Leita í fréttum mbl.is

Kínverski einræðisherrann, xD-fráherrann, og Brexit

KÍNA

Einræðisherra kínverska veiruveldisins reyndi í ræðu um helgina að ljúga sig frá verustað sínum sem abtraksjón í málum þjóðar sinnar. Hann sagðist þvert ofan í útkomnar opinberar flokksyfirlýsingar hafa tekið kórónuveirumálið yfir þann 7. janúar í stað 20. janúar, eins og fréttamiðlar kommúnistaflokksins höfðu áður tilgreint, á meðan "allt er í stakasta lagi" merkið blakti við hún flokksins, sem einnig er veira. Þar með er einræðisherrann orðinn bæði hluti og hraðall vandamálsins sem hann nú reynir að kenna öðrum og lægra settum um. Þeim í landinu sem gagnrýna einræðisherrann í veirumálinu er miskunnarlaust þaggað niður í með því að kommúnistaflokkurinn kemur þeim fyrir í einangrun, sem orðin er svo víðtæk að 760 milljón Kínverjar hafa nú verið settir í farbann og einangrun. Þar hírast þeir á meðan kórónuveira kommúnistaflokksins sótthreinsar landið af þið vitið hverju. Heimildum til eignaupptöku hefur einnig verið komið fyrir hjá flokksapparatinu

EKKERT-LANDIÐ

Þetta er hið margrómaða millistéttarfélag Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra. Stjórnmálamanns sem áunnið hefur sér réttindi sem verkalýðurinn í utanríkisráðuneyti í málefnum Kína en ekki Íslands. Frú Mannbjörg á loftinu í ráðuneytinu tekur sig af ástandi Filippseyja á meðan Guðlaugur Þór laugar sig í kínversku millistéttinni

Það virðist koma svona sérfróðu kínafólki ráðuneyta afskaplega á óvart að það vilji svo til að einræðisríki kommúnismans í Kína hafi verið og er enn einn helsti óvinur hins frjálsa hluta veraldar. Það kemur Trump Bandaríkjaforseta hins vegar ekki á óvart, því nú hyggst hann leggja sölu á örgjörvum og þotuhreyflum til Kína á ís og jafnvel banna slíkt

ÍSLAND

Á meðan var Miðflokknum hér heima kennt um hot-lips varaafl ráðherra Ósálfstæðisflokksins í orkumálum. Hinn ráðherra flokksins þornar nú sem strekkt skinn á sundurskotinni barhurð flokksins í abstrakt hælismálum. Strekkist hún þar í takt við leðurblak kommissars herra Ímat Úrmat í Brussel. Þannig hefur allur EES-samningurinn þornað upp líka. Og öll skotin í barhurð ósjálfstæða flokksins hafa því miður komið innan frá

HUGSIÐ YKKUR!

"It is central to our vision that we must have the ability to set laws that suit us," Frost said. "To think that we might accept EU supervision on so-called level playing field issues simply fails to see the point of what we are doing." – David Frost 17. febrúar 2020Reuters

Svo virðist sem að kaldur hrollur sé að byrja að hríslast um skilningsvana ráðamenn Evrópusambandsins vegna Brexit. Þeir eru byrjaðir gera sér ljóst að skilningarvit þeirra hafa aldrei virkað. Svo er nefnilega í Brexit pottinn búið að aðalsamningamaður Bretlands í útgöngumálum, David Frost, kveikti á einni einfaldri ljósaperu í hinum lokaða esb-heimi gær. Það gerði hann með því að segja efnislega að Bretland fór út úr Evrópusambandinu vegna þess að það er vont fyrir ríki að vera þar. Það er vont fyrir ríki að missa fullveldi sitt og það er vont fyrir ríki að missa sjálfstæðið. En það sem er allra verst er að þurfa að kyngja lögum sem við Bretar sjálfir höfum ekki að fullu samið sjálfir og sem gilda bara fyrir okkur í okkar eigin landi. Það er með öðrum orðum algerlega óásættanlegt að missa löggjafarvaldið úr landi

Við erum að yfirgefa Evrópusambandið til þess að aðeins okkar eigin lög gildi í okkar eigin landi. Við þolum ekki að lög Evrópusambandsins gildi í Bretlandi. Við erum því ekki að fara úr Evrópusambandinu til að fá neinn "annan samning" við það um eitt né neitt. Við erum að fara þaðan út til þess að við sjálfir ráðum því hvernig viðskipti við eigum við önnur lönd. Það kemur aldrei til greina að við gerum viðskiptasamning við Evrópusambandið á þeim forsendum að við þurfum að samþykkja lög þess og reglur. Þeir sem skilja þetta ekki, skilja ekki neitt. Við erum farin. Og þegar við erum farin þá gerum við á ný viðskiptasamninga við önnur lönd án þess að gangast undir lög þeirra og reglur. Viðskipti eru bara viðskipti. Þeir sem vilja ekki eiga viðskipti við okkur á þeim forsendum sem við viljum semja um, þeir geta þá gert það undir skilmálum WTO. Takk fyrir þetta Frost. Svona frost líkar mér!

Bretland getur þar með náð sínu samningsmarkmiði sjálft á eigin spýtur, á meðan Evrópusambandið getur ekki náð sínu samningsmarkmiði, nema með aðstoð Bretlands. Mikilvægt er að hafa þetta í huga

Ekkert land í Evrópusambandinu né Brusselelítan getur stöðvað innflutning landa sambandsins frá Bretlandi á WTO skilmálum (WTO er Alþjóðaviðskiptastofnunin). Og vert er að geta þess að Bretland er stærsti einstaki útflutningsmakaður Þýskalands

Samningsmarkmið Bretlands er einfalt og á bak við það er fullur pólitískur vilji landsins. Það gengur ekki út á að viðhalda nú þegar orðnu flæði viðskipta á milli þess og Evrópusambandsins. Það gengur út á að bresk lög, breskar reglur og fullveldi komi ofar milliríkjaviðskiptum. Ef með þarf, er Bretland viljugt að fara út án nokkurs sérstaks samnings við Evrópusambandið um eitt né neitt; þ.e. fara í svo kallað hart Brexit

Við fullveldismenn Íslands gerum sömu kröfur. EES gengur ekki lengur fyrir lýðveldi vort. Það sjá allir sem augu hafa. Það fyrirbæri er að enda í algjörum og óásættanlegum óförum - fyrir okkur Íslendinga!

Fyrri færsla

Loftslagsmálin eru trúarbragðastríð nútímans


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Fari Bretland út án þess að gera neinn sérstakan samning við ESB um eitt né neitt, það er að segja fari það með hart-Brexit-leiðinni, þá hefur breska þingið reiknað út að allt í allt verði tollareikningurinn til Bretlands ekki nema 6 milljarðar punda á ári.

Ég veit ekki hvort að um nettóupphæð er að ræða því Bretland mun þá að sjálfsögðu innheimta tolla á vörum frá ESB-löndum í staðinn. Sé þetta skoðað í hlutfalli við nettógreiðslur Bretlands til Evrópusambandsins á meðan það var og væri enn aðili að því, sem eru 15 milljarðar punda á ári, þá er ljóst að um smákökur er aðeins að ræða.

Fullt frelsi til að ráða sinni eigin löggjöf, regluverki og umfram allt, efnahagslegri strategíu (e. economic regime + economic regime shift eins og Boris Jonhson er að undurbúna núna) er það sem Bretland er að sækjast eftir með Brexit, þ.e. fullur sjálfsákvörðunarréttur þjóðar.

Í því sambandi er þessi tala (6 milljarðar á ári) hreint hlátursgas sem endast mun til hláturs þjóðarinnar í að minnsta kosti þúsund ár.

Gunnar Rögnvaldsson, 18.2.2020 kl. 21:19

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Rétt eins og glaðloftið hér sem mun leika um íslensku þjóðina,þegar menn eins þú hafa slitið sambandinu við EES/esb; 

Helga Kristjánsdóttir, 19.2.2020 kl. 01:12

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Helga.

Bretland gæti látið ESB hafa smá skammt af hlátursgasinu til að létta þeim lífið. En bara með þeim ófrávíkjanlegu skilyrðum að öll lönd Evrópusambandsins verði að þá að taka upp alla löggjöf Bretlands eins og hún leggur sig. Annars sé ekki hægt að eiga viðskipti við þau.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2020 kl. 13:36

4 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! Þessi var góðurcool

Óskar Kristinsson, 19.2.2020 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband