Leita í fréttum mbl.is

Hvernig býr maður til evrusvæði? - efnahagslegt svað, evrusvað

Gírkassi Evrópusambandsins: allir gírar eru þar aftur á bak
 
Þetta er ekki flókið. Nú ætla ég að búa til evrusvæðis evrusvað úr Bandaríkjunum. Svona er það gert:

Eitt; Fyrst og til að byrja með fjarlægi ég sameiginleg fjárlög Bandaríkja Norður-Ameríku. Tek öll fjárlögin - sem nema tæplega 30 prósentum af landsframleiðslu Bandaríkjanna - af ríkisstjórn og þingi. Þá eru þau farin.

Tvö; Næst fjarlægi ég ríkisstjórnina. Hún missti fjárlögin og peningavöldin í málsgreininni hér fyrir ofan. Þá er hún farin, ríkisstjórnin, öll. 

Þrjú; Næst fjarlægi ég forseta Bandaríkjanna. En honum var svo sem sjálfhætt þegar ríkisstjórnin og fjárlögin fóru. Að minnsta kosti að flestu leyti nema að nafninu til. 

Fjögur; Ég fjarlægi hins vegar ekki seðlabanka Bandaríkjanna. Hin 50 fylki Bandaríkjanna munu halda áfram með sameiginlega mynt; dollar. Því þurfa þau sameiginlegan seðlabanka. 

Nú erum við komin með evrusvæði, eða réttara sagt; evrusvað. Nú þurfa 50 fylkisstjórar fylkja Bandaríkjanna að koma sér saman um hvenær, hve mikið og hver fær í hvert skiptið sem sameiginlegur seðlabanki þessara 50 fylkja ætlar að gefa út og prenta hvern og einn einasta Bandaríkjadal í viðbót við þá sem þegar eru til. Og lánveitandinn til þrautavarna hvarf einnig í liðum eitt til þrjú hér fyrir ofan.

Svo er það stjórnarskráin. En hún er þegar komin í Evrópusambandinu. Hún heitir Lissabon-sáttmálinn og tók gildi í öllum 27 löndum sambandsins án þess þeir sem eiga að lifa og anda undir henni væru spurðir að neinu. Þetta er vegurinn til friðarins. Hins óða manns æði til friðarins í Evrópu.       

Þetta er ekki flókið. Samt hafa afar fáir komið auga á hvers vegna myntbandalag Evrópusambandsins er dauðadæmt án fjárlaga og ríkisstjórnar sem krefjast skattheimtu ESB í öllum löndum sambandsins, svo hægt sé að koma sér upp fjárlögum og fjálagavaldi; ríkisstjórn drottnandi yfir öllum 27 löndum sambandsins.
 
Ekkert hinna 27 landa Evrópusambandsins gekk í svona fyrirbæri. Þau héldu að þetta væri tollabandalag. En nú eru þau á leiðinni í þetta fyrirbæri, hið nýja stórveldi einræðis og brjálæðis.  

Þetta, mínar dömur og herrar, er munurinn á evru og Bandaríkjadal. Enginn í Brussel þykist vita af þessum mun. En þeir vita samt allir vel af honum. Það er þess vegna sem þeir eru allir að pissa í buxurnar af hræðlu núna. Þeir eru svo innilega hræddir við að 500 miljón manns komi auga á það sem er að gerast með 27 löndin - í fullkomnu og algeru leyfisleysi kjósenda. 
 
Valdasjúk elíta brjálæðis ESB er stórhættuleg Evrópu. Hryllingsapótek Evrópu er opið á ný. 
 
Svo er það herinn, væni minn. 
 
Fyrri fræsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í Lissabon, kom fram ákvæði í tíma, breyting áður kom AGS inn þegar ESB átti í ágreining við óstöndug ríki ekki fullir Meðlimir, eftir breytingu má AGS líka koma í stað Commissionar gegn Meðlima Ríkjum. Það kemur betur út að óstönduga ríkið biðji um AGS. Ímynd Brussel er miklivæg. Brussel Commission stendur 100% með Meðlima Ríki eða Meðlima Ríkjum gegn óstöndugum Ríkjun utan ESB. Hollust ákvæði skuldbinda Meðlima ríki sem vilja ekki sýna  Meðlima Ríki eða Meðlima Ríkjum stuðning gegn ríki utan ESB að þau haldi þá að sér höndum. 

Júlíus Björnsson, 7.6.2011 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband