Leita í fréttum mbl.is

Hrun Hrun-Samfylkingar heldur áfram

USSE

Það er greinilegt á viðbrögðum fulltrúa Hrun-Samfylkingarinnar sem hafði yfirumsjón með hrun-Fjármálaeftirliti hrun-bankanna í hrun-Viðskiptaráðuneyti hrun-ríkisstjórnar hrun-Sjálfstæðisflokksins og hrun-Samfylkingarinnar, að henni hrun-Samfylkingunni er mjög illa við að fá ekki frið til að stunda hrunstarfsemi þessarar hrundu ríkisstjórnar í hrundansi hennar við að koma Íslandi sem verst og endanlega fyrir kattarnef

Þar sem hrun-Samfylkingin er andlýðræðislegur og þjóðhættulegur stjórnmálaflokkur sem hefur ekkert gert annað en að stunda hryðjuverkastjórnmál síðastliðin tvö ár, kemur það hrun-Samfylkingunni afar illa að einhver sé að hindra hrunstörf hennar. Að fá ekki að stunda niðurrif á íslenska þjóðfélaginu og tilvist Íslands í friði

USSE

Þetta minnir mig á að danska dagblaðið Politiken skrifaði hér eitt sinn að Winston Churchill væri hættulegur maður og stríðsmángari því hann friðþægðist ekki eins og sitjandi forsætisráðherra Bretlands gerði svo vel og vandlega í ekta Samfylkingarstíl á þeim tímum. Þrem mánuðum seinna gerðu Þjóðverjar innrás i Danmörku, drápu, rændu þar og rupluðu. Það góða sem gerðist var að dagblaðið Politiken missti 15.000 áskrifendur þegar þeir skrifuðu Samfylkingargreinina um hættulega manninn hann Churchill. Blaðið hefur aldrei beðið þessa bætur síðan, sem er rosalega ákaflega gott

Eftir að þessi hægri hönd forsætisráðherra Íslands er búinn að ráðfæra sig svona vel og vandlega við forsætisráðherra Íslands í samfleytt sólarhring um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við grein Evu Joly, vona ég heitt og innilega að friðþægingar- og niðurrifs-flokkurinn Samfylkingin (og Co) muni aldrei bíða þessara aumingja-skrifa fulltrúa þeirra bætur. Það væri mikil blessun fyrir Ísland

USSE

Fyrir Ísland eru þessir tímar að mörgu leyti álíka válegir og þeir voru þegar danska Politiken dagblaðið skrifaði sig inn í söguna sem ævarandi aumingjar, gungur og vesalingar, en samt þó á annan og að sumu leyti ennþá verri hátt. En þegar Winston Churchill kom í heimsókn til Danmerkur eftir að hafa bjargað landinu frá útrýmingu, þá tóku hinsvegar 300.000 Danir fagnandi á móti honum í eigin persónu. Aldrei hefur neinum manni verið fagnað eins ákaft hér í Danmörku. Stuttu seinna var Winston Churchill boðið að koma til Stokkhólms í Svíþjóð til að taka við bókmenntaverðlaunum Nóbels. Hann fór ekki til Svíþjóðar

En á Íslandi er engu að fagna núna því þar ráða aumingjar nefnilega yfir sjálfu landinu okkar öllu

USSE

Ég er Evu Joly ákaflega þakklátur fyrir að vaka yfir Íslandi á meðan ríkisstjórn Íslands skemmtir sér áfram við niðurrifin undir forystu Samfylkingarinnar. Auðvitað sá Eva Joly að það sitja vesalingar og aumingjar við völdin á Íslandi. Það sjá allir sem eru ekki lamaðir af hræðslu og sem vilja ekki renna saman við hið komandi stórríki skítaelítunnar í Evrópusambandinu 

Fyrri færsla

Frakkland færir fram ósk um stofnun Bandaríkja Evrópu  


mbl.is Hrannar sendir Joly tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ef Jóhanna fær sér ekki nýjan mann í stöðu Hrannars, skiptir engu máli hvaða orð verða notuð til réttlætingar veru hans. Hann fór LANGT út fyrir strikið og Jóhanna þarf að setja langt bil á milli sín og Hrannars.

Haraldur Baldursson, 2.8.2009 kl. 19:40

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

 Hrannar hefur kannski verið fullur en það er engin afsökun. Jóhanna hefur ekki borðið ummæli aðstoðarmanns síns til baka og því er þetta gaspur Hrannars í umboði þjóðarinnar en þvert á vilja hennar.

Sigurður Þórðarson, 2.8.2009 kl. 20:08

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Á meðan Jóhanna heldur Hrannari í þessu "embætti" styður hún hann í þessari fullyrðingu. Þrátt fyrir allt snýst þetta fag um pólitík og þar fylgir í farteksinu merkingarfræði sem almenningur túlkar. Reki hún manninn ekki sendir hún út þau merki að hún styðji hann. Hvað sagði ekki Forrest Gump "stupid is, is what stupid does"

Haraldur Baldursson, 2.8.2009 kl. 20:14

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já einmitt: hryðjuverkastjórnmál er vörumerki alls þess sem kemur frá Samfylkinginni. Steingrímur J. Sigfússon á barmi taugaáfalls (SJSÁBT FJÓS S/F) mun svo verða notaður sem flórmeistari eins og venjulega á þessari stóru stoppistöð fjósameistara Samfylkingarinnar. Síðast var það Sjálfstæðisflokkurinn sem gengdi því starfi.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2009 kl. 20:33

5 Smámynd: Halla Rut

Flott skrif há þér.

Landinu er stjórnað af gungum sem stunda hryðjuverk á eigin landi.

Halla Rut , 2.8.2009 kl. 20:54

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir allt sem hér hefur verið sagt. En velkjumst ekki í vafa, Hrannar talaði fyrir forsætisráðherrann.

Það tók Samfylkinguna tíma að ná sér saman utan um "stefnuna" um grein Joly. Steinunn Valdís losnaði frá því að tjá sig um málið á laugardagsmorgun Í Vikulokunum með því að bera við að Mogginn  hefði ekki borist um morguninn. Þetta segir manni að jarðskjálfti hafi riðið yfir Samfylkingarforystuna.

Verkefni Hrannars var að draga úr skaðlegum áhrifum greinarinnar. Það sýnir best hve gersneidd þessi ríkisstjórn er skilningi á efnahagsmálum að rökin sem Hrannar beitir til að draga úr trúverðugleika Joly skulu vera að hún hafi ekki vit á efnahagsmálum.

Halló, var hún ekki fengin til að koma að rannsókn efnahagshrunsins? 

Það eina sem Samfylkingin skilur eru skoðanakannanir sér í vil. Viðbrögð almennings við grein Joly og síðan við klúðri Hrannars voru á við bestu rothöggskönnun.

Það skilur Samfylkingin núna.

Ragnhildur Kolka, 2.8.2009 kl. 21:18

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Gunnar.

Nagli helgarinnar er þinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 2.8.2009 kl. 22:40

8 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Já, Gunnar! Maður spyr sig: Hver styður þessi stórfurðulegu og hneykslanlegu viðhorf sem koma fram hjá aðstoðarmanni sjálfs forsætisráðherra Íslands? - endurtek Íslands, en ekki t.d. Bretlands eða Hollands. Hverjir styðja ríkisstjórn sem virðist tefla gegn íslensku þjóðinni og hagsmunum hennar? Og, hvers vegna?

Væntanlega fer fljótlega að verða meira áberandi en orðið er að hér verði að fara fram nýjar kosningar sem fyrst.
Vandamálið er þá: Hverja er hægt að kjósa sem sannarlega myndu vinna fyrir þjóðina og heildarhagsmuni hennar henni til sem mestra heilla - aðilar sem ekki eru rammflæktir í málefni hrunsins og það uppgjör sem margir virðast vilja forðast að fari heiðarlega fram?

Kristinn Snævar Jónsson, 2.8.2009 kl. 23:40

9 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ragnhildur mikið er þetta góður punktur....Samfylkingin skilur bara skoðanakönnísku, sem er undarlegt mál í meira lagi.

Haraldur Baldursson, 2.8.2009 kl. 23:44

10 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ótrúlegt kjaftæði í Gunnari, hver réð Evu Joly?

Helgi Jóhann Hauksson, 3.8.2009 kl. 00:26

11 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ekki gleyma því Gunnar að Eva er mjög einarður Evrópusinni og á ekki betri ráð fyrir ísland og ESB að ísland gerist aðili að ESB. - Þú hlýtur að taka janf kröftuglega undir það og annað sem Eva segir.

Helgi Jóhann Hauksson, 3.8.2009 kl. 00:29

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innleggin

.

Helgi: ekki vera svona óskaplegur einfeldningur að halda að ef maður sé Evrópusinni að maður aðhyllist þá endilega Evrópusambandið. Mjög mjög margir Evrópusinnar hata Evrópusambandið og flest sem það stendur fyrir. En þeim þykir oft vænt um Evrópu sína sem er alls ekki það sama og þetta bákn sem heitir Evrópusambandið og sem er aðframkomið af spillingu, klíkuskap, einangrunarhyggju og miðurrifi þjóða Evrópu. Rússar elskuðu Rússlandið sitt en hötuðu Sovétveldið. Evrópusambandið sjálft er óðum að nálgast þetta stig málsins.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.8.2009 kl. 00:44

13 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

"Ekki gleyma því Gunnar að Eva er mjög einarður Evrópusinni og á ekki betri ráð fyrir ísland og ESB að ísland gerist aðili að ESB. - Þú hlýtur að taka janf kröftuglega undir það og annað sem Eva segir.

Helgi Jóhann Hauksson, 3.8.2009 kl. 00:29"

Það einmitt, eykur "impactið" af skrifum Joly,,,því, erfiðara verður fyrir Samfó að láta eins og ekkert sé.

Nýjasta línan, virðist annars vera, hjá Samfó, að láta eins og skrif Joly, falli að stefnu Samfylkingarinnar eins og flís að rass :)

Skrifunum er fagnað, og látið í veðri vaka, að Samfylkingin sé mestu stuðningsmenn, hennar skrifa - sem eru túlkuð einungis, sem pólitískt innlegg hennar inn í stjórnmálaumræðu innan Evrópuþingsins, en ekki sem gagnrýni á ríkisstjórnina að neinu leiti.

Sjá:  greiningu Marðar Árnasonar á skrifum Joly.

"Þetta sýnir ágætlega að Eva Joly er í raun ekki að skrifa um Icesave heldur um þá endurskoðun fjármálareglna sem leiðtogar ESB-þjóða hafa lofað en ekki bólar mikið á."

Það þarf ekki að skafa af Samfó, að þar kunna menn mjög vel á "smoke and mirrors" pólitík.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 3.8.2009 kl. 04:00

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

Höfum það varanlega svart á hvítu, að Eve Joly er ríkisborgari í menginlands Sameiningunni. Hollusta hennar er samt sem áður mest við Noreg og Frakkland. Sæmandi öllum góðum borgurum EU á meginlandinu. Hún telur, að gefinni forsendu við að ættum að geta gert það ekki verr, gengin í Sameiningu Meginlandsins. Hún hefur engar yfirlýsingar gefið um að við ættum ekki tækifæri á því að segja upp regluverkinu, núverandi aðildarsamning að ávinning þess að geta greitt meðlimaskattinn á kostnað lífskjara almennings: ódýrari neysluverðsmatarkörfu m.t.t til kaupmáttar en á án tillit til gæða.

Hún vill almenningi þessa lands sérlega börnum og þeim sem minna mega sín vel. Þess vegna blöskrar henni ofurskuldsetningin sem blasir við þjóðinni.

Hún hefur sagt að miklum fjármunum hafi verið stolið sem merkir að margir þjófar ganga lausir. Þess vegna eigum við ekki að borga neitt fyrir en öll kurl eru komin til grafar. Njóta réttlætis Dómstóla ef við getum ekki leyst málið  á opinskáan hátt í eðlilegu milliríkja samráði í anda Meðlimaríkja EU í ljósi aðildarsamnings okkar að EU í dag. 

Sérhagsmunir áhættusækina hlutfallslegra fárra meðlima samfylkingarinnar, sem telja sig snillinga í fjármálum á kostnað skattgreiðenda, ístöðulausra væntingafíkla, sem láta auðveldlega freistast eiga ekki að stýra ferðinni í málum af þessu umfangi sem varða þjóðina alla. Höfum það varanlega á svart á hvítu. Þetta er ekki til að að hafa í flimtingum og og spauga með eins og ákveðnir einstaklingar innan SAmFo virðast fá borgað fyrir.

Júlíus Björnsson, 3.8.2009 kl. 04:37

15 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Gunnar. Samfylkingin hefur svo margoft sannað að undanförnu, að hún starfar hér í þagu ERLENDRA hagsmuna, en EKKI ÍSLENZKRA,
og á því að ÚTHÝSAST úr íslenzkum stjórnmálum. 

Takk fyrir mjög góða písla...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.8.2009 kl. 11:33

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum kærlega fyrir innlegg ykkar.

Þetta er ömurleg þróun mála þessa daganna. Landið án leiðtoga og algerlega án varnar- og sóknarafla. Unnið er helst við að garfa undan Íslandi innanfrá

Gott að sjá þig hér Guðmundur Jónas. Við erum samstíga í svo mörgu og ég þakka þér sömuleiðis

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.8.2009 kl. 13:57

17 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ríkisstjórnin er ekki að valda því að leiða þessa þjóð úr ógöngunum.... hún er föst í sama neti og sú síðasta...ESB-djúpsjávarneti Samfylkingarinnar. xS er að kafsigla öllum björgunaraðgerðum sem til greina koma vegna draums um eitthvað sem aldrei verður.

Eftir lestur frábærra, en sorglegra, greinar þinnar Gunna á AMX (http://www.amx.is/pistlar/8746/), tel ég þarft að setja kúrsinn að nýju, með þessar hættur framundan.
Sjálbærni
Sjálfbærni þarf að aukast. Við þurfum að draga inn sum seglin á meðan önnur þarf að draga hærra upp. Þessu fyrr sem stjórnmálamennirnir átta sig á að við þurfum að vinna okkur út úr okkar vanda sjálf þessu betra.
Vinir hvað ?
Kosti það "vináttu" breta, hollendinga, AGS, ESB, Norðurlandanna,... þá er það prísinn sem greiða þarf. Þetta snýst nú algerlega um að komast af án þess að kasta öllu frá borði.
Landflótti
Landflótti er að bresta á í stórum stíl og ef engin framtíðarsýn er máluð upp mun hann bara aukast.

Við erum best búna land heimsins (utan etv. USA) til að lifa þessar hremmingar af á því sem landið gefur okkur. Hættum þessu væli og förum að sigra þann hluta heimsins sem heitir Ísland.
Já og PS: Guði sé lof fyrir krónuna.

Haraldur Baldursson, 4.8.2009 kl. 14:10

18 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Haraldur: Ég er einmitt inni á þessum hugleiðingum um lýsingu og greiningu á grundvallar valkostum fyrir Ísland í efnahagslegu tilliti og í samhengi við önnur lönd í pistli mínum, Lífslindir og lífstíll, sem birtist í Morgunglaðinu s.l. vor.

Kristinn Snævar Jónsson, 4.8.2009 kl. 15:58

19 Smámynd: Haraldur Baldursson

Kristinn þetta er prýðisgrein sem þú vísar í. Það er svo gróflega vanmetið hversu öflugar "landvarnir" t.d. landbúnaðurinn er okkur.

Lífsstíllinn þarf líka að breytast, en erfitt er að ætla sér að gera slíkt með valdboði þykir mér. Þróunin mun vonandi skila okkur tilbaka nær mannlegu gildunum.
Tilefnið til að leggja nýtt mat á framtíðina með næstu aðgerðir á Íslandi er ærið og það þurfa að fyljga þeim ákvarðanir og framkvæmdavilji. Hversu vel eða illa mönnum er við núverandi ríkisstjórn, þá er ljóst ða hennat tími er liðinn. Það þarf að taka við með Þjóðhollri stjórn -->xO+xV+xB+xD. Samfylkingin þarf hreinlega að fá frí. Þau eru búin að lama aðgerðir tveggja stjórna svo mjög vegna ESB maníu sinnar að það er bara ekki lengur á þau að treysta.

Haraldur Baldursson, 4.8.2009 kl. 16:20

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nýja hagkerfið 

Já, vinir hvað Haraldur? Þetta er mjög góð spurning hjá þér

Þakka þér kærlega Kristinn fyrir þennan góða pistil. Þetta kemur mér þó töluvert á óvart Kristinn, þ.e. þetta sem þú skrifar í pistli þínum. Samkæmt svo mörgum mönnum í ábyrgðarleysisstöðum á Íslandi þá er okkur sagt að Íslendingar dragi andann í gegnum öfluga fjármagnara sem eru svo sterkir að þeir eru jafnvel öll framtíð Íslands sbr. skrifum fyrrverandi við-skipta-ráðherra Samfylkingarinnar og yfirmanni Bankaeftirlits Íslands, nú þingmaður Samfylkingarinnar sem svo fer fyrir forsætisráðherraembætti Íslands núna. 

Það virðist þó vera svo að þessi fármagnari manna í ábyrgðarleysisstöðum á Íslandi er sprunginn núna. Það var kannski þetta sem forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, átti við þegar hann sagði að við hefðum "ekki séð neitt ennþá."

Þú séð þetta því ekki minn kæri Kristinn, þú sérð ekki nýja hagkerfið með fjármagnaranum. En þetta á náttúrlega við okkur báða og þrjá. Við erum örugglega blindir og höfum þess vegna alls ekki "séð neitt ennþá." Ekkert! En hér getum við þó náð að læra mikið, minn kæri Kristinn. Við getum hér öll orðið miklu fróðari um nýja hagkerfið okkar: the President of Iceland Ólafur Ragnar Grímsson at the Walbrook Club, London 3rd May 2005 

Lærið nú kæru Íslendingar, lærið af snillingunum! Lærið! (nei, ekki lambalærið, kjáni!)

Nýtt tímarit hóf göngu sína fyrir nokkrum árum. Áskrift er hægt að panta í gegnum tals-menn í síma 112 Kauplaus 

Nýja hagkerfið

Gunnar Rögnvaldsson, 5.8.2009 kl. 08:14

21 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sitt sýnist hverjum. Almenningur á Íslendi [ekki þjóðin] hefur alltaf haft það betra hér áður fyrr en sambærilegur í EU. Rétturinn til jafnara tækifæra, samheldni og heiðarleiki leiðarljósið. Aðildin að EU frá 1995 hefur breytt miklu. Austur hlutinn er siðspilltasta svæðið og þangað var Íslandi úthlutað verkefnum sem ávinningur að efldu samstarfi með nágrannaríki með hugsanlegri formlegri inngöngu síðar.  

Þetta segir allt sem þarf um persónuleika og dómgreind páfuglsins. Byggði hann þessar niðurstöður sínar á fræðilegum rannsóknum eða upplýsingum sem honum honum bárust í krafti embættis síns?

Stjórnarskrárinn gerir ekki ráð fyrir að embættið gera meira en hún skilgreinir. Persónuleikinn og embættið eru tveir aðskildir hlutur. Embættið er fastsett með lögum og skyldum sem Persónuleikanum ber að gegna [uppfylla], ekki raska eða breyta.   

Júlíus Björnsson, 5.8.2009 kl. 11:18

22 Smámynd: Júlíus Björnsson

sem nágrannaríki með hugsanlegri formlegri inngöngu síðar.  

Júlíus Björnsson, 5.8.2009 kl. 11:20

23 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það stendur í manni að lesa ræðu Ólafs...ég er enn ekki kominn að lokum hennar (bæði löng, en aðallega viðbjóður)

Haraldur Baldursson, 5.8.2009 kl. 14:16

24 identicon

Mörg okkar sem höfum verið búsett í ESB ríkjum eða dvalist um tíma í aðildarríkjum ESB könnumst ekki við að íbúar þessara landa hafi það skítt - þvert á móti.  Fyrir utan það að ESB er póitíkst verkefni þar sem ríkustu þjóðir Evrópu leggjast á eitt með hinum fátækari að jafna lífskjör almennings og efla menntun, frið og mannréttindi og ísland hefði með stolti átt að leggjast á árar með hinum ríku aðildarríkjunm í að keyra þetta verkefni áfram.

Það er lágkúra að missa sig í samanburði á einstökum þáttum og byggja sína afstöðu á þvi - en lágkúrulegasta afstaðn er sú sem byggir á  þjóðernirembu.

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 11:43

25 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fyrir utan það að ESB er póitíkst verkefni þar sem ríkustu þjóðir Evrópu leggjast á eitt með hinum fátækari að jafna lífskjör almennings og efla menntun, frið og mannréttindi

Þetta langtímamarkmið finnst í lokabálki Samninganna um Evrópu Samninganna. Viðurkenning á því útbreidda vandamáli sem hefur alltaf þjáð stærsta hluta meginlandsins sem vex frá Norðri til austurs og suðurs.  Ríkustu ríkin og alþjóðlega túrista staði sækja Íslendingar mest heim. Þessi skuldsetningarfjárfesting Ríkustu þjóðanna hefur nú runnið sitt æviskeið.  Því sem er ekki viðhaldið hrörnar fljótt aftur. Reynsla opnaflæðisins hefur sýnt  að fátæktin og spillingin hefur breiðst hratt út um EU. Við eru búin að vera aðilar að efldu samstarfi við nágrannaríki með þeim forréttinum sem því fylgja síðan 1994. Höfum útvegað þúsundum íbúa EU tækifæri hér síðan. Fengum úthlutað uppbyggingar verkefnum í Austurhlutanum í ljósi aðildarinnar.

Þetta kemur þjóðernisrembu ekkert við enda kallast það hollusta í EU er hampað og verndað með lögum Samninganna. Þeirra sem tryggja að Þjóðirnar blandast ekki að neinu ráði nema í Höfuðborgum stærstu þjóðarbrotanna.  Svo París, Berlín og London og Róm. Í EU heildinni er hefðbundin stétta skipting 0,1 pc eða 500.000 sem ráða öllu of afgangur sem lætur stjórnast af duttlungum forréttinda stéttarinnar. 

Afstaðan er peningaleg sá sem er aflögu fær getur mest hjálpað. Áður gerðu Norðurlöndin það með fyrirmyndar sérstöðu sinni. 

Áður fyrr höfðu Íslendingar vegabréf sem opnuð þeim dyr að öllum löndum. Upplýstur almenningur í EU  hefur alltaf litið upp til eyjunnar þar sem almenningur og þjóðin var eitt og hið sama.  Færeyingar og Grænland er ekki í EU enda ekki fasttengdar fullframleiðslu stórborga efnahagsvæði sem er lámarksforsenda til að geta notið ávinningsins að samkeppninni.

Júlíus Björnsson, 6.8.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband