Leita í fréttum mbl.is

Er komin Mugabe ríkisstjórn á Íslandi ?

11. september Íslands 2008

Þegar hinn 11. september í efnahagslífi Íslands átti sér stað í byrjun október 2008, þá vildi svo til að einn af forsvarsmönnum Moody's var staddur í sjónvarpssal beinnar útsendingar hjá fjármálasjónvarpsstöðinni CNBC Europe. Ég sat og horfði á hann í tölvunni hjá mér. Talið barst að íslensku krónunni og Seðlabanka Íslands. En í þessum hamförum náði íslenska krónan sennilega að falla mest allra gjaldmiðla án þess að viðkomandi seðlabanki gerði neitt til að stöðva fallið

Þetta er dálítið merkilegt. En hvað er svona merkilegt við þetta? Jú, talsmaður Moody's sagði það vera Seðlabanka Íslands til mikils hróss að hann freistaðist ekki til þess að grípa inn með stuðningsuppkaupum á krónu. Þessi maður frá Moody's vissi nefnilega vel að þetta er freisting sem hefur orðið mörgum gjaldeyrisforðanum að falli, því í hita augnabliksins er svo auðvelt að missa skynsemina og fara að ímynda sér að hægt sé að verja myntina gegn ofurkröftum. Endalaus röð af seðlabönkum heimsins hafa reynt þetta í erfiðum aðstæðum og er hausinn oftast blásinn af þeim og forðinn gufar upp

sedlabanki_logo2

Ekki á þeirra vakt

En þetta gerðist bara ekki hjá Seðlabanka Íslands. Hausinn var ekki blásinn af Seðlabanka Íslands og gjaldeyrisforða þjóðarinnar var ekki eytt í halda uppi vonlausu gengi einungis hinum vonlausu til hjálpar

Þjóðin getur því þakkað hæfum mönnum Seðlabanka Íslands fyrir að hún á ennþá gjaldeyrisforða. Honum var ekki eytt til hjálpar hinum vonlausu. Hann var geymdur handa þjóðinni. Geymdur ef til harðinda kæmi og ef Ísland hefði þurft að halda út og þrauka eitt og yfirgefið í óvinveittri baráttu - og ef þurft hefði að semja illvíga samninga við umheiminn, algerlega án utanaðkomandi hjálpar. Það hefði því verið hægt. Styrkleiki í samningum er nauðsynlegur en hann hverfur þó oftast ef þjóðin sveltur. Þetta var tryggt vegna þess að það sátu hæfir hagfræðingar og vanir stjórnendur í Seðlabanka Íslands. Banka þjóðarinnar. En núna á samt að reka þá

Næsta atriði í krísustjórn undir áföllum - og ennþá hér samkvæmt Moody's - er að tryggja að það sé ekki gert áhlaup á gjaldeyrisforðann. Að hann endi ekki á Cayman eða í hólfi í Singapore í eigu fárra aðila. Þetta tryggði Seðlabanki Íslands einnig. Gjaldeyrisforðinn er þarna ennþá, fyrir þjóðina. Seðlabanki Íslands sýndi hér í verki að hann er stofnun sem brást ekki. En mikið var lagt á hann. Öllu var hrúgað á þessa stofnun. Óhæfum fjármálageira á ólöglegum vaxtahormónum, óhæfum rembum útrásar og einnig eyðslusamri ríkisstjórn. Svo biðja menn um kraftaverk á meðan allt var gert sem yfirhöfuð var hægt að gera til að þröngva Seðlabankanum til að grípa til örþrifaráða. Gjaldmiðillinn níddur niður, sífellt grafið er undan öllu með innilegri heimsku fjölmiðla, forvígismenn lýðskrumast í akkorði og Samfylkingin grefur undan starfshæfni ríkisstjórnarinnar þegar mest ríður á að hún sé sterk og þróttmikil    

Hin nýja ríkisstjórn Íslands heldur eins og öll vinstri öfl alltaf halda að það sé hægt að laga allt ef bara settar eru fleiri reglur. Hún heldur að allir hætti að aka óvarlega vegna þess að þeir hafi bílpróf. En vandamálið er bara það að ríkisstjórn Íslands situr núna ölvuð undir stýri og er að keyra yfir á rauðu ljósi út um allt. Hún mun brjóta allt og bramla í ölæðinu. Hún er nefnilega ofurölvi og víman er hefndarþorsti, skítt með þjóðina og skítt með landið. Ölvunaræði þar sem bakarar bæjarins verða hengdir opinberlega sem smiðir. Brátt mun brauðið því þverra

En hver gerði þetta?

En hver gerði árásina á Ísland, á myntina, á Seðlabankann, á ríkissjóð og á öryggi þjóðarinnar? Það veit ríkisstjórnin ekki, hún hefur ekki tíma, því hún er úti að aka  

Ekki einu sinni seðlabankastjóri Evrópusambandsins mun geta fengið vinnu hjá nýju ríkisstjórn Íslands því hann hefur ekki prófið. Þess utan þá hefur hann aldrei prófað neitt nema að búa í ríkisreknu hagkerfi svo prófið skiptir heldur ekki máli hér. En núna getur nýja ríkisstjórn Íslands valið úr fullt af hæfum mönnum úr hinu fyrrverandi af öllu fyrrverandi, þ.e. frá leifunum af fjármálageira Íslands og klappstýrum gulláranna 

Þvílíkir kjánar og einfeldningar. Næst verður forsætisráðherrann krafinn um skilríki þegar hann/hún þarf að fara á . . . já þú veist

Fyrri færsla:

Rússneska rúblan kyssir íslensku krónuna 

Forsíða 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sæll Gunnar:  IMF mun vonandi koma í veg fyrir að við þurfum að skera tólf núll aftan af krónunni, en hugsanlega tekst stjórninni að koma atvinnuleysinu í 94% eins og hann þarna Mugabe. Dulbúni dýralæknirinn og leikkonan munu sjá um það.

Maður hélt nú að það tæki nokkra daga fyrir þetta lið að smella saman lagatexta, en æðið er óstöðvandi og aftökurnar þola greinilega enga bið. Hvort eitthvað Ísland verði eftir þegar að kosningum kemur er aldeilis óvíst.

Ragnhildur Kolka, 4.2.2009 kl. 23:38

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þar sem ég er í harðri samkeppni við Davíð Oddson að vera IFM andstæðingur númer eitt á Íslandi, þá þætti mér vænt um að þú útskýrðir fyrir mér í hverju munurinn á stefnu núverandi stjórnar og þeirri fyrri ,er fólginn.  Hryggjarstykkið í efnahagsstefnu Jóhönnu er  aðgerðaráætlun IFM, og ef ég man rétt þá sagði Geir Harde það sama.  Og hún Þorgerður ítrekaði þetta í dag að hún væri sama sinnis.  Mér skilst að skattahækkanir séu ekki inní myndinni fyrir kosningar og ekki á að breyta um vaxtastefnu.  Enginn tekur undir með Davíð Oddsyni að núna eigi að lækka vexti og það hratt.  Svo í hverju er þessi drastíski munur fólginn sem fær þig til að halda að félagi Mugabe fái samkeppni hér á landi?

Brottreksturinn á Davíð er það eina nýja sem þessi stjórn ætlar að gera miðað við þá gömlu.  Eina sem það breytir í raun er að nú á ræðuskrifari Davíðs að fá stöðu hans.  Engin stefnubreyting því Seðlabankinn ræður engu um vextina.  Þeir eru alfarið á valdi IFM, eins og Davíð benti réttilega á þegar hann afhjúpaði ráðherra Samfylkingarinnar sem lygamerði.  Eins verður erfiðara fyrir vanhæf stjórnvöld að skýla sig bak við einhvern blóraböggul þegar Davíð er farinn.  Og kallinn fær aftur leyfi til að skammast.  Hann var beittasta stjórnarandstaðn í haust fram að þagnarbindinu sem Geir setti hann í eftir blaðaviðtalið fræga í Danska sveitablaðinu.

Svo ég spyr aftur.  Hvað meikar diffinn?  Ekki trúir þú því þarna í Danaveldi, að stjórnin okkar sáluga hafi verið að gera eitthvað að viti.  Hún kúgaði t.d. Davíð til hlýðni í IFM glapræðinu.  En góðir og gegnir Sjáfstæðismenn í atvinnulífinu eins og Vilhjálmur Egilsson, Þorsteinn Víglundsson og Andrés Magnússon sögðu hreint út um miðjan janúar að ekkert hefði verið gert og ekkert væri að gerast sem kæmi atvinnulífinu að gagni.  Kröfðust tafarlausra úrbóta og varla var það gert til að koma Mugabe til valda.  Held ekki.  Voru einfaldlega búnir að nóg af efnahagsstefnu IFM, en voru ekki nógu miklir kjarkmenn til að viðurkenna það svo þeir réðust á Davíð undri rós.  Hvað gera þessir heiðurskallar í dag þegar Davíð er farinn?   Veit ekki.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.2.2009 kl. 00:10

3 identicon

Ég óttast að IMF munu fara illa með okkur. Ráðgjöf þeirra er kjánaleg. Vöxtum haldið háum. Niðurskurður í kreppu meikar hedur engan sens. Ég sé heldur ekki í hverju líkingin við Mugabe felst.

Björn Jónasson (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 06:59

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heill og sæll, kæri bloggvinur. Long time, no seeing! – Hvet ég þig til að lesa nýjar greinar á Vísisbloggi mínu:

Árni Páll kallar 75% óbreyttra sjálfstæðismanna “þjóðrembumenn” og Upp komast svik um síðir: ég hafði rétt fyrir mér um landsöluáformin – og margar fleiri um EBé-innlimunarhyggjuna.

Endilega fylgstu með þeim vef mínum, meðan tölvubilun veldur því, að ég kemst ekki til að skrifa greinar á Moggabloggið.

Með kærri kveðju og þakklæti fyrir allt þitt framlag í þjóðfrelsisbaráttuna,

Jón Valur Jensson, 5.2.2009 kl. 09:16

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innleggin.

Bráðabrigða ríkisstjórn til 80 daga sem fer í það að pilla við seðlabanka í lýðræðisríki er náttúrlega Mugabe óð ríkisstjórn. Seðlabankinn er einn af hornsteinunum lýðveldisins og peningastefna hans kom ekki inn með Davíð Oddssyni. Tveir af þremur bankastjórum Seðlabankans eru virtir og lang- og þaulreyndir hagfræðingar og aðalbankastjórinn er þaulreyndur maður og þekkir þjóðarhaginn inn og út.

1) Ef klappstýrunum í þessari vanhæfu og brauðfóta bráðabirgða & tækifæris Mugabe ríkisstjórn Íslands ásamt klappstýrunum í þeim hagsmunasamtökum sem ákölluðu IMF til landsins líkar illa við erlent vaxtaákvörðunarvald á Íslandi af hverju voru þeir þá að kalla á IMF til landsins þegar Seðlabankinn var búinn að búa svo í haginn að Íslands gæti staðið sjálft? Af hverju?

2) Klappstýrurnar í þessari bráðabirgða & tækifæris Mugabe ríkisstjórn Íslands ásamt klappstýrunum í þeim hagsmunasamtökum sem núna líkar illa við erlent peningastefnu og stýrivaxtavald á Íslandi ættu að hugsa sig betur um (með þeirri einu heilafrumu sem er ennþá virk í hausnum á þeim) áður en þeir um alla eilífð ákalla þetta erlent peningastefnu og stýrivaxtavald einmitt yfir Ísland í formi ECB.

Hvað halda þessir menn að muni þurfa að vera hið berandi hvatningarafl í framtíðinni fyrir peningastefnu á evrusvæðinu. Afl sem þarf að ráða niðurlögum 550% skuldasöfnunar miðað við VLF í sumum ríkjum evrusvæðis fyrir árið 2050. Eina leiðin til að koma í veg fyrir gjaldþrot á elliheimilinu evrusvæði mun verða aukinn sparnaður því skattatekjur verða svo hrikalega dvínandi. Og þá munu háir vextir verða eina leiðin til þess að sporna við gjaldþroti ríkissjóðs evrulands.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2009 kl. 14:23

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Veistu það.  Þú ræður þinni samlíkingu eins og ég ræð mínum.  Forsendurnar eru þær sömu.  Það er mikið lýðskrum og ógæfa í gangi.  Kemur ekki vinstri- hægri við því margar atlögurnar að Davíð koma frá stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins.  T.d. var það sláandi að bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið birtu sama daginn úttekt á orðum Davíðs, svona í ljósi sögunnar.  Frjálshyggjustrákarnir, sem vilja í ESB, gleymdu því aðeins að Davíð réði ekki neinu um hvernig haldið var á spilunum eftir að kúgun breta og ESB kom í ljós.

  Klappstýrunnar voru aðallega í Samfylkingunni (ASÍ) og í Sjálfstæðisflokknum ( Iðnrekendur og vinnuveitendasambandið).  Kalla á lækninn en vilja ekki meðulin.  Kenna svo næsta samferðarmanni um.  Og trúðu mér.  Ég er ekki kjósandi Davíðs en mér ofbýður ruglið og lýðskrumið.  Og svo er IFM að jarða þessa þjóð í boði atvinnurekenda og Samfylkingarinnar. 

Þannig að ég skil þig miklu betra núna og lýsi mig sammála meginstemmunni þó ég áskilji mér rétt til að nota önnur orð.  En til þess er ég að starta minni eigin bloggsíðu.  Snertiflötur okkar er mjög stór en þegar illa liggur á mér þá skamma ég frjálshyggjuna blóðugum skömmum en þú kratana.  Og hvað með það.  Það eru ESB-sinnar sem eru að koma þessari þjóð í glötun og njóta til þess stuðning og atbeina IFM.  Slíkir óvinir eru nægir í bili.  Þegar drekinn ógurlegi hefur verið felldur, þá geta eftirlifendur spurt sig hvort þeir nenni að standa í frekari vígaferlum eða fundið sameiginlega fleti og framtíð.  Auðvitað veit aðeins framtíðin um það.

Gangi þér vel í baráttunni og bestu kveðjur í Danaveldi.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.2.2009 kl. 15:41

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir þetta Ómar.

Já einmitt, stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins er í úthverfum buxunum.

Mér verður enn meira óglatt við að heyra að 80 daga bráðabirgða Mugabe ríkisstjórnin Íslands virðist einnig ætla að fara að pilla við stjórnarskrá Íslands. Þetta er aldeilis galið!

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2009 kl. 16:28

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ísland versum ESB. Skuldari gegn Lánadrottni.  Sá sem hefur eignahaldið fyrir peningunum hefur valdið. Jón skuldari geng Palla Lándrottni. ESB ný-aðals kandídatarnir skynja það mismundi vel eftir þeirri hjörð sem þeir tilheyra. Eðlið segir alltaf til sín þegar um mannskepnuna er að ræða. Hvað græði ég á því.

Júlíus Björnsson, 5.2.2009 kl. 19:32

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Fyrir þá sem hafa áhuga: 

Það var athyglisvert viðtal við hagfræðinginn Nouriel Roubini á Bloomberg í dag. Sennilega holl lesning fyrir marga. Roubini er sagður hafa séð kreppuna vel fyrir og er því ekki neitt sérstaklega vinsæll í dag (frekar en aðrir spámenn sem spá rétt). Takið eftir áherslunum sem hann leggur á fljótandi gengi og að gengið fái tækifæri til að hjálpa sjálfum hagkerfunum. Takið einnig eftir gagnrýni hans á Evrusvæðið. 

Summa:

  • Fljótandi gengi mikilvægt
  • Ekki eyða gjaldeyrisforða í að verja vonalust gengi eins og Rússland
  • Geyma frekar gjaldeyrisforðann til miklivægari og brýnni þarfa
  • Gengið á að endurspegla ástandið og arðsemina í hagkerfinu
  • Austur-Evrópa er bust (22 lönd)
  • ECB er disaster og getulaus
  • Mörg lönd í Evrusvæði eru bust
  • Ef menn bregðast ekki rétt við núna þá eigum við á hætti að fá global DEPRESSION eða L-shape kreppu
  • PLÚS - deflation hætta 

Nouriel Roubini 5 feb 2009 

Viðtalið við  Nouriel Roubini

click for video  

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2009 kl. 00:30

10 identicon

Mér finnst þessi Mugabe tilvísun alveg furðuleg og eyðileggja umræðuna. Mugabe, er einræðisherra sem hefur rekið lögregluríki með pyntingum og misþyrmingum og lagt af réttarríki. Hann hefur orðið uppvís að því að falsa kosningar, beitir fyrir sér mútum, terror og morðum.

 Að bera þetta saman við íslenska ríkisstjórn sem studd er meirihluta þingmanna gerir alla umræðu marklausa. Þetta er það sem er kallað reductio ad Hitlerum og er frægur conversation stopper.

PS. Engin ríkisstjórn getur "pillað við stjórnarskrána". Um breytingar á stjórnarskrá gilda skýrar reglur sem krefjast tvennra þingkosninga og aukins meirihluta. Skil ekkert í þér Gunnar.

Björn Jónasson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:29

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Björn:

Ég spyr hvort það sé komin Mugabe ríkisstjórn á Íslandi. Þetta er eðlilegt spurning. Engin bráðabirgða minnihluta ríkisstjórn með góða geðheilsu, sitjandi til 80 daga, neins staðar, ræðst í svona verk nema að hún sé rænd allri skynsemi og sé beinlínis hættulegt eða sé haldin mjög hættulegum og undirförulum ásetningi. Ég efast eins mikið og hægt er að efast um geðheilsu þessarar ríkisstjórnar. Þetta er svo innilega heimskulegt athæfi að það jaðrar við landráð.

Hvað munu ekki erlendir sem innlendir fjárfestar hugsa næst þegar ófarir dynja yfir? Munu bananar eða Mugabe fara á kreik aftur á Íslandi? Mugabe hóf ekki feril sinn sem brjálæðingur. En hann endar hann þannig.

Seðlabanki Íslands er óháð stofnun og það má því ekki sýna svona fordæmi. Það er algerlega eyðileggjandi fyrir traust, virðingu og sannfæringu á þessari mikilvægu stofnun. Þetta er ekki hlutur sem hægt er að afgreiða á þennan hátt. Þessutan þá eru engar (zero) faglegar forsendur fyrir bullinu í þessari vanhæfu bráðabirgða Mugabe ríkisstjórn Íslands til 80 daga.

Plús: Eins og ég sagði: ef mönnum líkar ekki erlent stýrivaxtavald á Íslandi í augnablikinu þá hefðu þeir heldur ekki átt að kalla það yfir sig. Þeir ættu heldur ekki að ákalla það frá Brussel.

Að lokum. Það ætti að kalla Barnaverndarnefnd til Alþingishússins því þar eru núna að störfum börn undir lögaldri, m.a. í Framsóknarflokki

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2009 kl. 21:00

12 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sá sem ber ábyrgð og hefur valdið í sameiginlegum málum þjóðarinnar á Íslandi milli kosninga eru samkvæmt hefðinni stjórnmálamafíurnar Íslensku. Af hverju eru er þær enn við völd í ljósi þess, sem þær eru valdandi og hafa valdið.

Dómsvaldið og framkvæmdavalið þjóðarinnar eru aðal tól og tæki Löggjafarvaldsins og Forsetavaldsins.   

Seðlabankinn heyrir undir Framkvæmdavaldið   og er bundin að löggjafarvaldinu þar af leiðandi. Það er að hengja bakara fyrir smið að refsa embættismönnum þegar þeir sem valdið hafa og höfðu, aðal ábyrgðaraðilarnir sitja áfram og halda áfram á sömu braut [eða ætla að reisa hana við.  

Gordon Brown fyrir hönd framkvæmdavalda Bresku krónunnar brást við þrýstingi síns Seðlabanka [að mati þeirra ósiðspilltu eða þeirra sem stíga í vitið] og stöðvaði glæpamenn með Íslenskar Kennitölur frá því að mergsjúga sveitarfélög, líknastofnanir og varnaðarlausan almenning í Bretlandi. Hann gerir greinlega raunsæjar kröfur um heiðarlega eða raunsæja samkeppni milli fjármálastofnanna í hans ríki Drottningar.

Stjórnmálamenn á Íslandi hljóta að hafa einhverja hagsmuni af því að hlífa glæpamönnum úr því að þeir geta ekki viðurkennt sitt eigið vanhæfi til að fara með sameiginlega efnahagsmál þjóðarinnar. Seðlabankinn uppfyllti kröfur um stöðugleika: litla verðbólgu síðustu ár og var ekki mjög hamlandi á útþenslu markmið viðskiparáðuneytis eða t.d. Reykjavíkur borgar.  ESB græðir hinsvegar mest, þegar upp er staðið. Þökk sé ESB ný-aðlinum á Íslandi.

Júlíus Björnsson, 6.2.2009 kl. 21:50

13 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég held ekki að landinn láti leiða sig inn í ESB.  Ég hef of mikla trú á víkingablóðinu. Vansinn er að megnið af menntafólki þjóðarinnar hefur numið sín fræði í hagfræði, viðskiptafræði, lögfræði og læknisfræði.  Ef við hefðum fleiri sem eru vel að sér í sögu þá væri ESB dæmið öllum kunn glapræðis þvæla.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.2.2009 kl. 00:45

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sagnfræði, þjóðfræði [landafræði], hugarreikningur [rökhyggja] er ekki vinsælt kennslu efni hjá opinberum skólakerfinu í ESB. Þeir eru nú að steypa öllum í sama mótið. Mér sýnist nú Íslenska skólakerfið hafa tekið þess pólitík upp hér síðust 35 ár.  Mín landafræði í barnaskóla gekk nú ekki út á annað en að læra stjórnskipan og efnahagstölur þjóðríkja. 

Júlíus Björnsson, 8.2.2009 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband