Leita í fréttum mbl.is

Erlent vinnuafl snýr heim frá Noregi

Á föstudaginn var dönsk skaðafrygðar-grein í Berlingske. Ein þúsunda slíkra um hinn ríka Noreg sem birst hafa reglulega á síðum danskra fjölmiðla frá því að Norðmenn sýndu nágrönnum sínum hvað í norska sveitastráknum býr; ráðdeild og aftur ráðdeild, áræðni, þor, skynsemi, sjómennska og einstaklingshyggja sem illa er þoluð af samyrkjuþrotabúinu Svíþjóð og niðurslitinni Danmörku í föstu gengisfyrirkomulagi við þýska rass þann sem landið er pólitísk bóla á

Stungu fátækir sveitastrákar bornum niður í þjóðar-arðlausa Ekofiskjörðina undir heilu hafi. Þetta pot fór fram skömmu eftir að Noregur af sunnanelítum Evrópu var skilgreindur sem fátækur “útkjálki” álfu þeirrar sem elítan nú íklædd klæðum olíufatalauss ESB-keisara hefur sviðið niður í eitraða grasrót meginlandsins, svo að gufan úr gamla kommúnismanum sem þar er fæddur og stríðsalinn megi þrýsta út nasavængjum friðardúfunnar sozialismus - og sem er þýsk háþróuð leðurblökutegund, ja

Eftir hátt í tvö hundruð boraðar holur voru þeir við það að gefast upp. Ekkert fannst. En svo kom gjöfin frá hinum arðlausa sjávarbotni Noregs rétt fyrir frekar fátækleg jólin 1969. Jú, þeir höfðu stungið prikinu ofan í stærsta olíusvæði veraldar undir sjó. Restina þekkja allir. Og þó...

Margir þekkja ekki til þess verðs sem verður að fást fyrir olíuna bara til þess eins að tröllrisavaxnar fjárfestingar Noregs í þessu dóti beri sig, þannig að úr þessu verði ekki bara tap, eða réttara sagt, ein stór færsla kreditmegin í bókhaldi undir lyklinum “skuldaarfur í þjóðareign”, sem auðvitað er hægra megin við debet-dálk græðginnar. Fari maður alveg út úr bókhaldinu má jafnvel líta á þann hryllilega dálk sem verandi vinstra megin við veruleikann. Í þjóðareign!

Nú má ætla að hin íslensku þjóðnýtingaröfl hér heima fari fram á að almenningurinn Sigurlaug Urmulsdóttir og fjölskylda hennar fái að gera út á Drekamið með Black og Decker borvél sína knúna þjóðartapsraflostinu úr Kárahnjúkum. Það ætti jú að nálgast mannréttindi því þá myndu ljósin slokkna í Reykjavík og björgunarskipið Harpan láta út höfn. En hvað um það

Eftir 30 ár sem ríkir, hafa Norðmenn uppgötvað að olíuverð er fallið um 60 prósent og að lítil trygging er fyrir því að það muni ná sér aftur upp 2002-2013 þrep hráefnabólustiga ECB. Og það sem meira er, olían úr arðsömustu holunum er að verða búin. Restin kostar skilding þann sem haldið er fast um undir umsjón “þjóðararðssjóðsins” sem fjárfesti honum til dæmis í Rússlandi og kolaiðnaði um víða veröld svo að Danmörk gæti áfram búið til rafmagn til að framleiða vindmyllur sem Þjóðverjar nota til að kæla kolaverkin sín sem eru mun sunnar

Þetta hefur þýtt það að sveitastrákurinn er byrjaður að læsa hurðinni. Já hann er ennþá til, sprelllifandi, þrátt fyrir að hafa slegið um sig síðustu tvo til þrjá áratugi, that is all, smá skitin 30 ár. Á teikniborðið er því kominn niðurskurður (jafnvel útskurður) og 20.000 manns hent úr olíunni eins og skot. Og svo kemur restin af sjálfu sér, þ.e.a.s. gamlir nýrnasteinar og þvagsýra komin í bígerð (bí bí bí bíbb)

Þetta hefur strax haft þau áhrif að erlent “vinnuafl” er byrjað að yfirgefa Noreg. Það borgar sig ekki lengur að vinna þar til að geta svo sent peningana heim til ESB sem er á hausnum. Verið er að endurhugsa norska vinnumarkaðinn. Enda veitir ekki af, því á hverju eiga Norðmenn að lifa í framtíðinni, þegar allt er svona hrikalega dýrt að þeir hafa verðlagt sig út af gamla landakorti sveitastráksins. Hér mun verða gengið miskunnarlaust til verks. Og þessi húsnæðisbóla sem hangir yfir landinu, hún er alls ekkert grín. Einn títuprjón, ekki þarf meira til

Men under overfladen ulmer en krise, og den er så betydelig, at erhvervsavisen Dagens Næringsliv rapporterer om, at flere fremmedarbejdere rejser tilbage til deres hjemlande. Det kan ikke længere betale sig for dem at tage et arbejde i Norge og sende lønnen hjem | Berlingske

Fyrri færsla

Barnaveikin og bólusetningar og þjóðnýting


Bloggfærslur 8. júní 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband