Leita í fréttum mbl.is

Rússneska rúblan kyssir íslensku krónuna

Fyrir dyrum stendur atlaga stjórnvalda að Seðlabanka Íslands sem stofnun. Ekki er víst að aðilar markaðarins líti þetta mál sömu augum og hin nýja ríkisstjórn Íslands virðist gera, með Samfylkinguna í þráhyggju-fararbroddi. Þráhyggja og lélegur skilningur á þörfum þess atvinnulífs sem mun bera uppi velmegun og myndun velferðar á Íslandi á næstunni verður aldrei Íslandi til góðs. Í þessu sambandi birti ég hér tvær myndir og útskýri þær með eðlislægum ósjálfráðum taugaviðbrögðum Samfylkingarinnar.

 

Mynd 1: RUB-AUD-NZD-ISK gegn EUR

Gengi rússnesku rúblu, dal Nýja Sjálands og Ástralíu og íslenskrar krónu síðustu 6 mánuði gegn mynt Evrópusambandsins, evru. Það var í október að hinn íslenski 11. september átti sér stað þegar allt bankakerfi Íslands hrundi örmagna ofaná mynt Íslendinga.

RUB-ISK-AUD-NZD-6manudir_vid_evrur 

Ályktun hins sjálfvirka gírkassa Samfylkingarinnar á Íslandi er þessi: 

  • Seðlabankastjórn rússneska seðlabankans verði vísað burt frá störfum. Rússland gangi í Evrópusambandið. Þó er bankakerfi Rússlands ekki enn gjaldþrota.
  • Seðlabankastjórn seðlabanka Nýja Sjálands verði vísað burt frá störfum. Nýja Sjáland gangi í Evrópusambandið. Þó er bankakerfi Nýja Sjálands ekki enn gjaldþrota.
  • Seðlabankastjórn seðlabanka Ástralíu verði vísað burt frá störfum. Ástralía gangi í Evrópusambandið. Þó er bankakerfi Ástralíu ekki enn gjaldþrota.

Það er líklega auðvelt að reka þá sem taka stýrisvaxtaákvarðanir í seðlabanka Nýja Sjálands því það er sennilega eini seðlabanki heimsins þar sem stýrivaxtaákvörðun er ennþá tekin af aðeins einum manni, að því ég best veit. Enn maður út og allt verður gott aftur. Samfylkingargott.

 

Mynd 2: RUB-AUD-NZD-ISK gegn USD

Gengi rússnesku rúblu, dal Nýja Sjálands og Ástralíu og íslenskrar krónu síðustu 6 mánuði gegn Bandaríkjadal. Það er ennþá október mánuður sem var og er hinn íslenski 11. í september í örlagasögu Íslands. Mánuðurinn þar sem næstum allt bankakerfi Íslands hrundi örmagna ofaná mynt Íslendinga. Bankamálaráðherrann Íslands er ennþá hinni sami Samfylkingarráðherra og á fyrri myndinni. 

RUB-ISK-AUD-NZD-6manudir_vid_USD 

Ályktun hins sjálfvirka gírkassa Samfylkingarinnar á Íslandi er ennþá þessi: 

  • Seðlabankastjórn rússneska seðlabankans verði vísað burt frá störfum. Rússland gangi í Evrópusambandið. Þó er bankakerfi Rússlands ekki enn gjaldþrota.
  • Seðlabankastjórn seðlabanka Nýja Sjálands verði vísað burt frá störfum. Nýja Sjáland gangi í Evrópusambandið. Þó er Nýja Sjálands ekki enn gjaldþrota.
  • Seðlabankastjórn seðlabanka Ástralíu verði vísað burt frá störfum. Ástralía gangi í Evrópusambandið. Þó er bankakerfi Ástralíu ekki enn gjaldþrota. 

Ályktun mín:

Núna þarf að passa að gengi íslensku krónunnar haldist lágt áfram og veiti þar með útflutningsatvinnuvegum Íslands góða vörn. Að það sé slegin skjaldborg um þessa atvinnuvegi. Þessi betrumbætti samkeppnisgrundvöllur ætti að halda næstu 10-15 árin ef vel er haldið á spöðunum og verða Íslandi til mikils góðs og gróða. Forðast ber að að íslenska krónan hækki of mikið.

Fyrri færsla:

Nýja grænmetisríkisstjórn Íslands opnar nýja Hárgreiðslustofu Ríkisins

Forsíða 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fyrirlestur nýskipaðs viðskiptaráðherra um kosti í myntmálum. Athyglisvert að hann bendir á að innganga í EU gæti gert okkur gjaldþrota vegna gríðarlegs kostnaðar. Eins og staðan er fæ ég ekki séð annað en að sá möguleiki sé líklegasta niðurstaðan. Náðarhöggið.

Sýnist fátt um fína drætti satt að segja. http://www.hi.is/is/mannlif_og_kreppa/hverjir_eru_kostir_okkar_i_myntmalum

Jón Steinar Ragnarsson, 3.2.2009 kl. 00:19

2 identicon

Þetta er náttúrulega einföldun hjá þér. Það er ljóst að til þess að ná Íslandi á skrið aftur þarf skýr skilaboð.

Ég var einn þeirra sem fyrir algera heppni og klaufaskap var komin í verkefni erlendis þegar þetta skall á þarna heima. Hugmyndin var að klára þetta verkefni á þeim nótum að ég gæti tekið með mér afraksturinn (hugbúnað) og aukið við hann heima. Sett up smá fyrirtæki til að vera með þjónustu.

Nú er það á ís, verð enn í EU í eitt ár í viðbót. En ég held að það sé ótrúlega góð skilaboð að reka nokkra úr seðlabanka og fjármála eftirl. Þá mun maður kíkja á þetta aftur, en fyrr ekki.

Jón (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 01:16

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Jón Frímann, þú einbeitir þér að, nú sem oftast áður af kjarnyrtu innihaldsleysi. Það væri himnasending að sjá þér sjálfum uppbyggilega og handfastar tillögur á blogsíðu þinni. Ekki svo aðég vilji troða þér of nærri...þú átt vitanlega þinn rétt til að agnúast í öðrum og enginn á kröfu á frumstæða hugsun frá þér. Það virði ég.

Haraldur Baldursson, 4.2.2009 kl. 21:17

4 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Án gjaldeyrishafta hugsa ég nú að myndirnar hér að ofan væru nokk öðruvísi og enginn gjaldmiðill næði einusinni að sjá í afturendann í Íslensku krónunni.  Það er alltaf hægt að færa góð rök fyrir því sem maður vill færa góð rök fyrir. Málið er þá bara að sleppa einni eða fleiri breytum........

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 4.2.2009 kl. 22:33

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú meinar sem sé Lísa að gjaldeyrisforða Rússlands, sem er einn sá stærsti og sem búið er að eyða í að halda uppi gengi rúblu undanfarna 6 mánuði, ástamt daglegum lokun hlutbréfamarkaða Rússlands, hafi verið eytt í akkúrat ekki neitt?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.2.2009 kl. 23:35

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gunnar þú veist vænanlega að gengi krónunar er skráð mjög mismunandi og sumstaðar ekki skráð lengur. Þannig er evran hér núna um 160 krónur en 220 krónur annarstaðar. Þannig að svona samanburður er varla réttur frá desember. Héðan fá svona reiknivélar erlendis gengi krónu sem er varin af höftum og er ekki á markaði eða í viðskiptum síðan í nóvember.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.2.2009 kl. 23:42

7 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Láttu ekki svona við mig Gunnar.  Þú veist vel að myndin sem þú dregur upp af krónunni er ekki raunhæf miðað við höft á útstreymi gjaldeyris, jöklabréfin sem eru í gíslingu og genginu sem skráð er alltof hátt eins og vanalega.  Ég hef enga þekkingu á því hvað Rússar eru að gera, Kínverjar eða múmínálfar.  Það getur vel verið að aðrar línur á þessari góðu mynd sem þú reynir að draga upp af krónnunni ættu að vera hjartalaga.  Ég veit bara að þessi mynd af krónunni er kolröng - og það veist þú líka.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 5.2.2009 kl. 00:20

8 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Seg mér - áttu kvóta? Það er það eina sem mér hugkvæmist miðað við hvað þú verð krónuna með kjafti, klóm og órökréttum rökum.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 5.2.2009 kl. 00:22

9 Smámynd: Haraldur Baldursson

Kæra Lísa.
Sérðu ekki að krónan varðveitir störf. Sjómenn og útgerðamenn í Noregi eru í vanda vegna hríðfallandi fiskverðs í heiminum (helst mjög í hendur við olíuverð), Rio-Tinto hefur víðast sagt upp fólki, ekki á Íslandi, Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga er ein fárra sem næg hefur verkefnin, fjöldamörg íslensk framleiðslufyrirtæki eru með gríðarleg verkefni....öllum þessum störfum bjargar króna....

Skuldsettum fyrirtækju gengur illa...skuldsettum heimilum gengur illa... Sumum verður illa hægt að bjarga úr skuldafeninu. Öðrum mun ganga illa og eiga erfitt, en með auknum útflutningi, sem umfram allt er mögulegur vegna lækkaðs framleiðslukostnaðar vegna lækkaðrar krónu, mun krónan leiðrétta sig að nýju. Staða húsnæðislána mun batna, ef króna styrkist og verðlag lækkar þá er tilfellið það að verðbætur ganga tilbaka. Vissulega er það sjaldgæft, en forsendan er lækkað verðlag, sem mun skila sér með styrkingu krónunar. Bati gengistryggðra lána skilar sér þá enn hraðar, því þar er ekki eins og í tilfelli verðtryggðra lána um hlaupandi meðaltalsáhrif innbyggð.

Haraldur Baldursson, 5.2.2009 kl. 00:42

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Magnús og Lísa: þið ályktið rangt og spyrjið rangra spurninga.

Dæmin mín snúast ekki um það hvers vegna gengisþróun þessarra fjögurra gjaldmiðla gangvart dollar og evru er eins og hún er. Dæmið snýst um þá staðreynd að hinir þrír gjaldmiðlarnir eru að nálgast það fall sem mynt Íslands hefur mátt þola undanfarna 6 mánuði undir þeim forsendum að næstum allt bankakerfi Íslands lagðist á hliðina. Rúblan mætir þróun krónu síðustu 6 mánuði þó svo að seðlabanki Rússlands hafi eytt miljörðum af dollurum til að styðja undir gengi rúblu og þó svo að bankakerfi Rússlands sé ekki svo að segja gjaldþrota.

Ef þessi lönd hefðu þurft að upplifa 11. september krónunnar þá get ég lofað ykkur að gjaldeyrisviðskipti með gjaldmiðla þeirra hefðu verið hamin. Ekkert ríki lætur þurrka sig upp eins og þerripappír. Þess utan þá hefur peningaútstreymi úr Rússlandi verið hamið með handafli síðustu mánuðina með lokun hlutabréfamarkaða svo að segja daglega á tímabili og einnig dögum saman. Annars hefði Rúblan hrunið enn meira því fjárfestar hlaupa öskrandi burt frá Rússlandi - þ.e. þá daga sem þeir geta losað sig út úr fjárfestingum - á opnunartíma kauphalla.

En ef athugasemd ykkar ætti að gefa einhverja merkingu þá gerir hún Samfylkingarþráhyggjunni enn verr undir höfði því bankakerfi þessara landa eru ekki bust og þeir eiga sennilega eftir að falla ennþá meira. Krónan fékk að falla algerlega frjálst lengi vel.

Lísa II:

Þú virðist ekki skilja að mynt landsins er ein af forsendunum fyrr því að hægt er að halda uppi sjálfstæði íslenska lýðveldisins. Það er aldrei aldrei aldrei hægt að fá hana til baka sé henni einu sinni hent fyrir borð. Þú munt skila þetta þegar Spánn og Grikkland munu verða sett undir receivership/administration hjá ESB á næstunni. Þá er líf þeirra sem þjóða á enda komið, einungis vegna þess að þau gátu ekki lengur haft neitt að segja um gengi gjaldmiðils síns. Þetta er miklu miklu dýpra mál en flestir gera sér grein fyrir.

Ástæðan fyrir því að Ísland mun yfirhöfuð geta unnið síg úr úr erfiðleikunum er sú að mynt Íslands, krónan (verðmiðinn sem verðleggur útflutning) er á höndum Íslendinga.

Ef menn skilja þetta ekki þá ættu þeir hvorki að tala, skrifa né nefna þessi mál á opinberum vettvangi. En þetta er það hættulega við umræðuna. Hún er að mestu byggð á fáfræði og fábjánaskap.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2009 kl. 00:49

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Viðbót:

Spánn á ekki lengur peninga til þess að veita áfram út í sveitafélög landsins. Brátt munu Spánn hætta að geta greitt opinberum starfsmönnum laun og ekki lengur geta framkvæmt greiðslur til ellilífeyrisþega. Spánn getur ekki prentað peninga lengur og það er lokað á peninga til þeirra því Spánn er í deep deep shit. Útflutningur er stopp því hann er ekki samkeppnishæfur og svo er eftirspurn minkandi og Spánn getur ekki lækkað veðrið með því að fella gengið því Spánn hefur ekkert gengi lengur.

Þega þú sérð svona miða í umferð á Spáni á næstuni þá vestu að spánska ríkið er komið í algera fjármagnsþurrð.

I owe you

Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2009 kl. 01:24

12 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Gunnar þú mátt ekki miskilja mig.  Ég er alfarið á móti ESB aðild. Samt er það merkilegt hvað margir sérfræðingar eru sammæltir því að krónan sé liðin undir lok.  Jú vissulega getur hún gefið okkur gengishagnað - en getur eitthver þjóð lifað á gengishagnaði einum saman?  Það er nákævmlega það sem hefur bjargað útflutningi hingað til og á að gera núna. Getur Ísland ekki virkað sem hagkerfi án þess að stóla svo til eingöngu á gengishagnað vegna þess að gjaldmiðill er of lágt skráður? Er það framtíðarlausn í opnu alþjóðahagkerfi?  Peningarnir frá álverunum koma ekki hingað að neinu ráði, þetta er allt í eigu erlendra aðila.  Kvótinn er veðsettur í topp vegna slæmrar fjársýslu. Það eru 13000 á atvinnuleysisskrá og eykst dag frá degi.

Hvaða rök eru fyrir því að við getum ekki seinna tekið upp íslenskan gjaldmiðil?

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 5.2.2009 kl. 13:56

13 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Var að líta á ESB gagnrýni þína.  Þú segir í einni athugasemd þinni að hefðu þessi ríki lent í Íslensku kollsteypunni, þá hefðu þau gripið til gjaldeyrishafta því ekket ríki láti þurrka sig upp upp eins og þverripappír. 

Ég er mikið sammála þér en mig langar að spyrja þig um, hverju þú svarar þeim rökum að ekkert nútíma hagkerfi geti þrifist með gjaldeyrishöftum.  Hamli erlendri fjárfestingu og skekki eðlilega verðmyndun og svo framvegis.  Og hvað sérðu fyrir þér slík höft lengi?  Leiða langvarandi höft ekki til leiðinda haftabúskapar?

Mín skoðun í hnotskurn er eitthvað á þá leið að þá verði það sem verði og við vinnum okkur útúr því en ef landið tæmist af peningum þá getum flutt inní torfkofana.  En hvernig myndi hagvitið þitt orða þessa hluti?

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.2.2009 kl. 22:47

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ómar. Þakka þér innlitið aftur.

 

Mitt álit er að þessu munum við ekki þurfa að hafa áhyggjur af í framtíðinni (þ.e. miklu gjaldeyrisflæði) því sá millibanka-markaður sem við höfum þekkt og upplifað frá ca 1991 og fram að október 2008 mun hverfa - og hann mun aldrei koma aftur eins og hann var. Hann verður þrengdur mjög mjög mikið. Þetta var naflastrengurinn hennar Gilitrutt og afkvæmin hennar þekkjum við öll því þau eru nú dauð og orðin að steingerðum Drangeyjaskessum.

 

Sumir banka-vonarmenn eru sennilega ekki farnir að skilja þetta ennþá því þeir vinna núna í zombie bönkum og eru margir hverjir verulega heilaskaðaðair eftir mikið og langt álag. Bankarekstur næstu 40 árin veður álíka spennandi eins og að reka kamarhreinsunarfyrirtæki sem treystir á að síldarævintýrið muni endurtaka sig innan skamms. En síldin mun ekki koma aftur. Nema kanski að hluta til í löndum eins og Sviss og Singapore sem hafa uppá einhverja hagstæða sérstöðu að bjóða (heimurinn eins og hann var). Þar fyrir utan þá eru fjármálin vel hugsanlega að hverfa til annarra staða í heiminum. Sennilega frá Vesturlöndum og til Asíu.

 

Það var athyglisvert viðtal við hagfræðinginn Nouriel Roubini í dag. Sennilega holl lesning fyrir marga. Roubini er sagður hafa séð kreppuna vel fyrir og er því ekki neitt sérstaklega vinsæll í dag (frekar en aðrir spámenn sem spá rétt):

    

Summa summarum: það þarf ekki að óttast gjaldeyrishöft því það verður ekkert til sem þarf að hefta. Fossin er farinn 

 

 

Nouriel Roubini 5 feb 2009

 

 

Viðtalið við  Nouriel Roubini

click for video 

 

Bestu kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2009 kl. 23:44

15 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Þetta er ansi svört framtíðarmynd. Það er sjálfsagt rétt að fjármálastarfsemi hér þarf langan tíma til að jafna sig og verður aldrei sama brjálæðið sem hún var.  Hitt er annað mál að fyrir x mörgum árum þegar ríkisstjórnirnar felldu gengi til að ýta undir sjávariðnaðinn þá var alheimsumhverfið öðruvísi en það er í dag.  Við getum einfaldlega ekki farið til baka þangað og áætlað að allt verði eins og það var. Við verðum að hafa eitthvað annað og stapílla til að byggja upp hagkerfi en gengisfellingar.  Hér á landi býr vel menntað fólk með frjóa hugsun og útrásin mun halda áfram, bara í öðru formi og á öðrum sviðum.  Við erum ekki lengur aflokuð eyja í litlu lokuðu hagkerfi eins og þá.  Stjórnmálaumhverfið verður ekki það sama og það var þá.

Við erum víkingar og við gerum það sem þarf til að vinna okkur áfram og útúr þessari lægð. En við þurfum að halda áfram að skipta við útlönd þar sem okkar markaður er svo lítill.  Þar sem við leitum á erlenda markaði þá þurfum við gjaldmiðil sem er nær þeim raunveruleika.  Krónan var fín hérna í den þegar við vorum smá og aflokuð.  Núna þurfum við aðeins alþjóðlegri mynt til að lifa í þessu alþjóðlega umhverfi. Það hefur sýnt sig og mun halda áfram að sýna sig. 

Við erum líka sjálfstæð og kannanir sýna að meirihluti landsmanna vill ekki fórna sjálfstæði sínu til ESB - sem er gott.  En sjálfstæðinu glötum við ekki með því að nota okkur þau tæki og  tól (eða mynt) sem fleytir okkur áfram og eykur tækifæri okkar á alþjóðamarkaði. Sjálfstæðinu glötum við hinsvegar ef við ætlum að vera eins og Bjartur í Sumarhúsum og fórna öllu fyrir eitthvað sem við teljum vera sjálfstæði.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 6.2.2009 kl. 00:32

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta er alls ekki svart Lísa.

Fjármálageirinn er bara ein af 200 skúffum í eldhúsinnréttingunni. Það eru samt 199 eftir.

Af öllum löndum heimsins þá átti Ísland ekki að velja þessa einu skúffu sem heitir fjármál - NEMA -> að Ísland hefði innréttað hana á sama hátt og Sviss gerir. En menn voru blindir, einnig kjánar og kálfar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2009 kl. 00:42

17 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Rétt og satt. En núna eru Múmínálfarnir á förum og tími er til komin að kíkja á þessar 199 sem eru eftir.

Bestu kveðjur

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 6.2.2009 kl. 00:53

18 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður aftur Gunnar.

Rétt leit inn áður en ég fer að sofa.  Þú sagðir það sem ég hef verið að prófa mig áfram með.  Þetta útslitna orð TRÚVERÐUGLEIKI sem er forsenda spákaupmennskunnar er orðið útúr kú því spákaupmennska verðlausra pappíra er líklegast út sögunni.  Vonandi lendir "trúverðugleikinn" útí Drangey með hinum skessunum.  Að endurreisa forsendur gamla fjármálakerfisins með öllum ráðum, líka blóði þjóðarinnar er líklegast dæmi um aðferðafræði uppvakninga.  En það er uppörvandi að vita til þess að ég er ekki einfari með þessa skoðun mína um "Death of the clown" eins og ég orðaði það einhvern tímann hjá Agli.  Að rífa kjaft á báða bóga getur verið einmanalegt þegar straumurinn er gegn manni.  Fréttablaðið kallaði okkur Lýðskrumara, sem sáu ekki ljós IFM, nema þá sem villuljós útí mýri.  

Það er huggun harmi gegn að maður er ekki einn um "skrumið".  Takk fyrir skemmtilega umræðu og góða nótt.

Kveðja, Ómar.

Ómar Geirsson, 6.2.2009 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband