Leita í fréttum mbl.is

Ég spái Trump stórsigri

Talandi háskólahaus með menntun frá skattgreiðendum, kom fram í því sem kallað er "fréttatími" Ríkisútvarpsins í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar í gær. Þar var verið að tala um skoðanakannanaiðnaðinn og getuleysi hans þegar Donald J. Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna 2016. Hún hausinn sagði að það sem einkennt hefði kosningarnar þá hefði verið það að fólk með háskólamenntun hefði næstum alls ekki eða miklu síður kostið Trump

Þarna fór hún alveg með það, því það veit hún lítið sem ekkert um, því fólk með háskólamenntun myndi sjaldan eða aldrei segja frá því að það hefði kosið Trump. Starf þess gat einfaldlega verið í hættu þá, og enn meira núna á tímum rétttrúnaðarofsókna þeirra sem kallast menningar- og menntaelítan. Já, þarna fór hún alveg með það, og sig sjálfa gersamlega í leiðinni

Stundum finnst mér að loka mætti háskólunum. Ekki alveg, en um tíma. Þeir eru orðnir heiðnikirkjuveldi og valdameiri stofnun en Kaþólska kirkjan var á miðöldum. Og þeir eru síst betri, eins og sést til dæmis núna á New England Journal of Politics sem áður var of Medicine. Þetta lið er búið að eyðileggja flest:

a. Pulitzerverðlaunin eru ónýt. Enginn ber virðingu fyrir þeim lengur. Þau eru brandari eins og fjölmiðlarnir

b. WHO er ónýtt. Stofnunin er pólitískur brandari sem leggja ber niður. Óbetranlegt viðrini sem engrar virðingar nýtur. Farsi

c. Nóbelsverðlaunin eru orðin brandari. Engin virðing er borin fyrir neinu sem kemur þaðan lengur, nema kannski á raunvísindasviðinu

d. Staðreyndin er sú að flestar þær mikilvægu stofnanir sem mótuðu og héldu að mörgu leyti utanum nýtt tímabil sem hófst 1945, eftirstríðsskipulagið, eru ónýtar því tími þeirra er einfaldlega liðinn. Og það sama má segja um það heimsskipulag sem þá komst á. Það er einfaldlega liðin tíð og þar með NATO líka. Þess vegna var Trump kosinn 2016, því nú er komið að því að byggja þarf nýjan ramma sem halda þarf utan um nýja og breytta heimsmynd. Gamli tíminn og þar með einnig tími Evrópusambandsins er liðinn. Hinn langi armur hinna dauðu stjórnar ESB núna eins og sést. Þar er enn árið 1945. Og þær röngu ályktanir sem valdasjúkir meginlandstaparar í rústum sínum drógu þá, áttu reyndar aldrei við því þær voru kolrangar. Alveg 180 gráðu-kolrangar

Aftur að kosningunum í Bandaríkjunum: Í kosningunum núna, eftir að allir á plánetunni hafa í fjögur ár fegið að vita að Trump sé hættulegasti maður í heimi og eins konar hágeislavirk voðapersóna og sem fjölmiðlar þola bara ekki, því hann svarar þeim fullum hálsi og opinberar þá sem þau getulausu og fölsku viðrini sem þeir næstum allir eru –eins og kristaltært sést á rauðum rostungaklaustursmönnum DDRÚV, enn á framfærslu skattgreiðenda– þá er að mínu mati næstum vonlaust að fá fólk til að segja sannleikann í síma eða á njósnanetinu sem kallað er internet. Fólk mun því enn síður segja frá því hvað það ætlar að kjósa í Bandaríkjunum núna. Enn síður en 2016. Miklu síður

Ég hef aðeins einu sinni svarað skoðanakannafólkinu hér heima á síðustu 10 árum og ég hét að gera það aldrei aftur og ég tek aldrei símann þegar það lið hringir. Öðruvísi fólk en ég, hefur mestan áhuga á að láta ljós sitt skína þar. Til að vera nú ekki stimplaður sem vondur, þá sagði ég að það væru 12 prósent líkur á að ég myndi kjósa Vinstri græna, eftir að hafa sagt að ég myndi kjósa Miðflokkinn eða Sjálfstæðisflokkinn. En sannleikurinn er hins vegar sá að það eru engar líkur á að ég nokkru sinni í mínu lífi myndi kjósa Vinstri græna. Bara aldrei. Svo hjá mér er það Miðflokkurinn efst eða þá xD, skyldi sá nú orðið plebbaði útlendingaflokkur sjá að sér, áður en Bjarni Ben og allsleysisfólkið í kringum hann rústar honum alveg

Sem sagt: þetta verður "landslide", "jordskredssejr" eða stórsigur fyrir Trump. Hvorki meira né minna

Fyrri færsla

Fjör hjá Trump


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var aumkvunarvert að heyra Einar Þorsteinsson, ungliða Sjálfstæðisflokksins, jarma í síbylju utan í Vinstri grænu mela(há)skóla Silju Báru að "þetta lítur vel út", þetta lítur vel út", "þetta lítur vel út", meðan þau mændu á eitt kort sem sýndi Biden yfir á landsvísu.

Næst mun Bogi jarma utan í Silju Báru.

"Þetta lítur vel út", "þetta lítur vel út".

Gísli Marteinn félagi Sjálfstæðisflokksins

jarma á sinn staðlaða hátt "skemmtikvölds"

"allra landsmanna", og nudda höndum saman

í algjörri sjálfsánægju RÚV Sjálfstæðisflokksins

"Þetta lítur vel út", "þetta lítur vel út".

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 08:54

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Síðast þegar ég lét undan og svaraði einhverri símakönnun þá var mér boðið að vera álitsgjafi/svarandi  fyrir skoðanafyrirtækið og það þó ég hefði neitað að svara hinum hefðbundnu spurningum um menntun, laun og stjórnmálaskoðanir. Úrtakið í slíka álitshópa getur nú varla verið tilviljunkennt. Maður veltir líka fyrir sér manngerðinni sem hefur þörf fyrir að svara skoðanakönnunum, hvaða hvatar liggja að baki, hver er ávinningurinn. Getur verið að sumir líti á það sem borgarlega skyldu sína að svara fyrir heilalausan almenning til að tryggja áframhaldandi hjarðhegðun. Svo má velta fyrir sér öryggi, sá sem hringir veit nákvæmlega við hvern hann er að tala en það virkar ekki í hina áttina. Svörin eru skráð í tölvu og enginn veit hvar þessar upplýsingar enda að lokum.

Grímur Kjartansson, 30.10.2020 kl. 12:12

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Símon Pétur.

Ég horfi aldrei á DDRÚV nema að ég sé neyddur til þess annarra vegna. Hef aldrei séð neinn þátt með þessum Gísla, nema þann sem SDG var í. Þá ákvað ég að sá þáttur væri ekki tíma míns virði. Samt er ég píndur til að borga fyrir þessa ríkisstöð vinstrimanna.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 15:08

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Í þessu eina skipti sem ég svaraði þessum iðnaði þá var mér einnig boðið að vera í svarhópi þeirra. En ég afþakkaði. Hef ekki áhuga á að láta ljós mitt skína þarna. Þeir sem telja sig hafa "réttar" skoðanir eru sennilega mun líklegri til að vilja taka þátt í þessu fyrirbæri.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 15:09

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Höfundur er í stuði, ekki frá því að hann hefji sitt erindi í dag á talsverðum menntahroka. Hann um það.

Þar sem höfundi er annt um eitt könnunarfyrirtæki umfram önnur, þá er vert að benda á það fyrirtæki sem hann hrósaði í gær er nú með enn verri tölur fyrir frambjóðanand höfundar.

En sjáum til. Ekki búið fyrr að allir dómstólar hafa lokið sér af.

https://www.rasmussenreports.com/public_content/politics/elections/election_2020/white_house_watch_oct30

Hitt rausið er svo augljóslega ekki svaravert þegar liggur svona illa á höfundi.

Góða helgi.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 30.10.2020 kl. 17:37

6 Smámynd: Þórhallur Pálsson

MEGI SPÁ ÞÍN ALDREI RÆTAST !

Þórhallur Pálsson, 30.10.2020 kl. 17:42

7 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Og þakkir fyrir pistilinn.

Mikð vona eg að spá þín rætist,Fyrir alla heimsbyggðina væri það heilladrúgt.

Óskar Kristinsson, 30.10.2020 kl. 18:29

8 identicon

Hverju spáir Sigga Klink?smile

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 18:35

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur Sigfús, Þórhallur og Óskar fyrir lesturinn og athugasemdir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 18:36

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Og Jósefi Smára líka

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 18:36

11 identicon

Ég spái því að Sjálfstæðisflokkurinn noti

Vinstri græna sem hlífiskjöld

í andstöðu sinni við ósk bandarískra yfirvalda

um enduruppbyggingu varnarmannvirkja og aðstöðu hér á lsndi.  Enda þjónar það komma lund Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins oh bankaráðsmanns kínverska innviðabankans.

En mikil er gungan BB að fela sig alltaf bakvið Stenngrim Johoð og Svandísi Svavars Gestssonar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 19:06

12 identicon

lsndi, átti að vera, landi

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 19:12

13 identicon

Ég er búinn að heita því að ef Trump vinnur þá muni ég nýta mér nýtilkomin nafnalög og láta kalla mig Jósef S.trump.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 19:28

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nú eru Demókratar orðnir hræddir um að Minnesota sem hefur ekki kosið neitt annað en þá í 48 ár, sé að sveiflast yfir á hendur Repúblikana.

Það var athyglisvert þegar Rögnvaldur Reagan var kosinn fyrst 1980, að hann var langt undir Carter í október og reyndar mestan hluta ársins. En þaut svo upp rétt fyrir kosningar, þannig úr varð næstum 7 prósentustiga munur þeim þegar talið var upp úr kjörkössunum. Einnig má nefna kosningarnar 1948 þegar allar kannanir allt árið og fram á síðasta dag sögðu að Dewy mynd sigra Truman, sem hann gerði langt því frá ekki.

Mér líst vel á Johoð hjá Símon Pétri en myndi nú ekki vilja fórna Ásmundar-nafninu, hvað sem í boði væri, héti ég Jósef Smári.

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 20:55

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Forsetaframbjóðandi Repúblikana frá 1980 til 2020

Finnst ykkur líklegt að þessi maður, Donald J. Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana 2020, tapi kosningunum núna fyrir manni sem nýtur ekki persónulegra vinsælda meðal kjósenda.

Enginn forsetaframbjóðandi Repúblikana hefur hlotið eins góða kosningu meðal flokksmanna sinna og Donald J. Trump.

Stór hluti fylgis Bidens kemur frá kjósendum sem eru ekki að kjósa Biden heldur eru að kjósa gegn Trump.

Mun það fólk nenna á kjörstað núna?

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 23:35

16 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Munurinn a kosningafundunum er eins og munurinn à karnevali og likvöku, ýkjulaust. Ef það gefur eitthvað til kynna, þá mun Trump vinna. Hann fær ekki popular vote frekar en repúblíkanar áður. Þá þyrfti Kalifornía að verða Trumfylki. 

Jón Steinar Ragnarsson, 30.10.2020 kl. 23:41

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jón Steinar.

Já það er þannig.

Ég held ekki að Joe Biden muni fá þann stuðning frá yngstu kjósendum Demókrata sem Bernie Sanders fékk. Þeir eru afhuga Biden.

Kveðja norður

Gunnar Rögnvaldsson, 30.10.2020 kl. 23:48

18 Smámynd: Haukur Árnason

Jamm, eftir að horfa á restina af Gísla Marteini í kvöld, þá vona ég að Trump sigri með yfir 60%

Haukur Árnason, 31.10.2020 kl. 00:15

19 Smámynd: Haukur Árnason

Það væri gott á RUV.

Haukur Árnason, 31.10.2020 kl. 00:17

20 identicon

Tek undir orð og ályktun Hauks.

Allir gestir Gísla RÚV Marteins voru

taugaveiklaðir og skrækir Biden sinnar.

Grínið átti að heita þrjár Trump eftirhermur.

Og svo var rætt við, nema hvað, Silju Báru.

Einstefnu hatursáróður RÚV er á lægsta plani.

Að allir skuli skattskyldaðir af Bjarna Bibong 

fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins

að borga fyrir þetta eintóna skræka hatur

segir allt um kommaeðli hans.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 00:43

21 identicon

Það hefði mátt kalla viðleitni til jafnvægis

að hafa a.m.k. eina eftirhermu í líki Sleepy Joe.

Nei, ybbar bergmálshellis hinna heilaþvegnu

hoppa allir sama tossadansinn, skræk, æst og m.a.s. Time Warner Ólafur Jóhann Ólafsson æsti sig í að skrækja með.  Vantaði bara íslensku forsetaduluna og frúna með gulu hátalara box ybbanna.  Hjarðeðlið ríkti, forheimskunin ríkti í einstefnu haturs ybbanna í DDRÚV.

Það skal viðurkennt, að sá hlær best sem síðast hlær, þegar ljóst verður að Trump hefur unnið stórsigur.  Hahahaha!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 01:10

22 identicon

Það er mjög athyglisvert hvernig Donald Trump eykur lífsgæði almennings með því að lækka skatta og vinda ofan af reglufargani. E.t.v. er þessi tryllingslega hræðsla vinstri við Trump að almenningur átti sig á því að hann er píndur undir vinstrinu. Vinstrið er frægt fyrir að sturta niður fé almennings og sökkva öllu í skuldafen. Trump er stærsta von smælingja. Það sem þessum manni hefur tekist að gera miðað við að hafa ekki nokkurn vinnufrið fyrir Demókrata dónum er stórmerkilegt.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 08:29

23 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ég segi öllum sem vilja fá mig til að hjálpa sér að bú til könnun að ég rukki fyrir hvert svar og enn hefur engin verið tilbúin að borga.

En slow Joe hefur aldrei átt neina möguleika á 270 kjörmönum á móti Trump fól þar einfaldlega að vera illa brenglað eða illa upplýst til að halda það.

Guðmundur Jónsson, 31.10.2020 kl. 12:15

24 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Fólk þarf,  átti að standa línu 5

Guðmundur Jónsson, 31.10.2020 kl. 12:19

25 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Haukur, Kristinn og Guðmundur.

Trump gengur að minnsta kosti til þessara kosninga með einhuga Repúblikanaflokkinn í bakið, á meðan Joe Biden gengur hins vegar til kosninganna með Demókrataflokkinn marrandi í hálfu kafi af óánægju með hann sjálfan og útnefningu hans.

Restin af kjósendum eru líklega á sama máli. Og fjölmiðlar hafa ekki kosningarétt. En þarf starfa fyrst og fremst Demókratar, óánægðir með allt og alla.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.10.2020 kl. 13:37

26 identicon

Sæll Gunnar!

Þetta er nú ekki fallega sagt af þér!

En greinilegt er og fyrir alllöngu
að Attenborough hefur yfirsést um þá
dýrategund sem "dummycrats" nefnist.

Kjósum Jo Biden Prezzizent 2020

og Apram Lyngholt til varaforseta!

Húsari. (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 14:38

27 identicon

Sæll aftur!

Nánar má fræðast um dýrategund þessa hér:

https://www.youtube.com/watch?v=0E3-O6iKnlo

Húsari. (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 14:43

28 identicon

Sæll Gunnar,

Þú nefndir að þú vildir loka háskólum en samt ekki alveg. Ég er með hugmynd, að allir greiði fyrir sína menntun sjálfir og ákveði hvað þeir læri sjálfir og í staðinn yrði tekjuskattur einstaklinga felldur niður sem mér skilst að sé u.þ.b. á pari. Þetta væri ofurvítamín sprauta fyrir Íslendinga.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 14:55

29 identicon

Við sjáum, meira en minna,

allt valdakerfið berjast gegn Trump.

Skyldi það ekki hafa áhrif?

Getur verið að það muni falsa úrslit kosninganna?

Hverjum þá í óhag,

nema helst þeim sem það vill fótum troða?

En við verðum að vona því að svo illa fari ekki.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 16:04

30 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvað með eina-gráðu-aðeins á kostnað skattgreiðanda, Kristinn? - og restin, ef til kemur, fyrir eigin reikning.

Ég veit að menntabólan síðustu 50 árin er sennilega svæsnasta fjármálabóla allra tíma, svo hví ekki að stinga aðeins á hana? Þetta gengur að minnsta kosti ekki upp svona eins og þetta er núna.

Gunnar Rögnvaldsson, 31.10.2020 kl. 22:07

31 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlitið Húsari.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.10.2020 kl. 22:08

32 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Með því að vera Trump svælir hann út rostungana í kerfi hinna varanlegu embættispólitíkusa. Það leggur reyk upp frá þeim er þeir sjá hann og heyra. Þannig koma þeir upp um sig. Hann þarf ekki að gera neitt annað en að vera Trump, og þá rýkur úr þeim.

Sama reyk leggur upp úr sömu stétt hér heima, um leið og Trump ber á góma. 

Gunnar Rögnvaldsson, 31.10.2020 kl. 22:13

33 identicon

Flórída, Norður-Karólína, Arizona og Pennsylvanía

eru nú öll fjögur farin að mælast Trump megin.

Já, m.a.s. í staðbundnum skoðakönnunum

Það eru þau 4 af sveiflufylkjunum sem hann þurfti, og þarf,

til að sigra. 

2016 vann hann reyndar einnig Michigan og Wisconsin, og þar með öll sveifluríkin 6.

En hin 4 duga honum vel til sigurs.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.10.2020 kl. 22:46

34 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég vona svo sannarlega að Trump sigri. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að hindra að hin dauða hönd nái völdum, hvort sem hún er í formi líksins af Joe Biden eða ekki.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.11.2020 kl. 23:18

35 Smámynd: Halldór Jónsson

Nú tek ég undir hressilega með Þorsteini Siglaugs semer sammála hinum margvísa Gunnari Borgfirðingi

Halldór Jónsson, 2.11.2020 kl. 05:00

36 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið og skrif, Þorsteinn og Halldór.

Pittsburgh Post-Gazette skipti um lit í gær. Þetta er fyrsta skiptið síðan 1972 að blaðið mælir með Repúblikana í Hvíta húsið: The man and the record

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.11.2020 kl. 14:46

37 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Ritskoðuð verslun í USA:

Giant Eagle has made the decision to temporarily halt the sale of the Pittsburgh Post-Gazette.

Hversu langt er hægt að ganga í geggjuninni?

Rúnar Már Bragason, 2.11.2020 kl. 19:40

38 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Rúnar.

Segðu maður!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 2.11.2020 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband