Leita í fréttum mbl.is

Að velja á milli alls eða einskis

HRUNDANS II

Brandarakarlar dagsins tala um að velja þurfi á milli Kína sem virðir ekki grundvallarmannréttindi 1400 milljón borgara sinna, og hins vegar þeirra sem búa svo vel að geta krafist 16 salerna fyrir 16 ekki-kyn; en sem á sama tíma reyna allt hvað þeir geta til þess að grafa undan því frelsi sem þeir anda að sér á meðan þeir gera þarfir sínar yfir landið okkar á 16 salernum hver

Hér er lokauppgjörið þegar árangur frelsisins er gerður upp á markaðsvirði

WSJ DS 8 okt 2019 - Stock market capitalization
Mynd Wall Street Journal Daily Shot október 2019: markaðsvirði innlendra fyrirtækja í kauphöllum veraldar

****

Og hér er síðan markaðsstærðin sem reynt er að gera þarfir sínar yfir með því að halda kyndli kínverska kommúnistaflokksins á lofti hér heima. Bara einkaneysla bandarískra heimila ein og sér er stærri en allt hagkerfi kínverska fangelsisins, sem 1400 milljón manns í þrúgum reiðinnar munu ganga svo kyrfilega frá, að það mun annað hvort verða nýtt allsherjar gúlag á borð við það sovéska sem 16-salernaliðið í kommahöllum Íslands dáði og dýrkaði þar til það hrundi; eða þá að það mun brotna upp í sjálfstæðar öreindir sínar með sitt hvoru kerfinu; og brjótast innbyrðis um á banaspjótum þar til ekkert er eftir handa Gulla orkupakka-graskeri og EES-klámmyndaframleiðanda Sjálfstæðisflokksins á líknardeild Valhallar í tómum tómati tossa; og sem er orðinn svo afburða lélegur til andlegrar heilsu að hann treystir sér ekki til neins nema að láglaunaþrælar og örmagna yfirríki ESB séu í boði sem vinnuafl. Þrælar eða ESB-einræðisherrapakkar skal það vera

WSJ DS 8 okt 2019 - US household spending

Mynd Wall Street Journal Daily Shot október 2019: Einkaneysla bandarískra heimila miðað við allsherjar stærð kínverskra hagkerfisins og er þá ekki tekið tilliti til þess nettóvirðis (e. net worth) sem ríkin eiga á kistubotninum á markaði, þ.e. stærðina á fyrri myndinni. Bandarísk heimli kaupa 17 af veröldinni á hverju ári. Og ef Trump fær ráðið, mun sú stærð verða 25 prósent eftir fimm ár

****

Athugið: Sovétríkin voru sögð 17 prósent af heimshagkerfinu 1980. Þau reyndust hins vegar aðeins vera 5 prósent þegar þau komu undan kommajöklinum 1992. Japan var sagt vera 16 prósent af heimshagkerfinu þegar herra Allir sögðu að það myndi taka fram úr Bandaríkjunum 1987. En svo hrundi Japan, aðeins þremur árum síðar. Það er 6 prósent í dag. Aldrei hefur annað eins hrun sést nema sem útkoma tapara úr stórstyrjöldum. Þegar Kína kemur undan kommajöklinum verður það kannski enn minna en Japan er í dag. Ekkert er að marka kínverskar hagtölur. Ekkert. Íslenska útrásarliðið með fötluð höfuð sín í EES-sandi, gat aldrei neitt í Bandaríkjunum vegna þess að þar þurfa menn að standa sig. Ætla menn sér kannski ennþá að byggja framtíð Íslands á sovéskum sandi?

Haldið endilega áfram að klikkast og afneita veruleikanum á meðan bæjaróráð Garðabæjar afþakkar jólatrés-vinargjöfina frá vinabæ sínum Asker í Noregi; til þess að geta gert þarfir sínar áfram yfir kjósendur á 16 salernum loftslagskomma. Bíðið bara þar til kjósendur gefa ykkur á kjaftinn næst. Þá gjöf er ekki enn hægt að afþakka vegna skorts á Kína, hversu heitt sem þið óskið þess

Ekkert hefur talandi tossalið Íslands og annarra útópíulanda lært af síðasta allsherjar hruni skynseminnar. Ekkert. Og eru varla 10 ár síðan þá

Donald Trump að snæðingi 500 px

Fyrri færsla

Rangt að tala um Miðausturlönd. Skófla er skófla og spaði er spaði


mbl.is Alþjóðavæðingin á krossgötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð grein, eins og vænta mátti......

Jóhann Elíasson, 16.10.2019 kl. 10:24

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jóhann.

Manstu þegar glórulaus fíflin í Harward ætluðu að opna Harward-útibú í Rússlandi skömmu eftir hrun Sovétríkjanna, er kirkjuklukkur líberalista á Vesturlöndum hringdu hinn eilífa frið og útópíu inn fram til ársins 2008. En sem bara allt í einu steinþögnuðu þegar Rússland réðst inn í Georgíu og fjármálakerfi heimsins í höndum Harward-sérfræðinga hrundu. Það er þetta tossalið sem hefur enn hæst í dag.

Þær góðu fréttir berast nú frá Bandaríkjunum að umsóknir Bandaríkjamanna inn í háskóla á borð við Harward hríðfalla, því svo gott er um atvinnu þar vegna Trumps og laun hafa hækkað, á sama tíma og útlönd hafa ekki efni á því að sækja um.

Það er að renna upp fyrir mörgum Bandaríkjamönnum að háskólamenntun borgar sig varla lengur. Vel er hægt að láta sér minna nægja og hafa af því betri ævitekjur og mun betra líf.

Þeir sem hins vegar fá svona menntun ókeypis, halda þó áfram að sóa peningum skattgreiðenda í áframhaldandi ótakmarkað rugl. Og helst um margar gráður af meiri menntageggjun.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2019 kl. 11:01

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessi Baldur Þórhallson er alger  afburða kommi sem getur látið annað eins útúr sár að Íslendingar eigi að leita skjóls hjá Kínverjun frekar en bandaríkjamönnum. Hvernig getur Háskóli Íslands haft svona fræðimann innan dyra í alþjóðlegri samkeppni menntastofnana?

Halldór Jónsson, 16.10.2019 kl. 13:55

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Halldór.

Baldur er sennilega orðinn vegan (Herbalife-II) og kominn úr esb- og evruöskunni yfir í 0,024 prósent loftslagseldinn (co2), þar sem xD liggur nú sem úr sér brætt Fótanuddtæki-II á banalegunni, því annað eins heilaþvegið bjánaloft hafði ég aldrei séð á pappír og eftir Baldur, er ég fluttist aftur til landsins 2010. Ég stóð bara agndofa og þurfti að klípa mig í handlegginn til að fullvissa mig um að ég væri ekki kominn á fremstu geggjunarheimili hins bannaða kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Já hann er bannaður.

Háskóli Íslands er að of miklu leyti ekki háskóli lengur, því miður. Hann er orðinn Heiðnikirkjuveldið þar sem heilinn er orðinn utanáliggjandi öndunarfæri sem veruleikinn stendur nú fastur á. Þess vegna er þessi blái litur í andlitum presta á borð við Baldur. Hann er að kafna og hann veit það. Þess vegna verður hann að yfirbjóða sitt fyrra sjálf.

Allir geta kallað sig "fræðimann". Það kostar ekkert, og er það því gert.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2019 kl. 15:22

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð Grein Gunnar ásamt viðauka :-) 

Valdimar Samúelsson, 16.10.2019 kl. 22:08

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Valdimar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.10.2019 kl. 08:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband