Leita í fréttum mbl.is

Hugbúnaðurinn í höfði forsætisráðherra aflúsaður

Hún situr þarna límd, jafn steingerð og Steingrímur, en getur ekki að því gert, því hún getur ekki staðið. Hið stafræna óvit forsætisráðherrans hefur tekið völdin af henni og nú leikur það Ísland grátt. Í ljós er kominn alvarlegur umhverfisgalli í hugbúnaði forsætisráðherraínunnar. 

Gallinn er þessi: Henni er orðið um megn að skilja það að allir Íslendingar eru ekki - og vilja ekki - verða bístands klíentar um alla framtíð. Eftir hennar samtals 500 ár í betliráðuneytum sem aðeins eyða og eyða fólki og fé, og sem stanslaust er með haugsuguna ofaní vösum vinnandi fólks á Íslandi, þá lætur hugbúnaðargallinn ekki að sér hæða. Nú heldur hún að Evrópusambandið sé félagsmálastofnun og evran sé félagsmálamynt sem hún getur sogað upp með hálmstrái, jafnvel þó svo bæði væru útdauð fyrir ljósárum síðan. Svo líða nokkrar vikur og slær þá aftur út og stofnuð er nefnd eða ráð. Bara sí svona. Stofna. Svo tekur við smá pása þar til hugbúnaðurinn slær yfir í næsta þrep slaufunnar. Þá er farið í gerð nýrrar áætlunar sem á að skila árangri eftir 50.000 ár. Svona gengur þetta og ferlið byrjar upp á nýtt á cirka 6 vikna fresti. 

** PROGRAM **

(begin) vantar peninga, soga og hækka skatta
(do) ganga í ESB og taka upp evru (Ha, útdauð?)
(while) skipa ráð og nefndir, margar 
(sitting) gera áætlun, strax

loop

(begin) vantar peninga, soga og hækka skatta
(do) ganga í ESB og taka upp evru (Ha, útdauð?)
(while) skipa ráð og nefndir, margar 
(sitting) gera áætlun, strax

loop

(begin) vantar peninga, soga og hækka skatta
(do) ganga í ESB og taka upp evru (Ha, útdauð?)
(while) skipa ráð og nefndir, margar 
(sitting) gera áætlun, strax


Raunveruleikinn er hins vegar þessi
  • Evrulandið Írland, komið í meðferð hjá AGS
  • Evrulandið Grikkland, komið í meðferð hjá AGS
  • Evrulandið Belgía án ríkisstjórnar í meira en sex mánuði
  • ESB-landið Rúmenía, komið í meðferð hjá AGS
  • ESB-landið Lettland, komið í meðferð hjá AGS
  • ESB-landið Ungverjaland, komið í meðferð hjá AGS
  • Portúgal; yfirvofandi hætta á hjálparbeiðni
  • Spánn; yfirvofandi hætta á hjálparbeiðni
  • Ítalía; stóra hættan
  • Nú áhættusamara að vera frönsk ríkisskuld en indónesísk ríkisskuld
  • Þýskaland; hve lengi sætta Þjóðverjar sig við ástandið innan myntbandalagsins
 
Stríðsfréttir frá Evru-Víetnam, á meðan Jóhanna og Steingrímur berja Ísland af
 
Svissneski seðlabankinn neitar frá og með nú að taka á móti skuldabréfum írska evru-ríkisins sem veðhæfri tryggingu fyrir lausafé í mynt Sviss sem nota þarf í viðskiptum í bankakerfi Írlands. Bannið nær til allra pappíra írska ríkisins og einnig til pappíra stærstu banka og tryggingafélaga landsins. Gæði þeirra standast ekki kröfur seðlabankans: Bloomberg
 
Yfirmaður útibús fréttastofu þýska ARD-ríkissjónvarpsins í Brussel, Rolf Krause, á að hafa sagt að myntbandalagið og evran sé "hræðileg tilraunastarfsemi" og lýsir yfir stuðningi við upplausn myntbandalagsins í sinni núverandi mynd/t. En Jóhanna og Steingrímur eru því miður upptekin við áætlanagerð.
 
Þetta er svo erfitt, svo erfitt. 
 
Fyrri færsla

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér G. Rögnvaldsson fyrir margt gott sem og þetta.  Stjórnsýsla sem snýst um að stofna nefndir og ráð, kjósa stjórnlagaþing og allskonar kjána skap svo sem upphrópannir um hland í náttgagnið eftir helgi, er allt gert til að bægja huga fólks frá því sem verið er að gera, sem er að hneppa það í ánauð.  Losa það við sjálfsákvörðunar rétt. 

Þjóðin kaus og niðurstaðan var höfnun á stefnu ríkisstjórnarinnar. 

Hvar er stjórnarandstaðan,  hvar er viljinn til að beita upp í vindinn og hætta að hrekjast.   Er stjórnar andstaðan úr sama frauð gúmmýinu og VG liðarnir, sem endalaust láta undan svipunni í hendi fláráðsins kotroskna?

Hrólfur Þ Hraundal, 8.1.2011 kl. 12:01

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir fyrir góðar kveðjur Hrólfur, og gleðilegt nýtt ár. 

Gunnar Rögnvaldsson, 8.1.2011 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband