Leita í fréttum mbl.is

Mette brýst út úr öryrkjabandalagi ESB [u]

CLUELESS

Uppfært. Upptaka: Viðtal Andrésar Magnússonar blaðamanns við Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem lét bóluefnismál Íslands í hendur seigfljótandi massa umboðslausra embættismanna úti við ysta heim hins eina sannaða helvítis jarðar, og sem ekkert vit höfðu á því hvað þeir voru að gera, hefur sannað fyrir mér hvernig málin standa en þó mest falla á Ísland í ríkisstjórn landsins. Á vissum stað í bókinni Afnám haftanna eftir Sigurð Má Jónsson segir:

"Rússneska þjóðskáldið Lev Tolstoj lýsir Stefáni, bróður Önnu Karenínu í samnefndri bók, þannig að hann skipti "í rauninni ekki um skoðanir, heldur breytast þær af sjálfu sér". Á þann hátt tókst honum að fylgjast með tímanum og tolla í tískunni, nánast alveg fyrirhafnarlaust. Þannig mætti lýsa farsælum en skoðanalausum stjórnmálamanni."

Í 45 mínútna viðtali Andrésar, sem er fyrir áskrifendur Morgunblaðsins, sést að þarna smella Bjarni B og Katrín J saman eins og samloka. Meira að segja hálfrauður blaðamaðurinn Drési gæti jafnvel verið með og drepið þar nokkrar milljón klukkustundir. Eru fleiri sem kannast við þetta sem Sigurður Már segir þarna frá?, og gildir að mínu mati um það næstum liðna 23-prósentu xD-lík ásamt VG sem reynt er að toll-tylla sér í tískunni á? Hve lengi skyldi þetta geta gengið, þ.e. þessi tollheimta á Íslandi bara til þess eins að tolla í tískunni

****

FORSÆTISRÁÐHERRA DANMERKUR BRÝST ÚT

Sei sei. Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, brýst hér með út úr vanþróunarsambandi ESB og leitar eftir lausum í sótt- og varnarmálum utan gaddavíra þess. Leggur hún nú land undir fót til hvorki Berlínar, Parísar né Brussels, heldur til Jerúsalem, höfuðborgar hins fullvalda og sjálfstæða ríkis Ísraels, þ.e. til fæðingarlands þjóðríkisins. Lífið er aðeins hægt að skilja afturábak, en því verður hins vegar ekki lifað nema áfram, eins og Kierkegaard sagði. Þetta veit Mette umfram öryrkjabandalag ESB

Það er merkilegt með þessa svo kölluðu Evrópu, sem ekki er til nema sem landfræðilegt heiti á næstminnstu heimsálfu jarðar: Ekki nóg með það að meginland "Evrópu" jafnaði sig aldrei á heimsstyrjöldunum tveimur sem Þýskaland hóf, heldur gekk restin af meginlandinu í Þýskaland og síðan hefur aldrei verið friður á meginlandi "Evrópu", nema á vissum svæðum þess og þá fyrir tilstilli Bandaríkjanna. ESB-álfhóllinn er svo djúpt sokkinn á landsvæði álfunnar að hann getur ekki einu sinni notað Oxford/Spitfire bóluefnin sem hann reyndi að koma í veg fyrir að kæmust inn fyrir landamæri Bretlands um daginn. Kuklið er svo mikið. Hrúgast þau því bara upp, ónotuð

Þetta eru með fyrstu skrefum Dana út af Egyptalandshúsi fjötranna í Brussel. Fyrstu skrefin tóku Danir er þeir reyndu í þjóðaratkvæðagreiðslu að hafna Marðarspelkusáttmálanum 1992, en var þá sagt að að ekki kæmi til greina að eitt smáríki gæti stöðvað lestina, eins og lofað hafi verið er Danir stigu um borð. Ók hún bara áfram og yfir Dani og stútaði meginlandi Evrópu, og er enn að

Danski forsætisráðherrann segir réttilega að bóluefni og bólusetningar séu þjóðaröryggismál. Af tillitssemi við aumingjadómsveldið í Brussel nefnir hún ekki sóttvarnir í sömu setningunni líka, því þar brást Evrópusambandið svo hryllilega að orð fá því ekki lýst. En þar varð Schengen-fyrirbæri Evrópusambandsins að eins konar nifteindasprengjuveiru sem náði, með beinu flugi frá Wuhanveirustöð í Kína til Ítalíu, að drepa fólk en ekki mannvirki í 52 löndum álfunnar áður en Trump stöðvaði hana

Á myndum af Mette sér maður strax hversu henni hryllir við Evrópusambandi um kukl, klúður og svörtugaldra í veirupúðurdósaklúbbi Merkels og Macrons, sem eru kanslari og forseti rógburðar

Tengt

Bóluefnismál þjóðar sett í hendur gangster-elementa stjórnmála

Fyrri færsla

Uppgjörið: Landsframleiðslan 2020


mbl.is Danir vonast eftir samstarfi við Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá Mette.

Eitthvað annað en vesalingarnir í ríkisstjórninni hér.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2021 kl. 20:15

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Já heldur betur rétt hjá þér.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2021 kl. 20:21

3 identicon

Og við sem erum ekki einu sinni í ESB.

En hvað getum við sagt Gunnar?

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur ESB.

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur

Icesave samþykktar og Orkupakka ESB.

Og bóluefnahaturs ESB á Bretlandi.

Vesalingar og fleðudúkkur

gegnsýra allt stjórnkerfi hér á landi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2021 kl. 20:28

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er einnig ýtrast athyglisvert hvað hið gamla Taiwan News segir í frétt blaðsins um Wuhan-veiru-stöðina í Kína og sem ég kræki á í pistlinum hér fyrir ofan.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2021 kl. 20:35

5 identicon

Já, vægast sagt athyglisvert.

Skyldi bankaráðsmaður kínverska innviðabankans,

formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Ben.,

hafa verið upplýstur um þetta

á síðasta fundi bankaráðsins?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2021 kl. 21:04

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Er ansi hræddur um að AIIB-fjárfestingarbankinn sé einmitt Gúlagbankinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2021 kl. 21:19

7 identicon

Nú er ljóst, af fréttum, að hvorki Mette Frederiksen né Sebastian Kurz muni lengur reiða sig á hið svokallaða Evrópusamband í bólusetningamálum.

Flott hjá þeim, Danmörku og Austurríki.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.3.2021 kl. 23:06

8 Smámynd: Grímur Kjartansson

Við skulum vona að Gulli utanríkis toppi þetta ekki með því að gerast taglhnýtingur Biden og loka þar með fyrir möguleika á bóluefni frá Pútín

Bandaríkin beita Rússa refsiaðgerðum (mbl.is)

Grímur Kjartansson, 2.3.2021 kl. 23:07

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Pútín Rússlandszar hefur alveg sjálfur séð um að loka á sjálfan sig í flestum efnismálum. Til þess þarf hann enga aðstoð frá hinu hálfkínverska millistéttarráðuneyti Guðlaugs Þórs.

Ef það sem sagt er um eiturefnismál Rússlands er ekki satt, þá er það að minnsta kosti sannleikur að Pútín hefur ekki stjórn á því sem fram fer undir hans stjórn. Og því á ég enn erfiðara með að trúa en því að zarinn sá viti ekki hvað fram fer í hans eigin bakgarði.

Fólki getur ekki verið full alvara með þetta raus um bóluefni frá Rússlandi. Held að um gamlan nasaþyt sé bara að ræða. Að minnsta kosti mun Harwardháskólinn ekki opna í Moskvu úr þessu, en þannig hugsuðu menn dæmið er múrinn féll. En þá vissu þeir bara ekki að hann féll vestur, þannig að hægt er að fyrirgefa þann þvætting frá þeim furðutímum, sem sögðu meðal annars herra Öllum að jörðin væri flöt og að mannkynssagan hefði endað sig sjálf, einmitt þá. En svo kom 2008.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.3.2021 kl. 01:10

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

miðvikudagur, 3. mars 2021 kl. 09:12:06

447 þúsund manns hafa nú látið lífið af völdum kínversku Wuhan-veirunnar í 27 löndum Evrópusambandsins, þar sem 444,2 milljónir manna bjuggu. Þar af létust 2400 á mánudag af völdum veirunnar.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.3.2021 kl. 09:12

11 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það er ekkert sem bendir til annars en Rússneska og Kínverska bóluefnið virki bara vel

AstraZeneca virka líka vel á þá sem orðnir eru 65 ára hvernig sem frakklandsforseti reynir að baktala það bóluefni vegna Brexit.

Líf og heilsa almennings á ekki að líða fyrir einhvern pólitískan hráskinnaleik líkt og gerðist í USA og hjá Brussel burókrötum. Sumir stjórnmálamenn hér á landi virðast líka vilja leggja meiri áherslu á að senda bóluefni til ríkisstjórnarinnar í Namibíu heldur en að klára að bólusetja Íslendinga.

Grímur Kjartansson, 3.3.2021 kl. 10:39

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Grímur.

Þú verður að venja og sætta þig við að líf og heilsa fólks á Vesturlöndum er og hefur ávallt verið pólitískt málefni. Allir í heiminum vilja njóta framfara Vesturlanda á sviði læknisfræði, sóttvarna og skurðlækninga. Ástæðan fyrir því, er sjálf forsaga Vesturlanda og stjórnmál á Vesturlöndum og sú staðreynd að þau eru algjörlega einstakur staður á jörðinni, sem afar erfitt er að herma eftir nema með því að viðhafa vesturlenskt stjórnarfar og stjórnmál í þúsund ár.

Það var ástæðan fyrir því að elítan í Kommúnistaflokki Rússlands á sovéttímanum leitaði sér lækninga í löndum á borð við Sviss, því allt heima fyrir var algjört drasl og ónýtt rusl frá a-ö vegna stjórnarfarsins þar.

Þetta hefur þó að vissu leyti batnað frá og með hruni Múrsins 1990, en staðan er samt slæm enn. Rússneska bóluefnið er fyrst og fremst þróað sem pólitískt vopn og er aðeins framleitt í smá skömmtum enn sem komið er og mun ekki verða útbreitt sem marktækur kostur nema í ríkjum sem af pólitískum ástæðum vilja útiloka annað.

Fjárlög Íslands eru pólitískt mál og þar inni í er rekstur heilbrigðiskerfisins. Hrunið í landsframleiðslunni á síðasta ári um 6,6 prósent þurrkaði út magn og upphæð sem svarar til reksturs þess í heilt ár. Þetta eru pólitískar staðreyndir allra sem búa á jörðu niðri.

Af þessum orsökum er mikilvægt að stjórnmálamenn okkar hagi sér ekki eins og retarderaðir tungufossar og máltískudósir sem svíkja fumskyldur sínar við þjóðina þegar á reynir. En það hafa þeir gert í bóluefnismálinu. Þeir létu það í hendur hins nýja sovéts nútímans. Fyrir það eiga þau miklar og harðar refsingar skilið.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.3.2021 kl. 17:41

13 Smámynd: FORNLEIFUR

Magnað: veirupúðurdósaklúbbur Merkels og Macrons.  Í þeim klúbbi ríkir kannski ekki mikil gleði þessa dagana, þegar bóluefni sem ESB borgaði fyrir að þróa er tekið og notað á Bretlandseyjum og BNA. Það seinkar líka komu þess til þjóðarinnar úti við ysta heim hins eina sannaða helvítis jarðar, með millilendingu í Svíþjóð og Noregi.

Ferð Mette er vitaskuld hið besta mál, en í Danmörku eru gamlir rotnir rauðlaukar í þéttriðnu neti í Nettó farnir að spíra og vilja banna gyðingabóluefni eins og það hefði nýlega verið Kristalnótt í Kaupmannahöfn. Lítilmennska kommanna sýnir sig aftur, enda flest pakkið í SF og Enhedslisten komið út af fólki sem opinskátt studdi nasismann á 4. og 5. áratugi síðustu aldar. Gyðingahatrið er erfðargóss - einnig á Íslandi.

FORNLEIFUR, 4.3.2021 kl. 06:10

14 Smámynd: FORNLEIFUR

Þess ber að geta að Mette beitti sér einnig gegn öðru dægurmáli sem nasistar og Marxistar-Lenínistar eiga sameiginlegt. Það er þörfin á að vernda forhúð lítilla drengja. Nasistarnir vilja hnekkja á innflytjendum með forhúðarbanni og kommarnir vilja ekki trúfrelsi. Stjórnmálamaður sem gerir sér grein fyrir því, líkt og Mette gerir, er "ikke så ringe endda " eins pg nafni þinn sagði í auglýsingu hér forðum sem átti að fá Dani til að borða fisk. En ég held að það sé ofsögum sagt, að Mette sé orðin einhver ESB andstæðingur hún Mette, þó svo líti út á myndum. En það er vissulega mjög auðvelt að verða það ef maður kynnir sér málin bara lítillega, sem ólæs skari ESB-sinna á Íslandi kann greinilega ekki.

FORNLEIFUR, 4.3.2021 kl. 06:26

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið og skrif Vilhjálmur.

Eins og sést neyðist Mette til að viðhafa vissar forvarnaraðgerðir vilji hún hanga áfram með Danmörku inni í vesalingaveldi ESB, því Dansk Folkeparti er búið að gefa út þá yfirlýsingu að flokkurinn taki ESB-útgöngu upp um leið og valkostur við ESB-aðildina hefur myndast.

Það sagði Kristian Thulesen Dahl sem fæddur er ekki langt frá Blátannarbökkum. Og nú er valkosturinn kominn og æða meira að segja Oxford/Spitfire þar um.

Danir kunna alveg að segja nei. Það man ég svo vel.

Sýnist mér að hver vika í stjórnmálum í Evrópu sé hætt að vera eilífð, og flest fari því að geta gerst.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 4.3.2021 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband