Leita í fréttum mbl.is

Auðvitað þolir Reykjavíkurborg ekki Ísraelsríki

Ísrael er nefnilega ekki aumingjavætt ríki. Í því landi býr þjóðin Gyðingar sem færði heiminum Biblíuna. Bókina miklu. Þegar hún var þýdd yfir á lesmál sem breskir gátu skilið, vaknaði sú heitasta ósk meðal þeirra að Bretland gæti orðið hið nýja Ísrael. Ástæðan var sú að í Biblíunni fannst sjálf uppskriftin að þjóð-ríkinu. Og allir hugsandi menn sáu að það var -og er enn- bara þjóðríkið sem getur veitt fólkinu vörn gegn völdum og tyranny heims-velda (imperial power), sem gengið hafa oft það illa frá mannkyninu að litlu munaði að illska og mannvonska þeirra réði niðurlögum þess. Gyðingahatrinu var svo síðar lætt inn í meðferð meginlands Evrópu á Nýja Testamentinu með Upplýsingunni úr þýskum aðalstöðvum Hegels sem er faðir marxismans og af þorparanum Kant, sem er kloffaðir ESB

Um síðustu helgi boðaði Ayatollah Khamenei andlegur leiðtogi margra múslíma útrýmingu Ísraelsríkis innan næstu 25 ára. Hugsið ykkur, þetta er bandamaður Samfylkinga sósíalista á Íslandi og sem auðvitað er staðsettur í helsta bandamannaríki Adolfs Hitlers á sínum tíma í þeim hluta heimsins. Hugsið ykkur. Upp í hendur þess konar afla spilar borgarstjórn Reykjavíkur sínum pólitísku trompum, ókjörin. Þetta er villimennsku líkast

Það er auðvitað erfitt fyrir sósíalistísk Samfylkingarfólk og aðra kommúnista að fyrirgefa Gyðingum Helförina. Í pólitískt pervertum hugum þeirra er Helförin nefnilega Gyðingum sjálfum að kenna af því að þeir eru það versta sem til er í hugum Evrópusambandssinna, þeir eru nefnilega þjóð í sínu eigin ríki. Og þjóð sem þorir að verjast og berjast fyrir tilvist sinni. Og þjóð sem neitar að hætta að vera þjóð. Það er það allra versta sem til er í sósíalistískum hugum Samfylkinga og esbista, enda var nasisminn tandurhreinn sósíalismi (Nationalsozialismus). Þar var fólkið þjóðnýtt í þágu ákveðins málstaðar eins og er einnig að gerast með æ hraðari skrefum í Evrópusambandinu. Þar hafa sjálf stjórnmálin strax verið þjóðnýtt

Þegar ég eftir 25 ára fjarveru frá landi mínu lenti hér alfluttur heima árið 2010, þá sá ég strax að Reykjavík hafði breyst til hins verra og tekið stefnuna á sjálfsútrýmingu. Þar á ég því ekki heima. Mig langar ekki að horfa upp á þá skelfingu á hverjum degi. Brátt munu skattgreiðendur almennt gera hið sama: sneiða hjá Reykjavík

Ég tek hatt minn ofan fyrir Ísraelsríki. Hér er mikill staðfestingarsigur unninn í aumingja Reykjavík: Ísrael er ekki aumingi, það er hér með staðfest

Yoram Hazony

Fyrri færsla

Mótstöðuafl hörmunga

Krækja

Borg­ar­stjórn samþykkti sniðgöngu á ísra­elsk­um vör­um

 


Bloggfærslur 16. september 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband