Leita í fréttum mbl.is

Hve stórt er það Stóra-Bretland sem er að yfirgefa ESB ?

Jú það er svona stórt

1. Þegar Bretland fer þá svarar það til þess að allur mannfjöldi rúmlega þessara 15 landa Evrópusambandsins yfirgæfi sambandið á einu bretti:

Malta
Lúxemborg
Kýpur
Eistland
Lettland
Slóvenía
Litháen
Króatía
Írland
Slóvakía
Finnland
Danmörk
Búlgaría
Austurríki
Ungverjaland
Plús einn þriðji hluti Svía

2. Þegar Bretland fer, þá svarar það til þess að öll hagkerfi þessara 19 landa Evrópusambandsins yfirgæfu sambandið á einu bretti:

Malta
Kýpur
Eistland
Lettland
Litháen
Slóvenía
Króatía
Búlgaría
Lúxemborg
Slóvakía
Ungverjaland
Grikkland
Rúmenía
Tékkland
Portúgal
Finnland
Danmörk
Írland
Austurríki

Atkvæðagreiðslan í ráðherraráðinu verður frá og með þá þannig, að norður-blokkin, þar sem Þýskaland er, verður þá komin í minnihluta og suður-blokkin mun ráða (35 prósent regla Lissabon sáttmálans). Þaaaað! verður fróðlegt að sjá. Sérstaklega þegar Þýskaland og norður-blokkin, með Finnland á evru-skallanum, verður til að byrja með látin fjármagna atvinnuleysisbætur til suður-blokkarinnar. Gerið svo vel. Halló martröð Þjóðverja => TRANSFER-UNION! Svo kemur allt hitt ofan í það. Haldið þið ekki að þetta, já þetta, muni enda í hinum eilífa og sanna friði? Jú að sjálfsögðu (ekki)

Aðalatriðið fyrir veruleikafirrtar elítur Evrópusambandsins er hins vegar það, að hurðin skellist sem fastast í bakið á Bretlandi þegar það fer. Hvílíkir klappþorskar á þurru landi!

Fyrri færsla

Rússar hafa loks náð valdi yfir Mueller-heila


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Séð svona svart á hvítu skilur maður hörkuna við að hindra útgöngu Breta úr “ástarsambandi nú.” Þetta er spursmál um líf eða dauða og markáðir kommisarar vilja hvíla áfram á silkipúðunum.

Ragnhildur Kolka, 20.1.2019 kl. 10:49

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka Ragnhildur.

Og ef að sminkið og plat-brjóstin væru tekin af skattaskjóls-hagkerfum Lúxemborgar, Írlands og Hollands, þá svarar brottför Bretlands til tuttugu og eins lands ESB. Þá þyrftum við að bæta Belgíu og Hollandi við 19-landa listann (2), sem þá yrði að 21-landa lista.

Öll þrjú (Holland, Lúx og Írland) eru á topp-10 listanum yfir skattaskjól í heiminum.

Þó svo að fjármála- og tryggingastarfsemi sé nokkuð stór hluti af landsframleiðslunni í Betlandi, þá er hún ekki nema um það bil 7 prósent af heildinni. Og ef að fyrirfram-gjaldþrota stofnanir ESB í Belgíu eru dregnar frá þar, þá batnar staðan í ESB síst við það.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 20.1.2019 kl. 14:21

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er mér með öllu óskiljanlegt hversu hikandi Bretar eru við No-deal útgöngu. Þeir eru svo margfalt öflugri efnahagslega en við  og þó tókst okkur að rísa úr bankahrunsrústunum á örskotstíma(so to say). Geri ráð fyrir að ESB-trúarbrögðin spili þarna inní. Áhangendur gera ekki ráð fyrir að neinn nema Brussel-guðinn kunni eða geti. Þetta er uppgjafar viðhorf.

Ragnhildur Kolka, 20.1.2019 kl. 15:00

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ragnhildur.

Lélegir pólitískir flokks- og þjóðarleiðtogar Bretlands, Ragnhildur. Eru búnir að liggja í tann-úrtökustól ESB áratugum saman, án þess að taka eftir því, og orðnir tannlausir. Geta ekki tuggið og heimta bara mjúka fæðu hjá mömmu. Flugbeittar tennur fullveldisins læstar inni í skáp í Brussel.

Margir þurfa heldur betur á endurhæfingu að halda.

En það er þó ekkert miðað við svitabaðið sem hefst innanborðs í ESB. Þar munu menn heldur betur snöggsvitna.

Trump hefði bara hætt að taka símann. Hann er ekki tannlaus vesalingur.

Sama, en þó vægari, EES-stóla-terapían gildir um forystu xD, VG, B, Viðrinið, S og allt hitt, nema kannski Miðflokkinn og svo íslensku þjóðina.

Hmpf!

Gunnar Rögnvaldsson, 20.1.2019 kl. 15:16

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Eitt það besta fyrir Breta í Brexit er það að frá og með þá fara hagsmnir alls Englands, Wales og Skotlands saman með hagsmunum London á ný. Það verður "realignment" eins og var á tímum iðnbyltingarinnar og heimveldisins.

Landið verður ein samstíga heild á ný. ESB-aðildin var alltaf bara fyrst og fremst London-fyrirbæri fyrir Bretland. Norð-vestur mun upplifa nýja tíma (Liverpool-Manchester svæðið) og Midlands og Skotland.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.1.2019 kl. 15:29

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

ESB er eins og hið eðlisfræðilega fyrirbærið svarthol. Það sem fer inn, kemst aldrei út. Reyndar er ESB svarthol í öðrum skilningi líka, þ.e. fangelsi. Eina leiðin til að halda löndum þarna inni, er með ofbeldi, þ.e. hótunum. ESB er svo illa stjórnað, að ef það myndi sækja um innghöngu í sjálft sig, myndi það ekki uppfylla skilyrðin, t.d. vegna óendurskoðaðra ársreikninga í áratugi, skilst mér.

Annars sé ég ekki hvernig ESB hefur efni á að missa 60 milljón manna markað, eins og Bretland út úr sambandinu. Blýantanagararnir í Brüssel verða að finna sér alvöru vinnu, sennilega í fyrsta skiptið á ævinni hjá þeim flestum.

ESB veit að þeir eru háðir Bretlandi, þess vegna eru þeir með allar þessar hótanir og undanbrögð.

Theódór Norðkvist, 21.1.2019 kl. 20:56

7 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

 Hvað ég veit af fréttum frá meginlandinu verðu þónokkuð róstur og þá helst meðal flóttafólks frá stríðandi löndum. Þeir eru æfðir hermenn og taka það sem þeir vilja með skothríð! Þetta er öllum kunnugt þarna úti í hrærigrautnum.Fyrir 3 vikum  síðan komu 300 velþjálfaðir hermenn til Spánar og lá mikið á, svo það fer að styttast í að leikurinn starti í Þýskalandi/Belgiu.

Eyjólfur Jónsson, 21.1.2019 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband