Leita í fréttum mbl.is

Tollabandalagið ESB vildi að sjálfsögðu ekki frjáls viðskipti

G-núll ríkin kipptust heldur betur við þegar G1 bauð þeim enga tolla, engar hindranir og engan ríkisstuðning á G7 fundinum í landinu Kanada, sem uppgötvaði "sérstakan frátekinn stað í helvíti" fyrir forsætisráðherra sinn. Auðvitað kom slíkt aldrei til greina af þeirra hálfu, og verður aldrei, því þá myndu Bandaríkin keppa þau í kaf. En þetta var samt skemmtilegt í þær nokkrar sekúndur sem tilboðið tók af síðasta fundinum sem haldinn verður í G7, því það Gé er búið, að vera

Þetta fjölþjóðafyrirbæri þoldi ekki forsetakosningar í Bandaríkjunum. Svo flott og traust er þetta fyrirbæri sem kallast "alþjóðasamfélagið", en sem í tilfelli G7 var alltaf bara alþjóðasamsærið gegn sjálfstæði þjóða og hagkerfum þeirra. Hér endar það fyrirbæri sem bjó til Louvre og Plaza samsærin gegn sjálfstæði hagkerfa á níunda og tíunda áratug síðustu aldar

Þetta mun þá væntanlega heita rek eða divergence á fínu máli hagfræðinga, frá og með bráðum nú, og stútar það rek væntanlega um leið þörfinni á þessum enda-enda-endalausu umbótum eða structural reforms, sem í reynd þýða að allir eiga skilyrðislaust að verða eins og ég ég ég

Þetta er nú heldur betur nýtt dýnamít ofan í Nóbels-friðarverðlaunahafann ESB, sem er á fullu að reyna að gera Evrópu þýska, eins og mig; Þýskaland. Sjáið mig. Sjáið mig!

Heldur ekki fjölþjóða Evrópusambandið þolir fleiri þingkosningar. Hverjar nýjar kosningar eiga nú á hættu að leysa það upp. Ekki bara evruna, því hún er í upplausn, heldur Evrópusambandið líka

Tvær góðviðrisstofnanir "alþjóðasamfélagsins" reyndust ekki vera neitt "samfélag", heldur bara tilraun til að snúna út úr þjóðfélaginu

Og nú fer elítan í þessu alþjóðafargani að missa vinnuna, sem betur fer

Skál fyrir Donald J. Trump! Lengi lifi þjóð-ríkið og þjóðfélag þeirra

Fyrri færsla

Orðið hagkerfi Trumps, líka [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

 Svíþjóð er eitt dæmi um, hvar hlutirnir eru á hvolfi ... hér er verið að dusta rikið af botninum á versta skottu-skrímsli veraldar, Islam. Ástæðan fyrir því, er að "stórveldis" klikkun Svía er í svo mikklum hávegum að þeir halda að bandaríkin hafi orðið stór, vegna þess að það voru svo margir innflytjendur sem fluttu til landsins.

 Vandamálið er, að þeir sem byggðu bandaríkin voru Evrópubúar sem lágu undir kúgun og ofbeldi "konunga" veldanna. Fólk, sem ekki fékk að njóta sín.  Þeir múslimar sem fá að flytja til Svíþjóðar, eru "kúgararnir" ekki þeir kúguðu. Þetta á við stóran hluta Evrópu einnig.

 Nú, er Donald Trump að tryggja að N.Kórea verður Bandarísk ... sem þýðir að bandaríkin munu eignast ódýrar verksmiðjur í N.Kóreu og framleiðsla kanans ná nýjum topp.

Örn Einar Hansen, 12.6.2018 kl. 05:28

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú ert hræddur um að Donald J. Trump sé að endurtaka Nixon-Kína opnunina í Norður-Kóreu, Bjarne.

Það væri nú alveg hroðalegt ef að sá hluti þjóðarinnar sem býr í Norður-Kóreu yrði brátt jafn vel staddur og saddur og sá hluti hennar sem býr í því Suðri sem Bandaríkin hafa stutt til velsældar.

Það yrði líka áfall fyrir kínverska Kommúnistaflokkinn að missta eina hundinn sem hann hefur úr bandi sínu.

En nú er blaðamannafundur að hefast á næstu mínútum, þar sem vonandi verður útskýrt hvað það er sem fékk Kim til að segja að "heimurinn mun sjá meiriháttar breytingar". Ég ætla ekki að missa af þeim fundi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 12.6.2018 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband