Leita í fréttum mbl.is

Rósrautt Þýskaland var aldrei rósrautt, er skrifað

Myndskeið Bandaríkjahers: Bandaríkjamenn sem sífellt eru ásakaðir um að hafa "yfirgefið", tja gott ef ekki alla í "Evrópuheiminum", sjást hér hlaða þeim 20 þúsund tækjum og stykkjum um borð í skip í höfninni í Savannah í Georgíufylki, sem þeir senda síðan yfir hálfann hnöttinn til að verja meginland Evrópu. Verið er að lesta risaskipin sem sigla með græjurnar sem taka þátt í Denfender-Europe-20 heræfingunni. Síðan munu skipin leggja að í Þýskalandi og í Póllandi. Um 20 þúsund bandarískir hermenn taka þátt í æfingunni, þar sem Stóra-Bretland fer með næst stærsta hlutverkið á eftir Bandaríkjunum

****

ÞÝSKALAND

Viðbrögð fjölmiðla á meginlandi Evrópu við morðseríunni í Hanau í Hesselandi Vestur-Þýskalands í síðustu viku, hafa verið fyrirsjáanleg að því leytinu sem blaðamenn geta kallast venjulegt fólk, sem þeir eru ekki, eins og sést hefur til þeirra hin síðustu skilnaðarár líberalista og íhaldsmanna á Vesturlöndum. Þeir pólitísku armar skildu eftir að sameiginlegri hjónabandsbaráttu þeirra við alræðisöflin lauk með hruni kommúnismans, nema í Þýskalandi, þar sem hinn gamli flokkur Erich Honeckers mælist nú með 40 prósent fylgi í Thüringen í dag. Og hefur meira að segja bætt við sig heilum níu prósentum frá því í kosningunum þann 27. rauða október síðasta haust

Þannig segja til dæmis ítalskir blaðamenn Corriere della Sera, í hóflegri fjarlægð frá þungamiðju þýska pendúlsins sem sló nýjum efnahagslegum miðöldum yfir Ítalíu á síðustu 30 árum, að eitthvað sé rotið í Þýskalandi, og nefna "hugmyndafræðilegt deleríum" sem orsakavald. Ha?, sagðirðu hugmyndafræðilegt deleríum, og síðan kannski tremens í Þýskalandi? Þér getur varla verið alvara, blaðamaður góður. Slíkt gerist aldrei í Þýskalandi. Ertu frá þér!

Dagblaðið Die Tageszeitung, sem er málgagn ný-vinstris burgeisagræningja í hverfi í Berlín, segir að sprungur séu komnar í sjálfsmynd Þýskalands og að landið hafi aldrei verið eins vingjarnlegt né "líberal" og Þjóðverjum hafi langað til að halda. Síðan er náttúrlega internetið nefnt til sögunnar sem framköllunarvél morðingjans. Þjóðverjar eru nefnilega að uppgötva að til eru tæki sem heita tölvur, þessi árin

Hér þarf að skjóta inn leiðréttingum: Leiðrétting-1: líberalismi er hægfara vinstrimennska. Leiðrétting-2: lönd eru ekki vingjarnleg, heldur fólkið sem í þeim býr. Þjóðverjar hafa alltaf verið mjög vingjarnlegir við mig og mína, en ég er náttúrlega hvorki geimvera af himnum Merkels yfir Sýrlandi né Ameríkani

Fleiri fjölmiðlar á meginlandinu skrifa um morðin og kenna "hægrisinnuðum öfgamönnum" um þau og Hitler gamli er dreginn upp úr skúffum skyldurækni og fávisku. Þó hefur enn ekkert komið í ljós sem bendlar morðingjann við þýska sósíalista né sósíaldemókrata, því Adolf Hitler var sósíalisti sem bauð fram undir merkjum hins Þýska verkamannaflokks þjóðarsósíalista: þ. Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei, með rauðum fána eins og verkalýðshreyfingin og með svörtum hakakrossi á hvítum bakgrunni. Ríki hans hefði orðið nákvæmlega eins og Austur-Þýskaland varð undir flokk Ulbricht og Honecker, sem nú eru með 40 prósentin í Thüringen. Afar fróðlegt er að lesa um hina pólitísku greiningu Sebastian Haffner á stjórnmálamanninum Hitler í bókinni Anmerkungen zu Hitler, þar sem niðurstaða hans er einmitt þessi. Þykir sú greining hans sú mest allsgáða sem gerð hefur verið á kanslaranum með rauða fánann

Ég tek hins vegar meira mark á evrusjúklingnum Wolfgang Munchau, en á flestum blaðamönnum varðandi Þýskaland nútímans, því hann hefur frekar á þurru hugmyndir sínar um landið sitt Þýskaland, og álítur það að miklu leyti misheppnað ríki, sem það vissulega er

Þannig skrifar Munchau í tilefni af ræðu þýska forsetans (og sósíaldemókratans) Frank-Walter Steinmeier við minningarathöfnina um Helförina í Ísrael um daginn (ræðan var áfall fyrir Þjóðverja), að hin landlæga andúð á Gyðingum í Þýskalandi hafi tekið þeim breytingum að andúð á Bandaríkjunum og kapítalisma sé að verða að minnsta kosti jafn lamandi sterkt afl í Þýskalandi í dag. Munchau segir þann 24. janúar eftirfarandi á vefsetri sínu eurointelligence.com:

"Það er líka Gyðingaandúð í Bretlandi og Frakklandi, en þýska útgáfan er allt annars eðlis, því hún er hvorki bundin við ysta hægrið né ysta vinstrið, heldur liggur þýsk Gyðingaandúð djúpt í öllu þjóðfélaginu. Þýsk Gyðingaandúð er einnig blanda af Ameríkuhatri og anti-kapítalisma, bæði til hægri og vinstri"

Þessu er ég sammála hjá Munchau. Mér finnst einnig að svipuð þróun í Ameríkuhatri og anti-kapítalisma hafi átt sér stað meðal of margra hægfara vinstrimanna sem kenna sig við hruninn og botnfrosinn Sjálfstæðisflokkinn í dag. Á meðan svo er, mun sá flokkur aldrei aftur rísa til íslenskra dáða

Það kemur hvergi fram í máli þeirra blaðamanna sem ég hef séð skrifa um morðin í Hanau, að því austar sem dregur í Þýskalandi, því sterkari verður sú vinstrihreyfing sem Adolf heitinn nærðist á. Og þar virðast því andstæðunum slá hve harðast saman, því Angela Merkel hefur svo gott sem útrýmt því litla hægri sem til var í landinu, nema hjá þeim sem yfirgáfu hana og DDR

En um Þýskaland er almennt það að segja að vonlaust er að reyna að halda heilli þjóð við það efni að hatast við og fyrirlíta fortíð sína og sjálfa sig. Þýskaland verður ávallt föðurland Þjóðverja og það er ekki gerlegt fyrir neinn að láta heila þjóð nærast á því að fyrirlíta sjálfa sig, sérstaklega ekki þá þýsku, því það hefnir sín. Slíkt er bara ekki framkvæmanlegt

Þýskaland verður því um aldur og ævi vandræðaland, því til þess var stofnað á rögnum forsendum árið 1871: þ.e.a.s. það var stofnað sem samkeppnis-kartel dulbúið sem þjóðfélag í furðuríki, svipað og Evrópusambandið er að reyna að vera, en tekst aldrei. Heldur ekki með tilskipunum (diktat)

PS: NATO var stofnað til að 1) halda Rússlandi úti úr Evrópu, 2) Bandaríkjunum inni og 3) Þýskalandi niðri

Hvað gerist næst? Rússland er komið með annan fótinn inn og Bandaríkin næstum út. Þeir sem halda að þetta endi vel, rétti upp hönd (ekki með nasistakveðju þó, heldur bara svona eins og við gerum hér heima)

Fyrri færsla

Merkel hrekkur í DDR-gírinn - Kína og WSJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar!

Takk fyrir Upplýsandi góðan  pistil,Talandi um andúð, hvð gerum við ef að einhver VITLEYSINGUR bíður í partí í stofunni OKKAR? Það eru miklar líkur á því að það komi niður á þeim sem komu inn í stofuna en ekki Klikkhausnum sem bauð.

KV

Óskar Kristinsson, 23.2.2020 kl. 11:01

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar.

Sem upp- og fyrirbyggjandi aðgerð ætla ég að kjósa þá sem vilja að við fáum aftur að hafa stofuna okkar í friði og búa við það öryggi sem við höfðum á okkar eigin þjóðarheimili, og sem barist var svo hart fyrir.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 23.2.2020 kl. 15:32

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Athyglisverð upprifjun á því að alræðisstjórnir eru allstaðar eins.Zentral-Planung og efnahagsstýring eins og núna í Kína.

"Þó hefur enn ekkert komið í ljós sem bendlar morðingjann við þýska sósíalista né sósíaldemókrata, því Adolf Hitler var sósíalisti sem bauð fram undir merkjum hins Þýska verkamannaflokks þjóðarsósíalistaþ. Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei, með rauðum fána eins og verkalýðshreyfingin og með svörtum hakakrossi á hvítum bakgrunni. Ríki hans hefði orðið nákvæmlega eins og Austur-Þýskaland varð undir flokk Ulbricht og Honecker, sem nú eru með 40 prósentin í Thüringen. Afar fróðlegt er að lesa um hina pólitísku greiningu Sebastian Haffner á stjórnmálamanninum Hitler í bókinni Anmerkungen zu Hitler, þar sem niðurstaða hans er einmitt þessi. Þykir sú greining hans sú mest allsgáða sem gerð hefur verið á kanslaranum með rauða fánann."

Hvernig halda menn að Gunnar Smári og Sólveig Anna sjái framtíð íslensks efnahagslífs? Þróun lífskjara og atvinnuhátta? Ég held að þau sjái ekki neitt og hafi engar hugmyndir nema stéttastríð og ófrið við ímyndaða óvini. Gersamlegir örvitar.

Halldór Jónsson, 23.2.2020 kl. 17:20

4 identicon

Takk fyrir enn einn þrumupistilinn, Gunnar.

Það er vert að vara við.

En eitthvað finnst mér Halldór blessaður Jónsson 

ruglast smá í ríminu að ímynda sér örflokk Gunnars Smára og dóttur Jóns Múla sem einhverja ógn.

Nær væri að horfa þar fremur til forheimskunar forystu móðurflokksins sem stígur gæsaganginn

í villtri samkeppni við Viðreisn, Samfylkingu og Pírata.  Hláleg í gæsagangsstimplandi ESB reglugerðaflóði og orkupakka djöfulmóði.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.2.2020 kl. 17:57

5 identicon

Og

Gleymum ekki þætti Gulla litla

í "mannréttindaráði" SÞ.

Og gleymum ekki heldur þætti Gulla litla

í Marrakesh.

Nei, gleymum ekki leikþáttum Gulla litla 

Kolbrúnar Reykás og raðdómgreindarlausa formannsins sem tókst að setja fyrirtæki upp á

130 milljarða

lóðbeint niður á hausinn, fyrir hrun.

Hann er núna fjármálaráðherra undir forsæti Kola Kötu og forsetastól Þistilfjarðar viðundursins.

Nei, gleymið þeim ekki, kæru sjálfstæðismenn.

Gleymið ekki þeim sem samþykktu OP 3.

Vítin eru til að varast þau.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.2.2020 kl. 19:01

6 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

NATO var stofnað m hagsmuni ROMVRRSK KAÞOLSKU KORKJUNA I HUGA og er fyrst of fremst Vatikanið og hluti af 900 ara valdabrolts Vatikansins .. 

Eg segi nu bara að við her i .. FLOKKNUM .. fognum illum skrefum russnesku þjoðarinnar i att að evropu og megi flokkurinn  vrrða þess aðnjotandi að sja island fyllast af Rusneskum rublum swm flokksmeðkinir taka a moti af miklum eldmoð .. enda eina vonin gegn YFIRSTJORN ROMVRRSK KAÞOLSKU KIRLJUNNAR A ISLANDI ENDA RR Washington DC ekki nritt annð em ðaðal syjornstoð vatikansibs og rkki að astæðulausu að hofupat NATO aog ESB eru staddar hlið við hlið i evropu.. 

Hvbær ætlar folj að fara að dkilja þetta.!!!!

Kv

Lig

Megit mitmælenda flokurinn lifa !

Hutra  . Hurra .  Hurra ..

Lárus Ingi Guðmundsson, 23.2.2020 kl. 19:23

7 identicon

Menn verða að átta sig á að Sjálfstæðisflokknum er nú stýrt af liberalistum, frjálslyndum vinstrivillingum, sem Gunnar bendir réttilega á.

Í Orkupakka málinu kom skýrt fram að hvert hverfafélagið setti sig upp á móti Op 3.  En hvað gerðist svo?  Hverfafélögin lúffuðu öll fyrir forystunni.

Halldór Jónsson lýsti því vel hvernig þaggað var niður í honum á hverfafundi í Kópavogi.  Honum var meinað að fara í ræðustól.  En samfylkta cccp Villa tókst að yfirtaka fund þar síðar með aðstoð "hælisleitenda". 

Svo fáránlegt er ástandið í Flokknum, Flokki sem hatar forystuna og með forystu sem hatar alla sanna sjálfstæðismenn.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.2.2020 kl. 20:36

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Hægfara vinstriflokkur CDU í Þýskalandi fékk sína verstu útreið í kosningunum í Hamborg í gær. Fékk aðeins 11,2 prósentur atkvæðanna, miðað við 42,6 prósentur 2008.

Þetta er versta útreið sem sá flokkur hefur nokkurs staðar fengið í kosningum í sambandsríki Þýskalands frá og með 1951.

Þarna liggur allt í rúst - eins og hjá xD-icesave- og orkupakkasetuliðinu í Valhöll hér heima, svo ekki sé minnst á persónuverndar- og gagna-frankenstein-ESB, sem sá flokkur skreið sem ánamaðkur upp úr jörðinni og lét brytja sig og tæknigeira-tækifæri Íslands í parta fyrir.

Algjör útskúfun og fyrirlitning kjósenda.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.2.2020 kl. 08:42

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Opinn landamæri ESB og Schengen-heilastöppunnar fagna þessum degi í dag, þar sem kínversk-framleidd veira hefur nú frítt spil við að bjóða fólkinu í opinn dauða þeirra. 

Flugfélög Evrópu halda upp á daginn með því að bögglast saman eins og tómir loftbelgir á hlutabréfamörkuðum og taka evrópska banka mér sér í fallinu.

Easy Jet: mínus 13,8 %

Ryan salernislaust Air: mínus 10,8%

Air China (loftið Kína): mínus 9,6 %

Air France KLM: mínus 9,4%

Lufthansa: mínus 7%

SAS: mínus 5,5%

DBK (Deutsche Bank): mínus 4,5 %

BRN Norðursjávarolían: mínus 4,7 % fatið

Gunnar Rögnvaldsson, 24.2.2020 kl. 13:20

10 identicon

Sæll Gunnar.

Það er varlegt að
láta sér skreiplast
á þeirri skötu sem Gunnar Smári Egilsson er!

Hann er frábær og einstakur skipuleggjandi
hvað svo sem mönnum kann að finnast um
stundargrið afreka hans.

Ég efast ekki um það eitt andartak
að sósíalistaflokkur hans og Sólveigar Önnu Jónsdóttur
MUN fá kjörna fulltrúa í næstu kosningum.

Vitlausast af öllu vitlausu er að vanmeta
þá sem við er að eiga hverju sinni.

Heiðra skaltu skálkinn!!

Húsari. (IP-tala skráð) 24.2.2020 kl. 15:00

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlit og skrif Húsari.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.2.2020 kl. 08:14

12 identicon

Innbyrðis átök vinstrivillinga, hvort heldur þar er um að ræða Valhallar forystuna, Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna eða Gunnar Dmára og Sólveigar, skipta litlu máli fyrir okkur sjálfstæðis- og íhaldsmenn. 

Fyrir okkur verður mestu, og öllu máli að skipta, að standa sameinaðir um valkostinn við vá þeirri sem af brusselskri þjónkun vinstrivillinganna stafar gagnvart hagsmunum lands okkar og þjóðar, sjálfstæðis og fullveldis.

Sá valkostur okkar virðist nú aðeins einn vera og er það Miðflokkur Sigmundar Davíðs og er það okkur engin vorkunn, nema síður sé, að styðja hann. Davíð Oddsson hefur margsinnis gefið slíkt í skyn.  Mér hugnast það vel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.2.2020 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband