Leita í fréttum mbl.is

Nýi forsetinn Guðni of ungur?

Hann er að minnsta kosti of óreyndur og ef til vill er hann einnig of ungur til að vita að réttarríkið er frumforsenda mannréttinda. Það var réttarríkið sem ól af sér nauðsynleg réttindi handa mönnum

Eyðileggi menn réttarríkið þá hverfur grundvöllur svo kallaðra mannréttinda, sem er tískuorð nútímans yfir stjórnleysi í skjóli stofnunar sem kallar sig "Sameinuðu þjóðirnar" og ýmissa einræðisherra þeirra, sem eru margir og slæmir. Þessi stofnun gerist meira og meira firrt og að er miklu leyti ónothæf og skaðleg réttindum manna

Fyrstu skref hins nýja forseta lofa ekki góðu fyrir mannréttindamálin. Hvar skyldi hann stíga umboðslaus niður fæti næst?

Mikilvægt er að muna að það var skaðræðisknúin þykjustu jákvæðni sem bjó til bankahrunið. Virkni neikvæðrar hugsunar er oft á tíðum forsenda framfara og hún er frumforsenda farsældar og lífshamingju. Neikvæð hugsun er ekki neikvæð nema að hún sé röng. Það þarf til dæmis virka og afar sterka neikvæðni til að byggja upp skothelt bankakerfi og þjóðaröryggi, sem hrynur ekki í rúst við álag. Uppbyggjandi neikvætt fólk gerir sér grein fyrir hættum og gildrum. Múgsefjandi jákvæðni er af hinu slæma. Það er algerlega fullreynt

Ekkert varð út þessari heimatilbúnu jákvæðni hinna múgsefjandi-jákvæðu þegar á þurfti að halda í glímunni við rústir jákvæðisins, þegar glíma þurfti við hrun-afleiðingar falskrar jákvæðni. Þá kom í ljós að hún var einungis dulbúin, heimasmíðuð og skipulögð sjálfsblekking. Þá gekk Guðni hinn nýkjörni forseti í fyrsta tenór Norður-Kór ESBista og söng skilyrta ESB söngva úr gamla rauða kverinu

Það er oftast léttara að segja bara já, þ.e. að vera það sem í dag er kallað að vera "jákvæður". En Davíð sagði nei - og þakklátur er ég fyrir það

Fyrri færsla

Brexit fimm dögum síðar: ESB en ekki Bretland fór í kerfi

Krækja

Ábót: Bókarumfjöllun WSJ: The Power of Negative Thinking


mbl.is Mátti reyna að leita annarra leiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ansi hræddur um að við íslendingar höfum skotið af okkur fótinn með því að fá þennan einstakling sem forseta, fyrir utan það að ljúga í beinni útsendingu, verandi með ákvörðunarfælni, verandi ESB aðildarsinni og að hafa reynt af miklu megni að troða einkaskuldum banka upp á íslenska þjóð þá er kemur hann til með að vera mikill populisma pólitíkus (já ég segi það og meina), einu sem kemur til með að skipta máli eru málefni þeirra sem hrópa hæst í fjölmiðlum en ekki málefni sem þarf nauðsynlega að taka á.

Halldór (IP-tala skráð) 3.7.2016 kl. 11:53

2 identicon

Ég er sammála ykkur báðum. Þetta er krakki, sem ég treysti ekki, því að hann veit heldur lítið, um hvað embættið snýst. Þess vegna kaus ég hann heldur ekki. Það eitt að skrifa bækur um forseta getur ekki gert fólk hæft til að gegna því embætti. Hann er alltof drambsamur, finnst mér, og ætti að muna, að dramb er falli næst. Hann er alltof mikil blaðurskjóða til að geta verið forseti, og sést stundum ekki fyrir. Það lítur út fyrir, að hann verði aðeins viðburðastjóri líkt og Dagur hér í Reykjavík, og þá viðburðastjóri ríkisins. Við þurfum síst af öllu meira af slíku. Það er nóg að hafa Dag í þeim efnum. Eins og Páll Vilhjálmsson sagði í einni af bloggfærslum sínum, þá hrekkur Guðni alltaf aftur í gamla farið sem álitsgjafi, og virðist ekki vita, að forsetanum er ekki ætlað að vera slíkur. Ég vona, að strákurinn verði ekki nema eitt kjörtímabil. Ég endurtek líka, það sem ég sagði í kosningabaráttunni, að Guðni hefði verið best geymdur í háskólanum, þar sem hann hefði getað blaðrað og bullað að vild án þess að skaða nokkurn. Hér hefði svo Þórir Kr. Þórðarson, gamli guðfræðiprófessor minn, sagt, eins og hann sagði oft um suma presta, að maðurinn væri best geymdur inní skáp, þar sem hann getur röflað yfir sjálfum sér, og aðrir þurfa ekki að heyra til hans. Guðni hefur ekkert í forsetaembættið að gera. Það er málið.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2016 kl. 13:21

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hann er alveg nógu gamall - en hefur enga reynzlu.

Hef ég lúmskan grun um að síðustu tveir ræðumenn hafi mikið rétt fyrir sér um peyjann.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.7.2016 kl. 21:29

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður pistill hjá þér, Gunnar, og athyglisverðar hugleiðingar um varasamt "jákvæði" og gagnrýnið, uppbyggilegt "neikvæði". Munum, að við unnum Icesave-baráttuna á gefandi sterku NEIinu!

Jón Valur Jensson, 3.7.2016 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband