Leita í fréttum mbl.is

Ítalía: ellisparnaður í evrum gerður upptækur

Ítalskur karlmaður á eftirlaunaaldri framdi sjálfsmorð er hann komst að því að bankinn hans hafði gert allan ellisparnað hans upptækan. Í fyrstu lotu er hér um að ræða að minnsta kosti 130 þúsund manns í svipaðri stöðu í fjórum "litlum" bönkum á Ítalíu, sem eru í hópi smærri fjármálastofnana í hinu gangandi gjaldþrota bankakerfi Ítalíu í evrum, sem verið er að reyna að "bjarga" með því að gera peninga fólksins upptæka

Málið hefur ekki farið hátt undir innrásarhvatningu Angelu Merkel til innanfrá eyðileggingar hennar á Evrópu undanfarið, en fjallað er þó um það í blöðum á Ítalíu og í Financial Times um helgina. Í Evrópusambandinu undir evru ríkir nú fjárkúgun, peningaskömmtun og eignaupptaka

Í tilfelli þessa ákveðna fórnarlambs evruaðildar Ítalíu, þá hafði maðurinn keypt spariskírteini og geymt sparnað sinn í þeim. Eftir 50 ár sem viðskiptavinur í bankanum tók bankinn peninga mannsins til að troða þeim ofan í seðlabanka Ítalíu sem tróð þeim svo upp í ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands í Frankfurt, ásamt fjármunum þessara 130 þúsund sparifjáreigenda í fjórum af endalaust mörgum gjaldþrota bönkum landsins. Bönkum sem allir eru að drepast vegna evruupptöku. Enginn hagvöxtur hefur verið á Ítalíu frá því að landið tók upp evru. Enginn!

Bankakerfi Ítalíu er því orðið þannig að ein erlend trilljón evra er úti að synda og sökkva í vanskilum. Opinberlega uppgefin vanskilatala er 200-300 miljarðar evra, en enginn hefur neina góða né sanngjarna ástæðu til að trúa henni

Ríkissjóður landsins er þurrausinn sökum algerrar fjarveru hagvaxtar vegna evruupptöku. Og hann hefur litla aðra möguleika til umráða í handjárnum myntbandalags Evrópusambandsins, en með stigmagnandi illráðum og Brusselsku þvaðurblaðri að gera peninga fólksins á einn eða annan hátt upptæka til að reyna að bjarga sér frá handjárnuðu ríkisgjaldþroti í evrum Þýskalands. Massíft og stáltryggt esb-atvinnuleysið áratugum saman hefur aðstoðað dyggilega við súgþurrkun skattatekna hins tóma ríkissjóðs Ítalíu. Allar tekjur ríkissjóða koma frá atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjur eru til

Fjármálahrunið árið 2007 hófst með því að þrír fjárfestingasjóðir franska stórbankans BNP-Paribas í evrum gátu ekki greitt út þá peninga sem fólk átti inni í þeim. Þeir lokuðu á úttektir. Fólk og fyrirtæki gátu ekki nálgast peningana sína. Þetta breiddi fljótlega úr sér sem vantrausts-hringar í leðjupolli á millibankamarkaði, sem fraus smám saman alveg gersamlega til og kom af stað lausafjárþurrð á heimsmarkaði. Þannig hófst fjármálakreppan um næstum alla veröld - og sem við hér á Íslandi kynntumst svo sem bankahruni

Það verður fróðlegt að fylgjast með evru Evrópusambandsins starta formlega styrjöldinni sem hún hefur verið að úða fulla af start-vökva síðastliðin 15 ár. Evru-púðrið er nú að verða endalaust að umfangi og sprengigetu. Og prentað er og prentað til að reyna að láta start-vökvann í sprengihólfinu gufa upp ásamt öllum eignum allra í evru-fjármálakerfinu, sem er gjaldþrota. Tómatrauð eru augu ESB-seðlabankastjórans því orðin og slettast flóttalega til í tóftum súrkáls

Kaupið aldrei neinar fjárskuldbindingar í evrum. Og allra síst spariskírteini. Það er alveg sama á hvern veg þetta fer þarna í Evrópu. Heimsálfan er algerlega ónýt til frambúðar, þökk sé Evrópusambandi Þýskalands og Frakklands. Þetta reddast ekki. Út með EES-samninginn áður en hann dregur okkur lengra niður í svaðið. Út út út STRAX!

Fyrri færsla

1980: Jimmy Carter bannar öllum Írönum að koma til Bandaríkjanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Eg hef lúmskan grun um að Lífeyrissjóðir Íslendinga - hverfi einn daginn- þeir eru ekki undir stjórn eigenda- einstakir PENINGAHUGSJÓNAMENN hafa þá - algjörlega á eftirlits.

Erla Magna Alexandersdóttir, 14.12.2015 kl. 20:21

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Erla

Lífeyrissjóðir Íslendinga eru í eigu og undir stjórn meðlima þeirra. Varla getur það fyrirkomulag orðið betra en það er.

Þeir hverfa ekki "einn daginn" nema að allt annað í veröldinni hverfi fyrst.

Það eru fá ríki veraldar sem búa að eins góðu lífeyriskerfi og við Íslendingar. Það ber að þakka.

Ef þetta væri í höndum ríkisins þá væri góða-fólkið búið að senda peningana upp í gegnum skorsteininn og éta alla út á gaddinn.

Í dag eiga íslendingar sem svarar 150 prósent af landsframleiðslu Íslands til að hlúa að sér í ellinni. Ítalir eiga 3 prósent.

Ítalir eiga ekkert nema skuldir sem eru að drekkja landinu og hagkerfi þeirra er orðið eitt framskriðnasta óðaöldrunarhagkerfi veraldar. Þar verða fasteignir landsmanna fallnar í verði um 80 prósent innan örfárra áratuga. Svartnættið blasir við öllum í evrum.

Í örvæntingu sinni hafði því hinn látni ítalski maður lagt til hliðar til að mæta útgjöldum hjónanna í ellinni. Konan hans fann hann hengdan við hliðina á tölvunni. Þar sást að hann hafði átt í samskiptum við bankann sinn vikum saman og jafnvel boðið honum að gefa eftir hluta af því sem bankinn skuldaði honum, ef að hann bara fengi aðeins eitthvað af peningum sínum til baka. Hann fékk ekkert.

Og um 130-þúsund manns eru nú þegar komnir í sömu stöðu á Ítalíu. Og þetta er einungis byrjunin á endalokunum fyrir Ítalíu í Evrópusambandinu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2015 kl. 21:14

3 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Íslensku lífeyrissjóðirnir lækkuðu um 50% í hruninu og ríkisstjórnin er búinn með síendurteknum árásum á gengi krónunnar að koma í veg fyrir að lífeyrisþegar fá tapið bætt.

Íslenska krónan gefur glæðamönnum tækifæri á að ræna af ellilífeyrisþegum sem þeir eru núna að komast upp með til að hygla útgerðar mafíunni.

Ólafur Örn Jónsson, 15.12.2015 kl. 06:31

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ólafur.

Þér finnst þá kannski að lífeyrissjóðir í einkaeign sjóðsfélaga og lífeyrisþegar þeirra eigi að vera óháðir því sem er að gerast í landinu og í heiminum öllum. Að þeir eigi að vera fastari fyrir en stjörnur á himinhvolfi sem bæði koma og fara eins og sólin sem bæði rís og hnígur? Sólin sem fer niður en kemur upp aftur, eins og sjóðirnir hafa gert.

En hvað þá með inngreiðslur í sjóðina. Eiga þær líka að lúta sömu lögmálum? Og hvað með þær hækkanir sem verða á inngreiðslum og útgreiðslum og á sjálfri peningaeign sjóðanna. Á að stöðva þær hækkanir til að uppfylla þessi yfirnáttúrulegu stöðugleikaskilyrði þín?

Þú vilt sem sagt ekki að lífeyrissjóðir og lífeyrisþegar deili kjörum með þeim sem í þjóðfélaginu búa?

Það er þá eins gott að núverandi 40 prósenta gengishrun evru gagnvart Bandaríkjadal verði stöðvað strax áður en það snýr sjálfa sólina niður af himinhvelfingunni.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.12.2015 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband