Leita í fréttum mbl.is

Afpöntuð ESB-ríkisstjórn og pöntunarseðlar

Sjá krækju á frétt Morgunblaðsins um utanríkisviðskipti og gjaldmiðla þeim tengdum, neðst í þessari bloggfærslu

Áhlaupið á íslensku krónuna

Lesa; Áhlaupið á íslensku krónuna 

Hvað skiptir máli í utanríkisviðskiptum

Það sem alltaf skiptir mestu máli er náttúrlega það að fá sjálfa pöntunina. Að vera samkeppnishæfur. Það er pretty fundamental, ekki satt? Að fá pöntunina

Og svo það, að geta uppfyllt pöntunina stundvíslega. Til dæmis með því að eiga góð skip og flugvélar. Að græða oftar á pöntuninni en ekki, er einnig mikilvægt, skyldu sumir ekki vita það. Það þýðir að tekjur verða oftar að vera stærri tala en útgjöld

Það fyrirbæri þekkja of margir stjórnmálamenn þó yfirleitt ekki, því þeir búa ekki til neina velmegun og skaffa íslenska hagkerfinu ekki neina peninga. Þeir eyða bara því sem aðrir hafa skaffað og keyra ríkissjóð landsmanna nær alltaf með krónísku tapi. Þeir eyða oftast um efni fram, nema þegar Davíð Oddsson stóð yfir þeim

Spurningin í utanríkisviðskiptum um það hvernig greitt er og með hverju, verður alltaf eins og gengur og gerist um allan heim. Aðeins aular eða blekkingarmenn í stjórnmálum þykjast ekki geta stundað utanríkisviðskipti við önnur lönd nema að þau noti sömu mynt og maður notar sjálfur. Sovéthugarríki transit- og útskipunarhafnar Rotterdams eru dauð og grafin. Og reiknivélar eru fyrir löngu uppfundnar. Sími og Internet hafa einnig verið tekin í notkun

En ég get ekki séð að of margir stjórnmálamenn skilji þetta. Er það kannski nokkuð þess vegna sem að þeir eru einmitt stjórnmálamenn? Afpantaðir stjórnmálamenn á kjördag eru óskemmtileg sjón. Kva, varstu afpöntuð?

Engum nema heimsins minnst fljótandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra í peningamálum létu sér detta í hug að afpantaðar yrðu vörur frá átjándu stærstu eyju veraldar vegna skorts á reiknigetu

Ferill pöntunar í utanríkisviðskiptum 

  • Pöntun kemur frá Japan
  • Samið er um afhendingu og greiðsluskilmála
  • Varan er send á næstu stóru höfn, til dæmis Rotterdam.
  • Holland er þá transit-land í praxís
  • Þar er vörunni umskipað og annað skipafélag tekur við
  • Áfangastaður vörunnar er Ástralía
  • Umboðsmaður norska söluaðilans í Japan sá um kaupin
  • Frá Ástralíu er 1/10 hluti vörunnar sendur með flugi til Nýja Sjálands

Sjálf greiðslan fer fram í þeirri mynt sem gagnast báðum aðilum best

Hagstofa Íslands skráir þennan útflutning sem utanríkisviðskipti Íslands við ESB, því hún veit ekki betur. Hún GETUR ekki vitað betur

DDRÚV segir svo landsmönnum í Kastljósi frá þessum glæsilegu utanríkisviðskiptum Íslands við ESB. Þar fer nefnilega allt til ESB. En enginn hefur samt minnst hér á EES, ESB, evru né neitt E. Enda algerlega ástæðulaust

Svona hafa utanríkisviðskipti Íslendinga alltaf verið. Ekki nærri því allir hafa örugga vitneskju um endanlegt neysluland. Oft eru þau mörg. Nema að forsætisráðherrann afpantaði vilji láta lögregluna skammta fyrirtækjum landsins pantanir

Fiskútflutningur Dana til Íslands er tölu verður. En þegar nánar er skoðað í gagnagrunn DST kemur í ljós að allt eru þetta gullfiskar. Hvernig skyldi standa á þessu? Danir standa sem sagt í fiskútflutningi til Íslands. Hvað hefði minnsti fljótandi forsætisráðherra heimsins í peningamálum sagt við þessu áður en hún var afpöntuð

Að fá sjálfa pöntunina er alltaf mikilvægast

Í eðli sínu er mjög erfitt að vera seljandi. Það krefst mikils. Það er alltaf auðveldast að vera bara kaupandi. Eins og útrásarvíkingar voru flestir. Þeir keyptu og keyptu en gátu sjaldnast selt neinum neitt

Fjársterkustu framtíðarneytendur heimsins eru ekki í Evrópusambandinu. Þar eru þeir orðnir líkamlega of gamlir og stálfátækt evrunnar sér um hitt; stöðnun, hnignun, hrun og þrot. Þar mun fjársterkum neytendum fækka hratt. Allur vöxtur danskra dótturfélaga erlendis er því fyrir utan Evrópusambandið. Og ekkert getur Hagstofan sagt okkur um viðskiptamyntir dótturfélaga erlendis við umheiminn

Gott hjá Frosta!

Fyrri færsla

Ó-hagganlegar stærðir 


mbl.is Meira flutt út í dollurum en evrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. apríl 2014

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband