Leita í fréttum mbl.is

Iceasave málið er ekki leikur

Halda sumir í raun og veru að Iceasave málið sé eins konar fótboltaleikur sem hægt er að nota sér til pólitísks framdráttar? Icesave III. Sterkur leikur Bjarna skrifar Egill Jóhannsson og skrif hans sem og nokkurra annarra undra mig mikið.

Mig langar að benda á að hér er ekki um leik að ræða. Þetta er ekki hinn venjulegi stjórnmálaleikur narrhusa.   

Að taka 10-50% af landsframleiðslunni og sturta henni niður í klósettið er ekki leikur. Það fæst nákvæmlega ekkert fyrir þessa peninga og því mun tapið á þessum glataða hluta landsframleiðslunnar þýða svipað óþolandi högg fyrir þjóðarbú og þjóðríki okkar og ríkisábyrgðar lántökur brennuvarga fyrir bensíni myndu gera. Að borga fyrir að láta brenna sig niður. Það er það sem Icesave stendur fyrir.
 
Að formaður Sjálfstæðisflokksins krefjist þess að  almenningur taki á sig tapið frá fjárhættuspili fremstu glæframanna landsins er svo ósvífið að mig skortir orð. Og þar að auki leggst hann sjálfviljugur og ótilneyddur undir brennuvagninn og sleikir stígvél ökumannanna Steingríms J. Sigfússonar, Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar. 

Það getur vel verið að sumir líti á þetta sem leik. En fyrir hinn almenna borgara sem þarf að sætta sig við að ríkisfjármunir margfalt stærri en þeir sem veittir eru í ALLT heilbrigðiskerfið á Íslandi, skuli bara svona allt í einu og sí svona vera tiltækir til pólitískra bleyjukaupa fáráðlinga og sem ekki munu bjarga neinu, er mér algerlega óskiljanlegt. Þetta er fullkomlega súrrealistískt. 
 
Þess utan lætur formaðurinn xD sér detta í hug að óútfylltur víxill með undirskrift íslenskra skattgreiðenda muni stuðla að einhverju góðu fyrir samfélagið í heild. Þessi maður er hættulegur.
 
Hvað hefur íslenskur almenningur gert til að eiga svona vesalinga á opinberri framfærslu skilið?
 
Fyrri færsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Þú ert harðorður Gunnar.

Er ekki tími til kominn að þið hægri menn, sem eruð ennþá hægri menn, áttið ykkur á, að AGS mótar stefnuna hér á Íslandi.  Allt sem þið gagnrýnið félaga Steingrím og hans fólk fyrir, er eitthvað sem kallast að framfylgja stefnu AGS.

Og að Sjálfstæðisflokkurinn myndi líka gera slíkt hið sama.

Þarf ekki að fara hugsa hlutina upp á nýtt, nýjan valkost þvert á vinstri og hægri, svona framtíð versus fortíð???

Eða sérð þú einhverja leið til að koma á heilbrigðum kapítalisma í því auðræði sem ríkir hér á Vesturlöndum??? 

Hverra hagsmunir eru alltaf í forgang???

Er ekki hægt að ná sátt milli markaðssinna og samfélagssinna, um siðlegt þjóðfélag rekið áfram af drifkrafti einstaklingsins???

Held að það sé spurning 21. aldarinnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.2.2011 kl. 23:56

2 Smámynd: Gunnar Waage

Egill er að fjalla um hagsmuni Sjálfstæðisflokksins og sitjandi formanns. Hann fellur því miður í þá gryfju og átti ég ekki von á því frá honum.

Þetta mál verður að hefja upp fyrir mikilvægi leitar Bjarna Ben eða flokksins að sjálfum sér. Það geta þessir aðilar gert annar staðar og helst fjarri ákvarðanatökum er varða öryggi og framtíð barnanna okkar.

Staðreyndin er sú að það er vel hægt að endurfjármagna Landsvirkjun, Orkuveituna ect. án aðkomu ESB stofnanna eins og Evrópska Fjárfestingabankans. Þau einkafyrirtæki sem eru stöndug hafa verið að fá endurfjármögnun, önnur ekki. Þannig er lífið.

Þetta eru ólögmætar kröfur, skuldir einkafyrirtækis í öðrum löndum sem Íslendingar hafa ekki fengið neinn arð af. Óvissuþættirnir eru þeir sömu og fylgja hverju öðru gengistryggðu bílaláni að viðbættri óvissu um endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans og forgangsröðun krafna í búið.

Bjarni Ben sagði um daginn að gengisáhættan væri lítil þar sem að krónan þyrfti að falla 25% svo að forsendubrestur yrði fyrir hans útreikningum.

25% gengisfelling er lítið mál og er ég hneykslaður á kjarki þessa vikapilts til að láta eins og hér sé engin áhætta á ferðinni.

Hagsmunirnir að taka á okkur ólögvarðar kröfur? Þeir eru fyrst og fremst til í huga þess er leitar um þessar mundir að skjótteknum auði í formi lánafyrirgreiðslu hjá erlendum aðilum, beinlínis út á veðhæfi Íslenska ríkisins.

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 00:06

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þessar spurningar myndu fara vel á innheimtuseðlunum Ómar. En ég er ekki viss um að þeir sem þú kallar "samfélagssinna" munu tíma að eyða bleki í að prenta þennan boðskap á innheimtuseðla frá ríkisskattstjóra.

Þú ættir frekar að spyrja að því hvort komi á undan; "markaðssinnar" eða "samfélagssinnar". Án markaðssinna er ekki um neitt samfélag handa "samfélagssinum" að ræða Ómar minn. Got that?

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2011 kl. 00:09

4 Smámynd: Gunnar Waage

Ómar, Þú segir;

"AGS mótar stefnuna hér á Íslandi"

Þetta er rangt en er þó það sem að Steingrímur heldur fram. Staðreyndin er sú að Íslenska ríkisstjórnin semur fjárlögin og setur sér skuldastýringráform, skýlir sér síðan á bak við AGS og kennir um.

Stjórnin hefur gengið mun harðar fram en AGS fer fram á. AGS greiða heldur ekki atkvæði um Icesave.

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 00:09

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta mál verður að hefja upp fyrir mikilvægi leitar Bjarna Ben eða flokksins að sjálfum sér.

Þú hittir naglann svo rækilega á höfuðið hér að lengra kemst hann ekki.

Rétt hjá þér nafni minn Waage.

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2011 kl. 00:12

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Samfélagið kom fyrst, mannfræðirannssóknir hjá steinaldarþjóðflokkum sýna að markaðsskipti á gæðum eru óþekkt.

Samfélagið kom á þeim reglum sem leyfði mörkuðum að þróast, og öflugustu markaðirnir hafa alltaf verið þar sem öflugt ríkisvald hefur tryggt umgjörð þeirra og viðgang.

Hins vegar hefur ríkisvald sjaldnast haldist öflugt, ef það hefur ekki skilið gangverk markaðarins.  Hefur getað risið vegna rána og rupla, en slík gæði eru lítt endurnýjanleg.  

En þetta með innheimtuseðilinn er eitthvað sem þið markaðsmenn hafið gleymt í dag, en Churchil ræddi um við kollega ykkar í Bretlandi á sínum tíma, hann benti á hvað hefði orðið um þá í Rússlandi.

Þar sem er ekki félagslegt réttlæti, þar er alltaf ólga.

Og ólga er kostnaður Gunnar, take it or leave it.

Og Gunnar Waage, ef þú trúir því eitt augnablik að aðgerðaráætlun AGS móti hér ekki stefnuna, þá ert þú tækur að trúa á málefnalegan rökstuðning Bjarna.

Þú hlýtur að átta þig á rökfræði samsvörunarinnar.

Steingrímur Joð er fjármálaráðherra á Íslandi.  AGS er mun víðar með aðgerðaráætlun, niðurstaðan alltaf sú sama, og var líka sú sama í Suðaustur Asíu kreppunni, og Suður Ameríku kreppunni.

Hvað segir sú samsvörun þér????

Þeir sem ná ekki að rífa sig uppúr hjólförum local hugsunar, þeir munu ekki móta framtíðina. 

Ástandið í dag er niðurstaða ákvarðana hagsmunahópa, þeirra hagsmunahópa sem ráða.  Þaðan er hið ískalda hagsmunamat ættað.

Og sundruð hjörð andstöðunnar breytir því engu.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2011 kl. 00:41

7 Smámynd: Gunnar Waage

Ómar,

Það að vísa til "local" hugsunar, virðist vera einhverskonar aðferð til þess að vísa málum í ekkert. Sama gildir um vísun til Global viðhorfa einhverskonar. Verandi sjálfur einhver sem hefur starfað töluvert erlendis, þá man ég ekki eftir því hugtaki af þeim vettvangi. 

Varðandi "Suðaustur Asíu kreppunni, og Suður Ameríku" kreppunna, þá er hér farið um vítt og breytt, hvaða samsvörun ertu að vísa til nákvæmlega?

Í Suðurameríku eru nokkur lönd og hafa þar verið all nokkrar kreppur, hver annari ólík. 

Þannig að örlítið betur afmarkað viðfangsefni væri vel þegið.

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 01:08

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Samfélagið kom fyrst, mannfræðirannssóknir hjá steinaldarþjóðflokkum sýna að markaðsskipti á gæðum eru óþekkt.

.

Já, en varla ertu að mælast til þess að við förum aftur á steinaldarstig Ómar?

Steinaldarsamfélagið var í jafnvægi því þar voru allir voru jafnir því allir þurftu að eyða öllum sínum vökutíma í það sama; að afla fæðu.

Ertu viss um að þú viljir engan hagvöxt næstu 15.000 árin? Er það samfélag Ómar. Um hvað stendur það félag saman um? Stöðnun?   

Hvað kom hagvexti af stað eftir 15.000 ára jafnvægi og núll vöxt steinaldarsamfélagsins? Og hvað fékk hagvöxt og alþjóðaviðskipti síðar meir til að stöðvast öldum saman? Það var frelsið Ómar, og svo skortur á því sama. 

Gunnar Rögnvaldsson, 6.2.2011 kl. 02:06

9 identicon

Heill og sæll Gunnar; og aðrir gestir, þínir !

Gunnar !

Það er einmitt; fyrir drifkrafta, sem þig - Ómar Geirsson og Gunnar Waage, að nokkur neisti skuli enn vera til staðar, í mínum ranni, til áframhaldandi baráttu, gegn skaðræðis öflunum, sem eru jú, þau,, hér innan lands, sem eru okkur skeinuhættari, en nokkur, ytra.

Beztu þakkir; fyrir þínar brýningar - sem þeirra Ómars og Gunnars, nafna þíns.

Og; með kveðjum góðum, úr Árnesþingi,. sem jafnan /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.2.2011 kl. 02:23

10 Smámynd: Gunnar Waage

Beztu kveðjur sömuleiðis heim í Árnesþing Óskar !!

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 02:29

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Þú ert betri að lesa en ég ef þú færð út 15.000 ára stöðnun úr orðum mínum.  Vegna fyrri orða þinna bar ég einfaldlega að benda þér á hvort kom á undan, eggið eða hænan, en sannað er samt að hvorugt getur án hins verið, ekki ennþá.

Og ég ætla að vera manna síðastur að rífast um gildi frelsis, en það voru reglur sem skópu frelsið.  Þú ert hvergi í samanlagðri veraldarsögunni, og það ætti að segja þér eitthvað um orsök og afleiðingu, með  markað án miðstýrðs valds. 

Það þarf einhver að löghelda reglurnar, sjá um að þeim sé framfylgt og koma í veg fyrir að "aðrir" ræni þá sem notið hafa velmegun markaðarins.

Og niðurjörfaðir markaðir án frelsis hafa gengið, vankantar þeirra hafa fyrst og fremst komið í ljós við samanburð við þá sem njóta ákveðins frelsis.

Og það sem þú kallar skortur á frelsi og hefur iðulega kennt við sósíalisma eða samfélags eitthvað, er hlutur sem tilkominn var löngu áður Marx gamli skrifaði kommúnistaávarp sitt.    Ofstjórnun miðstýrð valds hefur verið vandamál frá því að elstu menn muna, og það minni er allavega ritað til í 5.000 ár eða svo.

Vanstjórnun hefur líka verið vandamál í allan þann tíma, það er þetta gullna jafnvægi sem hefur verið höfuðverkurinn, það er að ná þeim skilyrðum að markaðurinn nái að blómstra öllum til hagsældar.

Markaðsmenn sem þekkja söguna, skilja þetta með þörfina á reglum og "vernd", hafa alltaf borgað sína innheimtuseðla með glöðu geði.  Glaða geðið hefur aðeins horfið þegar þeim finnst hann of hár án tilefnis.  Ótal sögur eru til um kaupmenn og verslunarmenn sem hafa samþykkt tímabundnar auknar álögur til að styrkja stöðu hins ytra valds.  Karþagó er til dæmis mjög gott dæmi um þar sem ráð verslunarmanna hækkaði skatta, fyrst til að efla varnir borgarinnar, síðan til að greiða ICEsave skatt Rómverja, en um leið náðu þeir að láta verslun sína og viðskipti blómstra.

Þegar varnir Vesturlanda gegn uppreisn og ólgum voru byggðar upp (köllum það velferðarkerfi í dag), þá voru það kaupmenn og iðnrekendur sem stýrðu þeirri uppbyggingu.  Það er til dæmis þjóðsaga að Skandinavísku kratarnir hafi byggt upp norrænu velferðarþjóðfélögin í andstöðu við þá sem stýrðu auðsköpuninni.  Þar var sátt, og hún rofnaði ekki fyrr en ofsköttun sjöunda og áttunda áratugarins varð meiri en ávinningurinn af "verndinni".

Samfélagið er lífræn heild og þar gegnir hver þáttur sínu hlutverki.  Líka þeir "ómerkilegu".  Dæmisagan um líkamann þar sem helstu líffærin rifust um hvert þeirra væri mikilvægast ætti að vera markaðs og samfélagssinnum lærdómur.  Fremst í þrasinu fóru heilinn og hjartað en öll þessi höfuðlíffæri voru sammála um að botnlanginn væri ómerkilegastur því hann væri í raun óþarfur.  Þá varð botnlanginn leiður á þessu, og sprakk, og þar með leystist deilan sjálfkrafa.

Fákeppni auðræðis er sama ógn við markaðssinna og samfélagssinna.  Og það getur eitthvað sprungið sem leggur þjóðfélög okkar að velli.  Í því ljósi er þrasið milli þessara megindrifkrafta brosleg en um leið svo skelfilega tilgangslaus.

Menn eiga að þekkja sinn sameiginlega óvin. 

Og finna jafnvægi sem skapar þeim lífvænlega framtíð.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2011 kl. 09:02

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar Waage, þegar margt er sagt í ekki oflöngu máli þá er treyst á sameiginleg minni, nú ef þau eru ekki til staðar, þá er sjálfsagt að útskýra.

Þetta með local er tilvísun í andstöðuna við núverandi ráðamenn sem hjá mörgum er flokkstengd, væru þeirra menn við stjórnvölin þá væru hlutverkaskipti, þá væru þeir að verja en hinir að gagnrýna.

Og samsvörun er að benda á sama ferlið sem hefur fylgt AGS í öðrum löndum, bæði í núverandi kreppu, sem og í fyrri kreppum.  Skattahækkanir og niðurskurður til að fá jafnvægi í ríkisfjármál er sú leið sem hefur verð farin í öllum löndum sem hafa þurft á fjárhagsaðstoð hans að halda.  

Kreppan sem kennd er við Suðaustur Asíu var um 1990, þar varð ástandið verst í Thailandi og Indónesíu, en mun fleiri lönd lentu i erfiðleikum og fengu aðstoð AGS.  Til dæmis voru það mistök sjóðsins í Suður Kóreu sem voru upphafið af gagnrýni Stiglitz á meðölum sem áttu ekki við sjúkdóminn.

Kreppan í Suður Ameríku kom aðeins seinna, en risaríki álfunnar, Mexico, Brasilía og Argentína, ásamt helftinni af öðrum ríkjum álfunnar þurftu á aðstoð sjóðsins að halda.  Vissulega voru aðstæðurnar í þessum löndum mismunandi en meginlínurnar voru þær sömu.

Ég hef oft nefnt gott dæmi um þennan local hugsunarhátt, að sjá ekki samhengi hlutanna vegna staðbundinna aðstæðna. 

Þegar ég var á Garði fyrir margt löngu, þá hlustaði ég á krakka gagnrýna spillingu og klíkumyndun í Reykjavík, kenndu íhaldinu um.  Það væri vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri spilltur.  Já, og ekki eru bölvaðir framsóknarmennirnir betri, sögðu Norðlendingar og sögðu margar sögur um hvernig kaupfélögin ættu allt, og framsóknarmenn réðu síðan öllu í stjórn bæjarfélaganna, með tilheyrandi spillingu og klíkuskap.  Þeir sem mæltu þessa gagnrýni, voru allaballar eða róttæklingar, og líka íhaldsdrengir.

Það fyndna var að ég hafði til skamms tíma hugsað það sama um mitt bæjarfélag, þar var spilling og klíkumyndun allsráðandi og flokksaðild nauðsynleg jafnvel fyrir aukavinnu unglinganna.

Og þar hafði Alþýðubandalagið farið með völd í um 50 ár.

Hverjir höfðu rétt fyrir sér, þeir sem tengdu spillingu og klíkuskap við framsókn, við íhaldið, eða við kommana???

Svarið er augljóslega að vald spillir og löng valdaseta ákveðins flokks skapar alltaf skilyrði fyrir spillingu og klíkur.  Gjörsamlega óháð nafni þeirra eða staðsetningu í litrófi stjórnmálanna.

Og þeir sem hugsuðu local gátu aldrei séð þetta samhengi.

Steingrímur Joð er ekki fjármálaráðherra Grikklands eða Lettlands, Ukraínu eða Ungverjalands.  Hvað þá að hann hafi stýrt málum í Thailandi eða Argentínu eða einkavinavæðingunni í Suður Afríku eða á Filippseyjum.

Því miður því þá værum við kannski laus við hin söguleg svik vinstrimanna.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2011 kl. 09:25

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hafa þessir menn ekki hugleitt hvað fordæmisgildi gjörningsins er ef ríkið fellst, án ábyrgðar, á að greiða eina krónu af þessari upphæð?

Það þýðir nefnilega að fjárglæframenn þurfa hér eftir ekki að taka ábyrgð á glæfrum sínum og áhættusæknin og gamblið verður eftir því. Ekki bara hjá bönkum, heldur verður þetta hér eftir notað sem aflátsbréf fyrir alla skylda glæpamenn í réttarsölum heimsins.

Þetta snýst ekki um það hvort við ráðum við þessa upphæð eða ekki. Hún er ekki okkar skuld. Þetta er lagalegt prinsippmál.  Bara það að málsaðili geti neitað að fara með mál fyrir dómstóla er eins vitfirrt og það getur verið. Að hægt verði að sniðganga lagalegt ferli af því að eiinhverjum finnst það óheppilegt er svo gegggjað að maður nær ekki utan um það. 

Bjarna er umhugað um að míga í bomsurnar sínar en hugsar ekkert um afleiðingarnar til framtíðar.  Ef þetta gengur í gegn, þá hafa glæponarnir sigrað og munu hafa frítt spil við að hneppa heilu þjóðirnar í ánauð. Þetta er diplómatapassi upp á frítt spil.  Næsta kreppa er því skammt undan og verður margfalt verri. 

Það má ekki borga þetta, jafnvel þótt það kosti ekki nema krónu. Hér er það prinsippið sem skiptir öllu. Ef Bjarni skilur það ekki, þá er hann gersamlega tómur í hausnum, eða þá að hann hefur séð sóknarfæri fyrir einverja vafasama hagsmuni í hans eigin braski.

Þetta er ekki þrátt þriggja þjóða um einhverjar krónur og aura. Þetta er fordæmið að breyttu landslagi í alþjóðafjármálum.  Mjög örlagríkri og vondri.

Skildi "yfirmaður hans" David Rockefeller hafa sent honum tölvupóst?

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2011 kl. 14:41

14 Smámynd: Gunnar Waage

Ómar,

Þetta er alt gott og gilt en eftir stendur það sem ég sagði upphaflega að það er á endanum pólitísk ákvörðun alþingis hvort gengið sé að Icesave 3, það sama á við um AGS.

Það er og hefur allan tíman verið í okkar valdi að hætta samskiptum okkar við sjóðinn, engu að síður hafa Bjarni Ben og félagar, í samvinnu við stjórnarmeirihlutann, staðið fast á áframhaldandi lántökum og samvinnu við sjóðinn.

Þarna er komin hluti af ástæðunni fyrir því að þessi stjórn er ekki löngu farin niður, nefnilega að Bjarni, ásamt sínum tryggustu klofningsmönnum, er AGS maður í húð og hár. 

Málflutningur Bjarna Ben hefur frá byrjun verið sérhannaður til þess að slá ryki í augu fólks í þessari umræðu. Fólk hefur hrifist af fagurgalanum og ljóðrænni yfirlýsingagleði en ekki hlustað eftir smáa letrinu hjá honum, nefnilega yfirlýsingum hans er varða áframhald á samstarfi við sjóðinn. 

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 14:57

15 Smámynd: Gunnar Waage

Þetta mál á að fella í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Gunnar Waage, 6.2.2011 kl. 14:59

16 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Athyglisverð lesning þetta hér og ég þekki mig svoldið í viðbrögðum Gunnars R og Gunnars W við skrifum Ómars, en er nú farin að skilja hann betur en ég gerði í byrjun og er næstum undantekningalaust sammála honum, og það merkilega er að það eru þið líka Gunnar R. og Gunnar W. í grunnatriðunum, þessari lögleysu í því að samþykkja Icesave yfir höfuð og hvernig þetta er svo ávísun á nýja útrás eða öllu heldur viðurkenning á að útrásin var ekki svo galin eftir allt saman, bara sukka og sólunda, lýðurinn fær reikninginn alltaf hvort sem er.

Svo þetta um að það sé ekki AGS sem stýrir efnahagsstefnunni á landinu í dag, heldur stjórnin, hver sópar ?, kústurinn eða sá sem heldur á honum ?, eða öllu heldur "árinni kennir illur ræðari" skiftir engu máli í raun, því með þessari "aðstoð" AGS er einnig verið að færa fé almennings til sukkaranna og í þá hít sem þeir skópu.

Um steinaldarmenn og markaðsöfl, læt ég vera að kommentera á af augljósum ástæðum, þetta snýst heldur ekki um að mæla hver er með stærsta xxxxxx, eða hver er flinkastur að rökræða strákar, heldur að koma því út sem við eru sammála um og vitum að er að gerast með þessu hróplega ranglæti sem væntanlegur Icesave samningur er ef af verður, og ef að er gáð, AGS er að hluta til einnig.

Elskið friðinn milli sanherja, takið höndum saman og "hristið" hina.

Góðar stundir

KH

Kristján Hilmarsson, 6.2.2011 kl. 18:33

17 Smámynd: Ómar Geirsson

Mikið sammála því Gunnar, auðvitað er það okkur í sjálfsvald sett, en kjarninn er sá að það er tvískinnungur að hjóla í Steingrím, en vilja á sama tíma samstarf við AGS.

Það er nú það eina sem ég var að benda á, það dugar ekki að skipta um handbendi, og ég tel að línurnar hafi skýrst.

Og þar sem ég sé bandalag þvert á flokkslínur, þá var ég svona að spá í hvort ekki væri hægt að sætta ólík sjónarmið í baráttunni gegn glæpaklíkunni sem fer um heiminn eins og engisprettufaraldur, í nafni frjáls markaðar í dag, en sósíal eitthvað í gær.  En markmiðið það sama, að níðast á venjulegu fólki.

Og þar sem nafni þinn Rögnvaldsson er hugsuður mikill, þá er alltílagi að byrja að gróðursetja markmið í huga hans.

Það sárvantar nýja hugsun fyrir 21. öldina.  Alla síðustu öld voru það hugsuðir 19. aldar sem mótuðu aldarandann, sú 20. var tóm.  

Og nítjánda öldin dugar ekki á vanda dagsins í dag, eða morgundagsins.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2011 kl. 18:36

18 identicon

Ég minni á að AGS er framkvæmda-aðili fyrir Parísar-klúbbinn. Um þetta má finna smávegis hér:

http://thjodarheidur.blog.is/blog/thjodarheidur/entry/1136436/

Lesið athugasemdirnar ! 

http://altice.blogcentral.is/

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 6.2.2011 kl. 19:01

19 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Kristján.

Var ekki búinn að lesa þig þegar ég henti síðasta innslagi inn.  En hér er allt með frið og spekt, ég er aðeins að hugsa um framtíð drengja minna með því að virkja hugsun Gunnars.  Er svo innilega sammála honum um gildi frjálsra viðskipta, að það hálfa væri nóg.  Og ekki gengur hnífurinn á milli okkar í ICEsave, og hér hef ég fengið mörg rök um fáráð AGS, og um gildi þess að örva hagkerfi á krepputímum, ekki skera þau niður.

Engin vandamál þar á ferðinni.  

Og allt sem kom frá nafna hans Waage núna síðast var eins og mælt úr mínu nefi eða munn réttar sagt.

Og hér á þessari síðu er hamrað á grunngildum, vil enda þetta spjall á fleygum orðum.

"Það má ekki borga þetta, jafnvel þótt það kosti ekki nema krónu."

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2011 kl. 19:06

20 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Amagerbankinn farinn á hausinn??

Þetta hlýtur að vera snemmbær 1. apríl frétt.  Þetta á ekki að geta gerst í samtryggðri útópíu ESB.  Jesúsmaría...er þetta þá allt plat sem Johanna og Eiríkur Bergmann Neanderthals hafa verið að segja okkur?? 

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2011 kl. 21:16

21 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hvað gera Danir nú?  Borgar ríkið innistæðurnar?

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2011 kl. 21:17

22 Smámynd: Júlíus Björnsson

IMF

IMF (International Monetary Fund)
special UN agency that was founded in 1944 to stabilize exchange rates and to facilitate international commerce

International Monetary Fund (IMF)
An international organisation, based in Washington, D.C., with a membership of 184 countries (2002). It was established in 1946 to promote international monetary cooperation and exchange rate stability, to foster economic growth and high levels of employment and to help member countries to correct balance of payments imbalances.


Copyright © 2006, European Central Bank, Frankfurt am Main, Germany. This information may be obtained free of charge through the ECB's website.

Íslenskir tossar höldum okkur við raunveruleikan, Viðskiptajöfnuður Íslands og EU var 30 % óhagstæður fyrir EU 2003. Útflutningur til EU var um 70 % heildar útflutningi. Við Aðildar umsókn 2009  útvíkkunar fulltrúar Kommissionarinnar í Brussel að útflutningur sé kominn niður í 60 % til EU en búið sé leiðrétta gengi krónu.

Þetta geta aldir sem þekkja hefðbundnar Alþjóðaviðskiptahefðir sett í  yfirstéttar samhengi.

Icesave er hlut af langtíma markmiðum UK og EU að tryggja sér fullvinnslukvóta héðan og vaxtatekjur.

Vaxtatekjur fást af hagstæðum fjárfestingum hingað til.

Milliríkja Samningar  segja skýrt að AGS kemur inn þegar ágreiningur rís  [um viðskiptajöfnuðinn] milli 3 aðila Ríkis og Meðlima-Ríkja. Eftir Lissabon getur hann líka komið inn gagnvart Meðlima-Ríki og Brussel komissioninni.

Þetta kemur miklu betur fyrir Markaðasetningu Evru og Punds líka. Menn geta alveg séð að : EU ræðst á Íslands í TV: kemur ekki vel út.  Þetta er gamli tíminn. Úrelt tactic.  

AGS er IMF : Alþjóðlegur viðskiptajöfnunnargengissjóður.  Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er hluti af siðspillingu hér: villandi áróðursþýðingum:

Alþjóðsamfélagið veit allt um sérfræðinga hér segja eitt í dag og annað morgun. 

Ísland  tók hér upp 100% subPrime veðlánagrunn um 2000.  Hér skilur enginn hvað þetta þýðir.  Hér hljóta að fávitar eða föðurlandsvikarar ríkjum.  Veðlán eru grunnur allra efnahags og fjármála utan Íslends. Endureisn á sama grunni skilar því sama.

Júlíus Björnsson, 7.2.2011 kl. 05:33

23 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU lítur á Ísland sem þjónust ríki við samkeppni grunn alvöru Meðlima Ríkja. Hefur enga trú á viðskiptavitinu hér.  Hennar hagur er skera niður yfirbyggingu hér til að lækka verð á útflutning hér sem mest.

Fullvinsla stendur undir auðlegasköttum í EU, og hér líka innan skamms. Þegar eðlilegt EU hlutfall er komið á tekjuskiptingu. 30 millar á Íslandi max.  

Júlíus Björnsson, 7.2.2011 kl. 05:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband