Leita í fréttum mbl.is

Ný endurtalning í Georgíuríki. Kröfur um að Pólland og Ungverjaland séu rekin úr ESB

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Georgíuríki, þar sem aðeins 0,26 prósent eða 12670 atkvæði í því fimm miljóna atkvæða og tíu milljón manna ríki Bandaríkjanna, skilja á milli Trumps og Biden í vil, hefur nú lokið handvirkri skylduendurskoðun- og endurtalningu á öllum vitanlega greiddum atkvæðum. Og hefur Brian Kemp innanríkisráðherra samkvæmt lagaskyldu sinni nú staðfest kosninguna. En sú staðfesting opnar –lögum samkvæmt– samtímis fyrir leið að nýrri endurtalningu sé hennar krafist, sagði ráðherrann, þar sem minna en hálf prósenta skilur á milli frambjóðenda, eða eins og lög Georgíuríkis segja fyrir um. Og þess hefur framboðsteymi Trumps þegar krafist, eins og sjá má hér. Sú endurtalning verður ekki eins og sú fyrri sem fram fór vegna formlegheita, því nú verða undirskriftir vegna póstgreiddra atkvæða skannaðar, bornar saman og reynt að sannreyna lögmæti þeirra. Gera má ráð fyrir að sú endurtalning geti skilað Trump sigri í ríkinu, því sú tegund atkvæða liggur berskjölduðust við kosningamisferli. Hið sama gæti gilt um hvert swing-ríkið á fætur öðru í þessum kosningum - og skilað Trump sigri í þessum forsetakosningunum. Ótímabærir fjölmiðladómar og fjöldi spékoppa ákveða ekki úrslit bandarísku forsetakosninganna. Það gerir hins vegar fjöldi löglegra atkvæða

KRÖFUR UM AÐ PÓLLAND OG UNGVERJALAND SÉU REKIN ÚR EVRÓPUSAMBANDINU

Tveir sænskir þingmenn á gúmmíþingi Evrópusambandsins hafa nú opinberlega sett fram þær kröfur að Póllandi og Ungverjalandi verði vísað úr Evrópusambandinu, haldi þau áfram að fara eftir landslögum sínum og ennfremur sáttmálum sambandsins um að ríkin í því geti beitt neitunarvaldi. Um er að ræða deilu þar sem Pólland og Ungverjaland segja að verið sé að þvinga þau til að samþykkja lögleysu í innflytjenda- og flóttamannamálum með sovéskum aðferðum, með því að halda til baka fé til þeirra á fjárlögum ESB sem þau samkvæmt sáttmálum ESB eiga rétt á, þ.e. sem minna þróuð ríki, nýkomin undan örkumlandi jökulfargi kommúnisma Sovétríkjanna

Forsætisráðherra Póllands, Mateusz Morawiecki, segir að Evrópusambandið noti sömu áróðursbarefli og kommaklíkuveldi Sovétríkjanna notaði á lönd þess undir fallbyssuhlaupum Kremlar. Að verið sé að reyna að neyða Pólland til að samþykkja svo kallaðan "endurreisnar og björgunarpakka ESB" sem verið er að reyna að koma saman og setja í framkvæmd sem hluta nýrra fjárlaga, vegna afleiðinga kínversku Wuhanveirunnar, gegn því að Pólland og Ungverjaland hætti að fara eftir sínum eigin landslögum og þeim sáttmálum sem löndin skrifuðu undir er þau gengu í Evrópusambandið. Engin heimild sé fyrir þess konar aðförum að innanríkismálum Póllands og Ungverjalands, segja löndin tvö. Les; að Agnela Merkel kanslari Þýskalands og Emmanuel Macron forseti Frakklands geti ekki bara upp á eigin spýtur fossað milljónum af svokölluðum "flóttamönnum" inn í Evrópusambandið og krafist þess að þeim sé dritað niður í aðildarríkin með sovéskum aðferðum - og síðan að fjárlaga-bankareikningum þeirra ríkja í ESB sem neiti að hlýða sé bara lokað. "Þetta er ekki það Evrópusamband sem okkur var sagt að við værum að ganga í á sínum tíma" segir Morawiecki

Ekkert samþykki annarra þjóða sambandsins lá fyrir né heldur var sóst eftir því er hinum fyrrum járntjaldslöndum Sovétríkjanna var hleypt inn í ESB. Olígarkaveldi ESB ákvað það bara upp á eigin spýtur. Og eru þær spýtur sovésku bareflin sem pólski forsætisráðherrann talar um núna

Danmörk fékk að kenna á þessum bareflum er hún reyndi í þjóðaratkvæðagreiðslu að nota sáttmála Evrópusamandsins til að stöðva samþykkt Maastricht-sáttmálans, sem þótti þá og þykir enn jaðra við veruleikafirringu og geðbilun. Mistókst sú sáttmálabundna neitunarvaldsstöðvun –er sögð var sjálf frumforsendan fyrir því að ríkin gengu í Evrópusambandið á sínum tíma– hrapallega og hafa engar svo kallaðar neyðarbremsur ríkjanna í ESB nokkru sinni virkað þegar ríkin hafa togað í þær. Evrópusambandið er eins og gamla Sovétið orðið Notbremsenresistent ófreskja. En þannig endar imperíal-ríkishönnun ávallt daga sína; sem rjúkandi rúst ofan á borgurunum. Svipað má segja um EES-samninginn ömurlega

Fyrri færsla

Verður Trump forseti áfram?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sydney Powell boðar ekki biblíulega atburði í þessari viku, nema hún hafi algjöra vissu um þá.

Vikan mun verða afar athyglisverð.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.11.2020 kl. 19:36

2 identicon

Hún segir sönnunargögnin um kosningasvikin

hreinlega hrúgast upp.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.11.2020 kl. 20:48

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já eitthvað hlýtur hún sem fyrrum saksóknari bandarísku alríkisstjórnarinnar að hafa fyrir sér í þessum málum. Mér svelgdist á og varð kjaftstopp við að hlusta á hana í gær.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.11.2020 kl. 20:52

4 identicon

Takk sömuleiðis Gunnar.

Hún segir orðrétt:

"Georgia is probably going to be the first state I am gonna blow up."

Manneskja af hennar stærðargráðu og reynslu sem fyrrum alríkis saksóknari segir ekki svona nema hafa algjörlega rökstuddan grun um kosningasvik, og næg sönnunargögn til að sanna þau svik.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.11.2020 kl. 21:13

5 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Heyr heyr.

Guðjón E. Hreinberg, 22.11.2020 kl. 23:18

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

mánudagur, 23. nóvember 2020 kl. 00:36:14

Lögfræðiteymi Trump-framboðsins segir að Sydney Powell iðki lögfræðistörf á eigin vegum, en ekki á vegum þeirra. Birt var tilkynning þess efnis í dag.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2020 kl. 00:37

7 identicon

Varðandi sænsku opingátta vitleysingjana tvo,

þá lepja þeir beint úr nýlegri grein George Soros.

Skítt með þá sænsku,

verra er með íslensku þingmennina

og ráðherrana, sem fylgja opingáttastefnu Sorosar.

Hingað streyma nú hælisleitendur, langt umfram það sem gerist annarss staðar.  Þessu verður að linna!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.11.2020 kl. 00:37

8 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Evrópusambandið ætti með réttu að hafa verið leyst upp fyrir löngu. Það virðist ætla að verða lífseigara en Sovétríkin.

Ég dáist að skrímslinu Evrópusambandið um leið og mig hryllir við því. Þeim hefur tekizt það sem Þriðja ríkinu tókst ekki, að halda almenningi niðri.

Rétt eins og rakið var í nýlegri frétt voru Svíar hlýðnir gagnvart Þjóðverjum í seinna stríði og ESB að sama skapi.

Það væri auðvitað mjög ánægjulegt ef Trump tækist að vera forseti áfram, en ég efast um það.

Ingólfur Sigurðsson, 23.11.2020 kl. 00:53

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Takk fyrir góða grein, fínar athugasemdir frá Símoni Pétri.

Já, viðtalið við Sidney var magnað. Mér líst þó ekki á fréttir um að Sidney Powell sé ekkert í lögfræðingateymi Trumps.

Það er samkvæmt yfirlýsingu á vefsíðu Trump, sem þú sjálfur vitnar til í byrjun þinnar greinar, að öðru tilefni.

Hvað veist þú um það mál? Hef lesið athugasemdir á ýmsum non-lamestream-media miðlum um að hún hafi aldrei verið formlega í teyminu, í raun alltaf verið sjálfstæð. Veit ekki hverju ég á að trúa.

Hvað um það, ég vona að hið sanna komi í ljós, hverjum sem það verður að þakka. Kannski spillir ekkert fyrir að um tvö (eða fleiri) lögsóknarteymi sé að ræða.

Hvet alla til að horfa á eftirfarandi myndband frá Rudy Giuliani sjálfum. Hann gerir það sem er eina vitið á þessum tímum, er bara með sína eigin rás og sniðgengur ónýta lamestream skólpmiðlana stóru.

REVEALED: Sworn Evidence Of Pervasive Voter Fraud | Rudy Giuliani | Ep. 86

Theódór Norðkvist, 23.11.2020 kl. 01:07

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Viðbót: Væri kannski réttara að segja að lamestream-skólpmiðlarnir sniðgangi frekar Rudy, hafa hvað eftir annað komið sér undan því að birta þessi sönnunargögn sem hann sýnir í myndbandinu að ofan og kvarta síðan undan því að hann leggi aldrei fram nein sönnunargögn!

Theódór Norðkvist, 23.11.2020 kl. 01:10

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ingólfur Sigurðsson, 23.11.2020 kl. 00:53 - sammála.

Theódór Norðkvist, 23.11.2020 kl. 01:40

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Trump

Lögfræðiteymi Trump-framboðsins með sitt risavaxna mál, gæti hafa þótt sá hluti þess sem Powell tók sig af, hafa verið orðinn of stór í breiddina fyrir þann tíma sem er til stefnu, og ákveðið að skilja það frá sem sjálfstætt mál sem enn er að vinda upp á sig. Ekki skal ég spá um hvað úr því verður.

ESB

Já Sigurður tek undir með þér, en hafa ber í huga að Evrópusambandið hefur aðeins lifað í 27 ár sem samband (union) - og að ríkin sem í því eru hafa nú þegar hætt að taka mark á því og fara eftir því sem um var samið, og eitt þeirra hefur meira að segja sagt sig úr því. Það er því þegar byrjað að minnka og falla saman.

Rúsínan í sænska leiðarendanum

Nú segir OECD að Svíþjóð standi sig allra verst OECD-ríkja í því að hefta útbreiðslu kínversku Wuhan-veirunnar, af öllum þeim löndum sem í OECD-kirkjunni eru. Sjá: Svíþjóð verst.

Sænska leiðin gengur greinilega út á að berja önnur lönd til að innan á meðan kokkumsið heima í Svíþjóð springur í loft upp á sama tíma sem eins konar ketilsprenging sósíaldemókratismans.

Hvað skyldi sunnudagaskólafyrirbæri stuttbuxnadeildar Sjálfstæðisflokksins segja við þessum messugjörningum OECD, sem buxnahaldarar þar bryðja bænir sínar á degi hverjum niður með humri.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2020 kl. 02:07

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"Já Ingólfur tek undir með þér" - átti þar að standa.

Afsakaðu vinsamlegast nafnabrenglið.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2020 kl. 02:34

14 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þakka fyrir svarið, það útskýrir þetta vel. Annars vil ég bæta því við að mig dreymdi fyrir því að Biden ynni en Trump yrði á öxlum hans allt kjörtímabilið. (Eins og fálki). Ætli það þýði einhvern áframhaldandi málarekstur eða áhrif Trumps fram í framtíðina eða eitthvað allt annað? Eitt er víst, úrslitin eru flókin og jafnvel þótt annar tæki við má búast við að ekki sé allt útkljáð með því. 

Nafnabrenglið er bara skondið, margir góðir menn sem heita Sigurður, eins og hann faðir minn, sem reyndar er mjög fastur í Samfylkingunni. Ég hef þó lært ýmislegt af honum og er stundum sammála honum.

Ingólfur Sigurðsson, 23.11.2020 kl. 02:47

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Ingólfur.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2020 kl. 02:50

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég minnist þess ekki að Eimreiðarmenn hafi nokkru sinni litið til Svíþjóðar í neinum efnum, en hafi þvert á móti varað okkur Íslendinga við "sænsku leiðinni". Og þarna sést meðal annars ágætlega hvert hún liggur: þ.e. til heljar.

En nú virðist Sjálfstæðisflokkurinn vera kominn á dómgreindarskertar sænskar kratahershendur, með þeim afleiðingum að fylgi Íslendinga við flokkinn er að hverfa og nærri helmingur þess þegar farinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.11.2020 kl. 02:52

17 Smámynd: Halldór Þormar Halldórsson

Það er ágætt að halda því til haga að starfstitill Sidney Powell á meðan hún vann fyrir bandaríska ríkið var Assistant United States Attorney. Sú staða er vissulega aðstoðarsaksóknari alríkisstjórnarinnar, en hefur samt ekki alveg þá vikt sem orðanna hljóðan gefur til kynna, heldur er um að ræða stöðu sem nokkur þúsund manns gegna á hverjum tíma og veitir viðkomandi einfaldlega heimild til að sækja mál fyrir alríkisstjórnina, yfirleitt samhliða öðru starfi á vegum hins opinbera. Þeir sem gegna þessum störfum eru oft ungt fólk sem er nýkomið úr háskóla og er í raun ekki nein sérstök valdastaða. 

 

Halldór Þormar Halldórsson, 23.11.2020 kl. 09:41

18 Smámynd: Loncexter

Svindlið er svo umtalað að það hlýtur að vera raunverulegt.

https://www.youtube.com/watch?v=q6DzEHsZjAo

Loncexter, 23.11.2020 kl. 10:43

19 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ætli það sé ekki síðasta embættisverk Trump að stuðla að breytingu á kosningalögum vestra og koma þeim í lýðræðislegt form.

Kolbrún Hilmars, 23.11.2020 kl. 10:56

20 identicon

Mig grunar reyndar að það séu það sterk öfl sem vinna gegn Trump, að svo fari líkt og draumur Ingólfs segir og sigur Trumps verði barinn niður.

Að Biden "vinni"

en Bandaríkjamenn verði algjörlega klofnir í afstöðu sinni. Biden mun verða "lame duck" í forsetatíð sinni.  En hinn niðurbarði muni magnast við hverja misgjörð og ráðast sem fálki að honum.

En sjáum til hverju fram vindur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.11.2020 kl. 11:58

21 identicon

Það sem umfram allt er athyglisvert

er að Sidney Powell ætlar að halda málinu til streitu, f.h. bandarískra kjósenda, We The People, sem voru beittir svikum, vegna stórundarlegra talningaforrita sem "hagræddu" úrslitum.

Hvers vegna hin í lögfræðiteymi Trumps afneita henni nú, segir þá sína sögu.

Kerfið er rotið, en lögfræðiteymi Trumps þorir ekki að taka á því, nema sú eina sem teymið afneitar nú. Loft er nú lævi blandið yfir mýrinni.

Það breytir því ekki, að bandaríska þjóðin telur að svindlað hafi verið.  Illt er henni, ef svo reynist, að Trump hafi nú "rekið" Sidney Powell.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.11.2020 kl. 13:11

22 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Í Mogganum ´dagsins er Chris Christy að hvetja Trump að hætta að hamast í að finna svindl úr kosningunum,og segir þetta lögfræðiteymi hans til skammar. Skárri væri það nú með sannarirnar langt komnar. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2020 kl. 13:14

23 identicon

Önnur tilgáta gæti verið sú, að það sé

með ráðum gert, að Powell standi utan við,

því þannig sé henni gert auðveldara um vik

að láta engu skipta hvort spillingin sé

demókrata eða repúblikana megin.

Nefnt hefur verið að ríkisstjóri í ónefndu ríki

hafi þegið 100 milljónir dollara frá eigendum

talningaforritsins.  Þvílík spilling, ef rétt reynist.

Það verður fróðlegt að verða vitni að framhaldinu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.11.2020 kl. 13:48

24 Smámynd: Theódór Norðkvist

Símon, samkvæmt því sem ég hef lesið þá var Powell aldrei í lögfræðingateyminu. Hún kom fram á blaðamannafundinum, en var alltaf sjálfstæð.

Sydney Powell says she ‘understands’ Trump’s lawyers distancing themselves from her, vows to fight on

Theódór Norðkvist, 23.11.2020 kl. 13:54

25 identicon

Takk fyrir þessar upplýsingar Theódór.

Ég hef trú á þessari konu.

Hún virkaði strax á blaðamannafundinum

sem eina gegnheila manneskjan þar.

Vonandi fær hún þann liðsauka sem hún þarf til að koma málinu í gegn.  Ef ekki, þá er afar illa komið fyrir Bandaríkjunum.

Hún hefur allt það sem Bandaríkin mátu áður mest:

Integrity.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.11.2020 kl. 14:21

26 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég gæti endurtekið þetta sem ég skrifaði í gær,þvi nákvæmlega sama frétt er i Mogga dagsins.

Helga Kristjánsdóttir, 24.11.2020 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband