Leita í fréttum mbl.is

Skilaboðin - frá frá formanni framkvæmdastjórnar miðstjórnar Evrópusambandsins á einsflokks þingi Samfylkingar ESB - til Írlands

Setjið Ísland hér inn í staðinn fyrir Írland.

Þá fáið þig út það sem koma skal ef kosningasvikurum Vinstri grænna og Samfylkingu Evrópusambandsins á Íslandi tekst valdanauðgun sín á lýðveldi okkar, Íslandi. 

Blaðið Irish Independent segir írsku þjóðinni fréttir frá aðalstöðvum lýðræðisins í Brussel. Þar gerðist það í gær eða fyrradag að framkvæmdastjóri miðstjórnar Evrópusambandsins, sem er hinn fyrrverandi maóisti Jose Manuel Barroso - og sem enginn hefur nokkurn tíma kosið og er frá hinu fyrrverandi Portúgalska einræðisherraríki - segir þingmanni Íra og írksu þjóðinni að Írar séu taparar og fáráðlingar. Þetta er allt saman þeim sjálfum að kenna.

Þessi aðferð þeirra sem enginn í Evrópu hefur kosið (eins og var í Sovétríkjunum sálugu) er alltaf notuð þegar Evrópusambandinu mistekst með 5  ára . . . nein . . . með 10 ára áætlanir sambandsins, því þá hefur aðildin að bæði Evrópusambandinu og evrunni enga þýðingu fyrir nein lönd sambandsins. En þegar vel tekst til hjá löndum innan sambandsins, þá er það allt saman Brussel að þakka. Ef hins vegar ekkert gerist, þá er bara kosið aftur og aftur þar til sovésk-rétt niðurstaða fæst.

Hér er myndbandið frá aðalstöðvum lýðræðisins í Brussel

 

Hinum efnahagslega samruna landa Evrópusambandsins er lokið. Sá lagarammi er kominn. Það sem nú er í gangi í Evrópusambandinu er hinn pólitíski samruni ríkja sambandsins. Hann er þvingaður, miðstýrður og ráðstjórnarlegur. Þetta var bein útsending frá Evrópusamrunanum. 

Tékkinn Petr Mach, sem var efnahaglegur ráðgjafi forseta Tékklands, fór einu sinni í heimsókn til Brussel til að tala um hversu áætlanir Evrópusambandsins líktust mikið áætlunum Sovétríkjanna, sem áður var evrópskur yfirmaður þeirra. Einn aðalmunurinn, sagði Petr Mach, er sá að 5 ára áætlanir Sovétríkjanna lögðu mesta áherslu á að það væri þungaiðnaðurinn sem ætti að fá Sovétríkin til að ná hagsæld Bandaríkjamanna. En í Evrópusambandinu voru það hinsvegar tölvur sem árið 2000 áttu að fá Evrópusambandið til að ná hinni miklu hagsæld Bandaríkjanna fyrir árið 2010. Þetta voru því tvennar en mjög ólíkar áætlanir. Ein var einungis til fimm ára og studdist við kola- og stálverk. Hin áætlunin var hinsvegar til 10 ára og studdist við tölvur og internet, eða svo nefnda "upplýsingatækni". Ræðan hans Petr Mach frá þessari jómfrúar Brusselferð er hér. Hér má einnig lesa hvernig þessi síðasta 10 ára áætlun Evrópusambandsins mistókst fullkomlega; Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins

Látum svo að lokum þingmanninn Nigel Farage lýsa Evrópusambandinu eins og það er orðið

Fyrri færsla

Kostir evru að sýna sig í ESB


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

http://ec.europa.eu/enlargement/how-does-it-work/financial-assistance/instrument-pre-accession_en.htm

http://ec.europa.eu/enlargement/candidate-countries/iceland/relation/index_en.htm

http://ec.europa.eu/enlargement/the-policy/from-6-to-27-members/index_en.htm

Það eru tvær hliðar á öllum málum. Höfundunum hefur tekist mjög vel að uppfylla markmið sín. Enda eru Milliríkjasamningar allir byggðir á sameiginlegri Menningar arfleið Fullveldishafanna sem afhenda hluta af fullveldi sínu við samruna undir Kommission.

Léleg einhliða almúga uppfræðsla, engin sía eða samanburður í mótun til fram á miðjan aldur í ofurskuldsettu ríkjum,  hefur tryggt þeim ríkjum sem búa ennþá við greindarstéttarskiptingu og stofnakerfi byggt á þegnskaparskyldu og heraga, alræðisvald í nýjustu útgáfunni af hinu Rómverska réttarríki.

Ef enginn núlifandi Íslendingu hefur greind til að lesa útdrátt kommisionar í Brussel á samrunaferlinu þá er ekki að furða að öllu umræða um þetta Ráðstjórnaríki hefur verið út í loftið á báða bóga hér á landi. Byggð á spekulationum vegna skilningsleysis á yfirstéttartexta Þroskaðra Ríkja á meginlandi EU. 

Öllu aðlögun eða samþætting allra undirstöðuþátta verðandi Kandídats hefst með nágranna forréttinda samningi um vaxandi lánafyrirgreiðslur í samræmi við innleiðingu regluverks. Hér þurfti ekki að lesa samninga eða reglur áður en þær voru innleiddar í lög Íslands, slík er græðgin frá 1994, í raun frá 1983 voru væntingar byrjaðar undanfari EES.      

Íslendingum hefur á um 30 árum tekist að sanna bókhaldslega fyrir alfræðingunum í Brussel að kostnaðarverð þeir á útflutning  geti verið um 40% til 50% lægra í evrum en það var um 1980. Tekjur voru færðar niður og gert út á lánafyrirgreiðslur og vaxtatekjur, Ísland ekki eina fábjána landið.  Við eru á leið í sömu raunþjóðartekjur á mann og Skotar um 40% lægri en Færeyjar og 70% lægri en Norðmenn.  Fáum að eiga allt sem við höfum veðsett meðan hægt er flytja inn lægri meðalaldur og lélegra heilsufar frá EU. Bæði Þjóðverjar og Frakkar framleiða nóg af hæfum námsmönnun til að hugsa um afkvæmi sitt í smáatriðum. Neyðin kennir nakinni konu að spinna.

Real GDP er það sem þroskuðu ríki einbeita sér að viðhalda sér í samburði við önnur Ríki.  Tossar velja sér yfirleitt lélegri tossa til samanburðar, til þess að koma betur út í samburði. Hinsvegar vinna þeir ekki efnahagssamkeppni sem gengur út á hollustu, aga og fjölgreind eða áttvísi. 

Á Alþingi var verið að ræða í dag um að hækka laun kvenna á vegum Ríkis og sveitarfélaga til að ná fram sömu starfsæfislaun og karla hjá sömu atvinnurekendum. Þetta jafnréttisjónarmið þar á bæ virtist þverpólitískt.   

Hinsvegar er sjálfgefið að miklu betra er að lækka karla í launum  til að ná fram sama jafnrétti. 

Ef erlend fjárfesting skuldsetning þjóðarbúsins væri höfð að leiðarljósi. Írar eru langt frá Íslandi í þeim efnum.   Þeir hafa heldur ekki misst 50% af rauntekjum sínum síðustu 30 ár í samburði.  Brussel setur verðrýrnun krónu gagnvart evru í samband við að hún hafi verið ofmetin. Það skilst þá miðað við verðmætin sem hún átti að vísa á, á evru mælikvarða. 

EU hefur ekki hag af því að hækka verð á útflutningi frá Íslandi og innflutningur, draslið í dag vegur ekki þungt í þeirra augum.  Kandídat hefur engu virðingu utan EU. Virðingin er við Brussel. 

Frjáls samkeppni hefur aldrei verið nema í um 0 til 20% hluta efnalífs Evrópska Borgríkja. Samkeppninni líkur eftir á mótun hjá þeim þroskuðu.

Júlíus Björnsson, 21.1.2011 kl. 04:16

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það má sennilega orða það svo, að ESB reki nútíma-útþenslustefnu í PR-búningi. Stefan Füle er þar æðsti þjónn þeirrar stefnu.

Svo þurfum við að glíma við margmútaða 5. herdeild þessa valdþyrsta bandalags hér á landi! Þess vegna segi ég:

  • Landráðaskvaldur landráðarakka
  • lízt okkur auvirðilegt.
  • Haldi þeir áfram við EBé að makka,
  • ætti að beita þá sekt,
  • handtöku, varðhaldi og vísa úr landi––
  • eða veita þeim ráðningu' og geyma í bandi ...

Jón Valur Jensson, 21.1.2011 kl. 04:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband