Leita í fréttum mbl.is

Brexit-samningur Borisar blessaður í þinginu

George Friedman um vanskapninga (les. ESB) og ferli fæðinga og dauða. Gildir um stjórnmálaflokka líka. Halló xD!. Eftir nokkur ár verður litið á lofthitasinna sem eins konar nýkommúnista eða nýnasista á borð við hið MeToo-réttarfarslega Klask-Klan. Og eins og ég margsinnis hef bent á, er tími örgjörvans liðinn. Hann og allt sem honum fylgir af t.d. sjálfkeyrandi rugli, AR og 5G, er orðið álíka spennandi fyrir hagkerfi og fjárfesta eins og bíllinn var orðinn 1965. Rafbíllinn er til dæmis neyðaröskur frá bransa sem er að detta inn í tímabil og tekjumöguleika tómatsósuframleiðandans. Enginn áhugi, bara Zzzzz - þrátt fyrir pyntingar hinna sprenghlægilegu stjórnmálamanna, sem næstum alltaf fatta allt síðastir, enda "nýsköpunar"-sérfræðingur í að brenna peningum. Það sem hins vegar er nýtt, er hraði heimsku stjórnmálamanna

******

Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands vann afgerandi sigur í dag. Neðrideild þingsins lagði blessun sína yfir samkomulagið sem hann gerði við pólitísk höfuð á meginlandinu um útgöngu Bretlands af ömurlega Evrópusambandinu

Þann samning kynntu kyndlarar kjötkatlaveldis vinstrimennskunnar á DDRÚV sem verandi þann sama og Theresa ESB May kom skríðandi með hattinn í hendinni heim frá Brussel. "Sérfrótt" DDRÚV sagði nefnilega á fullum launum hjá þjóðinni að ekkert hefði breyst. Er það fréttaafflutningur sem er fullkominn skandall fyrir heila þjóð að þurfa að búa við og að halda uppi. Þannig er flest hjá kommafréttastöð DDRÚV; vinstripólitískur áróður og fís (d. viðrekstur|uppáhalds lofttegund DRRÚV)

"Lawmakers endorse prime minister’s divorce agreement with EU but won’t rush to meet Oct. 31 deadline" - var Wall Street Journal fljótt til að slá upp á forsíðu sinni

Á aðeins þremur mánuðum hefur Boris Johnson tekist að semja um nýja og –var sagt– "ófáanlega" skilnaðarpappíra við Evrópusambandið og að sannfæra meirihluta þingsins um ágæti þeirra. Einn góður maður breytti öllu fyrir land sitt og flokk

Eftir er sem áður að ná samkomulagi um tímasetningar og að vissir þingmenn víki af sýndarþvaðursbraut sinni og komi vilja þjóðarinnar til framkvæmda. Búmerang sýndarmennsku þeirra er farið að hitta þá sjálfa í bakið núna, því breska þjóðin er farin að fyrirlíta þá. Þess vegna fór atkvæðagreiðslan eins og hún fór í dag: 329 fyrir Boris, gegn 299, sem er mun betra en jafnvel bjartsýnismenn þorðu að vona

Til hamingju Boris Johnson. Þú hefur þjóð þína í bakið, svo mikið er víst. Og það þola andstæðingar þínir ekki. Þeir þola ekki að þú starfir fyrir þjóðina og hlýðir hennar kalli, en ekki þeirra

Hvað getur enn farið úrskeiðis? Margt, því svikahrapparnir sem þola ekki þjóð sína sitja og reyna á þingi enn

Fyrri færsla

Pútín kominn með sitt eigið Tjernobyl?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Þakka þér góðar fréttir Gunnar!

Það er allsstaðar setið á svikráðum, Hjá okkur er hér um bil heilt þing og sennilega stór hluti embættismanna að brasa í að svíkja þjóð sína.

Og við getum bara ekkert gert? Bara borga fyrir ligafréttirnar.

Óskar Kristinsson, 22.10.2019 kl. 23:03

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar.

Já prinsippákvörðun breska þingsins um að samþykkja það sem Boris kom með heim, eru heldur betur fréttir.

Að síðari atkvæðagreiðslan í dag (um tímasetninguna) tapaðist, var hins vegar viðbúið.

Já já. Þriðji orkupakki ESB fer inn í Íslandssöguna  sem enn eitt samsæri þingsins gegn þjóðinni.

Skömm xD er mikil og fer sífellt vaxandi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.10.2019 kl. 23:46

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sjálfstæðisflokkurinn er í sömu sporum í dag og greiningardeild banka sem lögð hefur verið niður, sökum þess að hún er ekki lengur það sem eigendum bankans og fólki almennt finnst skipta máli. Aðeins fámennur hópur hefur áhuga á því sem frá henni kemur.

Það var fatal error að flokkurinn skyldi kjósa eins konar hálffreðinn forstöðumann greiningardeildar sem formann sinn, akkúrat þegar ekki átti að gera það. Það sýnir hversu innviðir flokksins eru að miklu leyti illa tengdir veruleikan fólksins í landinu, og líka hafðir að engu.

Og það fær mann til að efast stórkostlega um framtíð flokksins. Einn rangur maður á röngum stað getur orðið að dauðadómi. Og endalaust bætist klúðrið við það hlaðborð af rað-dómgreindarskertum mistökum sem formaðurinn hefur skellt þar upp á, en sem enginn vill borða né lítur við. Það síðasta var í fréttum í gær: auðssöfnun báknsins!

Flokksforystan er öll úti að aka, alla daga ársins. Krónískt. Þarna er varla nein von lengur.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2019 kl. 02:15

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það liggur við að manni sundli, þau skipti sem reynt er að horfa á fréttir ruv.

Í lok síðustu viku héldu fréttamenn stofnunarinnar því fram að samningur Borisar væri samhljóða samningi May. Í sama fréttartíma var viðtal um efnið við Eirík ESB Bergmann, sérlegan ráðgjafa stofnunarinnar um málefni sambandsins, þar sem hann hneykslaðist á því að Boris hefði ætlast til að þingmenn samþykktu þennan samning, að þeir hefðu ekki einu sinni haft tíma til að fara yfir allar þær þúsundir blaðsíðna sem hann hljóðaði upp á!

Frekar ruglingslegt, svo ekki sé meira sagt.

Gunnar Heiðarsson, 23.10.2019 kl. 08:42

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér nafni Gunnar.

Já akkúrat. Vinstri hönd veit ekki hvað spastískur vinstrifóturinn gerir.

Ef líkja ætti fréttastofubákni DDRÚV við eitthvað þá dettur manni helst í hug Kristjaníubúi sem fóðrar þá sem  standa úti á Nörrebro með múrsteinum sem síðan er hent í borgarana sem halda þeim uppi, á meðan haldið er á ávísuninni frá þeim í hinni hendinni inni í Kristjaníu.

Að þessi stofnun skuli enn liðin anno 2019 er hreint ótrúlegt. Væri DDRÚV lagt niður þá fengjum samkeppni sem ekki er hægt að viðhafa svo lengi sem DDRÚV er á lífi.

Ókjörinn Fréttavinstriflokkurinn-DDRÚV er algerlega óþolandi fyrirbæri í landinu.

Og nú ætlar kommalilja Framsóknar að byggja heilt sovétríki í kringum DDRÚV. Tilvist Ríkisútvarpsins kallar á og krefst byggingu heils sovétríkis.

Þetta er lagaheimspekin sem liggur að baki ESB, EES, ECJ og dóma hans og túlkana, og hún er komin frá gömlu sovétríkjunum og hæstarétti þeirra.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2019 kl. 12:15

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það nýjasta í brexti-málum er að Macron sé hugsanlega til viðræðu um nokkurra daga frest, en ekki meira.

En ef að fresturinn sem Brussel veiti verði hins vegar lengri en það, þá muni það leiða til þess að Bretland fari úr úr ESB þann 31. janúar án samnings (hard brexit), sem er draumastaða stórs hluta þingmanna Íhaldsflokksins.

Í millitíðinni færu fram kosningar í Bretlandi sem Íhaldsflokkurinn myndi vinna, en samt með of litlum meirihluta, sem leiðir til þess að þingið er enn ófært um að afhenda þjóðinni Brexit sem inniheldur neitt meira en WTO-skilmála. Og þá fer Bretland út án samnings við ESB. 

Ekki var kosið um neitt annað 2016 en algjöra brottför.

Hvort að Nigel Farage og flokkur hans nái að rísa upp í þeim kosningum, veit ég ekki frekar en neinn annar. Það er það sem Buffet gamli kallar "not knowable".

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2019 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband