Leita í fréttum mbl.is

Horfið á það, í gærkvöldi, sem er að gerast í Svíþjóð, sagði Donald Trump

Á ritmáli hefði þetta verið skrifað svona. "Sáuð þið í gærkvöldi það sem er að gerast í Svíþjóð. Þeir tóku á móti stórum fjölda fólks og eru að upplifa vandamál sem enginn hélt að gætu orðið svona slæm. Hver hefði trúað því að þetta væri að gerast þar. Í Svíþjóð, af öllum löndum."

"you look at what is happening, last night, in Sweden. Sweden, who would believe this? Sweden. They took in large numbers. They are having problems like they never thought possible," Trump said.

Þarna er forsetinn að vísa í það sem sýnt var kvöldið áður í Fox sjónvarpsfréttum um þau hörmulegu vandamál sem geisa í Svíþjóð, vegna þess fólks sem Angela Merkel, keisari Evrópusambandsins, hefur skolað af sér upp á skattakerfi Svíþjóðar. Drekkja átti sænsku þjóðinni með fullum vilja, að því er virðist. Sjá Fox-útsendinguna hér hjá Gústafi

Takk Jón Valur fyrir að útskýra það sem fjölmiðlarar létu hjá líða að útskýra, og að segja þar með rétt og satt frá um þetta mál. Héðan í frá mun ég varla nenna að lesa né hlusta á það sem þeir hafa að segja um flest, og sérstaklega ekki um Donald Trump. Ég mun jafnvel taka veðurfréttum þeirra með auknum fyrirvara. En þetta er ég náttúrlega fyrir löngu byrjaður að gera. En maður fellur stundum fyrir freistingunni að trúa þeim - vegna eigin leti. Og sjaldan trúi ég neinu sem kemur í DDRÚV, en samt er ég látinn borga fyrir það

Ég er orðinn þreyttur á að þurfa að láta mér bregða að óþörfu. Barnablaðsmaður Morgunblaðsins á barnavaktinni hefði betur látið ógert að trúa því sem hann les í öðrum fjölmiðlum en sínum eigin. Þeim er ekki treystandi. Hann hefði átt að lesa sjálfan sig fyrst, þ.e. að rannsaka málið. Það er hlutverk blaðamanna: að vera "trúir blaðamennskunni" en ekki pólitískum málstað - og sem þar fyrir utan, í þessu tilfelli, er gersamlega vonlaus - því allir sjá hvað er að gerast

Stormi dagsins í tómu vatnsglasi er hér með lokið. Sumir vita kannski enn að stormur á dönsku er stormende kuling og strong gale á ensku. Miklu miklu minna en rok, sem er storm á ensku og dönsku

Fyrri færsla

A mess, a mess


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ómar Ragnarsson kom, eftir margar færslur um þetta má á bloggsíðu sínni, hingað inn á bloggsíðu mína og skrifaði mér eftirfarandi um málið:

"...what´s happening last night in Sweden." Það er ekki hægt að álasa neinum, sem skilur þetta eftir orðanna hljóðan. 

Það er út í hött að Trump gefi sér það að allir, sem heyra þessi orð hans út um alla heimsbyggðina, hafi verið að glápa eins og hann á ákveðinn þátt á sjónvarpsstöðinni Fox "last night."

Skrif Ómars rötuðu því miður á rangan stað, þau eru hér -A mess, a mess- en áttu að vera hér.

***

Sæll Ómar

Það er mér sannur heiður að fá þig í heimsókn hingað annað veifið. Þakka þér fyrir innlitið

Svar: Miklu einfaldara hefði verið fyrir svo kallaða fjölmiðla veraldar að skoða betur það sem þeir skrifa og birta um málið. Þeim hefur tekist að æsa fólk upp og þar á meðal einnig þig. Það tókst þeim með því að haga sér eins og sannir afglapar.

Miklu einfaldara er að hætta að birta það sem nú um daga er kallað falskar fréttir

En þegar betur er að gáð þá eru þessar svo kölluðu "fölsku fréttir" ekkert annað en það sem áður var kallað slúður (e. gossip).

Þetta eru óásættanleg vinnubrögð.

Það var alveg óþarfi að til dæmis Carl Bildt, sem er eins konar Jaruzelskilegur-umboðsmaður Evrópusambandsins í Svíþjóð án umboðs, hentist að á veraldarvefinn eins og kjáni og léti þar  brenglað ljós sitt skína sem slæmt fordæmi yfir heimsbyggðina.

Fjölmiðlar eiga ekki að gefa sér neitt fyrirfram. Þeir eiga að kanna og rannsaka þau mál sem þeir fjalla um.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2017 kl. 12:18

2 identicon

Það hlýtur að ylja Donald Strump um hjartarætur að vita af svona mörgum talsmönnum hans hér á mbl blogginu...

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 14:57

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Enginn íslendingur þarf að teljast talsmaður réttkjörins og nýkjörins forseta USA þótt hann virði lýðræðislega niðurstöðu kjósenda í því ágæta landi.  Og réttkjörnum forsetum vinalanda ber að sýna virðingu. Líkt og við íslendingar ætlumst til með okkar eigin réttkjörna forseta.

Kolbrún Hilmars, 20.2.2017 kl. 17:09

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helgi fyrir að þora að líta inn. Þú sýnir þar mikið hugrekki.

Ég er minnsti minnihluti lýðveldisins Ísland, ein persóna. Og hjér heima í mínu eign landi kaus ég Sjálfstæðisflokkinn; xD

Ef ég hefði kosningarétt í Bandaríkjunum, þá hefði ég kosið Donald J. Trump.

Og í Bretlandi hefði ég kosið Brexit.

Og í Frakklandi myndi ég kjós Marine Le Pen.

Þetta hefði ég gert af því að ég er Íhaldsmaður með stórum staf og þjóðernissinni, og það er ég vegna þess að í gamla daga voru hinir raunverulega frjálslyndu alltaf þjóðernissinnar (e. nationalists). Það þótti merki um góðan og göfugan málstað að vera þjóðernissinni: þ.e. að aðhyllast þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt þjóða og að fyrirlíta heimsveldi og þrælaríki og borð við:

- Egypska heimsveldið

- Babylóníuveldið

- Assýríuveldið

- Rómarríki (þrælaríki)

- Heilaga rómverska ríkið (the first Reich)

- Ottómanska ríkið

- Sovétríkið, þrælaríki öreiga með ESB-stjórnarskrá

- Nasista-heimsveldið með þjóðnýttum borgurum

og svo í dag

- Evrópusambandið (þrælaríki þjóðanna), með sovéskri stjórnarskrá.

- Sameinuðu þjóða-heimsveldið (er að verða það). Út með imperíalista þeirrar stofnunar, því hún átti að vera samkunda sjálfstæðra og fullvalda þjóðríkja, en ekki samkunda imperialista (öfugt-frjálslyndra).

- Út með Sameinaða Sjálfstæða Seðlabankaheimsveldið, sem bjargar glötuðum bankabykkjum (er orðið það), og er orðið eins og að menn hefðu sagt að "við ætlum að gera herinn að sjálfstæðri stofnun" og láta hershöfðingjana um allt, því við erum svo hrædd um að kjörnir stjórnmálamenn fólksins hafi ekki þekkingu á þeim málum. Glæsilegt eða hitt þó heldur. Ef menn vilja að trúverðugleiki sé það sem einkennir góða seðlabanka, þá ættu þeir bara að setja tölvu sem seðlabankastjóra. Hún hefur óendanlegan trúverðugleika, ekki satt. Náttúrlega alveg galið.

- Og Alþjóðastofnannaheimsveldið (kom í stað universal kaþólsku). Út með það. Við viljum ekki enn eitt eina-og-sanna símasambandi við Guð, því við höfum okkar eigin símasamband við hann, samkvæmt okkar eigin stjórnarskrá.

Við viljum aftur fá að lesa Biblíuna samkvæmt okkar eigin skilningi á henni, þ.e.a.s. við viljum fá okkar eigin stjórnarskrá og sem er bara okkar eigin stjórnarskrá, en ekki annarra. Þær eru allar, ef góðar, byggðar á hinum Heilögu ritningum. ERGO: Við heimtum að fá aftur hina ekta frjálslyndu ríkjaskipan okkar Mótmælenda sem byggði upp Vesturlönd eins og við þekktum þau, og sem eiga hornstein sinn að rekja til útgöngunnar af þrælaríkisheimsveldi Egyptalands, þ.e. við viljum fá ríkjaskipan byggða á stóra lærdóminum úr Gamla testamentinu og Vestfalíu, um ríkjaskipan og frelsi þjóða. Við viljum nýtt Ísrael. Við viljum ekki fá enn eitt andskotans heimsveldið til að skipa okkar þjóð fyrir um allt. Út með þetta! 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2017 kl. 17:13

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið, félagi Kolbrún

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.2.2017 kl. 17:25

6 identicon

Helgi, þetta tengist því ekki að verja Donald Trump, heldur er verið að benda á hversu lélegir og falskir fjölmiðlar eru orðnir, þeir eru að deyja úr pólitískum rétttrúnaði, þeir þykjast vera betri en Trump en hann karlinn nær ekki að vera hálfdrættingur á við þá blessuðu fjölmiðla þegar kemur að því að dreifa hatri og lygum.

Halldór (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband