Leita í fréttum mbl.is

Viðskilafréttir: Sölunefnd Varna & Eigna Íslands opnar nýtt aðalútibú í Stjórnarráði Íslands

Sölunefnd Varna & Eigna Íslands í nýju glæsilegu aðalútibúi í Stjórnarráði Íslands

Forstjóri sölunefndarinnar er forsætisráðherra Íslands, frú Jóhanna Sigurðardóttir. Framkvæmdastjóri sölunefndarinnar er fjármálaráðherra Íslands, hinn fyrrverandi herra Steingrímur J. Sigfússon frá Þistilfirði. Í stjórn sölunefndar Varna & Eigna Íslands eru einnig fleiri menn og konur. Aðstoðarmenn eru margir

Skýr markmið hafa verið mótuð

Markmið sölunefndarinnar er að leggja niður allar varnir fyrir lýðveldið Ísland og að framselja eigur og tekjur Íslendinga til ríkja í eigu útlendinga. Söluherferð er hafin. Áætlanir miðast við að allar varnir landsins séu lagðar niður með afturvirkum hætti strax. Gert er ráð fyrir að eigur Íslands og Íslendinga, núna og í framtíðinni, séu afhentar útlendingum innan næstu fárra ára. Helst að eilífu. Söluáætlunin gerir ennfremur ráð fyrir að allt Ísland sé selt innan fárra ára. Þetta er talið auka fullveldi Íslands og allra Íslendinga og skipta sköpum fyrir skap útlendinga sem framkvæmdarstjórn nefndarinnar óttast mikið. Vonast er til að útlendingar komist í betra skap við þetta og muni gera stjórn sölunefndarinnar kleift að komast upp úr kjallaraholu Stjórnarráðsins innan skamms. Tekjurnar munu renna til kaupa á tungumálanámskeiði fyrir forstjóra sölunefndarinnar sem er mállaus

Virðingarfyllst

Vesalingaráð Íslands

í kjallaranum

Fyrri færsla

Skipafréttir: Ríkisstjórn Íslands er sokkin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Samkvæmt Þórlindi Kjartanssyni og Jóni Steinssyni, í greinum á eyjunni, þurfum við þessi stóru lán hreint ekki.
Hafði kannski Davíð Oddsson alveg rétt fyrir sér í október ?
Icesave má þá fara veg allrar virðingar, ásamt AGS og Norðurlöndunum.
Hættum gráti og gleðjumst með vinum
Ræktum þá vinskap við þjóðir sem okkur eru sannanlega vinveittar eins og pólverja og færeyinga.
Ég skal hundur heita ef ekki bætast nokkur lönd i hópinn þegar rykið fellur.
Áfram Ísland, ekkert ESB, ekkert AGS, ekkert norrænt lán, ekkert Icesave, ekkert vesen....
http://eyjan.is/blog/2009/08/07/jon-steinsson-hagfraedingur-allt-of-mikid-gert-ur-mikilvaegi-erlendu-lananna/

Haraldur Baldursson, 8.8.2009 kl. 10:19

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Haraldur. Mun skoða þetta þegar ég er búinn með pólsku pylsurnar sem pólska kærasta sonar míns kom með heim frá Póllandi. Þær eru svo góðar að ég get ekki hætt: Dziękuję Polska!!!

.

Lengi lifi Pólland:

HOROWITZ AT CARNEGIE HALL 3-Chopin Polonaise in F#m

Gunnar Rögnvaldsson, 8.8.2009 kl. 10:33

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Polonaise hans Frédéric Chopin var það síðasta sem Polskie Radio náði að útvarpa áður en slökkt var á senditækjum þess þegar Þjóðverjar réðust inn og hernumdu landið árið 1939 og lögðu það síðan í rúst

Gunnar Rögnvaldsson, 8.8.2009 kl. 10:45

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hún kom líka með Prince Polo og heimagerðar súrar ferskar agúrkur með dill. Namm

Gunnar Rögnvaldsson, 8.8.2009 kl. 11:02

5 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þetta með pólsku pylsurnar vekur forvitni, þær fást nefnilega orðið á Íslandi líka. Pólskar og Færeyskar vörur ættu að fá aukna athygli, enda á ferð þær tvær þjóðir sem Íslandi vilja lána, án skilyrða.

Haraldur Baldursson, 8.8.2009 kl. 11:06

6 identicon

Þessi tilkynning sem þú hefur sett saman mun birtast með haustinu 2010 að öllu óbreyttu.

Þessa framsýni þína ætti að kynna fyrir Alþingismönnum þjóðarinnar.

Eggert Guðmundsson (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 14:38

7 Smámynd: Björn Emilsson

Draumur Jóhönnu

Ný þjóð hefur sest að. Sjá menn ekki fyrir sér ´Nýja Ísland´Evrópubandalagsins. Þarf ekki einusinni að leggja neitt fram. Eiga hólmann sennilega nú þegar og fiskimiðin líka. ESB mun hefjast handa við að byggja upp nýja landið sitt.Straumur fólks til landsins mun fylla yfirgefið húsnæði islendinga Herstöðin endurbyggð á Keflavíkurflugvelli. Fiskimiðin ofnýtt . Olíu borðpallar rísa á Drekasvæði. Nægir peningar til að nýta sér gögn og gæði Gamla Fróns. Islensk tunga mun hverfa í daglegu tali. Herskatt fólk með aðra siði og þjóðfána hefur tekið við.

Kannske er bara spurningin, hvor verður fyrri til ESB eða Rússa

Björn Emilsson, 8.8.2009 kl. 20:36

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Skemmtilegur og glöggur að venju, Gunnar.

Baldur Fjölnisson, 8.8.2009 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband