Leita í fréttum mbl.is

Loftslagsmálin eru trúarbragðastríð nútímans

ÓÁÞREIFANLEGT LOFT

Sjálfstæðisflokkurinn ýtir kristinni trú frá sér og þjóðríkinu sem hún byggði upp, og tekur nýja trú sem hann heyir nú trúarbragðastríð fyrir. Þar með gerist flokkurinn fánaberi og gangandi sönnunargagn fyrir tilgangsleysi hans sjálfs og þeirrar menntunar sem skattgreiðendur á Íslandi hafa greitt fyrir til handa forystu flokksins og þingmönnum. Flokkurinn hefur þar með sagt skilið við nútíma (e. modernity) sem er afrakstur kristni, og gert sjálfan sig að stjórnmálaafli ríkis-sértrúar á borð við isma 20. aldar (kommúnisma, sósíalisma, nasisma og samrunaisma esb+ees). Sést það nú langa vegu að á ferli flokksins síðustu ellefu árin

Hvar skyldu næstu nothæfu hindurvitni opinbera sig. Skyldi ný lægð eða hæð vera á leiðinni. Koma þær ekki í DDRÚV. Hvar skyldi kvikna í heilögu tré næst. Hefurðu séð nýju hitamælana. Fæ ég ekki styrk út á þetta. Hér geta allir verið með og fengið peninga út á það. Stofnum nýja loftslagstrúardeild

Hægfara vinstrimennska* lofslagstrúarbragða, sem í daglegu felutali er kölluð "frjálslyndi" eða "jafnaðarmennska", passa því orðið best við hraðfara vinstrimennsku ofsatrúarhrópsins sem Vinstri grænir standa fyrir, sem æðstu loftslagsmálaprestar. Trúarbragðastríð er það sem venjulegt fólk þolir ekki við hámenntaða stjórnmálamenn. Sjálfstæðisflokkurinn ætti því að taka lokaskrefið og skilja sig alveg frá íslenska ríkinu og ganga í ríkislaust loftslagsríki Sameinuðu þjóðanna á himnum uppi. Ekki mun jarðsamband flokksins minnka við það, því í dag er það ekkert, enda er flokkurinn ekki kosinn. Hann er stiginn upp af kjörseðlinum

* (© Matthías Johannessen)

Fyrri færsla

Er Eitt-Kína hrunið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góður sem fyrr Gunnar! Datt í hug eftir bráð fyndið niðurlag pistils þíns,gamalt alþýðumáltæki; "Sá skal fá að heyra það"- áhrifaríkt ef það gæti orðið, helst í sjónvarpi allra landsmanna þar sem nær hvert mannsbarn hlustar á og ráðamenn væru ekki varðir af spyrlum til að komast hjá svörum. 

Helga Kristjánsdóttir, 15.2.2020 kl. 17:43

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka fyrir þér Helga.

Flokkurinn mun að minnsta kosti fá að heyra það frá mér og mínum næst þegar kosið verður.

Sprenghlægilegt yfirbótarbréf frá orkupakkaþingmanni Sjálfstæðisflokksins birtist sem grein í Morgunblaðinu í dag. Korteri í kosningar stingur hann hausnum út um hænugatið, standandi á hinu gamla ESB-hænupriki Þoreisteins, Þoruppgerðar og Benedikts evrusvitabols, og talar um að tími sé kominn til að gera eitthvað. Beðið eftir tímanum, hefði greinin með réttu nafni átt að heita.

Flestir hafa sennilega rifið greinina úr blaðinu til að halda því á þurru réttu megin við manngert ermasund þingmannsins.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 15.2.2020 kl. 19:09

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Alltaf tíðrætt um tímann til að hefjast handa eins og fyrirrennarnir á hænu prikinu; "Og hana nú" gaggar hænuskarinn.   

Helga Kristjánsdóttir, 15.2.2020 kl. 22:01

4 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Loftslagsnefnd sjallanna gæti líka komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að slíta okkur frá kolefniskirkjunni er það ekki ?

Guðmundur Jónsson, 16.2.2020 kl. 12:07

5 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar! Og takk fyrir þína ómetanlegu pistla.

Mér BRá þegar eg sá þessa nefnd sem sjálfstæðismenn voru að sitja á koppinn, með einhverja óþjóðhollustu manneskju innanborðs, og hún stendur einnig fyrir gruflinu í stjórnarskránni.

Þú talaðir um hámenntaða menn, ekkisýna þeir margir þarna á þingi að þeir séu hámenntaðir,nema þá í að SVÍKJA og PRETTA sýna eigin þjóð.

Forsætistrúðurinn komin með frasa í sambandi við fárviðrin hérna,hún lokaði þverrifunni þegar hún var að svíkja orkuna okkar undir ESB.

KV

Óskar Kristinsson, 16.2.2020 kl. 14:15

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Guðmundur og þakka þér fyrir Óskar.

Kæri Guðmundur.

"Loftslagsráð Sjálfstæðisflokksins" hljómar eins og allskyndilegt og hvellt Samyrkjubófaráð Sovétríkjanna, með doktorsritgerð hægfara vinstrimanna að vopni; Gott er að láta berja og ræna sig.

Þessi ees-forysta Sjálfstæðisflokksins mun aldrei, ég endurtek, aldrei gera neitt sem tengst getur hugtakinu sjálfstæði á nokkurn hátt, hvorki í hugsun né gjörðum. Fólk verður að hafa í huga að þetta eru einna raðbiluðustu stjórnmálamenn Íslandssögunnar, með formann sem er yfirraðbilaður tómhyggjuhöfðingi. Það er einnig mjög svo ills viti fyrir flokkinn að Landsfundur hafi kosið bankalegan og yfirraðbilaðan tómhyggjuhöfðingja með búmerkið Toys r us eitt að vopni árið 2009, þegar slíkt mátti alls alls ekki gerast. Það eru ekki meðmæli með neinum ráðum flokksins. Það var hugleysi!

Bara það eitt að hafa stigið með svo mikið sem eina litlu tá inn á þetta loftslagskirkjuloft sögulega sannaðra og vangefinna vinstrikjána, sýnir það.

Og þar sem nær allir vinstriflokkar á Vesturlöndum hafa viðurkennt að sjálfsköpuð geldneytis-demógrafía í löndum þeirra sé orðin þannig -og verði þannig um langa tíð- að "ungt fólk" á Vesturlöndum sem kjósendur mun hvergi geta borðið vinstrið uppi, þá er það til marks um tótal-kaskótryggða-firru svo kallaðrar forystu Sjálfstæðisflokksins, að hann sé yfir höfuð að reyna að gera út á þau örfoka fiskimið vinstrimanna. Þarna sannast enn og aftur hve forysta flokksins er raðbiluð og flokksstútandi full af barna- og bjánaskap.

Öllum er óhætt að afskrifa þennan flokk á meðan þetta fólk sem þar er núna, er þar sem það er. Því miður.

Þetta er algerlega glatað dæmi þessi flokkur, svo lengi sem fyrir honum stendur þetta fólk. Formaðurinn liggur sem tyggjóklessa á gangstétt og í kringum hann eru einungis enn fleiri sambærilegar tyggjóklessur.

Flokkurinn er orðin miðstöð hinna clueless og 77-80 prósentur þjóðarinnar neita því að kjósa hann. Sú tala gæti hæglega hækkað í 85 prósentur í næstu kosningum, því þróunin liggur einungis í þá átt, eða næstum þráðbeint yfir í meginland taparanna, því þetta eru jú krónískir taparar eins og kjörtölurnar sýna og sanna.

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn galematískur flokkur í höndum örfoka forystu: hann er orðinn galeanstalt miðað við fyrri tíma.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.2.2020 kl. 17:46

7 identicon

Hárrétt Gunnar

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn vitleysingastofnun, "galeanstalt"

sannkallaður Vitleysingaflokkur.

Og nú jarmar Þórdís Reykás um að kanna verði á fullu gasi með sæstreng

því Orkupakki ESB sé nú orðinn gullrassa stimplaður af öllum þingmönnum Vitleysingaflokksins.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.2.2020 kl. 00:26

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Því miður verð ég að gefa þér rétt í þessu.

Ég vissi náttúrlega að ekkert væri að marka það sem þjóðsvikulir þingmenn flokksins sögðu í orkupakka málinu. Þar er meðal annars einn helsti tilgangurinn með skríðandi samþykkt pakkans að koma fjárfestingum í orkufrekum iðnaði í uppnám, og helst fyrir kattarnef.

Plebbahöllin lætur ekki að sér hæða.

Og ekki batnar skap mitt við lestur greinar Tómasar Inga Olrich í Mogganum í dag. Hvílíkar erkigungur sem þetta eru. Þær ná varla byggingarstigi fullbúinnar fuglahræðu!

Við hefðum aldrei orðið fullvalda og sjálfstæð þjóð með þessar fuglahræður við völd. Enda þekkti Jón Sigurðsson til svona fólks og vissi vel hvernig það var innréttað - og er því miður enn.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 17.2.2020 kl. 09:22

9 identicon

Þeir sem enn hanga í Vitleysingaflokknum, en forakta hann, eru ekki bara vitleysingar ... þeir eru gungur og druslur, hugleysingar að auki, að segja sig ekki úr flokki sem þeir fyrirlíta núorðið.  Oft hef ég heyrt sagt að Valhallar vit-og siðblindingjaflokkurinn sé skipulögð glæpasamtök gegn landi og þjóð.  Það hefur sært mig í gegnum tíðina að heyra fólk segja svo, en það særir mig ekki lengur, enda er hann það augljóslega. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.2.2020 kl. 09:36

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Forystan er ónýt, og hún skaðar flokkinn. Það sáu menn til dæmis ágætlega á muninum á Theresu May og Boris Johnson. Sjálfstæðisflokkurinn hefur engan leiðtoga og enga forystu. Bara villuráfandi fólk sem ætti að fá sér vinnu sem embættismenn, eða skipta um flokk og ganga í Samfylkinguna og útibú hans í Viðreisn. Annars deyr flokkurinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.2.2020 kl. 10:28

11 identicon

Það er ekkert sem bendir til að forystu flokksins - og þar með öllum OP 3 þingmönnum flokksins -  verði skipt út.  Flokkurinn er dauður.  Handónýtt vörumerki, sem vekur einungis viðurstyggð í huga fyrrum kjósenda flokksins.  Svik og prettir.

Flokkur sem svíkur eigin landsfundarályktanir og marg-ítrekað brýtur stjórnarskrána, það er flokkur sem vekur viðurstyggð í huga yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar.  Flokkurinn er dauður, rotið og maðkað hræ.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 17.2.2020 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband