Leita í fréttum mbl.is

Reiðmenn ESB: Nú er bara að bíða eftir komandi bankaáhlaupi á Ítalíu

Rauður hestur: Þegar lambið lauk upp öðru innsiglinu -

Með því að ljúga ítalskan almenning fullan með hinu innsiglaða fjármálalega reglugerða-þvæluverki fjögurra-reiðmanna Evrópusambandsins, sem ríða nú á hvítum til bleiks með fólkið inn í endalok álfunnar, að já, þá hefur þeim tekist að sannfæra saklausan ítalskan almenning um að koma sparifé sínu þannig fyrir í þessu esb-hverfi-evrubanka-kerfi Ítalíu, að sparnaður hans hefur af bankakerfinu verið notaður til að halda uppi vonlausum rekstri ríkissjóðs í hinu vonlausa Evrópusambandi sem er auðvitað að kála honum

Frá 2008 til í dag hefur bankakerfið þannig keypt og gleypt ítölsk ríkisskuldabréf fyrir 300 miljarða evra fyrir sparnað fólksins. En ekki nóg með það. Sölumenn bankanna undir reglugerða-þvæluverki fjögurra-reiðmanna Evrópusambandsins, frá hvítum til bleiks, tókst að koma stórum hluta þessa sparifjárs almennings þannig fyrir, að nú þegar bankakerfið að niðurlotum er komið, sökum rotnandi lánasafna vegna esb-aðildar og evruupptöku, að já, þá vill svo heppilega til að nýjar "bankabjörgunarreglur" taka stóran hluta þessa sparifjár almennings eignarnámi og þurrka þar með almenning alveg út sem forgangslánadrottna í bönkunum. Skiljanlegt er því að fólk fyrirfari sér á Ítalíu eins og ég skrifaði um í gær. Fólkið er bara þurrkað út og farið er með það eins og rusl

Þetta er svona því að ítalska bankakerfið býr við ónýtan ítalskan seðlabanka sem býr við ónýtan ECB-aukaseðlabanka Þýskalands. Sökkvandi ítalska bankakerfinu sem býr við tvo ónýta seðlabanka vantaði ríkisskuldabréfin til að henda þeim sem veðtryggingum upp í kjaftinn á ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands, til að geta svo hlaupið heim með þá evrupeninga sem fengust út á þau, til að stinga þeim svo upp í kjaftinn á seðlabanka Ítalíu, sem stakk þeim svo upp í kjaftinn á glötuðum ríkissjóði ESB-stjórnmálamanna Ítalíu. Þar sat fyrirmennið ECB-seðlabankastjórnandi sem forsætisráðherfan sjálf. Ókjörinn! Svona er að missa allt fullveldi í peningamálum

"The difference is that World War I was a tragedy, not a crime. "Monetary union is a tragedy and a crime.""Bernard Connolly

Við hverja umferð af ponzi-ferðum Ítala og annarra brennandi evrulanda upp í súrheysturna ECB, þá lækkar evran ögn í gengishafinu, og út skipast ögn fleiri þýskir gámar til Kína frá Hamborgarhöfn. Og svo koll af kolli. Því fleiri eldar sem kvikna í Evrópu, því fleiri þýskir gámar hendast út frá Hamborg og því fleiri nágranna-keppinautum er kálað. Svo lengi sem Þýskaland á öxli Lotharinga græðir, og öll önnur Evrópa tapar, mun þetta halda áfram. Þetta er hinn fullkomni og ávallt tilætlaði stealth örvunarpakki hins deyjandi Þýskalands á valdaöxli Lotharinga. EMU, þ.e. hið peningapólitíska myntbandalag ESB, er algerlega skrúfað saman eins og það er í þessum eina eina tilgangi. Að Þýskaland á valdaöxli Lotharinga geti riðið Evrópu út í gegn, fyrir ekki neitt

Nú er bara að bíða eftir því að Suður-Ítalía sameinist Norður-Afríku aftur í leit að auknu vogarstangarafli gegn því sem koma skal. Því ekki hefur sameining norður-afrísku Suður-Ítalíu og Norður-Ítalíu gengið upp enn. Ekki frekar en sameining Austur- og Vestur Þýskalands hefur gert. Þó eru liðin meira en 100 ár

Riðið er því hratt á hestum fjórum svo að reiðmenn Evrópusambandsins, frá hvítum til bleiks, geti athafnað sig á álfunni áfram. Heimsstyrjöldin er svo brátt handan við hornið eina, til handa reiðmönnum þeim. Þar verður kannski loksins hægt að á og þurrka af sér, þegar allra síst viðrar. Skeina sig þar á friðarverðlaunum Nóbels

Evrópusambandið hlýtur að vera öflugasta eyðileggingarvopn mannkyns á eftir kommúnismanum. Fimm hundruð milljón manns sambandsins búa nú í púðurtunnum þar sem peningar allra liggja á kistubotni Þýskalands. Þýskaland hefur eyðilagt Evrópu einu sinni enn. En þeir verða sóttir. Þeir verða sóttir

ÚT MEÐ SCHENGEN OG EES STRAX! - LENGI LIFI FRJÁLST ÍSLAND

Fyrri færsla

Ítalía: ellisparnaður í evrum gerður upptækur


Bloggfærslur 15. desember 2015

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband