Leita í fréttum mbl.is

Tilboð Bandaríkjanna um passlegt NATO

DoD 170214-D-GO396-0075

Mynd: Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna: James Mattis talar við blaðamenn um borð í E-4B á leið sinni til meginlands taparanna

James Mattis vararnmálaráðherra Bandaríkjanna neyddist í gær til að heimsækja skræksjoppu Stoltenbergs í Evrópu til að horfa þar upp á Norðmann-inn rúlla skræk eftir skræk út yfir heimsbyggðina. Stoltenberg er talin ríkasta þjóð veraldar sem hefur ekki efni á sjálfri sér

Að skrækjum hans loknum kom þurrt tilboð að vestan. Tilboð sem ekki er hægt að hafna. Bandaríkjamenn bjóðast frá og með nú til að rústa NATO það mikið að það kosti Evrópu lítið sem ekkert að vera í því. Þeir komu með tilboð um NATO sem passar pyngju Evrópu: að þeir fái loksins það sem þeir borga fyrir

Og ef að allir væru jafn duglegir og Íslendingar, þá myndi NATO ekki kosta nokkurn mann neitt. Það væri einfaldlega ekki til. Ég hef því ákveðið að krefja ekki sjálfan mig lengur um leigutekjur af sjálfum mér. Því ég er ekki til

Vesalingar

Fyrri færsla

Donald J. Trump kann ekki að vera forseti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afsakið enskuna en hér er hann orðrétt

“No longer can the American taxpayer carry a disproportionate share of the defense of western values,” Mattis said. “Americans cannot care more for your children’s security than you do. Disregard for military readiness demonstrates a lack of respect for ourselves, for the alliance and for the freedoms we inherited, which are now clearly threatened.”

Erlendur (IP-tala skráð) 16.2.2017 kl. 14:02

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir fyrir þetta Erlendur

og Amen!

Já. Það var gott hjá Mattis að þruma þessu af úr Gamla testamentinu yfir meginland tapranna:

Tveir hertir ofurlyklar úr Gamla testamentinu eru í þessum stutta texta hans:

1. Siðferðið: Frelsið sem við njótum er ekki veitt til eilífðar, hver einasta kynslóð verður að sækja það.

2. Vestrænu gildin: ef við gleymum gömlu Jerúsalem (hornsteini Vesturlanda), þá hverfa þessi gildi og ávextir þeirra einnig. Við verðum svartnættið og þrælaríkið og ekkert Amen

Það tók stamsteypu-ríkisstjórn hins stjórnlausa Þýskalands ekki nema 32 klukkustundir að detta í sundur við þessi skilaboð frá Donald J. Trump.

CDU = OK, verði þinn vilji.

SPD = NEI, við gefum skít í börnin okkar, því við eigum þau engin.

Kveðjur Vestur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.2.2017 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband