Leita í fréttum mbl.is

Herveldin gengu út

Handelsblatt: Evru lygarar

Evru-popúlisminn 2000

Hlassi af 28 utanríkisráðherrum á pallbíl Evrópusambandsins var að kröfu pantarans í Brussel, sturtað niður til fundar og kvöldverðar þar í borg um síðustu helgi. Hlassið átti að fjalla um kjör Donalds Trump í forsetaembætti Bandaríkjanna og búa til "sameiginleg viðbrögð" hlassins við því. Sýna átti Bandaríkjunum múrverkið sem Evrópusambandið er gert úr, þar sem hlutfallið allir á móti öllum er notað í loftplötuna, smáríkjum rappað á veggina og sandi stráð í augu almennings til skerpa sýn hans á burðarþolið

Þetta gekk mjög vel. Ungverjaland sagði að evrópska sambandið við bandarískan raunveruleika væri histerískt, Bretland bar við almennri matarlyst og Frakkland afþakkaði steiktar stálevrur í brennandi ítölskum ríkisskuldabréfum, af tillitssemi við fátæktina í suðri. Fóru þessi tvö ríki þar með heim til síns heima og eftir sátu 26 herlausir ráðherrar, teljandi kústsköft með sameignlegu herbragði

Þegar Bretland er farið úr Evrópusambandinu verður Frakkland eina herveldið í hlassinu sem nafni tekur að nefna. Og það vita allir

Fyrri færsla

Evran fellur stíft gagnvart Bandaríkjadal


Evran fellur stíft gagnvart Bandaríkjadal

Gengisþróun ISK EUR og NOK gagnvart Bandaríkjadal frá 8. júlí 2008 til 14. nóvember 2016

Mynd: Gengisþróun íslenskrar krónu, evru og norskrar olíukrónu gagnvart Bandaríkjadal frá 8. júlí 2008 til 14. nóvember 2016. Vísitala

Frá því að ljóst var hver sigraði forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, hefur evran gefið verulega eftir gagnvart Bandaríkjadal. Fall hennar er það umtalsvert að stór hluti markaðarins veðjar í skyndilega auknum mæli á evran falli niður á jafnvirði og neðar. Um mitt árið 2008 kostaði ein evra hinsvegar 1,5 dali. Í dag kostar hún bara 1,07 dali. Hún er fallin svona mikið

Þegar vatnaskil urðu á gjaldeyrismörkuðum fyrri part júlímánaðar 2008, þá hafði evran, undir fjármálabólustjórn ECB-aukaseðlabanka Þýskalands í Frankfurt, hækkað um 100 prósent gagnvart Bandaríkjadal frá árinu 2001, en þar á undan hafði hún hrunið um 30 prósent frá 1. janúar 1999. Gengi evru stjórnast að mestu af eftirspurn eftir þýskum hrísgrjónum

Seljist þýsk hrísgrjón illa á alþjóðamörkuðum, þá lækkar Þýskaland gengi evrunnar enn frekar með því að kveikja elda í enn einu evrulandinu í viðbót, sem handjárnuð eru við það á myntsvæði þess. Gengið er þannig lækkað samkvæmt útvortis þörfum Þýskalands, en innvortis á milli evruríkja er þýsk peningaskömmtun, örkumlandi kreppa og fjárkúgun látin sjá um að halda samkeppni frá öðrum evrulöndum í skefjum

Talið er að byltíngin muni hefjast fyrst í Austur-Þýskalandi þegar gengi evrunnar er komið niður í 0,65 dali og þar með þurrkað út sparifé þýskra heimila, sem að meðaltalinu eru 1,9 persónur að mestu yfir sextugt

Fallið úr skýjaseðlun ECB seðlabankans um miðbik ársins 2008 og niður í keng þann 14. nóvember 2016, er það stórt í dag, að gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal er sterkara en gengi stálfátæktarevru er gagnvart mynt Bandaríkjamanna. Norska krónan gegnsósa í olíu, er að verða alelda

***

Þýski seðlabankinn Reichsbank, varð sjálfstæð og pólitískt ósnertanleg fag-stofnun árið 1922. Hann varð ríki í ríkinu eins og ECB-seðlabanki Evrópusambandsins er í dag. Reichsbank sprengdi Þýskaland í tætlur með óðaverðbólgu. Á minna en 12 mánuðum breyttist verðhjöðnun í 500 prósent verðbólgu, og var sú breyting einungis startskotið upp í óðaverðbólgu. Á síðustu 215 árum hefur Þýskaland farið átta sinnum í þjóðargjaldþrot, en Ísland og Bandaríkin aldrei. Þýskaland er ófært um að stjórna sér sjálft

Fyrri færsla

Hver er Steve Bannon? - nýi áttavitinn í Hvíta húsið


Bloggfærslur 15. nóvember 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband