Leita í fréttum mbl.is

Ísland: heimsmethafi í hagvexti

Hagvöxtur á Íslandi 3.fj 2015 og 2016. Skjáskot af vef Trading Economics

Mynd: skjáskot af vef Trading Economics. Nánar: Hagstofa Íslands

Maður getur nú ekki annað en brosað út í annað að þessum græna bletti þarna efst til vinstri á myndinni. Já, ég hef oft sagt að Ísland sé að mörgu leyti nýmarkaðsland (e. emerging economy). En að þetta sé svona eins og þarna á myndinni fær mig til að brosa ansi breitt út í bæði. Af 196 löndum sem þeir hjá Trading Economics fylgjast með, þá erum við ansi nýmarkaðsleg þegar að hagvexti á milli þriðju ársfjórðunga 2015 og 2016 kemur, eins og er. Þetta er ein birtingamynd fullveldis Íslands í peningamálum sem og öðrum málum okkar. Þetta er ekki finnska leiðið í fjöldagrafreit evrunnar þar sem ESB-aðild er að gera Finnland að Grikklandi norðursins - þið munið, "Kúba norðursins"

A chronically depressed economy, rising unemployment and an aversion to free-market reforms. Sound like a familiar European tale? But it’s not Greece, Spain or Portugal. It’s Finland,- Lars Christensen

Þetta er hvorki meira né minna en heimsmeti í hagvexti hjá Íslandi. Mín spá fyrir síðasta ár í heild er 7 prósent hagvöxtur. Og samt er verðbólgan ekki nema eins og svona um það bil tvö prósent. Margt spilar þar inn, innlent og erlent, en samt grenja hagsmunasamtök. Og samt grenja menn á lækkun stýrivaxta! Flestir með tvö prósent af heilafrumu verðbólguþekkingar vita hvað það myndi þýða. En samt er grenjað. Og samt grenjar stjórnarandstaðan (hún er andstæð stjórn) og hagar sér eins og apaflokkur í furðutré

Engir vitar engar brýrÞað er heldur ekkert við því að segja að vegamál á Íslandi séu eins og þau eru. Það er bara ofur eðlilegt. Við erum með eitt stærsta vegakerfi í heimi á hvern skattgreiðanda, og vegakerfið okkar er, þrátt fyrir allt, fallegt og snoturt kraftaverk fullvalda þjóðar. Það þarf að nálgast vegamálin á annan hátt en með heimtufrekju og sífellt nýrri og meiri skattlagningu. Þetta er mál sem öll þjóðin og digrir sjóðir hennar eiga að líta á með þeim augum sem gert var þegar þjóðin lokaði hringnum. Ég myndi kaupa skuldabréf í þannig fjárfestingu. Hafa ber í huga að þjóðvegakerfi Bandaríkjanna milli fylkja er stærsta einstaka opinbera framkvæmd mannkynssögunnar

Við erum ennþá nýmarkaðsland og það á eftir að gera margt og mikið hér heima hjá okkur. Þetta er svona vegna þess að við urðum svo seint frjáls þjóð í eigin landi. Við fengum sjálfstæði fyrir aðeins 73 árum síðan. En þessu vilja þeir sem hæst öskra sem apar í trjám, henda í ruslið og gerast aumingjar í Húsi fjötra Evrópusambandsins. Gerast þrælar á ný. Og samt kom hin brosandi bóla á rassi Þýskalans hingað í heimsókn í formi Uffe Ellemans-Jensen og sagði örvita íslenskum ESB-sinnum að eina leiðin út úr sambandinu, án kjarnorkuvopna, væri ekki til, nema sem liðið lík. Hann veit þetta, en þorir ekki að segja það. Hann er búinn að selja sambandinu sál sína og getur ekki bakkað nema með harakiri

Eins og margir vita þá hef ég lengi sagt að við eigum að taka upp alvöru byggðastefnu á Íslandi, þar sem launatengd gjöld lækka því fjær sem dregur höfuðborgarsvæðinu. En nú er ég kominn í efa um þetta mál, því varla getur Ísland fengið sterkari byggðastefnu en hina vinstrisinnuðu borgarstjórn Reykjavíkur. Borgríki vinstrimanna er svo öflugt að ég er kominn í efa

Svo þarf að reka yfirstjórn Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur (sjá hér, takk Styrmir!) og halda áfram að borga niður skuldir ríkissjóðs og þá lækka skatta, og svo útvega fleiri tré fyrir apabörn vinstisins til að brjálast í vegna framfara. Og já, lyga- og blekkingaherferðar- þingmaður Viðreisnar í formi formanns utanríkismálanefndar Alþingis Íslendinga, þarf líka að reka úr þeirri stöðu. Hún er undir eið og er ekki almennur borgari. Hún á að vita það. Þetta má hún ekki gera í þeirri trúnaðarstöðu sem henni er trúað fyrir. Svona moldvörpustarf má ekki líða

Áfram Bjarni Benediktsson! Rektu hana ásamt yfirstjórn Landsvirkjunar!

Fyrri færsla

Evrópa þolir ekki Þýskaland


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er rétt eins og þú sért að segja mér nýjar fréttir, svona fjarska stutt síðan 73 ár! Eftir önnur 73 ..Þú fagra minning eftir skildir eina.

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2017 kl. 04:53

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þetta er gott að sýna okkur þetta.

Vonandi eru þetta rauntölur.

Hinir ýmsu hagsmunaaðilar voru að blanda inn í Rauntölurnar, ýmsum hugmyndum til að aflaga sannleikann.

Reynir Viðskiptaráð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að handstýra tölum um samkeppnishæfni Íslands?

Jónas Gunnlaugsson | 16. júní 2015

Hagtölur

| 17. nóvember 2014

Samkeppnishæfni

| 26. október 2014

Egilsstöðum, 08.03.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 8.3.2017 kl. 10:15

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið.

Þetta er mesti ársfjórðungslegi hagvöxtur á síðustu 18 árum, fyrir utan 1998 og 2007.

Já Jónas þetta eru að sjálfsögðu rauntölur úr þjóðhagsreikningum okkar og unnið upp úr fréttatilkynningu Hagstofu Íslands 7. desember 2016 um magnbreytingar landsframleiðslunnar. Mestu munar um útflutningsframlag vöru og þjónustu og svo um fjárfestingar í því sem býr til enn frekari hagvöxt/ velmegun (þ.e.a.s. ekki í hráefnum né birgðum); eða á styttu máli; fjármunamyndun.

Menn hafa bara verið of uppteknir við væl, vol, brjál, níð, pólitískan moldvörpugröft og ónýta-Ísland áróður til að taka eftir þessu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2017 kl. 16:23

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sæll, en tekur TE tillit til innviða Íslands gagnvart t.d. norðurlöndum, held ekki. Allar svona tölur og líkan, eru svo mikið hjóm eitt, og í raun broslegt ef þú pælir í því, að á Íslandi er ALLT skorið niður við nögl. Nú síðast samþykkt samgönguáætlun um 10 miljarða, ekki til peningur í öllum þessum bullandi hagvexti sem þú emjar um af hamingju yfir. Þú verður nú aðeins að hugsa út fyrir litla kassann þinn Gunnar. 

Jónas Ómar Snorrason, 8.3.2017 kl. 22:22

5 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Pistlar:

8. september 2014 kl. 22:10

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Samkeppni og hæfni þjóða

http://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/sigurdurmar/1441046/

Þarna segir SMJ að:

... Könnun IMD er gerð í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands. Þar vigta hagtölur (absolut tölur) 2/3 og könnun um 1/3. Semsagt hlutlægir mælikvarðar annars vegar og huglægir hins vegar. Þessu er öfugt farið í könnun WEF, sem er gerð í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem meðal annars aðstoðar við gagnaöflun. Hjá WEF vigta hagtölur um 1/3 og könnun um 2/3. Huglægi þátturinn hefur þar mun meira vægi. ...

... Margt er kúnstugt í þessum svörum stjórnenda, svo sem að gagnsæi í stjórnsýslu sé meira í kínverska alþýðulýðveldinu en á Íslandi! Gera má ráð fyrir að þessi sjónarmið stjórnenda vigti enn þyngra í könnun WEF eða hve alvarlega taka menn niðurstöðu um að bankakerfið hér sé lakara en í Afríku? ...

000

Þarna er sagt að huglæga matið komi mjög illa út fyrir Ísland.

Þakka þér fróðleikinn.

Egilsstaðir, 08.03.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 8.3.2017 kl. 22:54

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jónas Ómar

Þú ert að tala um eitthvað annað en það sem ég skrifa um í færslunni, þ.e. hagvöxt á Íslandi.

Flestum er ekki sama um tölur, að minnsta kosti ekki þegar að bankareikningi þeirra kemur. Engum ætti að standa á sama um hagvöxt í landi okkar. Það er hann sem býr til þá velmegun sem stjórnmálamenn taka af til að búa til þann pólitíska hlut sem kallast velferð. Án hagvaxtar úreldist allt og engar framfarir geta orðið. Stjórnmálamenn búa hvorki til velmegun né peninga. Þeir eyða þeim.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.3.2017 kl. 00:46

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jónas G.

Þú ert að tala um samkeppnishæfni en ekki hagvöxt. Hún hefur ekkert með hagvaxtartölur að gera nema að því leyti að ósamkeppnishæfni í hagkerfinu kemur fram í þjóðhagsreikningum þjóðarbúsins sem verri eða lélegri hagvöxtur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.3.2017 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband