Leita í fréttum mbl.is

Bjarni sigraði - Katrín Clinton tapaði

Sigurvegari kappræðna kvöldsins var framfaramaðurinn Bjarni Benediktsson. Jarðsamband hans við Lýðveldið Ísland og þjóðina er greinilega sterkast og hann er að sanna sig sem varðstöðumaður fullveldis Íslands númer eitt. Bændur eiga Bjarna sem hauk í horni og sama gildir um alla þá sem framleiða landsframleiðsluna handa þeim sem neyta hennar og spara upp; heimilin í landinu. Fyrirtækin framleiða landsframleiðsluna og heimilin neyta hennar og leggja hana til hliðar sem sparnað. Fyrirtæki og þar með bændur líka, spara einnig upp, ef þau græða. Annars fara þau á hausinn og þar með rekstur heimila líka

Katrín Jakobsdóttir fannst mér vera stóra skúffelsi kvöldsins. Kappræðurnar sönnuðu að hún stendur fyrir stöðnun og vaxandi völdum þeirra sem frá vöggu til grafar ætla að lifa á þeim sem búa til þjóðarkökuna, baka hana og skreyta. Hún gat ekki svarað fyrir þá vinstri stefnu sem hún boðar, nema sem þá sömu gömlu vinstristefnu sem Íslendingar þekkja of vel. Ekkert sannfærði mig um að áframhaldandi kosningasvik séu ekki þar á dagskrá strax eftir kosningar, því hún gat ekki svarið af sér vinstrið-vonda og því sem allra verst er við það. Flokkurinn nær ekki hálfa leið upp í ásættanlegt vinstri. Sennilega er tíminn útrunnin fyrir vinstrið græna eins og hann rann út fyrir vinstrið rauða. Katrín vissi ekki hver hún er; Græn eða rauð. Hvort skyldi það vera? Ég veit hins vegar vel hver ég er. Ég er einn þeirra sem flokkur hennar hefur sorterað niður í körfu af fyrirlitlegu fólki sem "halda þarf varanlega frá stjórnarráðinu". Hvað varð um græna lit flokksins Katrín? Er hann kannski orðin rauður

Sigmundur Davíð kom sá og sigraði að sumu leyti, sérstaklega hvað varðar nýtt þjóðarsjúkrahús og tenginu landsins við höfuðstaðinn, sem er að verða frekar þunn, svo ekki sé meira sagt. En ég bíð samt með frekari dóma þar til stefnuskrá Miðflokksins verður kynnt. Flott með hvíta hestinn

Logi Einarsson sannaði svo ekki verður um villst að Samfylkingin er að deyja. Þar var ekkert að hafa nema framhalds-dansleikur á gröf flokksins og skjaldborg um þá sem vilja afnema Lýðveldið Ísland og tortíma fullveldinu

Meira var upp úr Þorvaldi Alþýðufylkingarinnar að hafa. Sá maður komst vel frá kvöldinu, mun betur en Logi. Hann var massífur og beinn í baki

Bjarta framtíð er ekki hægt að fjalla um á vitrænan hátt. Flokkurinn er ekki marktækur lengur

Sigurður Ingi í Framsókn: Þetta er frekar sorglegt, en ég fékk á tilfinninguna að þar færi flokkur sem mestan áhuga hefur á því að fá bara að vera með, launanna vegna. Ekki gott fyrir Framsókn, því miður. Ég skil ekki enn hvað er að gerast með Framsókn, það verð ég að játa

Viðreisn sannaði sig sem sokkið vöruframboð, komið langt fram yfir síðasta söludag. Sá sem seldi þeim slagorðið "Vinstri velferð og hægri hagstjórn", hlýtur að vera í fullu starfi hjá Procter og Gamble, þ.e. þeim sömu endurskoðendum sem hönnuðu stöðnuðu Katrínar-vörulínur Clintons síðustu 30 ára. Ótrúlegt að þetta skuli enn vera til. Viðreisn vill flytja út fullveldið, störfin, landbúnað og hagstjórn og skilja þjóðina eftir á fjóshaug eins og gerst hefur um allt ESB og USA. Viðreisn er visnuð samfylking ESB-hrægamma á leið á öskuhauga sögunnar

Píratar sönnuðu sig sem hatursflokk. Ekkert var þar að hafa nema hatur, hroka og fyrirlitningu og hreint út sagt þvælu

Inga Sæland byrjaði vel, lofaði góðu, sérstaklega landsbyggðarmálin, en svo kom að því að sjón varð sögu ríkari þegar jarðsamband hennar sýndi sig hangandi á bara einu strái; taltungu hennar sjálfar sem hljómar vel, en vantar jarðsamband

Dögun: tja, það gat vel verið verra

Íslenska þjóðfylkingin stóð sig vel

RÚV komst ágætlega frá kvöldinu og það ber að þakka. Þetta var gagnlegt

Fyrri færsla

Nýjustu heimsveldin öll að líða undir lok


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Nákvæmlega og mikið sammála, en fulltrúi Dögunar er ekki með hjá þér nema að ég sjái það ekki fyrir þreytu. Verð að vera fit í leiknum á morgun!!

Helga Kristjánsdóttir, 9.10.2017 kl. 01:14

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga

Afsakið. Ég ruglaðist í romsu minni. Dögun komin á listann (hafði óvart kallað hann Flokk fólksins)

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.10.2017 kl. 01:35

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ágætt að sjá Evrófílana og stjórnarskrárþráhyggjuflokkana fremja Harakírí í beinni.

Spurning hvort það nægi til að sefa Stokkhólmsheilkenni austurvallarskrílsins.

Jón Steinar Ragnarsson, 9.10.2017 kl. 03:48

4 identicon

Góð greining. Ég nennti nú ekki að hlusta á þetta endalausa bull og blaður í vinstra genginu. Ég hlustaði mest á Bjarna, Sigurð Inga og Sigmund Davíð. Þeir voru þeir einu, sem sögðu eitthvað af viti. Ég reyndi að komast í gegnum vaðalinn hjá Ingu Sæland, en hjá henni, eins og öðrum var lítið annað að finna en sömu, gömlu tuggurnar, sem maður er búinn að hlusta á hundrað sinnum áður. Allir segjast vilja gera allt fyrir alla fyrir kosningar, en svo er ekkert að marka neitt eftir kosningarnar. Ég gafst upp á að hlusta á þvæluna í fólkinu, áður en yfir lauk og fór að horfa á Norska sjónvarpið í staðinn. Þetta á líklegast að vera fyrir þá, sem ekki eru búnir að ákveða, hvað þeir ætla að kjósa, en ég veit ekki, hvort nokkur var nokkru nær eftir gærkvöldið. Ég á ekki von á, að afgangurinn næstu kvöld verði betri, og veit ekki, hvort ég endist til að hlusta á það raus frekar en þetta í gærkveldi, enda er ég alveg ákveðin í því, hvað ég ætla að kjósa, svo að ég þarf svo sem ekki að hlusta á þessa þætti þess vegna. Svo er nú það.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2017 kl. 11:35

5 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Er að mörgu leiti sammála þér Gunnar. Vandamálið með Bjarna er samt sem áður, slæmur málstaður. Út af fyrir sig er ekkert mál að rakka hann og SDG niður í svaðið. En alla vega í þessum umræðum kaus fólk að gera það ekki, diplomatia? kannski. En þetta er auðvitað einungis fyrstu samræður flokkana. SDG og Bjarni Ben. eiga svo lítið inni, þ.e. út á við, inn á við þá eru þeir í mismunandi stöðu. SDG er með eigin flokk, meðan BB er að básúnast með gamlan flokk, með kannski 15-20% fast fylgi, no matter what. En baráttan fer að harðna, trúðu mér, þá fyrst kemur í ljós sá styrkur sem þessir sérstaklega tveir aðilar búa yfir, hafandi yfir höfðu sínu eithvað sem orkar tvímælis.    

Jónas Ómar Snorrason, 9.10.2017 kl. 11:44

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

En hættum dagurþrasi og einbeitum okkur að því að senda strákunum okkar jákvæða og góða góða strauma. Það er nefnilega stórmekilegt augnablik í augsýn. Við viljum ekki umspil!!!!!!!!cool

Jónas Ómar Snorrason, 9.10.2017 kl. 11:55

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Ég reyndi að hlusta vel á alla.

Bjarni er breytingamaðurinn. Þegar laun bænda og fólks í ferðaþjónustu fara að hækka, þá veit ég að Bjarni er kominn í stjórnarráðið með góða ríkisstjórn, sennilega með Sigmundi Davíð.

Ef laun bænda halda áfram að lækka, þeir eru lægst launaða stétt á Vesturlöndum, þá veit ég að Katrín Clinton og ESB-hrægammar eru komnir í stjórnarráðið með ríkisstjórn sem halda mun áfram að skipa út öllu íslensku og skilja þjóðina eina eftir á fjóshaug.

Bjarni er fulltrúi framfara fyrir þjóðina. En þetta lítur þó illa út því við fáum sennilega hreina vinstristjórn. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.10.2017 kl. 14:45

8 Smámynd: Baldinn

Þín greyning kemur ekkert á óvart Gunnar.  Þú heldur með þínum mönnum.  Ég nennti ekki að horfa enda fynnst mér engu máli skipta hvað hver segir þarna því þau vilja öll bæta menntakerfið, heilbrigðiskerfið, samgöngur og kjör aldraðra og fátækra.  Síðan verður mynduð ríkisstjórn og allt gleymist.

Baldinn, 9.10.2017 kl. 16:17

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Baldinn.

Það er nú oft gott að hlusta á það sem sagt er og því sem er reynt að koma sér undan að svara.

Já, mikið rétt og það lítur út fyrir að það verði hrein vinstristjórn sem verður mynduð. Síðast þegar það gerðist opnaðist hreint helvíti fyrir Ísland. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.10.2017 kl. 18:31

10 identicon

Ég er náttúrulega ekki á Íslandi og missti af þessari frægu umræðu, en er sammála Baldinn.  En vil bæta því við, að því lygnari sem þeir eru ... því betur flýtur af þeim bullið, sem flestir taka sem "ágæti".  Personulega myndi ég frekar leita að "göllum" hjá þeim, til að sjá hvort ekki væri meðal þeirra einn og einn "raunveruleg" manneskja en ekki pólitískt vélmenni.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 9.10.2017 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband