Leita í fréttum mbl.is

Morgunblaðið fellur um 80% á barnaskólaprófi í reikningi

Fallinn 

Fréttin eftir blaðamann Morgunblaðsins, Björgvin Guðmundsson, segir:

 

Í krónum talið hækkuðu erlend lán gríðarlega mikið á síðasta ári og greiðslubyrði þyngdist. Ástæðan er sú að krónan veiktist um 80% gagnvart öðrum gjaldmiðlum

 

Sönn frásögn af óförum gjaldmiðils Íslands, í höndum banka og fjölmiðla, væri hinsvegar svona

Gengi íslenksu krónunnar féll mest um tæp 49% á 365 dögum á árinu 2008 gegn evru. Fallið gegn japanska yeni varð um það bil á tímabili 57% vegna þess að japanska yenið hækkaði svo mikið í verði á gjaldeyrismörkuðum í fjármálafárviðrinu að jafnvel íslenska stál & demants evra Morgunblaðsins féll um 25% í verði gagnvart yeni og breska pundið hrapaði um 35% gagnvart yeni þó svo að bankakerfi Bretlands sé í ríkistryggðri öndunarvél Gordons Brown. Fallið hefur minnkað mikið síðan það var verst er bankar Íslands urðu gjaldþrota úti í Evrópusambandinu.

Því er gengi yens ekki eins hátt lengur eftir að bankarnir eru loksins látnir (sjá andlátstilkynningar nr. 1 til 29.598 í Morgunblaðinu) og eru því hættir að riðlast ofan á krónunni okkar sem því hefur braggast töluvert aftur eftir þennan níðing. Heilsufar gjaldmiðlaparsins evra/dollar er hinsvegar það fjörlegt ennþá að þau dönsuðu í gær og í fyrradag í stærstu tveggja daga gengissveiflu síðan árið 1999, er evran hrasaði um 4,1% í þessum tveggja daga dansleik við dollar - já, íslenksu Stál & Demants Evru Morgunblaðsins (SDEM) varð svona óglatt að hún datt.  

Lesa Morgunblaðið ?

Þetta, mínir góðu lesendur, er fallið sem varð að 80% fallinu í höndum Morgunblaðsins, svona eins og hækkun húsnæðis(ó)lána almennings varð í höndum hinna íslensku banka(ó)ráðgjafa og álitsgjafa Egilssilfurs þeirra sem einnig gékk bessergang á gullfótum um allt Ísland á síðasta ári. Það er ekki skrýtið þó allt sé á hausnum þegar fjölmiðlarnir eru ekki ennþá búnir að ganga í gegnum vorprófin í fyrsta bekk í sínum lífslanga barnaskóla í Silfri Moggans. Eiginlega hefði átt að standa í fréttinni að það hefði verið Morgunblaðið sem skyndilega veiktist um 80% á síðasta ári.      

Mikið hefur verið rætt um gengisfall íslensku krónunnar undanfarið og hafa sumir gengið svo langt að lýsa hana "ónýta" því hún hafi fallið allt að 100% eins og þeir sem kláruðu barnaskólann hafa sagt og skrifað. En ekkert getur fallið um 100% án þess að verða að engu. Þessum aðilum til upplýsingar hef ég áður bent á að gengi íslensku krónunnar er fallið eins og að ofan greinir. 

Þetta gerðist þegar næstum allt íslenska bankakerfið lagðist gjaldþrota á hausinn ofaná mynt okkar Íslendinga. Þetta er dálítið meira en evran féll á 22 mánuðum árin 2000-2001 vegna vantrausts, en þá féll hún um 30% gagnvart dollar, - og það þrátt fyrir sameiginlegar björgunaraðgerðir seðlabanka ESB og Bandaríkjanna í tvígang.

Núna vinnur seigur, duglegur og sveigjanlegur gjaldmiðill okkar Íslendinga, aleinn og sem ofurmenni - og þrátt fyrir Moggann - dag og nótt við að afrugla hagkerfið aftur. Hann mun einnig í leiðinni koma í veg fyrir Evrópusambandslegt atvinnuleysi hjá launþegum á Íslandi, hann þjónar nefnilega Íslendingum þessi gjaldmiðill okkar. Það þarf meira til að ganga frá svona góðum gjaldmiðli en heilt gjaldþrota bankakerfi á vaxtarhormónum og herskáa Breta. En gjaldmiðillinn okkar á svo sannarlega betri meðferð skilið en þá meðferð sem hann hefur mátt þola síðastliðin mörg ár. En seig er hún krónan okkar. Hefði einhver annar gjaldmiðill þolað þessa meðferð? (Ónýtir gjaldmiðlar) 

Svona lítur 94% fall út  

En ef mönnum langar að skoða hvernig 94% fall lítur út á blaði þá ættu þeir að skoða þessa mynd hér að neðan. Þetta er mynd af því hvernig málin standa með hnattvæðinguna núna, eftir að fjármálageiri heimsins fékk fast sæti á klósettinu í öryggisráðinu heima hjá mömmu sinni, ríkinu. En Baltic Dry vísitalan, sem var stofnuð árið 1744, mælir hvað það kostar að panta vöruflutninga á höfum heimsins núna. Enginn mun bóka neina fragt nema að hann ætli að flytja eitthvað. Núna ætlar heimurinn greinilega ekki að flytja neitt að ráði lengur því þessi vísitala er fallin um 94%. Hnattvæðingin er því komin á þann stað sem hún var fyrir ca. 25 árum. Það er ekki skrítið þó að það sé að koma ísöld í hagkerfum víða um heim. Þessi mynd er ákaflega glæsileg og áhrifamikil. En afleiðingarnar verða ekki glæsilegar. En þetta er allt saman Seðlabanka Íslands og Davíð Oddssyni að kenna, valdamesta manni og seðlabanka í heiminum

baltic_dry_index_bloomberg 

 

Og svona lítur flökt íslenksu krónunnar út

Flökt okkar góðu íslensku krónu er mun minna og mun hættuminna en flökt íslenskra stjórnmálamanna á einu ári og sjö dögum. Hér er sönnunin fyrir því

 

 

 


mbl.is Erlend íbúðalán til ÍLS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Ef Mogginn fellur í reikningi þá fellur þú í stafsetningu.

Sjá fyrirsögn: Mogrunblaðið !

Friðrik Þór Guðmundsson, 7.1.2009 kl. 17:54

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Friðrik. Fallið er hér með leiðrétt

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.1.2009 kl. 18:01

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Andúð á Davíð er spottinn af áralöngum árásum andstæðinga sem í stað þess að berjast við hann í polítík, hófu að einbeita sér að skipulagðri árás á hans persónu. Þjóðsögur um hitt og þetta sem karlinn átti að hafa sagt, gert, eða hugsað, náðu að skapa ímynd einhvers konar skikkjuklæddrar ofurhetju með röngu formerki.
Fjölmiðlar ýmsir (tja eginlega allir) tóku ríkan þátt í þessu, enda löngum viljugir til að einbeita sér að neikvæðum umsögnum. Útgáfa veiðileyfa fór aldrei fram en það þótti allt í góðu lagi, enda "ættu menn í opinberum störfum að þola gagnrýni".
Þó engin persónuleg kynni hafi ég af Davíð, ímynda ég mér að álagið hafi stundum kbeikt spurningar hjá honum um það hvort það væri þess virði að standa í þessu.

Ég ætla ekki að líma vængi á neinn með þessari athugasemd, eingöngu að undirstrika skoðum mína á að leikvöllurinn hallaði ansi mikið í aðra áttina og almennar leikreglur brotnar sem og siðferði kastað fyrir róða.

Haraldur Baldursson, 7.1.2009 kl. 19:30

4 identicon

Er ekki málið að það er talað um að gengi krónu veikist þegar gengisvísitalan hækkar og gengi krónu styrkist þegar gengisvísitalan lækkar.

4. jan 2008 var gengi krónunnar 119 stig en 2. jan 2009 216,13 stig (fengið af m5.is. Þar með hefur gengisvísitalan hækkað um 216,13/119 - 1 = 0,8162 eða 81,62%. Og þá er sagt að gengi krónunnar hafi lækkað um 81,62% (og því talað um að hún hafi fallið um 81,62%). 

Hins vegar gæti gengi krónu aldrei hækkað um 100% (nema gengisvísitalan gæti orðið 0). 4. jan 2008 var virði jensins 0,5616 kr. en 2. jan 2008 var virði jensins 1,3309 kr. Breytingin 1,3309/0,5616 - 1 = 1,3698 eða 136,98%

Baldur (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 19:49

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gengisvísitala er history núna og var dauði hennar auglýstur á vef Seðlabakans snemma síðasta árs. Hún segir ekki það sem Morgunblaðið er að reyna að segja almenninigi á Íslandi. Hún segir allt annað og er ætluð í allt annað. Hvað á fólk með yen lán að gera við gengisvísitölu? Það eina sem það hefur áhuga á eru gjaldmiðilapörin ISK/JPY eða ISK/CHF eða ISK/EUR eða ISK/USD

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.1.2009 kl. 21:19

6 identicon

Hefur það ekki frekar áhuga á jpy/isk ( http://finance.google.com/finance?q=JPYISK ) , chf/isk ( http://finance.google.com/finance?q=CHFISK ), eur/isk ( http://finance.google.com/finance?q=EURISK ) og usd/isk ( http://finance.google.com/finance?q=USDISK )

þ.e. hvað jenið kostar margar krónur, frankinn margar krónur, evran margar krónur og dollarinn margar krónur en ekki hvað ein króna kostar mörg jen og svo framvegis.

ps. 

gat ekki gert tengla

Baldur (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 21:32

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jú að sjálfsögðu Baldur - þá ýtir þú á takkann sem færir þig yfir landamærin aftur og sýnir hækkunina gegn ISK (View JPY in ISK) við hliðina á dagsetningunni. Það sem ég vildi sýna hér var að tölur Morgunblaðsins um 80% fall eru og verða STAÐLEYSUR.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.1.2009 kl. 21:57

8 identicon

Miðað við þessar þau gröf voru kostu gjaldmiðlarnir svona margar krónur (2. jan'08 - 2. jan'09 - breyting)

JPY 0,5690 - 1,3181 - 132%
EUR 91,17 - 168,38 - 85%
USD 61,215 - 121,04 - 98%
CHF 55,83 - 112,61 - 102%

Þetta gengi 2. jan'09 er það ekki eitthvað nálægt því sem fólk sem eru með erlend lán eru að borga fyrir gjaldmiðlana, sem og þeir sem eru að flytja inn vörur?

Baldur (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband