnar yfir álfuna í tíu ár, reynist hjómið eitt miðað við þær staðreyndir sem nú blasa við íbúum myntsvæðisins

Gagnrýnin varð raunveruleikanum ekki sterkari. Það sem hins vegar reyndist svo gersamlega overblown er einmitt það ástand sem við blasir á myntsvæðinu í dag. Enginn hefði trúað því að hægt væri að leggja svo mikið í rúst á svo skömmum tíma. Enginn

Fyrri færsla

Myntbandalag ESB: "bæði sorgleikur og glæpur" 


Myntbandalag ESB: "bæði sorgleikur og glæpur"

Europe 1914 vs. Monetary Union Today
 
Bernard Connolly birti í haustútgáfu tímaritsins International Economy grein undir yfirskriftinni: "Evrópa 1914, og hins vegar, myntbandalag Evrópusambandsins í dag"

Munurinn á þessum tvennum atburðum í sögu Evrópu er sá að heimsstyrjöldin fyrri var sorgleikur en ekki glæpur. "Myntbandalag Evrópusambandsins er hins vegar bæði sorgleikur og glæpur"
 
Hér mál lesa greinina sem PDF-skrá

Reyndar ætti ekki að þurfa að kynna Bernard Connolly fyrir Íslendingum. Hann er einn af þeim fyrstu sem sá hvaða raunverulegu hvatir lágu að baki bæði tilurð ERM og sköpun myntbandalags Evrópusambandsins og þær ömurlegu afleiðingar sem bæði fyrirbærin myndu og hafa samanlagt nú þegar kallað yfir meginland Evrópu. Hann var fulltrúi Bretlands hjá ESB þegar Evrópusambandið hóf byggingu myntbandalagsins. Efa ég að um víða veröld finnist einn maður sem hefur meiri þekkingu á öllu því er tengist Evrópusambandinu, stjórnarfari, stjórnmálum og efnahagsmálum þess, í langri óheillasögu meginlandsins

Þeir sem hafa ekki lesið Hringur úr gaddavír, e. Circle of Barbed Wire eftir Bernard Connolly, geta gert það á heimasíðu Bryggjuhópsins með því að smella á krækjuna

Hér er nýlegt viðtal við Bernard: En hvað nú ef þeir eru ekki geðbilaðir?
 
Fyrri færsla
 

ESB-aðild Spánar hefur rústað vegakerfi landsins

Nú segja vegamálamenn Spánar að vegakerfi landsins sé í sínu versta ásigkomulagi frá því að Spánn gekk í Evrópusambandið 1986. Þá var sambandið skammstafað EEC. Reyndar er ástand vegakerfisins nú það versta síðan AEC hóf skýrslugerðir um vegamál landsins árið 1985. Atvinnuleysi á Spáni eftir 28 ára aðild að Evrópusambandinu mælist nú 25,6 prósentustig

Það sem einkennir aðildarferli landa að Evrópusambandinu er að við inngönguhlið þess hefjast aðlögunar-limlestingar og sundurskrúfun þjóðríkisins á því að taka ríkisfjármálin kverkartaki þar til bláminn vegna köfnunar hefur drepið hið þjóðbernska afl þjóðríkisins; e. natal energy

Svo þegar því hefur verið kálað er landinu af afglapaveldi Evrópusambandsins ýtt inn í ERM-II pyntingarklefa evrusvæðis (óskabarn ASÍ) þannig að úr verði krypplingur sem gengur alfarið fyrir brusselsku handapati ríkisfjármála

Því með ERM-II er gírkassinn óafturkræft tekinn úr hagkerfinu þannig að einu hagstjórnartækin til umráða verða umlin sem koma frá köfnuðum stjórnmálamönnum upp í gegnum líkkistulok ríkissjóðs, undir oki Maastrichts, sem þegar á 20 ára afmæli sáttmálans er orðinn sú volga gróðurmold 1930-ástandsins sem nú rýkur úr á meginlandi Evrópu. Þar gengur allt samkvæmt áætlun til helvítis

Þeir sem aðhyllast ESB-aðild ákalla hagstjórn Sovétríkjanna; ríkisafskiptin og ekkert nema ríkisafskiptin; Vegakerfið til Sovétríkisins

Krækja; Spain’s roads currently in worst condition since 1985, says new study (El País) 

Fyrri færsla

Hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar


Hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar

"Það getur ekki verið að þeim standi á sama"

Styrmir Gunnarsson á Evrópuvaktinni veltir fyrir sér þrá og afstöðu forystu verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu, sem, eins og hann orðar það, "er óskiljanleg"

Þessi afstaða hennar er mér ekki óskiljanleg. Það er hún ekki því að Evrópusambandið er allra tíma stærsta musteri massífs atvinnuleysis og hnignunar í Evrópu áratugum saman. Þangað laðast öfl eins og þessi, því ömurlegt ástand treystir tilverugrundvöll valda hennar. Helsta markmið svo nefndrar verkalýðsforystu í dag er að viðhalda sjálfri sér og völdum hennar. Henni stendur nú orðið á sama um flest annað en tilhrifsuð völd

Ekkert hefur verið eins slæmt fyrir atvinnuástandið og efnahagslegar framfarir í Evrópu og valdhrifsun Evrópusambandsins. Í dag hefur Evrópusambandinu meira að segja tekist að endurskapa 1930-aðstæður á meginlandi Evrópu. Hver hefði trúðað því er Margrét Thatcher lét af völdum; Að Þýskaland réði þegar yfir meginlandi Evrópu á ný árið 2013, er frú Thatcher lést

Svarið við spurningu Styrmis er því miður að miklu leyti þetta:

Ástæðan fyrir því að verkalýðsforystan á Íslandi berst fyrir innlimun Íslands í Evrópusambandið er sú hin sama og þegar verkalýðsforystan aðhylltist Sovétríkin, sem hún gerir jafnvel enn, því enn steytir hún þann kreppta hnefa framan í þjóðríki okkar (e. the Nation-State)

Verkalýðsforystan hefur frá upphafi aldrei þolað þjóðríkið sem verandi þá fremstu manngæskuberandi stofnun mankynssögunar sem það er. Og allra síst hefur hún þolað sterkar stofnanir þjóðríkisins á borð við lögreglu, ríkislögreglu og dómstóla. Áður fyrr og áratugum saman voru þessar stofnanir þjóðríkisins hótun við framvindu alþjóðlegrar byltingar sósíalista og kommúnista í anda glæpagengis kommúnista Sovétríkjanna og leppríkja þeirra

Í dag hefur verkalýðsforystan neyðst til að afskrifa möguleikann á því að komast fyrir eigin afli til valda innanfrá í þjóðríkinu með aðstoð byltingar sem kollvarpað gæti þjóðríkinu sem hinni fremstu manngæskuberandi stofnunar þjóða

En svo heppilega vill nú til að nýtt fyrirbæri í anda gömlu Sovétríkjanna er upprisið og sem verkalýðsforystan álitur að hún innan þess geti stigið til metorða og frekari valda. Og í leiðinni gæfist henni kostur á að útþynna eða jafnvel útrýma þjóðríkinu og stofnunum þess samkvæmt hinum gamla draum um alræði hennar í glæparíkinu á borð við Sovét. Þetta fyrirbæri nefnist Evrópusambandið í hinni gömlu og útjöskuðu Evrópu. Og sem laðar til sín andlýðræðisleg öfl eins og mý að mykjuskán

Svo einfalt er svarið það: hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar er þessi. Alveg á sama hátt og hin leynda dagskrá verkalýðsforystunnar í heimsstyrjöldinni síðari í Evrópu var sú, að styrjöldin myndi brjóta upp og undirbúa jarðveginn fyrir byltinguna sem hægt yrði að koma á er þjóðríkið lægi sem sundursprengd stærð og volg gróðurmold handa þessum öflum til að planta sér í. Þetta var martröð allra sannra andspyrnuhreyfinga í Evrópu; þ.e.a.s sósíalistar og kommúnistar innan hennar með þessa leyndu dagskrá. Þessi leynda dagskrá verkalýðsforystunnar er í ætt við falschfahrer er nú kallar sig "Já Ísland"

Verkalýðsforystuna ber ekki lengur að líta á sem sanna verkalýðsforystu, heldur fyrst og fremst sem óheillavænlega blöndu af ábyrgðarlausu ólögmætu pólitísku afli af elítutagi. Og sem jafnvel ennþá, árið 2014, getur reynst hættulegt sjálfri tilvist þjóðríkis Íslendinga. Þessi vellaunuðu elítuöfl skáka nú í skjóli ASÍ

Fyrri færsla

Finnland stefnir í skipbrot í evrum


Finnland stefnir í skipbrot í evrum

 

Atvinnuleysi í Finnlandi frá 1959 til 2014

Mynd, Trading Economics; Atvinnuleysi í Finnlandi frá 1959 til 2014

Lars Christensen fjallar um evruríkið Finnland á heimasíðu sinni. Finnland hefur nú misst helsta fjöregg eins fyrirtækis í landinu er Nokia nefnist. Hvorki Evrópusambandsaðild né evruupptaka Finnlands getur enduruppfundið hið glataða fjöregg Nokia

Þetta áfall og óöryggi sem dunið hefur yfir launþega og heimili landsins hefur nú læst klóm sínum um háls finnska hagkerfisins (e. widespread idiosyncratic shock). Það er smám saman að farast. Og þessa köfnun er ekki hægt stöðva með aðstoð evrunnar og aðild landsins að ESB —þvert á móti— því að á síðasta uppgjörsári greiddi Finnland 1,7 miljarða evra nettó til Evrópusambandsins í Brussel. Aðildin að ESB og upptaka evru hefur ekki fært landinu neitt nema óafturkræf massíf óleysanleg vandamál

Samdráttur í landsframleiðslu Finnlands árið 2009 er hin alþjóðlega fjármálakreppa skall á varð svo hrikalegur vegna evruaðildar landsins að hann náði níu prósentustigum af landsframleiðslu, sem svarar til reksturs eins heilbrigðiskerfis. Þetta er mesti efnahagslegi samdráttur sem orðið hefur í Finnlandi síðan 1918

Fullveldi Finnlands í peningamálum hvarf algerlega og óafturkræft með evruupptöku ásamt stórum hluta fullveldis landsins yfir utanríkis- efnahags- og viðskiptastefnu er hvarf með ESB-aðild landsins 1994

Eins og að ESB-aðildin og upptaka evru og dauði Nokia væru ekki nóg af áföllum fyrir Finnland, þá lítur út fyrir að nýtt stórt áfall —e. asymmetric shock— sé að leiðinni yfir landið er nefnist; kreppa í Rússlandi

Lars Christensen segir að Finnland standi í þetta skiptið varnarlaust gegn nýrri kreppu í Rússlandi því í þetta skiptið á Finnland enga mynt sem það getur látið falla til að mæta áföllum og súgþurrkun eftirspurnar og skattatekna frá og í Finnlandi. Horfurnar fyrir Finnland eru því þær að landið mun þurfa að búa og sætta sig við miklu minni efnahagslegar framfarir, hagvöxt og velmegun en frjáls lönd geta búið við, um langa ókomna framtíð, er evran dag og nótt vinnur skemmdarverk sitt á Finnlandi til langframa

Atvinnuleysi í Finnlandi hefur nú lagt sig fast á ESB-hæðum, eða eurosclerosis, það er að segja á skelfilegum 7-10 prósentustigum í venjulegu ESB-árferði. Hvert skyldi þá ný rússneskt kreppa ofan í dauða Nokia fara með Finnland? Líklega til hins þriðja heims evrulanda

Á meðan, eða frá 1969, heldur álverið í Straumsvík viðstöðulaust nótt sem nýtan dag áfram að mala gull inn í hagkerfi Íslendinga. Þjóðhagslegt mikilvægi þess má bera saman við það nettó þjóðhagslega mikilvægi sem Nokia hafði um tíma fyrir efnahag Finnlands

Krækja; Currency union and asymmetrical supply shocks – the case of Finland (Lars Christensen)

Fyrri færsla

Evran ER mynt Evrópusambandsins, það er sænska krónan ekki

Tengt


Evran ER mynt Evrópusambandsins, það er sænska krónan ekki

Vegna þess hversu Ísland er opið og alþjóðlega vel tengt, var það aðnjótandi heimsóknar François Heisbourg hina síðustu daga

Heisbourg er menntaður í Ecole Nationale d’Administration skólanum —sem upphaflega var gæluverkefni Charles de Gaulle— og sem Stalínistinn Maurice Thorez kom á laggirnar eftir að hann hafði dvalið í Moskvu Sovétríkjanna árin sem fósturjörð hans Frakkland var hernumin, eyðilögð og plundruð af Nasistum í of ákafri samvinnu við París

Sovétríkin áttu fyrsta flokks skóla sem hámenntuðu skriffinna í beinum sem óbeinum manndrápum út í morðótt nomenklattúruveldi Jósefs Stalíns um hin gjörvöllu Sovétríki hans. Og Frakklandi vantaði nauðsynlega skóla sem skrifað gætu út hámenntaða skriffinna er tekið gætu til hendinni og hannað bjúrókratíska innviði Frakklands og Evrópusambandsins. Er styrjöldinni lauk snéri Maurice Thorez heim með uppskriftina að Ecole Nationale d’Administration í ferðatöskunni. Birtist hann einnig sem andlit á sovésku frímerki og rann því beint inn í ríkisstjórn Frakklands er heim var komið

Það sem einkennir X-énarque-elítu-setulið Frakklands eftir umskólun í Ecole Nationale d’Administration, er það, að þessi franska X-elíta er næstum hvergi í veröldinni samkeppnishæf nema einmitt í miðborg Parísar. Aðeins þar þrífst hún vel. Sést það best á því að Frakkland liggur af Xinu sérhannað til örendis flatt undir þeirra þurru fótum. Og það þrátt fyrir að næstum öll hár á höfðum Frakka liggja sem sovéskt-þrædd til miðborgar Parísar. Þar er í þau haldið með miðstýringu X-setuliðsins sem sendir um þau merkin 0 eða 1 eins og að um handfléttað RAM væri að ræða. En samt gengur ekkert. Og það þrátt fyrir þá evru-mynt sem X-énarque-elítu-setulið Frakklands kom á í landinu undir forsæti Mitterrands

Svo sorglegt sem það er, þá er Frakkland að sökkva í evru-myntinni sem þeir kröfðust og óskuðu sér svo heitt. Það er að segja; sem X-énarque-elítu-setulið Frakklands krafðist og óskaði sér svo heitt. Dýrðardagar Frakklands á 5-7. áratugum síðustu aldar eru liðnir og vissuleg mikil og góð afrek X frá tímunum þeim eru rykfallin og í sundur að detta

Til Íslands kemur François Heisbourg og segir Íslendingum að evran sé nú ónýt og að Evrópa sé jafnframt svo gott sem einnig ónýt af hennar völdum. Sem er alveg hárrétt hjá honum. En það er líka hárrétt að Frakkar og Þjóðverjar hafa aldrei haft hundsvit á peningamálum. Það sást strax er bankastjórn ECB-seðlabanka Evrópusambandsins settist að völdum og sprengdi myntsvæði Evrópusambandsins í loft upp með því að framkvæma stærstu fjármálabólu veraldar á löndum þess undir stjórn Jean-Claude Trichet frá Lyon, sem skólaður var auðvitað til í Ecole Nationale d’Administration

En hér kemur svo rúsínan í ESB-endanum á énarque-elítu X. Jú, Ísland ætti nefnilega að ganga í ESB af því barasta. Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið af því að sambandið —samkvæmt François Heisbourg— á nú að verða Sambandsríkið, með stórum staf. En sambandið geti því miður ekki orðið Sambandsríkið fyrr en að það sem lækna átti ekki-sambandsríkið svo það gæti orðið Sambandsríkið —þ.e. sjálf evran— er nú allt laust og fast að drepa á meginlandi Evrópu. Hvert hringir maður þá? Jú, maður hringir að sjálfsögðu í Chief Inspector Charles LaRousse Dreyfus á geðbilunarhælinu Galeanstalt og pantar hjá honum nýjan tíma í Evrópufræðum

Nú er sem sagt það myntbein er hent var fyrir Mitterand Frakklandsforseta á meðan Þýskaland rann á ný saman í eitt, allt í einu orðið eitthvað svo vonlaust. Þýskaland er nefnilega á leiðinni austur

Eins og alltaf tala höfuð og "sérfræðingar" í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins með jafn mörgum tungum og til þarf svo hið bogna ljós undralands evrusvæðis og ESB varpist aldrei á nein viðkvæm mál

Furðulegt er að heyra að einhver sem kallaður er sérfræðingur í málefnum Evrópu og jafnvel Evrópusambandsins, skuli reyna að halda því fram að Svíþjóð —og bara sökum þess að Svíþjóð er Svíþjóð sem þekkir í þykjustunni þekktan mann í þýsku landi— sé á einhvern hátt undanþegin því að fara í gegnum ERM-II ferli Evrópusambandsins til að taka upp evru. Þetta er sprenghlægilegt því að í Sáttmála Evrópusambandsins stendur skrifað að evran ER mynt Evrópusambandsins eins og að Evrópuþing þess ER þing Evrópusambandsins

Í Sáttmálunum með stórum staf er njörvað niður og samþykkt af 28 þjóðþingum 28 ríkja að öll lönd sambandsins verði að taka upp evru af því að evran ER mynt Evrópusambandsins. Í sáttmálunum samþykktum og staðfestum af hinum sömu 28 þjóðþingum sömu 28 ríkja Evrópusambandsins stendur einnig að aðeins Danmörk sé með undanþágu frá þriðja fasa myntbandalagsins (ERM III) sem er evran, ásamt Bretlandi, sem er alveg undanþegið frá öllum fösum ERM; þetta stendur skrifað og staðfest af þjóðþingum allra landa Evrópusambandsins í Sáttmálunum og Svíþjóðar einnig

Það stendur sem sagt ekkert um það í neinum sáttmálum Evrópusambandsins að Svíþjóð sé á neinn hátt undanþegin því að taka upp evru. Landinu er samkvæmt Sáttmálunum skylt að gera það um leið og ESB- og evruyfirvöld hafa metið landið sem hæft til þess. Svíþjóð mun eins og öll önnur lönd ESB fyrst þrufa að ganga í gegnum ERM II, sem er pyntingaklefi myntbandalagsins, svo það geti látið ESB troða sér ofan í evru

Kannski eru kerfis-karlar Frakklands svo vanir því að geta skalkað og valkað með sáttmálana af því að landið þeirra heitir Frakkland og er einnig að hluta til Þýskaland, að þeir taka ekki eftir því hvaða skyldur og reglur eru lagðar hráar og ólagfærðar á venjuleg ríki í Evrópusambandinu

Þrátt fyrir góðan vilja og snjalla hugsun François Heisbourg, þá er Evrópa Evrópusambandsins ólæknandi. Hún er ólæknandi undir evru og hún er ólæknandi eftir evru. Stefnumótun sambandsins hefur því stefnt henni til 1914 á ný

Fyrri færsla

Afpöntuð ESB-ríkisstjórn og pöntunarseðlar 


Afpöntuð ESB-ríkisstjórn og pöntunarseðlar

Sjá krækju á frétt Morgunblaðsins um utanríkisviðskipti og gjaldmiðla þeim tengdum, neðst í þessari bloggfærslu

Áhlaupið á íslensku krónuna

Lesa; Áhlaupið á íslensku krónuna 

Hvað skiptir máli í utanríkisviðskiptum

Það sem alltaf skiptir mestu máli er náttúrlega það að fá sjálfa pöntunina. Að vera samkeppnishæfur. Það er pretty fundamental, ekki satt? Að fá pöntunina

Og svo það, að geta uppfyllt pöntunina stundvíslega. Til dæmis með því að eiga góð skip og flugvélar. Að græða oftar á pöntuninni en ekki, er einnig mikilvægt, skyldu sumir ekki vita það. Það þýðir að tekjur verða oftar að vera stærri tala en útgjöld

Það fyrirbæri þekkja of margir stjórnmálamenn þó yfirleitt ekki, því þeir búa ekki til neina velmegun og skaffa íslenska hagkerfinu ekki neina peninga. Þeir eyða bara því sem aðrir hafa skaffað og keyra ríkissjóð landsmanna nær alltaf með krónísku tapi. Þeir eyða oftast um efni fram, nema þegar Davíð Oddsson stóð yfir þeim

Spurningin í utanríkisviðskiptum um það hvernig greitt er og með hverju, verður alltaf eins og gengur og gerist um allan heim. Aðeins aular eða blekkingarmenn í stjórnmálum þykjast ekki geta stundað utanríkisviðskipti við önnur lönd nema að þau noti sömu mynt og maður notar sjálfur. Sovéthugarríki transit- og útskipunarhafnar Rotterdams eru dauð og grafin. Og reiknivélar eru fyrir löngu uppfundnar. Sími og Internet hafa einnig verið tekin í notkun

En ég get ekki séð að of margir stjórnmálamenn skilji þetta. Er það kannski nokkuð þess vegna sem að þeir eru einmitt stjórnmálamenn? Afpantaðir stjórnmálamenn á kjördag eru óskemmtileg sjón. Kva, varstu afpöntuð?

Engum nema heimsins minnst fljótandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra í peningamálum létu sér detta í hug að afpantaðar yrðu vörur frá átjándu stærstu eyju veraldar vegna skorts á reiknigetu

Ferill pöntunar í utanríkisviðskiptum 

  • Pöntun kemur frá Japan
  • Samið er um afhendingu og greiðsluskilmála
  • Varan er send á næstu stóru höfn, til dæmis Rotterdam.
  • Holland er þá transit-land í praxís
  • Þar er vörunni umskipað og annað skipafélag tekur við
  • Áfangastaður vörunnar er Ástralía
  • Umboðsmaður norska söluaðilans í Japan sá um kaupin
  • Frá Ástralíu er 1/10 hluti vörunnar sendur með flugi til Nýja Sjálands

Sjálf greiðslan fer fram í þeirri mynt sem gagnast báðum aðilum best

Hagstofa Íslands skráir þennan útflutning sem utanríkisviðskipti Íslands við ESB, því hún veit ekki betur. Hún GETUR ekki vitað betur

DDRÚV segir svo landsmönnum í Kastljósi frá þessum glæsilegu utanríkisviðskiptum Íslands við ESB. Þar fer nefnilega allt til ESB. En enginn hefur samt minnst hér á EES, ESB, evru né neitt E. Enda algerlega ástæðulaust

Svona hafa utanríkisviðskipti Íslendinga alltaf verið. Ekki nærri því allir hafa örugga vitneskju um endanlegt neysluland. Oft eru þau mörg. Nema að forsætisráðherrann afpantaði vilji láta lögregluna skammta fyrirtækjum landsins pantanir

Fiskútflutningur Dana til Íslands er tölu verður. En þegar nánar er skoðað í gagnagrunn DST kemur í ljós að allt eru þetta gullfiskar. Hvernig skyldi standa á þessu? Danir standa sem sagt í fiskútflutningi til Íslands. Hvað hefði minnsti fljótandi forsætisráðherra heimsins í peningamálum sagt við þessu áður en hún var afpöntuð

Að fá sjálfa pöntunina er alltaf mikilvægast

Í eðli sínu er mjög erfitt að vera seljandi. Það krefst mikils. Það er alltaf auðveldast að vera bara kaupandi. Eins og útrásarvíkingar voru flestir. Þeir keyptu og keyptu en gátu sjaldnast selt neinum neitt

Fjársterkustu framtíðarneytendur heimsins eru ekki í Evrópusambandinu. Þar eru þeir orðnir líkamlega of gamlir og stálfátækt evrunnar sér um hitt; stöðnun, hnignun, hrun og þrot. Þar mun fjársterkum neytendum fækka hratt. Allur vöxtur danskra dótturfélaga erlendis er því fyrir utan Evrópusambandið. Og ekkert getur Hagstofan sagt okkur um viðskiptamyntir dótturfélaga erlendis við umheiminn

Gott hjá Frosta!

Fyrri færsla

Ó-hagganlegar stærðir 


mbl.is Meira flutt út í dollurum en evrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband