Leita í fréttum mbl.is

Staksteinar spyrja hvað sé eðlilegt

Kæru lesendur. Staksteinar spyrja hér hvað sé eðlilegt og óeðlilegt.

Er óeðlilegt að fólk vilji tala um gjaldmiðilinn, þegar hann hoppar og skoppar í ólgusjó fjármálamarkaðarins? 

 

Já það er óeðlilegt þar sem það var þjóðfélagið sem kom hoppinu og skoppinu af stað, einnig með hjálp hins hnattvædda fjármálakerfi heimsins. Það var ekki krónan sem fór að hoppa og skoppa af sjálfsdáðum, var það? Hefur krónan sitt eigið líf eða er það þjóðin sem hefur sitt eigið líf? Það líf sem hefur skapað verðmætin sem bera krónuna og sem hefur gert Ísland að þriðja ríkasta landi Evrópu, beint fyrir framan nefið á Brussel og gjaldmiðli þess, henni evru og ecu. Mörgum til mikillar gremju hérna í útlöndum því þeir vilja láta líta svo út fyrir að enginn geti þrifist án Brussel. En Ísland er ekki undantekning. Norðmenn eru þarna einnig ásamt Sviss. Þrjár af ríkustu þjóðum Evrópu, svo er einnig allur heimurinn í víðbót. Hérna erlendis hefur engum dottið í hug sú abstrakt hugmynd að efnahagsmálin á Íslandi séu undir því komin hvað gjaldmiðillinn heitir. Hér horfa menn á hagstærðir Íslands, og á sjálft efnahagslíf þjóðarinnar 

Það er því óeðlilegt að tala ekki um hamar sem hamar og um skóflu sem skóflu. Þetta er alveg eins og Davíð Oddsson sagði: "hér heima segja snillingarnir að þetta sé gjaldmiðlinum að kenna". Og nú eru Staksteinar að segja að það sé eðlilegt. Þjóðhagfræði er ekki sálfræði. Það vinna því engir sálfræðingar í Seðlabankanum. Það væri nefnilega óeðlilegt

Er óeðlilegt að fólk vilji tala um möguleikana á evru og ESB-aðild í góðan tíma, einkum og sér í lagi vegna þess að það tæki einhver ár að sækja og semja um aðild? Margir, sem vilja ræða þann möguleika, eru ekki haldnir þeirri firru að hann sé lausn til skemmri tíma

 

Já það er óeðlilegt því við vorum einmitt að útiloka gjaldmiðilinn sem ástæðu fyrir vanda þjóðarinnar, vanda sem einnig virðist vera vandi alls heimsins núna. Allir Íslendingar hafa alltaf vitað að úti í Evrópu væri til eitthvað sem héti Kola & stálsambandið, EB, EF, EU og allt þar á milli. Þjóðin hefur samt aldrei haft áhuga á að ganga í eitt eða neitt af þessum E-merkjum því hún er ekki landfræðilega bundin meginlandi Evrópu og þarf því ekki að búa við 80 milljón Þjóðverja og 60 miljón Frakka í túnfæti Íslands. Það er þarna hálft Atlantshaf og heill Norðursjór á milli. Þetta kom sér því vel í heilum tveim heimsstyrjöldum háðum á meginlandi Evrópu á síðustu 100 árum. Þetta veit þjóðin vel þó svo að Staksteinar séu búnir að gleyma því. Þjóðin hefur alltaf samið sig til þeirra hluta sem henni vantaði. Samið við aðrar þjóðir um nauðsynleg mál. Þetta er því ömurleg umræða og líkist helst herför gegn því sjálfstæða Íslandi sem ákvað að byggja framtíð sina á eigin forsendum sem byggja á eigin sjálfstæði. Það er til líf fyrir utan ESB, og það gengur bara ansi vel fyrir sig

Eru Staksteinar ekki þornaðir á bak við eyrun ennþá? Eða skvettist úr glösunum við erfidrykkjuna? Nema kanski að þetta hafi verið yfirskot - eða jafnvel hopp og skopp?    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Ber að taka þennan pistil sem gaman eða alvöru? Ertu andvígur því, t.d., að Íslendingar búandi á klakanum fái að kaupa góðan og ódýran mat, eins og ég og þú? Finnst þér það eðlilegur og sjálfsagður hlutur að krónan hrapi gagnvart t.d. evru um tugi prósenta á "no time"? Eins og í ár?

Þú hefur mikla trú á fræðingum virðist mér. Hefur ekki aðal hagfræðingur seðlabankans heima á Fróni um einhver misseri eða ár  lýst þeirri skoðun,  að ávinningur þess að halda uppi sjálfstæðum gjaldmiðli sé minni en enginn. Og jafnframt, að þessi sjálfstæði gjaldmiðill auki fremur á sveiflur í þjóðarbúskapnum en að draga úr þeim?  

Er ekki sjálfsagt að skoða málin og brjóta til mergjar hvað væri Íslendingum best til lengri framtíðar? Eða viltu banna allar umræður um málið?  

Ágúst Ásgeirsson, 23.9.2008 kl. 12:12

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Ágúst


Það ber að taka pistilinn sem áminningu um hvað er rétt og hvað er rangt. Það er rangt að segja að annar gjaldmiðill lagi efnahagsástandið þegar staða efnahags- og gengismálamála er einmitt afleiðing, og ekki orsök, aðgerða þeirra sem búa í hagkerfinu. Hagkerfið hefur ekki sjálfstætt líf. Það litast af aðgerðum þeirra sem búa í því.

.

Viltu kenna dollar um 2,5% fall hans í gær? Viltu kenna evru um 31% fall hennar í samfleytt 22 mánuði 1999-2001? Viltu kenna evru um 100% hækkun hennar frá 2002-2008. Viltu kenna ástralska dollar um fall 7% fall hans á síðustu 30 dögum? Viltu kenna evru um 15,6% verðbólgu Lettlands ? Hæstu verðbólgu í EES! Og þó eru Lettar með í ESB og með evru. Þetta er einmitt lýðskrum og það verður það síst minna ef hagfræðingar fara með það. Þeir eru hvort sem aldrei sammála um eitt eða neitt og hafa aldrei verið það. Menn þurfa einnig að hugsa, það er ekki nóg einungis að kunna.

.

Evran er fyrst og fremst pólitískt verkfæri og ekki hagstjórnartæki. Annars hefði hún aldrei komið. MItterand of Delores sáu fyrir því. ESB hefur aldrei megnað að gera eitt eða neitt sem þjóðirnar hefðu ekki sjálfar getað gert. ESB er orðið pólitískt verkfæri. Það er ekki fríverslunarbandalag, það er EFTA hinsvegar. Nei ESB er tollabandalag og er einnig önnumkafið sameiningarverkefni Evrópu í gegnum reglugerðir og pennastrik og efnahagslega þrýstistarfssemi. EF var ekki svona í upphafi en er orðið það núna. Það er orðið allt annað núna en þegar Danir kusu um að ganga í það. En Danir bera þau þungu örlög að þurfa að lúta að landfræðilegum aðstæðum sínum, annars væru þeir varla með í ESB. En svona enda felst áætlunargerðarverkefni embættismanna. Þeir ofmetnast og taka völdin af þegnunum.

.

Allt hjal manna um ódýrari mat á Íslandi, skyldi Ísland ganga í ESB, er einnig lýðskrum af versta tagi. Þetta er nákvæmlega sú sama umræða sem fer fram INNAN allra landa Evrópusambandsins. Markaðurinn mun alltaf taka það verð sem hann getur fengið. Íslendingar eru ríkastir og með mestann kaupmáttinn svo þeir borga mest og miklu meira en Rúmenar. Nema Íslendingar vilji vera á launum Rúmena? Vilja þeir það? Vilt þú það? Það þarf heldur ekki að ganga í ESB til að fella niður innflutningstolla á matvöru. Það er hægt með einu pennastriki.

.

Sjálfur vildi ég óska þess að þurfa ekki að greiða 85.000 ISK á mánuði fyrir hitaveitu, rafmagn, kallt vatn og frárennsli fyrir eitt einbýlishús á 150 m2. Allt þetta háa verð þrátt fyrir að ég kaupi 15 rúmmetra af beykibrenni og beri það inn í hús mitt á vetri hverjum til að spara við mig hitaveituna. Ég vildi að ég gæti borgað það sama og Íslendingar borga. En það væri lýðskrum af versta tagi ef ég heimtaði það og gæfi Dönum í skyn að þeir gætu það bara ef þeir segja það nógu oft í fjölmiðlum. Einnig vildi ég krefjast að þurfa ekki að greiða nærri þrefalt hærra verð fyrir bifreiðar miðað við Íslendinga. Og helst ekki einnig 63% í tekjuskatt og 43% í skatt af vaxtatekjum því þá greiði ég meira en 100% í skatt af þeim tekjum. En þetta væri einnig hið vesta lýðskrum því áratuga massíft atvinnuleysi í öllum eldri löndum ESB, svo og einnig stöðnun í hagvexti, hefur séð fyrir því að það verður ALDEI hægt að lækka þessa skatta aftur. Aldrei.

.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.9.2008 kl. 15:26

3 Smámynd: Jón V Viðarsson

Algjörlega sammála þér Gunnar. !!

Dalurinn var fyrir stuttu síðan rétt um 70 kr svo fólk í BNA hefur þurft að lifa við lágt gengi svo mánuðum skiptir. Varla fóru þeir að huga að fasttengingu við EVRU eða ganga í ESB. Krónan hefur fallið töluvert upp á síðkastið en EVRAN á líka eftir að falla svo þetta mun allt jafnast út mjög fljótlega.

Jón V Viðarsson, 24.9.2008 kl. 00:33

4 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þakka þér, hressilegan og skoðanafastan pistil og ágæt svör. Þú ert  rökfastur og greinilega pælt mjög í þessum málum. Þú segir efnahagsstefnuna orsök þess að krónan hefur lækkað um 64-65% frá í október í fyrra.

En er hlutur bankanna og fyrirtækja í útrás enginn? Og einstaklinga sem tekið hafa erlend lán til fjárfestinga í húsnæði o.s.fr.v? Og erlendra vogunarsjóða sem reynt hafa að tala krónuna niður í þágu eigin veðmála? 

Ég er um margt sammála þér varðandi ESB og hef aldrei horft til þess sem einhverjar töfralausnar á vandamálum Íslendinga. Okkar ágæti forseti, Sarkozy, hefur m.a. viljað knýja á um að framleiðslustarfsemi innan sambandsins njóti meiri verndar gagnvart útlendri framleiðslu. Ekkert skafið utan af hlutunum! Hann minnir mig aðeins á íslenskan framsóknarmann (alveg í sama hvaða flokki hann er), sá mun aldrei fella niður verndartolla eða opna fyrir ódýrum erlendum mat með pennastriki.

Nú máttu ekki skilja mig sem svo að ég hafi eitthvað á móti framsóknarmönnum, þeir eru ágætir, en ég nota þetta orð yfir þá sem vilja einangra landið sem mest frá erlendri matvælaframleiðslu. En völd þeirra yrðu væntanlega að engu með inngöngu í ESB og þar með andstaðan við því að Íslendingar fái að kaupa ódýran og góðan mat, ef hann stendur til boða, sem þú segir engan veginn víst.

Varðandi matinn finnst mér það býsna athyglisvert að hér get ég fengið íslenska soðningu lægra verði en heima á Fróni. Frosinn þorskur, roðlaus og beinlaus, sneiddur í stykki beint á pönnuna. Og fleiri tegundir fiskjar. Í hentugum pakkningum, 3-4 bitar í hverri. Hjá Carrefour-verlunarkeðjunni er þetta yfirleitt handfærafiskur, aðallega af Suðurnesjunum.

Ég botna náttúrulega ekkert í þessu því þrátt fyrir að kílóið sé á innan við 10 evrur þá eru allir búnir að fá sitt; sjómaðurinn, fiskvinnslan, flutningafyrirtækin þar og hér, og loks kaupmaðurinn.

Þú berð þig aumlega undan danskri dýrtíð og skattapólitík! Og ert á því að Danir væru vart verr settir utan ESB. En eitthvað hlýtur nú að vera gott við að vera í Danmörku, miðað við hvað þú hefur ílenst þar.

Jæja, ég er kannski kominn nokkuð út fyrir efnið. Þakka bara enn og viðbrögðin við athugasemdum mínum. Þetta var hressilegur lestur. Ég á einfaldlega ekki svar við mörgum spurningum sem þú setur fram. Svosem eins og það hvort á Íslandi vilji menn vera með sömu laun og Rúmenar!

Ágúst Ásgeirsson, 24.9.2008 kl. 12:33

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ásgeir.

ISK hefur fallið um 37% gagnvart EUR síðan í byrjun október 2007. Ekki um þessi 64-65% eins og þú skrifar. Fall ISK gagnvart Sterling er ca 30% á sama tíma. Þetta er mjög svipað falli evru gangvart dollar á 22 mánuðum á sínum tíma.


Hvað ertu lengi að vinna fyrir matnum í Frakklandi eftir skatta, Ágúst? Það er það eina sem skiptir máli. Allur annar samanburður er óhæfur. Svo einnig: hvað kostar allt annað í Frakklandi, því varla eyða Frakkar öllum tekjum sínum í mat.

Annars þekki ég Frakkland rétt svona sæmilega því dóttir mín býr þar. Atvinnuleysi ungmenna undir 25 ára aldri í Frakklandi er núna um 18% (skólafólk ekki talið með). Því varð franskur tengdasonur minn að vinna launalaust í Frakklandi í sumar því það er eina leiðin til að komast inn á vinnumarkaðinn, þó svo hann sé á síðasta ári í verkfræðinámi. Þetta hjálpar að sjálfsögðu Frökkum við að halda verðlagi niðri. Einnig verða Frakkar að keppa við þýsk laun og þau hafa ekki hækkað neitt að ráði í næstum 10 ár. Heildar atvinnuleysi í Frakklandi er núna 7,5% og er í sögulegu lágmaki.

Ef íslenskir fiskframleiðendur geta ekki fengið betra verð í Frakklandi þá er það bara ergilegt. Þeir ættu því kanski að sækjast eftir betri mörkuðum með betri kaupmætti. En eins og ég sagði þá tekur markaðurinn alltaf það verð sem hann getur fengið. Fiskframleiðendur fá sennilega betra verð á Íslandi því þar er kaupmáttur meiri. En markaðurinn er bara ekki nógu stór á Íslandi til að hægt sé að selja allann aflann þar. Þessvegna er afgangurinn fluttur úr landi og seldur á mörkuðum annarra þjóða. Þá er gott að gengi gjaldmiðils Íslendinga sé samkeppnishæft því annars missa allir vinnuna á Íslandi og ástandið á Íslandi verður svona eins og í hinu hálf-komma-vædda Frakklandi þar sem stærð hins opinbera geira en einna hæstur í öllum heiminum og skattur Frakka kominn í himinhæðir eða í 42% hlutfalls af landsframleiðslu Frakka.

ESB hefur ekki fært Frökkum eitt gramm af velgengni. Það er afar auðvelt að halda hinu gangstæða fram. En þeir geta því miður ekki gert svo mikið við þessu því þeir eru bundnir hinum þungu landfræðilegu örlögum sínum,- að þurfa að búa í sama herbergi og 80 milljón Þjóðverjar. Þarna eru Íslendingar heppnir. Þeir geta því mun auðveldar smíðað sína eigin gæfu á steðja sögunnar. Það eru ekki allar þjóðir svona heppnar.

Þó svo að allir nágrannar mínir í næstu götu þurfi að ganga með hækjur, þá þarf það ekki endilega að þýða að ég sjálfur taki upp hækjur í minni götu. Ég vil helst ekki þurfa að ganga um með hækjur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.9.2008 kl. 14:02

6 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Fyrirgefðu Gunnar að ég skuli blanda mér í þessa umræðu, en ég hjó eftir því að þú fullyrðir að ISK hafi fallið um 37% gagnvart evru síðan í októberbyrjun 2007. Leyfist mér að spyrja hvernig þú færð það út?

Heimir Eyvindarson, 29.9.2008 kl. 14:41

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Icelandic Króna (ISK) in Euro (EUR)

Sæll Heimir

Draga til sliders á réttar dagsetningar, þá færðu prósentu breytingar á milli dagsetninga (efst í hægra horni glugga). En athugaðu að tölur í sliders eru "adjusted prices" því þarna er allt reiknað live miðað við upphaf. Gengi augnabliksins stendur fyrir ofan gluggann. Svo geturðu flutt þig yfir landamærin og reiknað EUR í ISK

Annars er prósentubreytingaformúla á milli tveggja tímapúnkta svona:

(t1-t2)/t2 = X

Svo er einnig hægt að ná í gengistöflur í bönkum og rekina sjálfur út prósentubreytingar á milli tveggja tímapúnkta í t.d. töflureikni

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2008 kl. 15:30

8 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Þannig að það að evran hafi kostað 85 krónur 1. október 2007 og 136 krónur daginn sem þú skrifar þessa færslu, sem er 60% sveifla, er þá bara einhvernveginn rangt?  

Heimir Eyvindarson, 29.9.2008 kl. 16:24

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já því (86-136)/136 er -0,375 eins og allir vita sem kunna að reikna prósentubreytingar.

Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2008 kl. 17:07

10 Smámynd: Heimir Eyvindarson

En hvað sem öllum reikningskúnstum líður þá er það ófrávíkjanleg staðreynd að það kostar mig og þig rúmum 60% meira að kaupa evru út í banka dag, en 1. október 2007. Það sjá allir sem vilja sjá það, og kunna "venjulegan" prósentureikning.

Heimir Eyvindarson, 29.9.2008 kl. 17:32

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Heimir, svo satt.

Sama sagan var þegar evru-búar voru að kaupa dollarana sína eftir að evran var búin að falla um meira en 30% þ.e. -30 :). Þeir voru álíka svekktir. Sama formúla. Þá kostaði dollarinn ásamt flestum örðum gjaldmiðlum einmitt svona svipað mikið meira en hann hafði gert áður en fallið hófst. Evrubúar voru æfir. En þá gladdist atvinnulífið í staðinn, því vörur og þjónusta framleidd á evru-svæði varð samkeppnishæfari við flest lönd heimsins og atvinnuleysi gat farið að minnka, því þá var það um ca. 10% á evrusvæði. En evran hélst bara ekki nógu lengi lág til að það gengi verulega að ná niður atvinnuleysi. Hún hækkaði svo aftur um 100% á næstu árum gagnvart dollar, sem er algerlega skaðlegt. Hún er alltof há núna og hún kom einnig á vitlausu gengi inná markaðinn frá upphafi, vilja margir meina núna (baksýnisspegillinn).

Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2008 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband