Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin komin á gráan lista - sá svarti handan við hornið

GRÁI LISTINN MUN SORTNA

Ríkisstjórn Íslands hefur verið sett á gráan lista vegna grunsemda um að alþjóðlegt fjármálaþvætti fari fram í lögsögu hennar, sem er þjóðarbú Íslendinga. Ruglið um gagnaverin með skröltandi hörðum diskum þar sem einn til fimm maður fékk vinnu við alþjóðleg glæpaverk, gagnast henni svona vel. "Nýsköpun" er töfraorð getulausra ráðherra ríkisstjórnarinnar þessar vikurnar á framfærslu skattgreinda, en sem örsjaldan skapa neitt nema vandræði heldur bara eyða

Gott bókasafn um nýju Loftslags-Sovétríkin, og þau gömlu líka, er mun betri, arðbærari og brautryðjandi hugmynd en skröltandi gagnaver til glæpa

Svarti listinn bíður hins vegar, því fjármálaráðherrann Bjarni Ben meldaði Ísland inn í AIIB-helvíti Kínverska kommúnista flokksins, sem:

  • Brotið hefur kerfislega öll alþjóðleg lög og reglur á sviði verslunar og viðskipta í 40 ár
  • Stolið hefur upphafsréttindum og einkaleyfum í 40 ár 
  • Staflað hefur með því upp viðskiptahagnaði
  • Stundað undirboð með því að selja undir kostnaðarverði til að gera alþjóðlega viðskipavini háða sér
  • Hótað gagnrýnendum með viðskiptabanni, affjárfestingum og útskúfun
  • Stundað gengis- og gjaldmiðilsfölsun í 40 ár
  • Krafist að fá að eigna sér tækniframfarir og uppgötvanir erlendra fyrirtækja sem reyna að eiga viðskipti við Kína
  • Stofnað njósnanet á vesturlöndum sem rænir tækni frá þeim
  • Hótar öllum þeim nágrannalöndum sínum sem hneigja sig ekki í duftið fyrir Kommúnistaflokknum
  • Stundar verstu umgengni í gjörvallri mannkynsögunni við náttúru og umhverfi, fyrir utan Sovétríkin
  • Meira hér

Vesturlandabúar, sem afsaka það þegar íslamistar drepa ritstjórnir vestrænna fjölmiðla fyrir að búa til teiknimyndir, segja hins vegar ekkert þegar Kína hendir milljónum múslíma í gúlag og jafna með jarðýtum grafreiti þeirra við jörðu og loka moskum

Þetta gerir fjármálaráðherra Íslands og ríkisstjórn Katrínar að því sem mun verra er en raðbilaður kjáni

Það eru stjórnarhættir á borð við Bjarna Bens, sem Björn Bjarnason ESB-kommúnisti á að skrifa greinar um í Mogganum, stað þess að skrifa illa um eina manninn sem í 40 ár sýnir hugrekki til að gera eitthvað í þessu, þ.e. Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna. Grettir var ekki sérlega penn maður

SALÓMONSEYJAR

Kína hefur nú þvingað og mútað Salómonseyjum til að slíta stjórnmálasambandi við Taívan. Aðeins leið einn dagur, eða fram til 22. september, þar til að í ljós kom að tæknifyrirtæki í eigu Kínaverska kommúnistaflokksins hefur tekið alla eyjuna Tulagi á leigu undir starfsemi sína, sem er ekki starfsemi frekar en gagnaver

"ANNAÐ ÞJÓÐARATKVÆÐI" ESB-KOMMA

Nýtt brexit þjóðaratkvæði Í Bretlandi kemur ekki til greina - og hefur aldrei komið til greina. Það stunt var alltaf bara pólitískt nasafóður sem rotnir fjölmiðlar á borð við DDRÚV-ESB-komma og BBC hafa reynt að troða upp í saklaust fólk og heimta borgun fyrir

Að ímynda sér nýtt þjóðaratkvæði þar sem spurt yrði að því hvort virða eigi þjóðaratkvæðið frá 2016 eða ekki, er hugmynd sem aðeins getur fæðst á fæðingardeildum esb-kommúnista

Engin önnur formúlering á kjörseðlinum kæmi til greina, nema náttúrlega í ESB-sovétríki. Allar aðrar formúleringar myndu ljóstra upp um annarlegan tilgang þjóðaatkvæðisins og varpa landinu inn í forstig borgarastyrjaldar, sem stofnað væri til af þeim sem þola ekki lengur lýðræði í landi sínu. Oliver Cromwell kæmi þá aftur

Fyrri færsla

Ekkert Ríkisútvarpsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Takk fyrir þessa færslu Gunnar. Vonandi kemur þessi færsla bláeyga barnaskaranum, sem stýrir hér málum, fyrr en síðar fyrir sjónir og þau vakni af þyrnirósarsvefni sínum. 

Og ér segi vona, því ég hef enga vissu fyrir að það gerist.

Ragnhildur Kolka, 20.10.2019 kl. 13:00

2 identicon

Takk Gunnar fyrir þennan afbragðsgóða pistil.  Tek heils hugar undir orð þín og einnig undir orð frú Ragnhildar Kolka.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.10.2019 kl. 15:07

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Von er slæm þjóðaröryggisstefna, því þjóðaröryggisstefnur verða alltaf að byggjast á því versta sem getur gerst. Það átti Bjarni Bens að vita áður en hann tók Ísland með á vitfirrtan vagninn sem rann þarna hjá. Það er engin afsökun að hafa gert þetta vegna þess að aðrir gerðu það. Góðir leiðtogar eiga að vita það. Og þess vegna er Bjarni ekki leiðtogi - því hann lætur leiða sig. Blindur á öllum.

Kalt stríð II er að hefjast og það vissu allir sem hafa meira en eina baun í heilastað. "Viðskiptastríð" er einungis undirtónn þess sem koma skal. Þeir sem sleppa lifandi úr úr Kína með sitt, mega hrósa happi. Glugginn er að lokast og hann opnast ekki aftur þrátt fyrir alla hugsanlega "viðskiptasamninga" á milli himins og jarðar,  sem hægt er að nefna því nafni. Alveg sama hver í Hvítu húsi situr frá og með nú. Ekkert getur stöðvað þá þróun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2019 kl. 22:03

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Pétur Símon.

Gárungar segja að Vinstri grænir hafi haldið "pappírslausan landsfund", þar sem enginn salernispappír var notaður. Vinstri hönd var bara notuð í hans stað.

Eða heldur allur almenningur það ekki; loftslag hvað?

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2019 kl. 22:04

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Í stað pappírs notaði landsfundur Vinstri grænna örgjörvann sem bandaríski herinn fann upp til að leiðsaga kjarnorkuvopnaeldflaugum á skotmörk í Sovétríkjunum. Gott hjá þeim!

Og í stað ljósmyndpappírs til að taka myndir af fundargestum, þó mest sjálfsmyndir, notaði fundurinn stafrænar myndavélar sem bandaríski herinn fann upp til að kortleggja skotmörk og njósna um vopnabúr Sovétríkjanna frá gervihnöttum, og senda síðan sem stafræn merki til jaðrar, í stað þess að henda Kodak filmum niður, sem þeir þó gerðu á tímabili. Gott hjá þeim!

Og ekki nóg með það þá notaði landsfundur Vinstri grænna einnig Internetið sem fundið var upp til að koma rannsóknarniðurstöðum úr kjarnorkusprengingum sem hraðast á milli rannsóknastofa bandaríska hersins. Gott hjá þeim!

Ekkert þessa fann síðasta rauða Loftslags-Sovétríki Vinstri grænna upp, vegna innbyggðs vinstri-ömurleika. Þannig er hið nýja loftslags-sovétríki þeirra líka. Eitt stórt og nýtt sovét.

Ég vona heitt og innilega að gagnageymslur yfirhræsnarafélags Vinstri sovét-grænna með pappírslausan landsfund þeirra innanborðs, þurrkist út, því þá er pappírslaus fundur þeirra úr sögunni fyrir fullt og allt. Engin mannleg vera myndi sakna neins. Gott hjá þeim!

Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2019 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband