Leita í fréttum mbl.is

Ljósara er orðið að ríkisstjórnin er þjóðhættulegur brjálsemisfélagsskapur loddara.

Morgunblaðið í dag, 17. maí 2011 
 
Í Icesave málum eitt, tvö og þrjú, ess-ess-stjórnlagaþingsmálinu og í ESB-málinu sést ágætlega hvaða innviði ríkisstjórn Íslands hefur að geyma; óprúttna hálf- og heillygara, kverúlanta og falsara. Þessi ríkisstjórn hikar ekki við að selja landið fyrir tíkall. Setja þegna landsins í þrælabúðir skuldafangelsis á meðan hún sjálf hírist sem sú huglausasta skjálfandi sköllótta mús, sem hún er. Gapandi kvarnir hennar nærast eingöngu á því sem köngulómetrópólítanskir sendisveinar sækja henni til matar, sem síðan er spuninn fastur í lygavefina handa þessum nær hungurmorða músafaraldri sem nýtur löglegrar en siðlausrar og enn verr fenginnar verndar skjaldborga Stjórnarráðsins gegn þjóðinni. Þetta er dapurlegt, hættulegt og óþolandi ástand fyrir þjóðina og landið okkar.   

Hvernig getur þessu ríkisstjórn loddara, kosningasvikara, lygara og hugleysingja setið þarna áfram eftir að þjóðin hefur sagt upp samningum við hana í marggang. Hún lafir kannski á lygavef Steingríms um landris sem þrýstist jafnharðan niður með límsetustólum ríkisstjórnarinnar á öllum brauðfótunum í einu.   

Staðan er þessi; Nokkrar uppþornaðar mýs í dauðaslitrum hanga á bláþræði í vef sínum í Stjórnarráðinu, leitandi að æti. En á meðan, já einmitt hér og nú, stendur þar stjórnarandstaðan, en bara önnum kafin í biðröð við að komast ekki að neinu. Hún er svo pödduhrædd. Það gæti fallið á hana dauð mús. Hún stendur í biðröð eftir uppseldum andlitsgrímum svo ekki sjáist andlitin fyrir næstu kosningar. Þó glittir þarna aðeins í formann Framsóknarflokksins, Sigmund Davíð. Við vitum þó nokkuð vel hvað hann stendur fyrir. 

Bjarni Ben? - hvert, hvar og hvenær, skyldi það nú vera? Ekki nú. Ekki hér. Ekki ég. Er Tryggvi kokhreystimennið ennþá með þér? 

Þeir sem óska sér að fá Litlu Gulu Hænuna senda til sín myndskreytta í upprunalegri útgáfu, ráðfæri sig við stjórnstöð andarinnar, eða tali við lækni.  

Að lokum er hér tillaga sanngirninnar: að þjóðin setji fram þá kröfu að hér fái markaðslögmálin frægu einnig að ráða, eins og menn hafa t.d. lagt til að gildi um rafmagnið okkar. Að þjóðin fái sjálf að flytja sér inn þá allra ódýrustu alþingismenn sem fyrir finnast í veröldinni. Þetta er jú markaðsbúskaður, er það ekki? Eitt verður yfir alla að ganga. Verra en núna getur þetta aldrei orðið.
 
Humpf! 

mbl.is Fitch breytir horfum í stöðugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband