Leita í fréttum mbl.is

Wuhan-veiran: Blaðamannafundur Hvíta hússins 8. apríl 2020

Frá vefsetri Hvíta hússins á YouTube; Blaðamannafundur 8. apríl 2020; Heimsfaraldur kínversku Wuhan-veirunnar

****

Alríkisteymi Donalds J. Trump forseta hélt enn einn blaðamannafundinn vegna kínversku Wuhan-veirunnar í dag. Fundarstaður er að sjálfsögðu Hvíta húsið. Alla daga situr forsetinn með teymi sínu og hlustar á ráð þess ásamt þau sem ráðherrar ríkisstjórnar hans koma með. Síðan tekur forsetinn þær ákvarðanir sem taka þarf og bræðir daglega saman þá heildstæðu hernaðaráætlun sem Bandaríkin síðan keyra málið samkvæmt. Passa þarf að valda ekki fleiri dauðföllum síðar með því að taka rangar ákvarðanir núna, sbr. hið harkalega niðurskurðarprógramm sem viss stór evrulönd í evruskuldakreppunni ákváðu að þvinga yfir Grikkaland og sem leiddi til bylgju af sjálfsvígum er fjórðungur gríska hagkerfisins var sviðinn burt undan Grikkjum á evrubálinu

Blaðamannafundir Trumps ná því til allra áhrifasviða faraldursins á öll 50 ríki Bandaríkjanna. Allt er að gerast þarna; og "ef þið eruð með ríkisstjóra sem er að bregðast ykkur, þá leitið til mín, því ég er hér til að bjarga ykkur", sagði forsetinn en bætti um leið við að þess sæjust sem betur fer lítil merki. Blaðamaður reyndi að spyrja forsetann um hráolíumál Bandaríkjanna, en fékk ekki að spyrja spurningarinnar því hann vissi ekki hvað hún kostaði. "Ef þú veist ekki hvað olían kostar þá ættir þú ekki að spyrja um þau mál", sagði Trump og snéri sér að næsta blaðamanni

Meirihlutaleiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, Nancy Pelosi, heimtar til dæmis STRAX rannsókn á fölsunar-þætti Kína í málinu og hvernig Bandaríkin ýti því landi sem lengst út í hafsauga. Rúsínubóndinn og prófessorinn Victor Davis Hanson segir að það svari til þess að krafist hefði verið rannsóknar á mannfalli Bandaríkjamanna í innrásinni í Normandý á meðan á innrásinni stóð. Þetta mun koma síðar sagði hann

Steve Mnuchin fjármálaráðherra Trumps sagðist í viðtali ekki búast við því að bandaríska þingið þurfi að setja sérstök lög sem skipa bandarískum fyrirtækjum að loka niður í Kína og koma sér heim. Hann sagði að þau myndu sennilega sjá um það sjálf. Þau ummæli hans munu væntanlega æsa Demókrata enn meira upp, þannig að hver veit hvað gerist næst

En þarna má sjá alríkisteymi Trumps segja bandarísku þjóðinni frá því hvað verið er að gera á öllum sviðum, hver staðan er og hvernig horfurnar eru. Sumar stóru bandarísku sjónvarpsstöðvarnar sem ná til alls landsins hafa valið að sýna ekki suma þessa blaðamannafundi eða klippa hluta þeirra burt, því þær óttast að fundirnir auki vinsældir forsetans sem þær fá flestar tekjur sínar frá fyrir að hata – og eru jafnvel ekkert að fela það og segjast gera út á að vera á móti forsetanum, eins og CNN hefur til dæmis sagt

Dánartalan í Þýskalandi tók óvæntan kipp upp á við í dag, þannig að þar létust 333 og nýjum tilfellum fjölgaði um 5633 manns. Skilst mér að fáir hafi búist við þessari aukningu. Frá Ítalíu berast þær fréttir að varaforseti ítalska þingsins hafi tætt Evrópusambandsfánann niður af skrifstofu sinni og að margir bæjar- og sveitastjórar Ítalíu hafi gert hið sama, skrifar Ambrose Evans-Pritchard á breska Telegraph. Segir hann jafnframt að ný hægri-ríkisstjórn bíði í hliðarsölum með um 50 prósent stuðning þjóðarinnar í bakið og að hún sé með bara-ítalskar en ekki Brusselskar lausnir í töskunni. Ansa segir að kafli-tvö á Ítalíu þýði að enginn ferðist um landið í sumar. Varðberg skrifar að 93 þúsund manns séu fastir um borð í nú óskemmtiferðaskipum í annað hvort bandarískum höfnum eða undan ströndum landsins

Ennfremur berast fréttir af því að faraldurinn hafi blossað upp að nýju í Hong Kong, og að Japan sé enn á ný á leið inn í hertar aðgerðir. Telegraph segir í Front Bench tölvupósti blaðsins að Kínverska ríkisstjórnin hafi ekki hugmynd um smit- og dánartölurnar í landinu því landshéruð kommúnistaríkisins þori ekki að senda slæmar fréttir inn til aðalstöðva Kommúnistaflokksins í Peking. Óstaðfestur orðrómur um að 12 milljón símaáskrifendur séu skyndilega horfnir úr uppgjörum hafa verið á sveimi. Sem kunnugt er fást fáar tölur frá Kína staðfestar, svipað og reglan var um Sovétríkin sálugu. Kommúnistastjórnin hefur meira að segja orðið uppvís að því að láta verksmiðjur ganga tómar til að reyna að blekkja hagtölumenn með tölum um raforkunotkun

Þeir sem sjá fyrir sér að breska ríkisstjórnin standi við þá ákvörðun sína að heimila kínverska Huawei-fyrirtækinu að bjóða í bara hluta af innviðum 5G-netverks Stóra-Bretlands í smíðum, rétti upp þriðju höndina

Enn sem komið er standa 30 af 50 ríkjum Bandaríkjanna sig betur en Ísland þegar að mannfalli á hverja milljón íbúa kemur; sjá hér. En þetta kann að sjálfsögðu að breytast þar vestra og hér heima, miðað við það að páskar eru framundan, og lönd og ríki eru stödd á mismunandi stað á tímaás heimsfaraldurs kínversku Wuhan-veirunnar

Fyrri færsla

Hvernig er staðan í heimsfaraldri kínversku Wuhan-veirunnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þakka þessa Worldometer-töflu Gunnar. Hún vekur mér vonir um að ég komist loksins til Grænlands í sumar.

Eins mikilvægt og það er að hugað sé að smitvörnum, þá er ekki síður mikilvægt að tryggja atvinnu eftir að plágan gengur yfir. Því er nauðsynlegt að koma hjólunum aftur af stað. Hátt atvinnuleysisstig getur einnig valda dauðsföllum og ríkisstjórnin mun aldrei geta keypt sig út úr þeim vanda.

Ragnhildur Kolka, 9.4.2020 kl. 11:39

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ragnhildur.

Já upplýsingasetur www.worldometers.info/coronavirus/ er mjög umfangsríkt og með nánari upplýsingar um hvert land, athugasemdir stjórnvalda við tölur hvers dags og krækjur á upplýsingasetur hvers lands og ríkis fyrir sig. Flestar töflur er hægt að sortera, út frá greindum tilfellum, dauðsföllum, nýjum tilfellum og nýjum dauðsföllum, sýnatökum og fleiru. Samtök bandarískra bókasafna hafa veitt því verðlaun.

Skítt með ferðalögin. Ekkert land getur lifað á ferðalögum, þau eru lúxus en ekki nauðsyn. Ekki veit ég hvað grænlensk yfirvöld heimila í sumar, og hvað ekki, þannig að ef þú ert á leið þangað, þá er ekki víst að Grænlendingar heimili ferðir þangað í sumar. Það er alls óvíst enn, því varla vilja þau hætta mjög góðum árangri með því að opna of fljótt, og gildir það náttúrlega um öll lönd.

Persónulega myndi ég ekki búast við neinu fyrr en eftir að minnsta kosti eitt ár. Faraldurinn er að blossa upp á ný í sumum þeim löndum sem fóru inn í hann fyrst - og ef það gerist þá er allt það erfiða, mikla og ofboðslega dýra og kostnaðarsama verk sem unnið hefur verið, unnið fyrir gíg. Lönd þola ekki tvo umganga af þessum faraldri, hvorki efnahagslega né stjórnarfarslega séð. Hollt er að minnast frönsku og rússnesku byltinganna þegar hugsað er um þennan heimfaraldur, sem er í boði ofur-kærulausra stjórnvalda sem hent höfðu öllum sígildum sannindum frá fyrri tímum fyrir róða, og mættu allsnakin til leiks og með allt sem hugsast gat niður um sig.

Eins og er, þá hafa skipulögð mótmæli um víða veröld lagst af vegna hættunnar, en á meðan vaxa þrúgur reiðinnar villt og óhamið meðal vaxandi hluta flestra þjóða í þessu máli. Þær þrúgur munu svo mæta til leiks þegar óhætt er, og valda usla og pólitískum hamförum.

Sjálfur geri ég ekki ráð fyrir "normaliseringu" fyrr en eftir að bóluefnum hefur verið dreift og þau komin í notkun. Heimurinn verður þó aldrei samur eftir þetta. Fólk hoppandi um heiminn á hanafæti í lágflugfargjalda strætisvögnum, sem eru kolanámuvinnustaðir með vængi, er liðin tíð. Þau félög verða ekki uppistandandi eftir þetta og munu ekki rísa upp aftur í fyrirsjáanlegri framtíð. Fjárfestar verða þeim og ferðamannaiðnaði mjög svo afhuga, enda um láglauna og að mestu leyti taprekstrarbarnasa af engisprettutegund að ræða, og sem flest ríki ættu að reyna að forðast. Til að byrja með verða flest þau flugfélög sem komast á loft á ný eins konar samheita-flugfélög undir merkinu Uncle Sam Airways.

Kissinger hefur því rétt fyrir sér. Heimurinn er að breytast beint fyrir framan nef okkar - til frambúðar. Ný tækifæri skapast á meðan öðru og óstæðilegu er rústað. Að hoppa upp í flugvél til að skoða markaðsfærslu-hannað og blekkjandi yfirborð útmiginnar hundaþúfu hinumegin á hnettinum, er liðin til. Heimurinn er risavaxinn og milljón sinnum stærri og öflugari en fávíst fólk var farið að líta á hann, út um kýraugu í 30 þúsund feta hæð. Ævi manna mun ekki endast til að reyna að þreifa bara lauslega á honum. Betra er að snúa sér að því að byggja sér Machiavelli-bækistöð fjarri fjallinu, en að reyna að hendast hvellsprunginn um það, með lafandi og slefandi tungu yfirborðsmennskunnar. Ferðalög verða með öðrum orðum allt annað en þau voru. Allt annað.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2020 kl. 18:18

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þjóðaríhaldsmenn af tveggja-handa-aðeins og framsóknarkyni munu eiga framtíðina á næstu árum, því þriðja höndin datt af mannslíkamanum við fyrsta áblástur faraldursins, sem er af Biblíusögulegum uppruna.

Og jarðarför Vinstri rauðgrænna loftslagshjúpa stratóferískrar þvælu háloftanna mun fara fram eins hratt og vatnið af þeim rennur.

Kærulausir barnakarlar af Bjarna Ben og Guðlaugskyni baðaðir í humarsósu munu engan séns hafa. Annað hvort aka þeir með höfuð sín inn í næstu heilaþvottastöð og koma sem nýir menn út aftur, eða þeir deyja út úr glingri. Þolinmæði kjósenda um víðan völl er uppurinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2020 kl. 18:42

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek þá bara á mig að vera fulltrúi yfirborðsmennskunnar og flýg til Grænlands ef pólitísk veður leyfa. Það er hvort eð er farið að halla á síðari hlutann og gagnast víst ekki til annars.

Ragnhildur Kolka, 9.4.2020 kl. 22:34

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já kannski verður eitthvað flugfélag enn á lífi sem flogið getur með þig til Grænlands Ragnhildur.

Ferðin mun þá leggjast með 100-földu fágæti í sál þína og svala ferðaþorstanum margfalt miðað við tímana fyrir plágu. Póst-plágutímarnir verða nefnilega öðruvísi.

En hafið stendur auðvitað enn öllum opið sem þora að leggja í hann úr vör. Eins og þeim sem lögðu upp frá Hvalfirði 1385 og ætluðu í brúðkaup konungs í Björgvin, en fengu svona hroðalega slæman byr að þau sátu föst í Hvalsey við Grænland næstu tvö árin. Þetta var frændi minn Björn Jórsalafari og kompaní.

Frá honum til okkar daga eru aðeins 15 manns. Við þyrftum ekki nema tvo Chevy Suburban fólksbifreiðar til að geta troðið okkur saman í ferðalag í dag; INNANLANDS! því nú höfum við vegi og brýr í landinu okkar og þeir hafa kostað síðustu örfáar kynslóðir okkar ofboðslega mikið.

Gunnar Rögnvaldsson, 9.4.2020 kl. 23:45

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 10. apríl 2020 kl. 00:39:22

Fjármálaráðherrar evrulanda hafa lokið sér af við smíði björgunarhrings úr blýi. Ítalíu og öðrum sökkvandi löndum Suður-Evrópu, sem eru viðskiptahallahliðin á viðskiptahagnaðarhlið Þýskalands í intra-evru-fangabúri þeirra í ESB, hefur verið boðin kredit-aðeins-lína sem Ítalía hefur marglýst fyrir að hún muni ekki þiggja úr lánalínu-pyntingarkerfi ESM-sjóðsins sem lagði Grikkland að velli.

Conte forsætrisráðherra Ítalíu hefur marglýst því yfir að engin ríkisstjórn Ítalíu muni geta lifað af þjóðpyntingar-spásseringar þýskhannaða þríeykisins um götur Rómar. Svo þarna fékk Salvini það sem Conte vonaði að hann myndi ekki fá.

Ítalía á aðeins nokkrar vikur eftir á floti, og svipaða sögu er að segja um Spán.

Öll strategía Emmanuels Macrons um kórónaskuldabréf liggur nú í rúst og sem reynt er að breiða fyrir með 25 milljarða evra puntudúkku-dúk ríkisábyrgða af þeim 200 milljörðum evra sem sagaðar eru eiga að koma úr evrópska fjárfestingarbankanum.

Restin af umgetinni 500 milljarða evru-upphæð er gríska ESM-ólin til að hengja sig í. Fjárþörfin er hins vegar 1-1,5 billjón evra í Marshall gjafir en ekki lán.

Vel gert hjá evrustöppunni!

Hefst nú Föstudagurinn langi fyrir Suður-Evrópu á evrukrossinum.

Spyrja mætti sig að því hvort að þetta sé hefnd fyrir gamlar syndir Rómar..

Gunnar Rögnvaldsson, 10.4.2020 kl. 00:52

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 10. apríl 2020 kl. 01:23:22

Fyrstu viðbrögð: Matteo Salvini segir að niðurstaðan sé "caporetto" eða taps fíaskó á borð við haustið 1917 þar sem Austurríska-ungverska samsteypan fékk stuðning frá Þýskalandi til að salla Ítalíu niður í orrustunni um Caporetto. Og að nota ESM sé brotin loforð og galið. Hann segir að landi hans, fjármálaráðherrann Gualtieri, hafi selt Ítalíu og krefst afsagnar hans.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.4.2020 kl. 01:25

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

ÍTALÍA

WSJ - Italy-s economy never recovered from the financial crisis

Mynd. WSJ 7. apríl 2020

****

Þarna á myndinni sést þróun landsframleiðslu Ítalíu frá og með fyrsta ársfjórðungi 2008, eða rétt áður en fjármálakreppan sem svo breyttist í tilvistar- og skuldakreppu evrulanda og myntar þeirra evru og þar með í tilvistarkreppu Evrópusambandsins, því þá sögðu menn að "falli evran þá fellur Evrópusambandið". Ítalía hefur sem sagt aldrei jafnað sig á evrukreppunni og mun aldrei gera það svo lengi sem landið er í ESB. Stóran hluta ítalska hagkerfisins vantar enn, miðað við stöðuna 2008, og sem var þó ekkert til að hrópa húrra fyrir. Í heil tólf ár hefur enginn hagvöxtur né neitt sem líkist hagvexti verið á Ítalíu, miðað við stöðuna 2008. Ríkisskuldir landsins eru gerræðislegar eða um það bil 135-140 prósentur af landsframleiðslu. Atvinnuleysi er viðvarandi fastur horror. Lánshæfnismat ríkissjóðs Ítalíu er:

Standard og Poors okt. 2018: BBB - neikvæðar horfur

(Ísland er með A)

Moodys okt. 2018: Baa3 - stöðugar horfur 

(Ísland er mað A2)

Fitch ágúst 2018: BBB - neikvæðar horfur

(Ísland er með A)

FRAKKLAND

Franski seðlabankinn var að koma með bráðabirgðamat á frönsku landsframleiðslunni á fyrsta fjórðungi ársins. Þar segir hann að VLF hafi dregist saman um hvorki meira né minna en 6 prósentur. Hvernig mun þá annar fjórðungur ársins líta út?

Í gær féllu 1341 Frakkar af völdum Wuhan-veirunnar og tæplega fimm þúsund manns greindust með hana. Alls hafa 12.200 Frakkar látið lífið af völdum veirunnar.

Á aðeins mánuði hafa 50.000 manns misst lífið í stærstu löndum meginlands Evrópu.

Gunnar Rögnvaldsson, 10.4.2020 kl. 03:41

9 Smámynd: Örn Einar Hansen

Ég spyr, er ástæða þessa mats vegna kommúnista í Evrópu (eigið mat), eða vegna erlendra áhrifa.

Það er ekki nóg að skoða, hvernig farið hefur fyrir Ítalíu heldur þarf maður að skoða forvara og afleiðingar. Til dæmis, þá eru kommúnistar kínverka kommúnistaflokksins að bjóða Ítalíu góða hluti í dag. Getur það verið, að það séiu Kinverjar sem standi að baki halla Evrópu bandalagsins, og bjóða Ítölum og öðrum þjóðum "peninga" til að öðlast á þeim.

Það sem ég á við, er að það er ekki nóg að sjá afleiðingarnar ... maður þarf að skoða, orsakavaldinn ... causa et effectus.

Örn Einar Hansen, 10.4.2020 kl. 06:39

10 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Nú skelfirðu líftóruna úr mér Gunnar.

Ragnhildur Kolka, 10.4.2020 kl. 10:54

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Ekki var það nú ætlun mín að hærða þig. En ég skil samt vel að tveggja ára Hvalseyjardvöl forfeðra okkar hræði.

Annar smá segja það svona á almennum nótum, að þjóð sem þannig er komið fyrir að um það bil 80 prósent hennar fljúgi til útlanda á hverju ári, þurfi bráðnauðsynlega á afvötnun að halda. Enginn ríkissjóður neins lands þolir að 80 prósent þiggjenda hans eyði heilum mánuði á ári í ríkissjóð útlanda. Það er kominn tími til að þjóðin láti renna af sér. Að minnsta kosti sá stóri hluti hennar sem er á hanafæti.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.4.2020 kl. 14:01

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Örn Einar.

Vandræði, hnignun, úrkynjun og mannleg sem efnahagsleg upplausn landa Evrópusambandsins hefur ekkert með Kína að gera. Þarna er um sjálfvíg að ræða. Það eru pólitískt pervertar hugmyndir ókjörinna elíta sem eru og hafa verið að taka þennan litla skaga sem stendur úr úr meginlandi Rússlands af lífi á síðustu 30 árum.

Þessi næst minnsta heimsálfa veraldar fær þriðjaheims niðurgreidda aðstoð í varnarmálum því án hennar er hún varnarlaus hrúga af fyrrverandi fyrrverandi.

En maður finnur sem til með þjóðum Evrópu í Wuhan-veiru faraldrinum. Þarna er allt að fara á hinn versta veg í sumum löndum, sérstaklega þeim sem hafa lent undir niðurskurðarhníf evruupptöku.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 10.4.2020 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband