Leita í fréttum mbl.is

Finnland á ekki afturkvæmt út úr ESB eða evru. Að læsa sig inni í mynt og tollabandalagi Evrópusambandsins

úr greininni: Finnland á ekki afturkvæmt út úr ESB eða evru  

 

Yfirskriftir greinarinnar 

Finnar eiga ekki afturkvæmt 

Innganga Finnlands í myntbandalag Evrópusambandsins er óafturkallanleg og endanleg, sagði viðskiptaráðherra Finnlands. Það er engin leið fyrir Finnland út úr hvorki ESB né myntbandalaginu aftur. Engin leið. Þessu varaði viðskiptaráðherra Paavo Väyrynen við þegar gengið var inn í myntbandalagið.

Fyrir stuttu lýsti viðskiptaráðherra Finnlands því yfir að sænski skógar- og tréiðnaðurinn hafi varðveitt samkeppnishæfni sína vegna þess að Svíar hafi sænsku krónuna. Hún stillir af samkeppnishæfni iðnaðarins. "Við erum í hinu dýra myntbandalagi og Svíar hlaupa með viðskiptin" . . .  

Tímar breytast og burðarstoðir viðskiptahugmynda geta brostið

Markaðurinn fyrir farsíma og handtölvur er að breytast . . . 

En hvað með þennan 230.000 ferkílómetra skóg Finnlands?

En þessu er ekki svona farið með vörur úr skógum Finnlands  . . . 

Finnland 1983-2008  

  • Finnland og utanríkisviðskipti . . . 
  • Hlutfallsleg skipting útflutningsgreina . . . 
  • Viðskiptajöfnuður í tækniiðnaði . . . 
  • Útflutningur helstu útflutninggreina innan og utan markaða ESB . . . 
  • Endurútflutningur eftir vörutegundum . . . 
  • Þróun viðskipta á milli Sovétríkjanna og hins nýja Rússlands . . . 

 Svíþjóð 1999-2008

  • Þróun útflutnings á afurðum úr skógum Svíþjóðar . . . 
  • Gengi SEK og USD m Gengi SEK og USD miðað við EUR . . . 

 Skógar- og tréiðnaður Finnlands og Svíþjóðar

  • PappírsframleiðslaFramleiðsla á massa til m.a. pappírsiðnaðar . . . 
  • Framleiðsla á plötum úr tré . . . 
  • Framleiðsla á tré til iðnaðar . . . 
  • Skógar Norðurlanda . . . 
  • Viðskiptajöfnuður skógar og trjáiðnaðar . . . 
  • Þjóðarframleiðsla og atvinnuleysi. Finnland og Ísland borið saman . . . 
  • Greiðslur Finnlands til ESB . . . 
  • Þjóðarframleiðsla Finnlands og Íslands, 30 ár . . . 
  • Atvinnuleysi í Finnlandi og á Íslandi. 30 ár . . . 
  • Greiðslur Finnlands til ESB frá upphafi . . . 

 Evrópufræðingar, hagfræðingar, fræðingar og titlamenn

Þeir sem hafa prófað að stunda viðskipti í Evrópusambandinu - og það hafa hinir svo kölluðu Evrópufræðingar ekki . . . 

Tveir ólíkir hlutir

  • Velmegun og velferð 
  • Hvað er velmegun? . . . 
  • Hvað er velferð? . . . 

Forsenda velmegunar er frelsið

Frelsið er vöðvabúnt heilans og þegar það dafnar með ágætum þá eykst velmegun okkar allra . . . 

Niðurstaða  . . . 

Lesist hér 

Þetta er allt hægt að skoða og lesa meira um hér á www.tilveraniesb.net í þessari grein => Finnland á ekki afturkvæmt út úr ESB eða evru 

 

Fyrri bloggfærsla

Ísland fær að prófa atvinnuleysi evrulanda í einn mánuð á 30 árum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Sæll og blessaður Gunnar.

Ég þakka þér fyrir alla vinnuna og fyrirhöfnina við að taka saman efnið um ESB og matreiða fyrir okkur. Ekki er vanþörf á því! Sérstaklega er mikilvægt hversu vel þú vísar í og vitnar til heimilda og fyrirliggjandi staðreynda um málið; og umbreytir í segjandi og skiljanlegar upplýsingar.

Halldór Jónsson var einmitt að benda bloggheimi á blogg þitt í dag og eru það orð í tíma töluð sem ég tek undir.

Það er sérstaklega mikilvægt að ýmis atriði koma fram hjá þér sem ekki er mikið fjallað um í umræðunni hér heima fyrir, sérstaklega ekki af ESB-fylgjendum, t.d. staðreyndir um atvinnuþróun og atvinnuleysi innan "Evruríkisins".

Ég benti á í athugasemdum mínum við blogg Halldórs um þitt blogg að fólk gæti gert betur í því að kynna sér hagfræðina á bak við gengisfellingar að því er varðar sveigjanleika þjóðar við að bæta samkeppnishæfni sína í viðskiptum við útlönd. Ég man ekki eftir að hafa séð ritað um það atriði; einungis hinar illu afleiðingar fyrir lántakendur sem sitja nú uppi með sárt ennið stórhækkaðar skuldir vegna myntkörfulána. Dæmið um umsögn írska hagfræðingsins, David McWilliams, um aðlögunarmöguleika Íslands nú með sína "einkakrónu", samanborið við frystinu írska hagkerfisins með sína ósveigjanlegu evru, er sláandi.

Vonandi fáum við að njóta greiningar þinnar áfram um þessi mál. Takk fyrir.

Kristinn Snævar Jónsson, 25.5.2009 kl. 00:05

2 identicon

Fyrirgefðu, félagi. Ég bjó í Finnlandi og það er skýrt mynstur á meðal finnsks almennings. Allir sem hafa svo mikið sem skoðun á málinu lýsa ESB sem því besta sem hafi komið fyrir Finnland. Ekki næstum því, heldur alveg klárlega. Finnland hefur skelfilega sögu af fátækt og hryllingi og lentu skelfilega í gjaldeyrisvandamálum á sínum tíma. Það er engin ein efnahagsaðgerð sem hefur gefið Finnlandi jafn mikið og ESB.

Þannig að ég spyr, ef Finnland á ekki afturkvæmt... hvað með það?

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 10:34

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kristinn Snævar. Þakka þér kærlega fyrir uppörvunina. Já ég er svo hjartanlega sammála þér um hallann í umræðunni. Þetta er keyrt á sama hátt og bankaútrásin var keyrð. Hraðinn er svo mikill að engin heimavinna fer fram. Svo endar þetta á hausnum. Þetta er alger óþarfi. Menn þurfa aðeins að láta renna af sér og gang í sjálfa sig aftur og hætta að hafa sér eins og fílar í kristalbúð

Helgi Hrafn: það eru yfir 5 miljón almenningar í Finnlandi. Hversu marga af þeim hefur þú talað við?

Eftir að Finnar hafa fengið nýju stjórnarskránni og hernaðarmálefnum Evrópusambandsins troðið með ofbeldi ofan í hálsinn á sér og einnig misst flesta sína pósta í háum stöðum í Evrópusambandinu, þá sýndi skoðanakönnun framkvæmd svo seint sem sumarið 2005, að það er ekki einusinni meirihluti Finna sem styður það að Finnland sé ennþá aðili að sjálfu Evrópusambandinu.

Þeir voru heldur ekkert spurðir að því hvort þeir vildu fá evru eða ekki. Ekki frekan en þeir voru spurðir að því hvort þeir vildu sænsku króuna eða rússnesku rúbluna þegar valtað var yfir þá fyrr á öldum.

En þeir eiga ekki afturkvæmt. Engin leið út aftur 

Kveðjur    

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2009 kl. 11:46

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Því er einnig hægt að bæta hér við að efnahags- og gjaldeyriskreppur ganga yfir. Þær taka enda. Bæði Svíar og Finnar lentu í gjaldeyrikreppum 1992-1993. Núna nýtur sænska ríkið betri lánskjara og lægri vaxta á lánum en öll löndin í myntbandalaginu gera. Þökk sé sænsku krónunni sem sjálfstæðum gjaldmiðli fyrir akkúrat Svíþjóð.

En sjúkdóminn Eurosclerosis munu Finnar aldrei losna við. Hann munu Finnar þurfa að glíma við þar til yfir lýkur með gjaldþroti ESB og Evru. Með einni allherjar sprenginu og ófriði.   

======================= 

Frá fyrri bloggfærslu 27. apríl (Alþýðuhreyfingin gegn ESB-aðild Danmerkur krefst rannsóknar)

=======================

Forstjóri Jyske Bank sammála Saxo Bank um ókosti evru

Forstjóri Jyske Bank, Anders Dam, hefur einnig lýst yfir að hann telji Danmörku best borgið utan myntbandalags Evrópusambandsins. Jyske Bank er næst stærsti banki Danmerkur. Í ræðu sinni fyrir framan evru-nefnd danska þingsins hellti forstjórinn sér yfir röksemdafræslu forsætisráðherra Danmerkur. Hann benti á að fjármálakreppan væri yfirvöldum á evrusvæðinu sjálfum að kenna. Hann benti á að sænska ríkið, sem stendur alveg fyrir utan myntbandalagið, nýtur mun betri og lægri vaxtakjara á lánsfjármörkuðum en öll þau lönd sem eru í myntbandalaginu, þar með talið Þýskaland sjálft (neikvæður vaxtamunur/spread við Þýskaland). "Það kæmi mér ekki á óvart að markaðurinn álykti sem svo að sænska ríkið sé betri skuldari, til legnri tíma litið, en löndin í myntbandalaginu vegna þess að Svíþjóð hefur sína eigin mynt". Þessi mynt Svía, segir Anders, gerir það að verkum að Svíar hafa betri verkfæri til að tryggja að skattatekjur - og þar með greiðslugeta sænska ríkisins - þorni ekki upp í takt við að atvinnuástand versni og útflutningur stoppi vegna lélegrar samkeppnishæfni sem kemur þegar lönd ráða engu um gengi og vaxtastefnu gjaldmiðla sinna.

Í lok ræðu sinnar sagði Anders Dam: "Forsætisráðherrann segir okkur að allir sjái að það kosti að standa utan við myntbandalagið. Þá segi ég: ekkert jafnast á við góða hagstjórn - og ég heiti ekkiAllir ". Hér er myndbandið með ræðu Anders Dam: Anders Dam kritiserer regeringen til euro-høring

=======================

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2009 kl. 12:11

5 identicon

Gunnar: Ég hefði viljað sjálfur að svona hlutir hefðu farið í þjóðaratkvæðagreiðslu enda mikill lýðræðissinni. En Finnland hefur alltaf, alltaf, alltaf verið efnahagsleg rúst, þó af misjöfnum ástæðum. Þegar ég bjó í Finnlandi var þar mikil uppbygging í gangi sem nú hefur að vísu hægt á vegna bankakreppunnar, en eins og ég segi, allir sem ég talaði við sem höfðu teljandi skoðun til að byrja með, voru sammála um þetta. Fyrst þú spyrð um tölu myndi ég skjóta á að ég hafi talað við svona... einhvers staðar milli 20-40 manns um þetta. Ekki misskilja, margir voru á móti ESB og evrunni, en enginn sem þorði að segja meira en þá skoðun sína. Allir sem höfðu eitthvað til málanna að leggja voru sammála um að ESB/evran væri það besta sem hefði komið fyrir Finnland.

Allavega, þá finnst mér það að ekki sé hægt að ganga úr ESB ekki vera rök gegn aðild. Það græða allir á því að vera í stórum efnahag, og stærri gjaldmiðill er betri gjaldmiðill. Er einhver ágreiningur um það, annars? Eða eru rökin einungis að það borgi sig ekki af X ástæðum?

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 12:33

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Helgi: Af fjórum til fimm ríkustu þjóðum Evrópu eru: Ísland, Sviss og Noregur. Þessar þjóðir standa allar utan ESB og hafa allar sinn eigin "litla" gjaldmiðil. 

Til þess að verða "ríkur" þá þarf að geta átt sér stað hagvöxtur í þjóðfélaginu. Enginn hagvöxtur, ekkert ríkidæmi. Evrusvæðið er einmitt eitt lélegasta hagvaxtarsvæði í heiminum.

Hvort gjaldmiðillinn sé stór eða lítill er ekki málið. Það sem skiptir höfuðmáli er að gjaldmiðillinn þjóni hagkerfinu vel og styðji undir hagvöxt fyrir þegnana og fulla atvinnu handa öllum. Það hefur íslenska krónan svo sannarlega gert frá því að síðasta myntbandalag hrundi undir nýjum fótum Íslendinga (Gengið á gullfótum yfir silfur Egils).

Íslenskra krónan styður undir hagvöxt Íslands. Atvinnugreinar Íslands verða að hafa gjaldmiðil sem gerir hagvöxt mögulegan. Annars verða allir fátækir og atvinnulausir.

Evran er enginn venjulegur gjaldmiðill. Hún er fyrst og fremst pólitískur gjaldmiðill. Hún hefur í flestum tilfellum reynst afskaplega illa sem hagstjórnartæki. Annars væri evrusvæðið ekki að upplifa það núna að fá einn til heila tvo "týnda japanska áratugi" með næstum engum hagvexti. 10-20 ár full af engu og massífu atvinnuleysi allann tímann. 

Finnland hefði gengið í hvað sem er þegar Sovétríkin svo að segja hrundu ofan á Finnland. En svona er þetta með ESB. Það hagnast alltaf og stækkar í hræðsluköstum þjóðanna. En svo er engin leið út aftur

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 25.5.2009 kl. 13:02

7 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Frábær skrif hjá þér Gunnar!

Guðrún Sæmundsdóttir, 25.5.2009 kl. 20:21

8 Smámynd: Haraldur Hansson

"Það hefur verið vitað, af þeim sem nenna að hugsa um þessi mál af einhverju viti, að krónan er ónýtur gjaldmiðill." Svo mælti þingmaðurinn Þór Saari í umræðum á Alþingi í dag.

Skyldi hann hafa hugsað þetta af jafn miklu viti og hugmyndina um að setja 90% fjármagnstekjuskatt á vaxtatekjur af Jöklabréfum? Gallinn við þá hugmynd er að eigendurnir eru erlend félög og skattlagningin er með öllu óleyfileg samkvæmt ákvæðum tvísköttunarsamninga. Kannski hefur O-mönnum ekki fundist taka því að vinna smá heimavinnu.

Haraldur Hansson, 26.5.2009 kl. 00:05

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum kærlega 

"Það hefur verið vitað, af þeim sem nenna að hugsa um þessi mál af einhverju viti, að krónan er ónýtur gjaldmiðill." Svo mælti þingmaðurinn Þór Saari í umræðum á Alþingi í dag

Að hætti þeirra sem hugsa smávegis, þá umskrifum við jöfnuna hans Saari gjaldmiðla snillings:

Það þarf ekki djúpt hugsandi menn til þess að vita núna (og margir vissu það alveg frá byrjun) að það sem fjármála- og bankamenn Íslands voru að aðhafast frá 2003-2008 var HANDÓNÝTT drasl af viðskipta- banka- og fjármálalegu klámi sem íslenska þjóðin þarf núna að þrífa upp eftir þá. Núna er þjóðin á að skeina þessa snillinga.

Þessi snilli fæddi nefnilega af sér :

1) handónýtar viðskiptahugmyndir

2) framkvæmdar af handónýtir mönnum 

3) sem bjuggu til handónýta banka

4) og handónýt fyrirtæki sem gengu fyrir lofti sem öll eru á hausnum núna

Það var ÞETTA sem var HANDÓNÝTT og ég vona að þessi hæstvirta þingmannslufsa geti EKKI talist þar með. 

Krónan hefur EKKERT gert af sér. En þessir ofangreindu aðilar migu stanslaust ofan á hana með sínu hæfileikalausa pissi, árum saman. Hluthafar og skattgreiðendur borgar núna fyrir að láta þessa menn míga á sig.

En það er eins og eitthvað segi mer að þessar handónýtu viðskiptahugmyndir og handónýta viðskiptavit séu jafnvel að flytja sig um sel og inn á sjálft Alþingi. Að hlusta á þetta rugl koma út úr löggjafarsamkundu Íslands er ekkert minna en hræðilegt og skelfilegt - samtímis! 

Humpf!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.5.2009 kl. 11:45

10 identicon

Helgi,

Þú gerir þér grein fyrir að Finnar þurfa að kaupa timbur af Rússum í miklum mæli til að vera samkeppnisfærir í útflutningi.  Eina sem þeir flytja út af timbri er sérvara að mestu leit?

Auðvitað eru það ein stærstu rökin geng inngöngu að geta gengið úr klúbbi ef þú hefur ekkert þar að gera:)

itg (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband