Leita í fréttum mbl.is

Hver er Steve Bannon? - nýi áttavitinn í Hvíta húsið

Stephen Bannon, október 2011

Að segja að Steve Bannon sé "frumkvöðull á sviði samfélagsmiðla" er eins og að segja að ég sé frumkvöðull á sviði bloggfærslna - og í að lesa ekki Fréttablaðið, sem ég þó er. Allir ættu hins vegar að lesa leiðara Morgunblaðsins í dag af því að hann er góður og sannur. Sérstaklega Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. Mæli ég eindregið með tvílestri og jafnvel þrílestri

Samkvæmt þessari útnefningu verður Steve Bannon eins konar áttaviti eða GPS tæki í Hvíta húsinu á meðan Donald Trump er þar við stýrið. Ekkert skip siglandi á heimshöfunum kemst til ákveðins áfangastaðar nema að vita hvert ferðinni í upphafi sé heitið. Það þarf að passa að lenda ekki í vitlausu Reykholti, á Laugarvegi, í Skálholti eða í Danmörku í stað Danmerkur í Wisconsin, Tennessee, Maine, Iowa, Flórída eða Nýu Jórvík, eða jafnvel á Íslandi við Grænland, í stað Íslands í Kaliforníu

Mér sýnist að þessi tala sem Steve hélt þarna um árið 2011, sé það góð að hún standist tímans tönn mjög vel. Þetta er enginn hálfviti, en greinilega góður áttaviti. Steve Bannon var foringi í bandaríska sjóhernum á tundurspillinum USS Paul F. Foster

Stephen Bannon verður ekki bara ráðgjafi í forsetateymi Donalds Trump í Hvíta húsinu, hann fær einnig titilinn e. chief strategist

Fyrri færsla

Já, ESB-mennið vantar herinn sinn


mbl.is Trump skipar í fyrstu stöðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. nóvember 2016

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband