Leita í fréttum mbl.is

Bara ef Stalín hefði haft tölvur og snjallsíma

Ég er farinn að hallast að því að Sovétríkin hefðu gengið upp ef að Stalínar þeirra hefðu haft tölvur og snjallsíma. Þá væri nefnilega ekkert nema gott fólk í Sovétríkinu. Allt vonda fólkið væri horfið. Góða fólkið hefði bara sent Stalín sínum tölvu- og snjallsíma skilaboð um hve allt vonda fólkið væri vont og það hefði einfaldlega verið sótt og fjarlægt, vegna alls þess vonda sem það sagði og hugsaði. Í næstu lotu hefði svo algóða fólkið klagað góða fólkið fyrir að vera ekki nógu gott. Þegar búið væri að fjarlægja það góða fólk, já þá væri algóða fólkið eitt eftir. Og allt væri ofboðslega ofboðslega gott

Raflosti sló sem eldingu niður í sveitastjórnarmeðlim stærsta og mest sveitó sveifafélags landsins í Reykjavík á kassanum. Hún var kosin til að sjá um stórvirka aumingjavæðingu en nennti því svo bara ekki og fór. Aðeins einn maður í landinu (Bj.Bj.) virðist hafa komið auga á að með þessu sveik hún þá kjósendur sem gerðu hana að góða fólks fulltrúa aumingjavæðingar Samfylkingarinnar á sveitinni í Reykjavík. Þetta er frekar furðuleg staða og hún orðin vond, þ.e. fulltrúinn

Evrópsk útgáfa af Mið-Austurlöndum í smíðum

Þá styttist óðum í að góða fólkið í Evrópu fái sína eigin útgáfu af Mið-Austurlöndum heima hjá sér. Ekki bara þá fjarlægu pixel-útgáfu sem það heiladautt ornar sér við úr DDRÚV sovét sjónvörpunum inni í stofum sínum, heldur er það loksins að fá þá útgáfu sem það sér út úr sjálfu sér. Beint út úr sínu eigin húsi, í sinni eigin götu, í sínu eigin samfélagi sem var þjóðfélag sem er að breytast í vígvöll, þökk sé góða fólkinu sem ætlar að reisa sér minnisvarðann á kostnað annarra - á kostnað vonda fólksins

Morð og líkamlegar sem þjóðfélagslegar nauðganir verða brátt daglegt brauð. Götubardagar verða í landshlutum án laga og réttar. Áhlaup á skattafjármagnaðan ríkissjóð sem góða fólkið lítur á sem gjafabúð til að byggja sér minnisvaraða sína úr. Fátæktin kemur aftur. Hryllingurinn kemur allur aftur

Evrópusambandið er að breytast í alræðisríki. Þegar terrorinn er orðinn slíkur að engin von er lengur fyrir í íbúa álfunnar, þá verða minnisvarðar góða fólksins að útrýmingarbúðum þess sjálfs

Örstutt frelsis- og velmegunarblíbb í sögu Evrópu er nú liðið. Miðaldir eru komnar og nýr Svarti dauði lúrar handan við hornin á hönnunarhúsi helvítis Evrópusambandsins

Já og svo boðaði Ayatollah Khamenei andlegur leiðtogi múslíma tortímingu Ísraelsríkis innan næstu 25 ára í fyrradag

Screw them Bibi!

Fyrri færsla

Margföldunaráhrif: "Segir Ólaf ætla að hætta"


Bloggfærslur 14. september 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband