Leita í fréttum mbl.is

P-pillan að verki hjá "sérfróðum" í Noregi?

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í Vickers VC10

Breskur flugmaður að reykja pípu í 30 þúsund feta hæð um borð í breskt framleiddri Vickers VC10. VC10-þotan var uppáhaldsflugvél Margrétar Thatchers og var hún í 50-ár í loftinu. Bæði voru þau knúin Rolls-Royce Conway, eða því sem næst. ESB veit því miður ekki enn út í hvílíkt fen það hefur verið leitt

****

P-PILLAN?

(Sjá frétt neðst.) Ef um karlmann er að ræða þá er hann sennilega orðinn karlkerling á hinum norsku aurahaugum volmenningarinnar þar og því kominn á P-pilluna, sem þar með fengi nafnið P-transvestítatranstranskynskiptapilla v.68bíómiði

En P-pillan hefur ávallt legið undir einmitt þessum grun sem nú í æðiskasti er kastað á Oxford/Spitfire bóluefnið frá AstraZeneca, bara vegna þess að Evrópusambandinu er illa við það sökum þess að það kemur frá fullvalda Brexit-Bretlandi. En þar borgaði útgangan af Evrópusambandinu sig heldur betur frá og með fyrsta degi, því Bretar eru búnir að bólusetja nærri helming þjóðarinnar og nálgast nú hinn margumtalaða þorra hennar. Og ofan í það kemur síðan flótti alþjóðlegs fjármagns frá Evrópusambandslöndum yfir til Stóra-Bretlands. Hálf billjón evra yfirgaf lögsögu sambandsins á síðasta fjórðungi síðasta árs, og er það hvorki meira né minna 20 prósentur landsframleiðslunnar á ársgrundvelli

Í dag sagði Boris Johnson forsætisráðherra að hann myndi svo sannarlega láta dæla Oxford/Spitfire bóluefninu í sig um leið og kemur að honum í röðinni. Hann undirstrikaði það, fast og með hörðum penna. Hyggst hann einnig hefja þróun á hraðfleygustu eldflaugum jarðar í sínu nýfrjálsa landi, á meðan íslenskir ráðherrar halda sig við hamborgasteikingar ofan í fljúgandi fátæklinga

Í Bandaríkjunum, sem mér skilst að samþykki ekki útlenskt lyfjaeftirlit, bíða 100 milljón skammtar af bóluefninu þess að stórskalaprófun AstraZeneca á efninu ljúki þar í landi. En Donald J. Trump forseti veitti 1,2 milljörðum dala til þróunar þess. Til Pfizer lét hann tæpa tvo milljarða dala af hendi (1,95) og 4,1 milljarð dala til Moderna. Samtals 13 milljarða dala létu Bandaríkin af hendi rakna til þróunar og framleiðslu á bóluefnum. Síðan kemur dreifing og skipulag. Í Bandaríkjunum var það fjögurra stjörnu hershöfðingi og forstjóri úr lyfjabransanum sem látnir voru sjá um bóluefnaaðfangamálið þar. Í Bretlandi var lítill hópur manna úr atvinnulífinu látinn sjá um aðföng bóluefna. En í Evrópusambandinu voru hins vegar vanvita og algjörlega fávísar tröllskessur í skriffinnsku látnar um að klúðra málinum svo hryllilega að sennilega er þar um heimsmet í vanhæfni, vanræslu og getuleysi að ræða - reyndar eins og í flestu því sem sambandið kemur nálgæt

HAMBORGARASTEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR OG ÞÓRÓLFUR

Ríkisstjórnin getur ekki bara hent sér í það allt í einu núna að ganga gegn Þórólfi nú þegar hann er kominn með sitt á hreint og búinn að læra mikið og jafnvel nóg. Það getur hún ekki fyrst að hún þóttist ekkert vit hafa á neinu allt síðastliðið ár. Slíkar tilraunir til að viðhafa skítugt kosningatrix munu aðeins virka öfugt. Og nú þegar það er ríkisstjórninni sjálfri að kenna að ekki er búið að bólusetja alla þjóðina, þá verður hún að súpa seyðið af eigin getuleysi í þeim efnum. Hefði heilbrigðiráðuneytið ekki verið svona algjörlega vita vonlaust í bóluefnismálum og ekki svona hryllilega fjandsamlegt einkaframtakinu, þá væri Kári búinn að redda þessu máli fyrir langa löngu með hámark fjögurra-manna vinnuhópi úr atvinnulífinu. Ríkið er auðvitað ófært um lítið annað en að sólunda tíma og peningum annarra. Það getur ekkert frekar en Svandís sjálf. Þetta eru nú meiri vesalingarnir. Skyldi Katrín grænkommi enn vera í símanum uppi í bedda að redda?

Reyndar held ég að Þórólfur myndi fá 70% af öllum greiddum atkvæðum í kosningunum í haust ef hann byði sig fram sem eins-manns flokkur. Jafnvel 75% prósent. Hvað ætla menn að gera við því. Fremja kannski pólitískt sjálfsmorð. Harakiri um ágústnótt?

****

Bretar eru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi Síðari heimsstyrjaldarinnar til síðasta dags hennar, og ekkert hagkerfi neinna annarra landa afkastaði eins miklu og það breska á meðan á stríðinu stóð, miðað við mannfjölda. Hér minnast menn stíflusprengjuleiðangurs flugmanna hins Konunglega breska flughers

Tengt

Lyfja­stofn­un Evr­ópu [18. mars 2021]: Bólu­efni AstraZeneca ör­uggt

Fyrri færsla

Samhæfð árás ESB-landa á bóluefni AstraZeneca [u]


mbl.is Sterk ónæmissvörun hafi valdið blóðtöppunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ættmenni okkar sem urðu eftir í Noregi (heimskur = sá sem heima situr?) virðast vera í tómu tjóni þessa dagana.
Forsætisráherran braut sóttvarnarreglur og er í lögreglurannsókn 

Politiet etterforsker Erna Solberg for brudd på smittevernloven – VG

Einhverjir góðhjartaðir stjórnmálamenn gáfu burt bóluefni sem norðmenn þurftu nauðsynlega á að halda til að bólusetja ríkisstjórnir í Afríku
Norge takket nei til nesten 700.000 vaksinedoser – VG

Grímur Kjartansson, 19.3.2021 kl. 09:23

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur

Fyrir viku síðan þóttist forsetamaðurinn í Élyséehöllinni ætla að hraðopna allt upp á gátt í Frakklandi. En aðeins viku síðar er hins vegar Stór-París svo gott sem skellt í lás ásamt ýmsum öðrum hlutum landsins. Það gerðist í gær.

Það er því ekki víst að norski peningaforsætisráðherrann verði neitt góðmennskuánægður með ákvörðun sína að viku liðinni.

Og nú þegar ESB-kvikunni tókst að fá settan merkimiða á bóluefnið þess efnis að það "geti drepið" notandann, þá er aldrei að vita hvað gerist næst í skjálfta- og kvikugöngum tröllasambandsins. Það eina sem við hins vegar vitum með 100 prósent öryggi er að slíkir merkimiðar verða ekki settir á neinar vínflöskur frá ESB-löndum. Það verður því tóbakið og bóluefnið áfram.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 19.3.2021 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband