Leita í fréttum mbl.is

Lærdómurinn af Straumsvík

Staðsetjið aldrei neitt þjóðhagslega mikilvægt á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetjið þar aldrei neitt sem þjóðarbúið þarf að reiða sig á til að geta þrifist og búið til velmegun sem elur af sér velferð

Öll fyrirtæki á Íslandi ættu að hugsa sinn gang vel og vandlega áður en þau velja starfsemi sinni starfsstöð. Skoðið framtíðarsýnina vel og vandlega

Að svo búnu krefst ég þess að þjóðþingsstaður Íslendinga verði tekinn af hinni þjóðhættulegu Reykjavíkurborg sem er á hausnum þrátt fyrir að njóta góðs af því að allar mikilvægustu stofnanir þjóðríkisins séu staðsettar þar og borga skatta sína ofan í svarthol hins veruleikafirrta afglapaveldis staðarins

Staðurinn á engan veginn skilið að hýsa mikilvægustu stofnun íslenska þjóðríkisins, sjálft Alþingi Íslendinga

Peningarnir flýja Kredithörpuslátt höfuðborgar í heljargreipum. Nokia móment Íslands færist nær. Fjarlægið vinsamlegast þingstað þjóðarinnar frá þessum stað áður en Kreditharpan slær sig til allsherjar gjaldþrots

Fyrri færsla

Frakkland á leik


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það gekk ekki andskota laust að ganga frá samkomulagi um byggingu þessa ávers enda höfðu kommar allt á hornum sér svo sem vant er.

En svo var kosið og þá komu aðrir menn og síðan hafa hafnfirðingar notið þessa vinnustaðar sem mörg önnur byggðarlög  hefðu viljað hafa.  Svo líður tíminn og menn hafa það gott og verða heimaríkir.  

En Selfoss gæti verið ágætur staður fyrir höfuðborg, þar er alla veganna pláss fyrir flugvöll. 

Hrólfur Þ Hraundal, 30.11.2015 kl. 21:42

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur

Allra síst þarf flugvöll við nýja höfuðborg. Það þarf einhvernvegin að stoppa 30 þúsund ferðir embættismanna á kostnað skattgreiðenda til útlanda. Þeir geta notað símann, internetið eða skrifað bréf. 

Ef álverið í Straumsvík lokar þá mun áfallið fyrir þjóðarbúið verða svipað fyrir Ísland eins og nú þegar Nokia er að deyja innvortis í Finnlandi. Ef til vill enn verra (asymmetric shock). 

Svo þarf að reka yfirstjórnina í turnspírum Landsvirkjunar um leið og höfuðstaður Íslands verður aftengdur, fluttur og endurtengdur við Ísland og útför afglapaveldis Orkuveitu Reykjavíkur fer fram hjá séra Öllum. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.11.2015 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband