Leita í fréttum mbl.is

Enn hrynur evran

Sælir kæru lesendur

Duisenberg

Enn heldur evran áfram að hrynja

Evran er núna fallin um tæp 19% gagnvart Bandaríkjadal á þrem mánuðum og um heil 19.27% gagnvart japanska yen á aðeins 22 dögum. Fréttaskýrendur, fjárfestar og peningamenn ræða núna sín á milli hvað muni verða eftir og uppistandandi á fjármálamörkuðum árið 2010. Þeir vilja vita hvar þeir eiga að geyma fjármuni sína núna. Spurningin um hvort evra verði ennþá til árið 2010 er meðal þessara spurninga. Það er því mikill stöðugleiki á þessari stöðugleika-mynt. Ég velti vöngum yfir því hvort svona stór mynt hafi nokkurntíma fallið eins hratt áður? Þetta mun gera nauðsynlega vaxtalækkun erfiðari fyrir seðlabanka ESB. Nú er því töluverð hætta á "stagflation" í ESB

Heims visistolur 22 oktober 2008

En það fellur fleira en evra. Flestir hlutabréfamarkaðir Evrópu voru blóðrauðir í dag. Dagurinn í dag er næstversti dagur nokkurntíma í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Skuldabréfamarkaður húsnæðislána í Danmörku á í miklum erfiðleikum með að skaffa fjármögnun fyrir danska húskaupendur á viðráðanlegum kjörum. Búist er við að þessi markaður muni sprengja stóra holu í ársreikninga Danske Bank á næstunni. Hlutabréf vindmylluframleiðandans Vestas misstu næstum 1/4 af verðgildi sínu í dag

Staðan á húsnæðismörkuðum í Evrópu er sú að þessi markaður á eftir að krefjast mun meiri fórna og skakkafalla en hin vel þekktu bandarísku undirmálslán hafa skapað fram að þessu. Fréttir berast af miljón tómum íbúðum á Íberíuskaga, 300.000 tómum íbúðum á Írlandi og grafalvarlegu ástandi á fasteignamörkuðum fleiri landa í Evrópu

Nú held ég að þetta sé að verða mörgum ljóst. Sú uppsveifla sem við höfum séð undanfarin ár mætti kalla fyrir bankabóluna. Upptök hennar mun ég hugsanlega reyna að fjalla um seinna. Að magra mati eru böndin farin að berast að vissum stjórnmálamönnum í BNA sem þvinguðu fjármálastofnanir til að veita þeim húsnæðislán sem ekki áttu að geta fengið svona lán undir venjulegum forsendum ásmt lélegu áhættumati lánastofnana í Evrópu. Óheilbrigt áhættumat lánveitenda ásamt illa reknum bönkum og fjármálastofnunum blésu upp fasteignabólur - bólur og bólusóttir. Núna erum við að borga brúsann. Þetta hrun verður kanski síðar hægt að kalla "hrun móralistanna". En englar hins hreina ríkisvalds eiga sér dýrðardaga núna, svo mikið er víst. Komma-væðing fjármálakerfisins er hafin hér í Evrópu, og jafnvel í Bandaríkjunum einnig. Þetta er vægast sagt pathetic!

150 dollara olíuverðið sem átti að vera komið til að vera. Nú er það 66 dollarar 

Olia 22 oktober 2008

En hvar mun olíuverðið enda á næstunni. Mun það enda í 30 dollurum eða 35 dollurum. Ef svo fer þá meiga okkar kæru frændur í Noregi fara að biðja bænirnar, hækka stýrivexti til að verja norsku krónuna og finna sig í miklum verðlækkunum á húsnæði.

Norska króna er núna fallin um tæp 30% gagnvart dollar á þrem mánuðum og hún er einnig fallin um 12% gagnvart evru á síðustu 7 vikum og um 7% gagnvart sænsku krónunni á sama tímabili  

Hvernig munu málin þróast á næstunni? Það veit ég ekki. Hreint ekki. 

Fyrri færsla: Evran fallin um 17%

Tengt efni:

Germany rejects idea of eurozone 'economic government': report

Gleðifréttir úr gamla heiminum í ESB

Ónýtir gjaldmiðlar

Evruspá Jyske Bank frá 4. júlí 2008: úrelt

Gullna hliðið lokast - gengishrun evru yfirvofandi ?

Forsíða  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað hefur krónan fallið um mikið?????

Jói (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 19:20

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

Jæja það er þó allavega eitthvað lán í óláninu. Ástandið er að verða jafnslæmt þarna úti og hér heima (ólánið). Vonandi kemur það í veg fyrir landflótta (lánið).

Fannar frá Rifi, 22.10.2008 kl. 20:00

3 Smámynd: Guðmundur Helgi Þorsteinsson

Sæll Gunnar, svissnesku vogunarsjóðirnir skjálfa margir núna. Einn félagi minn stærðfræðingur er búinn að veðja á að dollarinn mun gefa hressilega eftir á næstunni. Það er ljóst að Evrulöndin eiga eftir að sjá fram á erfiða tíma á næstunni og það er mikil óvissa í öllu sem heitir lántökur og fyrirgreiðslur því trautið er ekki til staðar. Miðað við samstarf stóru ESB þjóðanna þá virðist evran samt flökta töluvert.

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, 22.10.2008 kl. 20:55

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vinir okkar Rússar, vinir Ingibjargar Sólrúnar í Íran og vinir Ólafs Ragnars í Qatar hafa nú ákveðið að sjá til þess að þessari útsölu á olíu verði senn hætt. Hjá þeim liggur víst 60% af heimsframleiðslunni.

Rússar og Norsarar verða að fylla fjárhirslurnar svo þeir eigi aur til að lána okkur og Qatar og Íranir þurfa víst ekki lengur á auglýsingu að halda, enda bæði ISG og ÓR alveg staur.

Ragnhildur Kolka, 22.10.2008 kl. 21:05

5 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Ha ha, þvílíkt rugl er þessi pistill, ástandið á Íslandi er tífalt verra en það sem þú tíundar hérna sem pathetic.

Jón Gunnar Bjarkan, 22.10.2008 kl. 21:58

6 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Jón Gunnar:
En hver segir að það verði þannig um alla tíð? Ertu til í að ábyrgjast að evrusvæðið muni verða til eftir 5 ár? Hvað með að svara pistlinum efnislega í staðinn fyrir einhverjar blammeringar? Ef pistillinn er virkilega svona mikið rugl, hvers vegna ertu þá að hafa fyrir því að "kommenta" á hann? Hann hlýtur þá að dæma sig sjálfan ekki satt? Nema hann sé alls ekki rugl.

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.10.2008 kl. 22:49

7 Smámynd: DanTh

Gunnar,  ég vil þakka þér góð skrif um þessi mál og hvet þig til að halda þessu áfram.  

Jón Gunnar, er draumur þinn um hið óskeikula Evrópusamband að hrynja?  Þolirðu ekki umræðuna á öðrum nótum en þeim trúarofstækisvaðli sem þið Evrusinnar haldið á lofti?

Veistu að leiðtogar ríkja Evrópusambandsins sem hafa tekið upp evruna sem gjaldmiðil tóku á móti Gordon Brown með lófaklappi í kjölfar þess að hann hafði knésett KB banka og sett okkur á hryðjuverkalista?  Voru þeir bara svona ánægðir að sjá hann eða kannski þakklátir fyrir óhæfuverk hans í okkar garð?

England er ekki með evru og því var þetta allt mjög sérstakt svo ekki sé meira sagt.  Fundurinn var nefnilega einungis ætlaður þeim ríkjum innan Evrópusambandsins sem hafa evruna sem gjaldmiðil.  En fyrir einskæra tilviljun fékk Gordon Brown sérstak boð um að mæta á fundinn eftir að hafa tæklað litla Ísland.

Það er talið að leiðtogar Evrópusambandsins hafi séð, í heimskulegum aðgerðum Gordon Brown, tækifæri til þess að svínbeyja okkur inn í sambandið á afarkostum.  Þeir lifa í draumnum...

DanTh, 22.10.2008 kl. 23:29

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæl og blessuð öll og kærar þakkir fyrir innlitið


Guðmundur Helgi

Í mínum hugarheimi er ekkert sem getur stoppað fall evru núna svo ég býst sjálfur við að hún í fyrstu haldi áfram niður að 1.1 USD - 1.15 USD og stoppi þar smá stund og svo mun hún smáfalla áfram í langan tíma.

Við erum í bankakreppu í Evrópu núna => sem mun þróast í kreditkreppu => svo tekur Evrópsk húsnæðislánakreppa yfir og brennir margar fjármálastofnanir til grunna => og samhliða þessu öllu erum við komin í kreppu => sem svo mun vaxa í ECONOMIC SLUMP samhliða hruni á húnsnæði og ömurlegu massaatvinnuleysi. Það verður ef til vill hægt að hringja í einhvern í Evrópu eftir 24-30 mánuði.

Ragnhlidur

Þetta OPEC pjatt núna mun engu breyta um fallandi olíuverð. Þeir ráða 40% af markaðinum og hafa aldrei verið megnugir að byggja botn undir markaðinum. Þeir geta stundum aukið framleiðslu á háverðstímum => en þeir þurfa peningana sína núna því þeir eru að brenna upp út um allan heim svo það verður engin samstaða. Svo megi þeir drekka kaffi í friði. Ég trúi á 40-50 USD olíu innan skamms.

Daníel

Stórt takk og knús :)

Áfram Ísland !

We are not paying ! Take that!

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2008 kl. 06:49

9 identicon

Áhugaverð lesning. Fínt þegar maður sér að fólk tekur sér tíma til að skoða kosti og galla annars gjaldmiðils áður en þeir taka upp mótmælaspjald og öskra "Burt með krónuna".

Gunnar (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 11:25

10 Smámynd: Orgar

takk fyrir góðar greinar.

bylting-strax.blog.is

Orgar, 23.10.2008 kl. 17:22

11 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Hjörtur: Já ég skal fullyrða að Evran verði hér ennþá eftir 5 ár, meira að segja trúi ég því að á þessum 5 árum þá munu norðurlöndin vera byrjuð að undirbúa skiptingu yfir í evru og jafnvel Bretar líka. Þetta tal um hrun evrunnar er jafnfáránlegt og þegar dollarinn hrundi gagnvart öðrum gjaldmiðlum, þar á meðal evru síðastliðinn ár og menn byrjuðu að tala um að dollarinn væri brátt úr sögunni og menn myndu fara að taka upp gjaldmiðilinn Amero, sameiginlegan gjaldeyri USA, Kanada og Mexíkó.

Það sem er rakið hér í pistlinum er fáránlegt vegna þess að hér er verið að reyna kenna evruna um hvað sé hér á ferðinni. T.d hvað kemur danska kauphöllin evrunni við? Hvaðan kemur þessi kreppa upphaflega? Bandaríkjunum, hvað kemur það evrunni við?

Hrun á fasteignaverði er allstaðar í heiminum, en ástandið er betra á evrusvæðinu heldur en t.d í Bandaríkjunum. Hrun á fasteignaverði kemur til þess að undanfarin ár hefur verið slattinn allur af lausafjár til, svo menn voru fljótir að taka lán og kaupa eignir, skapa þannig meiri eftirspurn, keyra upp verðið, þegar verður skortur á lánsfjármagni þá gefur það augaleið að eftirspurnin minnkar og verðið falli. Út af því að nefnt var íberíuskagann í þessu pistli þá þekkjum við það af eigin raun hvernig íslendingar hafa keypt grimmt íbúðir á skaganum, núna þegar kreppir að hjá okkur þá eru íslendingar að reyna að selja til að koma eignunum í verð, þegar þú bætir við öllum bretum og norðurlandaþjóðum sem keypt hafa miklar fasteignir þarna á skaganum eru að selja líka það myndast offramboð af eignum á sölu og keyrir niður verðið.

Það kemur hinsvegar ekkert evrunni eða ESB við, það gerist allstaðar. 

Jón Gunnar Bjarkan, 23.10.2008 kl. 22:36

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jón Gunnar Bjarkan


Það stendur: En það fellur fleira en evra.

Viltu að ég stroki út þá upplýsingu að evran sé að hrynja ? Líður þér þá betur? Eða má bara segja að evran sé galdrapappír sem leysir allt? og má bara segja að íslenska krónan hafi fallið vegna þess að magri vilja hana dauða því þeir halda að evran sé galdrapappír "stöðugleikans".

Evran er samt hrunin! Stöðugleiki evru er hruninn. Hvað á að segja íslendingum næst? Að þeir eigi að smíða mynt úr gulli? Já en gull er einnig hrunið.

Ein stærsta mynt heimsins er hrunin um næstum 20 prósent á nokkrum vikum. Það hefði þótt saga til næsta bæjar áður en galdrar "komu að" gjaldeyrismörkuðum.

Lesendur athugið: tuttugu prósent er svona mikið

* * * * * * * * * * * * * * * * * * * *

20 stjörnur

Með kveðju

Myntráðið

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 00:24

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það kemur hinsvegar ekkert evrunni eða ESB við, það gerist allstaðar.


Jón Gunnar Bjarkan segir að hrun á fjármálamörkuðum, og á húnsæðismörkuðum, og á grunn-efnahagsstærðum, og trú markaðarins á til dæmis mynt myntbandalaga hafi ekkert með gjaldmiðla að gera.

Þetta er gott að vita fyrir alla þá sem spá í að skipta út mynt sinni og taka mynt annarra í notkun og þá sérstaklega mynt ESB. Þetta kemur evrunni ekkert við. Þessvegna er þér óhætt að gleyma henni. Þetta er satt og rétt. Þetta kemur myntinni ekkert við. Það eina sem skiptir máli eru hagstærðir þess efnahags sem á að bera upp myntina.

Now let's go to work.

Merkilegt að dollar skuli ekki vera hruninn, eins litlu máli og Bandaríkin skipta máli, samkvæmt váfréttum "allra". Fjármunirnir leita til öruggra staða á óvissutímum. Markaðurinn efast um að evran verði ennþá til eftir 1-2 ár. Þessvegna hrynur hún

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 00:41

14 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Gunnar, þú ert dálítið að máta sjálfan þig hérna nokkuð afgerandi. "Markaðurinn efast um að evran verði ennþá til eftir 1-2 ár. Þess vegna hrynur hún," segir þú en á meðan hefurðu mikla trú Bandaríkjadollar að því er virðist.

Dollarinn og evran voru jafnsterk þegar evrunni var ýtt úr vör og tekinn í notkun. Meira segja eftir þetta rosalega "hrun" evrunnar, þá er samt hægt að fá 1,27 dollara fyrir 1.0 evru. Samkvæmt þínum bollaleggingum þá hefur því markaðurinn meiri trú á evrunni en dollaranum.

Síðan ferðu reyndar að haga þér kjánalega og leggja mér orð í munn um "að hrun á fjármálamörkuðum, og á húsnæðislánum, og á grunn-efnahagsstærðum, og trú markaðirins á til dæmis mynt myntbandalaga hafi ekkert með gjaldmiðla að gera". Hvar sagði ég þetta?

Ég útskýrði bara hvað stendur á bak við t.d fall á fasteignaverði á Íberíuskaganum með þeim hætti sem ég gerði og stend fyllilega við það, enda hefurðu ekki gert tilraun til að rekja það til baka. Reyndar sá ég ekki þessa línu: "En það er fleira en bara evran sem hrynur" og þannig hélt ég að þú værir að kenna evrunni um fall á hlutabréfamörkuðum í Danmörku.

Jón Gunnar Bjarkan, 24.10.2008 kl. 03:17

15 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Með gjaldmiðilinn.

Þú segist vera á þeirri skoðun að gjaldmiðill skiptir engu máli, ókei ef þú vilt vera svo einfaldur þá er það þitt mál. En það er ekki rétt að ég hafi sagt það. Það sem ég sagði var að það er ekki evrunni að kenna að fasteignaverð sé að lækka  allstaðar í heiminum.

Fyrir alþjóðafjárfesta er það lítið tiltökumál að leggja íslensku krónuna í rúst, ekki gleyma því að George Soros knésetti Englandsbanka fyrir ekki löngu síðan. En mér þætti gaman að finna þá sem myndu ætla sér að gera atlögu að Evrópska seðlabankanum, Trichet myndi bara gleypa þá.

En það er ótrúlegt að þú skulir þræta fyrir það að gjaldmiðillinn okkar sé handónýtur eftir að bankakerfið nánast eins og það lagði sig hrundi á einni viku, sem er örugglega evrópumet ef ekki frekar heimsmet. Ekki bara það heldur er vart ekki hægt að stunda utanríkisviðskipti, fólk erlendis getur ekki tekið út nokkra þúsund kalla fyrir nauðsynjavörum, stýrivextir eru 3-5 sinnum hærri en í öðrum myntum, neysluverð er miklu dýrara hérna, verðbólga er samt meiri heldur en annarstaðar í evrópu. Þetta sýnir bara einfaldlega að það er ekkert hægt að koma vitinu fyrir ykkur hörðustu andstæðinga ESB og evrunnar.

Jón Gunnar Bjarkan, 24.10.2008 kl. 03:31

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Jón Gunnar

Evran er fallin með -10.49% gagnvart yen einungis núna í morgun

Evran er fallin með -3.29% gagnvart dollar einungis núna í morgun

Þetta virðist vera handónýtur gjaldmiðill, greinilega - a.m.a.k samkvæmt rökum ESB-sinna

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 10:00

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Á meðan OPEC drekkur kaffið í Genf

OLÍA

$65.31 2.53 -3.73% núna í morgun

C R U S H !

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 10:06

18 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Var það nú reyndar ekki í Vienna.

Jón Gunnar Bjarkan, 24.10.2008 kl. 20:46

19 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

En skoðaðu aðeins það sem þú skrifaðir:

 Varðandi það sem þú skrifaðir um fall evrunnar:

Evran er fallin með -10.49% gagnvart yen einungis núna í morgun

Evran er fallin með -3.29% gagnvart dollar einungis núna í morgun

Veit reyndar ekki hvernig staðan var í enda markaðar. Veit ég að bandaríski hlutabréfamarkaður féll um 10% í byrjun markaður en nokkrum klukkutímum seinna var hann allt í einu orðinn grænn og búinn að hækka um nokkur prósentustig, svo sveiflurnar eru miklar og ekki bara með evruna.  

Og svo hitt að ef þetta "fall" evrunnar væri vegna vantrú á evruna þá hefði hann fallið mjög svipað gagnvart öllum gjaldmiðlum en ekki 10% gagnvart yeni og 3,7% gagnvart dollara. 

Jón Gunnar Bjarkan, 24.10.2008 kl. 21:02

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og svo hitt að ef þetta "fall" evrunnar væri vegna vantrú á evruna þá hefði hann fallið mjög svipað gagnvart öllum gjaldmiðlum en ekki 10% gagnvart yeni og 3,7% gagnvart dollara.

Af hverju ?

Eru viss um að þú skiljir dansleik gjaldmiðla para heimsins?

DJ, S&P og INDU sem mæla NYSE og NASDAQ (yfirgnæfandi hluti allra hlutabréfaviðskipta í heiminum fara þarna fram) féll max um 5% í dagsins intratrade, ekki 10%.

Mesta fall hlutabréfavísitala í dag voru þessar:

OBX OSLO -10,14%

MICEX Moskva -13,59%

RTS (Moskva) - 13,68%

Bombay: BSESN - 10,96%

Indland NIFTY -12.20%

Seoul -10,57%

Nikkei -9,60%

Mestu FX (foreign exchange) sveiflur dagsins urðu þessar:

AUDJPY -11.20%

NZDJPY -10.59%

AUDUSD -7.92%

NZDUSD -6.83%

EURJPY -5.93%

CADJPY -5.78%

GBPJPY -5.27%

GBPAUD +5.22%

AUDCAD -5.20%

EURAUD +4.96%

CHFJPY -3.96%

USDJPY -3.38%

EURUSD -2.44%

USDCAD +2.37%

GBPUSD -1.95%

EURCHF -1.78%

Íslenska krónan hækkaði í gengi gagnvart sterlingspundi

Bandaríkjadalur 2.72%

Sterlingspund -1.61%

Dönsk króna0.56%

Evra 0.66%

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 21:55

21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

.

. . . . og olían hrundi niður í kjallarann í kaffiklúbb OPEC. Þeir fundu hana varla enda er hún að hverfa

í $64.93 um 4.49 eða um 6.47%

C R U S H !

glotta hér

Gunnar Rögnvaldsson, 24.10.2008 kl. 22:01

22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

ECB mun nú verja Dönsku krónuna ef þess þarf.

Já Jón það er ERM II samkomulagið. Danmörk er búin að keyra fastgengisstefnu síðan 1982. Fyrst í gegnum ERM I við ECU og svo seinna í gengnum ERM II við EUR. ERM I og ERM II þýðir gagnkvæm binding beggja aðila.

Það er lítil hætta á að Danir taki upp evru. Það er búið að kjósa um það einusinni og verður sennilega ekki gert aftur á meðan andstaðan við ESB, lagasetningar og dómstóla ESB er svona mikil. ESB er nefnilega ekki gjaldmiðill, eins og svo margir íslendingar halda. En hver veit? Það er jú venjan að kjósa aftur og aftur um sama hlutinn þar til það kemur "rétt" út úr kosningunum hvað varðar ESB.

By the way Jón, þú varst að skoða verðgildi evru gagnvart dollar - það hefur fallið um 21% á síðustu þrem mánuðum eins og grafið sýnir, og féll um 2,44% í gær. Til að skoða verðgildi dollar gagnvart evru þá þarftu einungis að smella á "See EUR vs USD". Stundum borgar sig að hugsa - þá lyftist oft brúnin á grafinu og galdrapappír hættir að vera galdrapappír og verður að venjulegri mynt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2008 kl. 04:30

23 Smámynd: DanTh

Með inngöngu í ESB fylgir sú ánauð að á okkur leggst mikil skattheimta í formi árgjalds upp á einn til tvo tugi miljarða.  Hvar telja menn að það fé verði sótt, þ.e. úr hvaða sjóðum?  

Hér eru svo spurningar til ykkar sem sjáið ekki sólina fyrir þessu sambandi. 

Vitið þið hvað það kostar okkur að vera í Evrópusambandinu á ári hverju? 

Vitið þið hvort það sé einhver tiltekin prósenta af þjóðartekjum eða eitthvað annað? 

Ef árgjaldið er reiknað sem hlutfall af þjóðartekjum, veit þá einhver ykkar hver sú prósenta er? 

Vitið þið af hverju stjórnmálamenn, sem vita þetta, forðast að nefna þá tölu sem okkur bæri að borga þarna inn á hverju ári í formi þessa gjalds?

Hér er eilítið innlegg frá Bjarna Harðarsyni um ESB og þá "samstöðu" sem ríkir þar milli þjóða í kreppunni.  Ég veit að það stoðar lítið að ræða þessi mál við fylgjendur aðildar að ESB en læt skrif hans þó fara hér með sem innlegg í umræðuna.  

 Einangrunarsinnar og ESB aðild

Fyrir ári síðan bar mikið á þeim rökum íslenskra bankamanna að ef landið væri hluti af ESB og myntbandalagi Evrópuþjóða væri öryggi íslensku bankanna með öðrum hætti. Nú þegar bankakreppan ríður yfir er ljóst að sú vernd sem menn töldu vera af Evrópska seðlabankanum er ekki fyrir hendi. Hvert ríki innan ESB reynir nú að bjarga sínu og samstaða þar er þverrandi.

Aðild Íslands að EMU hefði þannig einungis komið inn falskri öryggiskennd ríkisvalds og banka og þar með stefnt þjóðarbúinu í enn meiri voða en þó er orðinn í dag. Í annan stað er öllum ljóst nú að það er ekki síst fyrir tilvist EES samningsins sem fáeinum íslenskum fjárglæframönnum hefur tekist að koma orðspori okkar og hagkerfi í verri stöðu en nokkurn óraði fyrir. Þeir hefðu haft sömu og jafnvel enn háskalegri stöðu innan ESB.

Einangrun eða ESB

Meðal talsmanna aukins Evrópusamruna er oft og einatt teflt fram að þeir sem tala gegn slíku séu einangrunarsinnar. Þessi rök voru mjög notuð í umræðunni um EES samninginn sem keyrður var í gegn af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokksins sáluga árið 1993. Framsóknarflokkurinn varaði þá við þeim samningi og taldi hann ganga gegn fullveldi þjóðarinnar. Í dag er því enn haldið fram að þeir séu einangrunarsinnar sem ekki vilja leiða þjóðina í Evrópusambandsaðild.

Hér eru mikil fornaldarsjónarmið á ferðinni því allt frá lokum miðalda hafa Evrópubúar vitað að álfa þeirra er harla lítill hluti af heimsbyggðinni. Nú við byrjun nýrrar aldar vita hagfræðingar og upplýstir stjórnmálamenn enn fremur að Evrópa er sá hluti heimsbyggðar þar sem hvað minnstir vaxtamöguleikar eru í verslun og viðskiptum. Viðbrögð gömlu heimsveldanna í Evrópu við þessari þróun er að einangra álfuna og byggja utan um hana tollamúra en opna fyrir aukin viðskipti milli ríkja innan álfunnar. Í reynd er þetta einangrunarstefna sem ekki er til farsældar fallin.

Bankakreppan nú er líkleg til að laska verulega þann samruna sem orðið hefur milli Evrópuríkja og því er jafnvel spáð að evran eigi erfitt uppdráttar á næstu árum. Ekki vil ég þó óska henni annars en góðs. En það er stór hætta á að kreppan nú leiði líkt og fyrri kreppur til aukinnar einangrunarstefnu allra iðnríkja og þar er fetað inn á slóð sem gömlu Evrópuveldin þekkja vel. Við Íslendingar eigum að vara okkur á slíkum viðbrögðum.

Heilbrigð milliríkjaviðskipti

Vitaskuld eru bankagjaldþrotin áfellisdómur yfir landamæralausum útrásarvíkingum.  Við eigum því að endurskoða margt sem fylgt hefur hina svokallaða fjórfrelsi EES samningsins, einkanlega þar sem bönkum er gefinn laus taumur. En við eigum jafnframt að halda áfram að slaka hér á tollum og auka fríverslun okkar við sem flesta heimshluta. Hugmyndir um alþjóðlega fjármála- og viðskiptamiðstöð á Íslandi milli austurs og vesturs gátu átt meira erindi til okkar en nokkru sinni. En ekkert slíkt getum við þróað innan vébanda ESB. Þess vegna eru það öfugmæli hin mestu þegar ESB sinnar halda því fram að þeir séu hinir frjálslyndir alþjóðasinnar.

Ef vel á að fara verðum við Íslendingar að gæta þess eftirleiðis að innleiða ekki á færibandi lagasetningu ESB án þess að kanna til hlítar hvaða afleiðingar það hefur fyrir þjóðarbúið. Icesave-reikningarnir færa okkur heim sanninn um að ef gáum ekki að okkur mun enginn annar tryggja að lagaumhverfið samrýmist íslenskum hagsmunum.

Lúalegt kosningabragð

Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um þá kröfu að þjóðin fái að kjósa um mögulega ESB aðild. Á sínum tíma gerðu Framsóknarmenn og fleiri gagnrýnendur EES samnings kröfu um kosningar um þann samning en hlutu ekki til þess stuðning. Sumir af þeim sömu og nú tala fyrir kosningum um aðild beittu sér þá með öðrum hætti.

Komi til þess að þjóðin gangi að kjörborði um stöðu okkar í alþjóðasamfélaginu er full ástæða til að um leið fái hún að segja álit sitt á bæði Schengen samstarfi og EES samningnum. Svisslendingar sem þó hafa verið undir meiri þrýstingi en við að ganga inn i ESB náðu tvíhliða samningi við Brussel. Þar með eru þeir lausir undan að taka við lagafrumvörpum frá nágrönnum sínum. Með tvíhliða samningi gætu Íslendingar einnig komið sér út úr Shengen samstarfinu en með því mætti uppræta hér skipulagðar erlendar glæpaklíkur sem hreiðra um sig á Íslandi í skjóli fjórfrelsisins.

Vinsældakosning lýðveldis

Bankakreppan og mikill efnahagslegur samdráttur kann að auka tímabundið fylgi við ESB aðild og ef ekki er gætt sanngirni gætu Íslendingar lent undir Brusselvaldinu á sömu forsendum og Svíar. Þar í landi var andstaða við aðild almenn allt þar til landið lenti í gjaldþrotum banka. Þá skapaðist tímabundin vantrú á sænskt sjálfstæði og það lag gátu aðildarsinnar notað sér. Síðan þá hefur andstaðan við aðild aftur vaxið en leiðin út úr ESB er harla vandrötuð.

Það væri fráleitt og næsta lúalegt að ætla Íslendingum að kjósa um aðild á næstu misserum þegar landið allt er í sárum eftir fjárhagslega kreppu. Slík kosning er öðru fremur vinsældarkosning lýðveldisins. Mikilvægt er að bíða uns fárviðri bankakreppunnar hefur riðið yfir Evrópu og eðlilegt ástand skapast. Margt bendir til að sú holskefla verði gömlu álfunni ekki síður erfið en Ísland er nú til muna fyrr til að lenda í þeim stormi.

Ef til vill mun okkar vakra og lítt vinsæla mynt og sveigjanlega kerfi einnig valda því að við verðum fyrri til að vinna okkur út úr kreppunni en þau lönd sem læst eru í þunglamalegar skrifræðiskrumlur Brusselvaldsins.

(Birt lítillega stytt í Fréttablaðinu 23. okt. 2008)


DanTh, 25.10.2008 kl. 13:20

24 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Ekki má heldur gleyma því að Ísland mun sækja helling allan af styrkjum til ESB sem kemur á móti þessum framlögum, t.d til landbúnaðar og landsbyggðarmála.

Daníel: Ertu virkilega svona mikill kjáni að halda að Evruríki hafa tekið á móti Gordon Brown með lófataki út af því að hann átti í deilum við Íslendinga.

Ef að ESB vildi svínbeygja okkur inn í sambandið eins og þú heldur fram væri það lítið vandamál, 70% af okkar útflutning fer til ESB. 

Þessi grein Bjarna er varla svaraverð, hún er svo vitlaus. Maðurinn er að bera saman það sem er að gerast á Íslandi við það sem er að gerast í Evrópu. Menn eins og hann eru týpískt dæmi um íslenska stjórnmálamenn sem telja sig hafa einhvers konar séþekkingu á ESB sem kollegar hans í Evrópu búa ekki yfir. En staðreyndin er sú að íslenskir stjórnmálamenn eru langt á eftir öðrum kollegum sínum í Evrópu.

Jón Gunnar Bjarkan, 25.10.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband