Leita í fréttum mbl.is

Orkupakkagengi! Hvað með að byrja á þjóðlegu samstarfi [u]

Allt hjal stuðningsmanna Orkubandalags Evrópusambandsins hér á okkar Íslandi um svo kallaða "alþjóðlega samvinnu" -stöðluð klisja yfir getuleysi á heimavelli- virkar eins og hlátursgas á þá sem horfa til þessa sama fólks þegar að þjóðlegri samvinnu kemur. Já þjóðleg samvinna þar sem kommapartýið AL gildir sem betur fer ekki. En þar, í al-kommapartýinu, átti allt að vera alþjóða-þetta og alþjóða-hitt undir al-þjóðakommúnismanum, sem drepa átti í þjóðum jarðar undir al-þjóðasöng einhvers sem kallað var hinn "al-þjóðlegi verkalýður", en sem hvergi var til. Finna þurfti hann upp. Það mistókst sem betur fer

Þetta al-fólk hefur fundið sér nýjan al-vettvang: EvrópuALsambandið, sem er sambandslaust við þjóðir þess. Þetta fólk sem þykist allt vita best, en gerðir það ekki, er algjörlega ófært um að vinna fyrir og með sinni eigin þjóð. Já bara einni þjóð. Vinna fyrir og með sinni eigin þjóð! Það brestur því á sjálfskiptingu sinni yfir í al-þjóðlegan barnaskap, þegar þeirra eigin þjóð neitar að veita því umboð til að hneppa hana sjálfa í ánauð umboðslauss fjölþjóðlegs yfirríkisvalds. Þetta fólk er nýlendusinnar nútímans. Það vill gera Ísland að nýlendu á ný

Það er enginn munur á Orkubandalagi Evrópusambandsins og á myntbandalagi þess. Bæði krefjast þess að fullveldi sé tekið frá þjóðinni og því dælt yfir til umboðslauss erlends valds. Öll bitastæð vopn þjóðar í báðum málaflokkum hverfa úr landi. Og það sem fyrir er af orkuinnviðum í landinu, verður sett í hendurnar á þið vitið hverjum

Hvað höfum við mátt þola af þvaðri frá þessu fólki í þessu máli núna? Jú þetta hér:

1. Orkupakka-nýlendulið þetta reyndi til að byrja með að selja íslenskum almenningi það að orkupakkar 1+2 hefðu lækkað raforkuverð, sem þeir gerðu ekki. Þvert á móti, þeir hækkuðu raforkuverð og gerðu þjóðinni lífið erfiðara og flóknara. Þeir pakkar minnkuðu skilvirkni og framleiðni og drógu úr hagvexti með því að stafla upp þvaðurfyrirtækjum sem öll eltu eina og sama kílóvattið í kerfinu. Engar framfarir, aðeins afturför. Meiri skriffinnska, meiri þvæla á pari við undirmálslánasölu- og þvæluvafninga bankabólutímabilsins, enda smyglað inn á þjóðina á þeim heilaþvegna galdratíma

Þessir fyrstu tveir pakkar Orkubandalags Evrópusambandsins hafa hvergi gengið upp. Svo illa gekk með þá að esb-elítan sagði til dæmis að danska þjóðin passaði ekki inn í pakkana tvo, vegna þess að sú þjóð neitaði að skipta um gerviveitufyrirtæki nógu oft á hverju ári, og væri því lélegur pakki. Þess vegna eru eru fleiri pakkar, til að kenna þannig pakki loksins á pakkana

Þriðji pakki Orkubandalagsins er hins vegar allt önnur og svæsnari skepna. Hann er yfirríkispakki og gengur sem yfirríkislög þvers og samtengd á landamæri þjóða og breytir því trójanska sem áður var inn komið í nýtt yfirríkisskrímsli, sem tekur völdin og fullveldið í orkumálum af þjóðum, eins og evran tekur fullveldið í peningamálum af þeim þjóðum sem í því bandalagi eru. Markmiðið er að koma í veg fyrir að ríki geti gætt sinna eigin hagsmuna: þau verða nýlendur

2. Svo komu "fyrirvarar" úr eins konar sérfræddu skvettvatni fyrir bjána, sem hellt var yfir og fyrir borð Alþings Íslendinga, þar sem Bjarni Benediktsson hafði flutt þessa hér ræðu sína fyrir ári. Þetta skvettvatn varð til eftir fund með norskum utanríkisráðherra um Orkubandalag Evrópusambandsins, gegn norskri og íslenskri þjóð, vafið inn í heyrúllur

3. Síðan kom "Neytendavernd" í anda Kínverska kommúnistaflokksins, plús "Al-þjóða samvinna". Hreint lágkúrulegt klám

4. Svo kom "Ekkert afsal fullveldis". Enn meira klám úr sömu skúffu

5. Og aðeins fjórum vikum síðar er "Ekkert afsal fullveldis" endurútgefið og skilgreint sem "Takmarkað afsal fullveldis"

- en sem í reynd er ótakmarkað og fyrirvaralaust afsal á fullveldi íslensku þjóðarinnar, um aldur og ævi, nema að EES sé öllu sagt upp, eins og það leggur sig. Sá samningur hefði aldrei fengist staðfestur af okkar hálfu, hefðu þessi vinnubrögð verið kynnt þjóðinni þá. Ætlast var til að hann yrði notaður eins og hann var gerður til að hafna svona alræði; senda það til baka til föðurhúsanna

Maður hefur aldrei séð aðra eins lygaherferð vesalinga, nema þá helst í icesavemálinu. Þetta lið hefur engu gleymt og ekkert lært

Fumskyldur íslenskra stjórnmálamanna eru þessar:

1. Að verja stjórnarskrá Íslands

2. Að verja eigur þjóðarinnar

3. Að verja líf, limi og eigur borgaranna

Þjóðin á allt það sem þið eru að reyna að svíkja úr hennar höndum. Hún á það allt. Hún og forfeður hennar byggðu það upp, með berum höndum

Uppfært, miðvikudagur, 14. ágúst 2019 kl. 16:41

STÓRA-BRETLAND OG BANDARÍKIN

Boris Johnson forætisráðherra Stóra-Bretlands, fjármálaráðherra hans og John Bolton þjóðaröryggisráðgjafi Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta, funduðu saman í Lundúnum í gær um bráðabirgðasamkomulag um frjáls viðskipti landanna á milli. Það er sagt taka gildi þann 1. nóvember eða daginn eftir að Stóra-Bretland yfirgefur Evrópusambandið, og ná til allra viðskipta landanna á milli. Gefið er til kynna að þetta komandi samstarf Bretlands og Bandaríkjanna verði kynnt á G7-fundi sjö stærstu efnahagsvelda heimsins í Frakklandi, dagana 24.-26. ágúst næstkomandi

Viðskiptablokkin Bandaríkin + Stóra Bretland + Kanada + Mexíkó yrði þar með yfirþyrmandi sú stærsta í veröldinni, með landsframleiðslu er svarar til 24,7 billjón dala, eða nálægt tvöfalt stærra en Evrópusambandið eftir að Bretland yfirgefur það. Kína er í dag aðeins þriðja stærsta viðskiptaland Bandaríkjanna á eftir Mexíkó og færist í fjórða sætið þegar Stóra-Bretland kemur inn sem stærsta einstaka viðskiptaland Bandaríkjanna. Ekkert þessara landa hefur þurft að gefa millimetra af fullveldi og sjálfstæði sínu eftir til þess að geta átt viðskipti við hvort annað. Öflugasta þjóðríki mannkynssögunnar, Bandaríkjum Norður-Ameríku, dytti slíkt þjóðníðandi fyrirkomulag aldrei í hug. Það er aðeins á meginlandi taparanna í Evrópu og í Sovétríkjum sem slíkt tíðkast

Landsframleiðsla Þýskalands dróst saman um 0,1 prósent á 2.fj. þessa árs. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist 0,2 prósent á sama tímabili. Hann er nú 10,5 sinnum minni en í Bandaríkjunum. Hlutabréfin í Deutsche Bank hríðfalla og nálgast núll. Þau standa í 6,04 evrum og hafa fallið úr 112 evrum í maí 2007, eða um 96 prósentur

Fyrri færsla

Alkunna er.. Ljóst er.. segir Björn Bjarna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar.

ég eftir sauðunum,
sem koma af fjöllunum
og etnir eru i útlöndum.

Á
ður fyrr á árunum
ég fékk bita af sauðunum
hress var þá i huganum.

Er komið annað snið,
er mig næstum hryllir við
að lepja i sig léttmetið.

Skinnklæðin er ekkert í,
ull og tólg er fyrir bí,
sauða- veldur salan því.

Höf: Eiríkur Eiríksson á Reykjum á Skeiðum.

(orti vísurnar þegar sala á  lifandi sauðum til Skotlands stóð sem hæst á Suðurlandi - þetta eru ekki þjóðvísur eins og margur heldur
enda höfundurinn velþekktur á sinni tíð)

Lífið er í grát(t)tónum og allt í litaflóði!

Húsari. (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 11:07

2 identicon

* grá(t)tónar. Þannig rétt ritað.

Orðmyndin dregin af grátónaskalanum.
(12 bita = 4096 mismunandi litir í grátónaskalanum
og þannig er þetta margfaldað áfram og marg-margfaldað
af tækjum til þeirra nota.

Mannlegt auga er talið geta greint 64 litbrigði
í skala þessum)

Húsari. (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 12:36

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Húsari

Það er hægt að dunda sér við grátóna allt sitt líf. En það eru þó samt litirnir svart og hvítt sem skilja að Íslandstímana fyrir og eftir nýlendukúgun:

Nýlenda => svartnættið

Þjóðfrelsi, fullveldi og sjálfstæði => ljós og birta

Ekkert af því liði sem nú er í forystuliði Sjálfstæðisflokksins og liðsmenn þess, hefðu getað háð sjálfstæðisbaráttu Íslands. Og það sama gildir um þá ríkisbubbavesalinga sem með honum sitja í ríkisstjórn. Forysta Sjálfstæðisflokksins og liðsmenn hennar eru fyrst og fremst sérfræðingar í braski með þjóðareigur sem aðrir hafa skapað. Þetta lið hefði aldrei, ég endurtek, aldrei getað rifið landið okkar úr höndum nýlenduhaldara fortíðar. Það er jafn getulaust og þeir sem stýrðu bönkum okkar á hausinn. Á hausinn ætlar þetta lið með land okkar og út skal þjóðina reka úr fullveldi sínu.

Þetta fólk á hina allra verstu skömm og fyrirlitningu skilið. Svo mikla og forherta aumingja hef ég aldrei í mínu lífi séð. Ég hafði lengi vel grun um að Bjarni Benediktsson væri hrygglaus punt-vesalingur. Sá grunur hefur nú fengist kyrfilega staðfestur. Og sjáðu liðið í kringum hann. Þetta er nýtt nýlendulið nýs svartnættis fyrir Ísland.

Sagan endurtekur sig.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.8.2019 kl. 14:53

4 identicon

Á vefmiðlinum eyjan.is er að finna frétt með fyrirsögninni:

Davíð Oddsson gáttaður á Bjarna Ben – „Skaðlegt þegar meiri­hluti kjós­enda tel­ur að full­trú­ar sín­ir taki ekki leng­ur til­lit til skoðana sinna“

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir Bjarna Ben og fylgilið hans í Sjálfstæðisflokknum harðlega í ritstjórnargrein sinni í Morgunblaðinu í dag. Davíð er undrandi á þeim skilaboðum sem forysta Sjálfstæðisflokksins sendir til flokksfólksins í tenglum við Orkupakkamálið.

„Það hef­ur vakið undr­un, svo ekki sé meira sagt, að for­ysta Sjálf­stæðis­flokks­ins gef­ur til kynna að hún muni hunsa beiðni flokks­fólks­ins um end­ur­skoðun á stór­felldri eft­ir­gjöf full­veld­is þjóðar­inn­ar með gjörn­ingn­um sem kallaður er Orkupakki 3. Formaður flokks­ins sagði við þjóðina úr ræðustól Alþing­is að orkupakkaaðgerðin væri óskilj­an­leg!“

Hann segir beiðni flokkfólksins, sem á að hunsa, vera með hliðsjón af þröngri reglu sem núverandi forysta hafði frumkvæði að árið 2011.

„Ef þúsund­ir flokks­bund­inna óska eft­ir því að ákvörðun sem geng­ur gegn op­in­ber­um yf­ir­lýs­ing­um for­manns­ins og ákvörðunum Lands­fund­ar sé end­ur­met­in er sjálfsagt að verða við því, hvað sem nýrri reglu líður. ESB blind­ingj­ar í Íhalds­flokkn­um breska full­yrtu að þjóðin sæi eft­ir ákvörðun­inni í þjóðar­at­kvæði. Ekk­ert bend­ir til þess. “

Davíð vísar því næst í bloggfærslu Jóns Magnússonar, lögmanns og fyrrverandi alþingismanns Sjálfstæðisflokksins, en í færslunni talaði hann um skoðanakönnun sem gerð var í tengslum við útgöngu Breta úr ESB.

„Í nýrri skoðana­könn­un, sem gerð var fyr­ir stór­blaðið „The Daily Tel­egraph“ kem­ur fram, að 54% kjós­enda í Bretlandi styðja áform for­sæt­is­ráðherra lands­ins um út­göngu Breta úr ESB án samn­ings og leysa þurfi þingið upp til að koma í veg fyr­ir að þing­menn stoppi út­göngu Breta úr því. Í þess­ari sömu skoðana­könn­un kom einnig fram, að níu af hverj­um 10 aðspurðra töldu að þingið væri ekki í sam­bandi við al­menn­ing í land­inu og 89% telja að flest­ir þing­menn virði ekki ósk­ir kjós­enda sinna en fari sínu fram í Brex­it mál­um.“

Davíð botnar ritstjórnargreinina með meira efni úr bloggfærslu Jóns.

„Það er skaðlegt þegar full­trúa­lýðræðið er komið á það stig, að meiri­hluti kjós­enda tel­ur að full­trú­ar sín­ir taki ekki leng­ur til­lit til skoðana sinna.“

Þar skrifar athugasemd Viggó Jörgensson og held ég að hann tali þar fyrir hönd margra þegar hann segir svo um Bjarna Junior:

"Við erum ekki búin ad gleyma Borgunarhneykslinu.

Þar voru það nánir ættingjar Bjarna Benediktssonar, i skjóli hans sem fjarmálaráðherra og handhafa hlutabréfa i Landsbankanum sem átti Borgun.

Þar nýttu menn sér innherjaupplýsingar til ad komast yfir miljarða af eignum íslensku þjóðarinnar. Og Engeyjarættin og fleiri auðmenn ætla ser ad komast yfir orkuauðlindir íslensku þjóðarinnar. Og leggja svo sæstreng og setja upp sama verð til þjóðarinnar og verður i Evrópu. Orkuverð á Íslandi mun sjöfaldast.

Bjarni Benediktsson er fulltrúi þessara auðmanna og eingöngu þeirra.  Hann gefur dauðann og djöfulinn í Sjálfstæðisflokkinn og íslensku þjóðina."

Hið undarlega er að á mbl.is, vefriti orkupakkagengis smartlandsins, er ekkert um skrif ritstjóra Morgunblaðsins. 

Hverju sætir það? Engeyjarklíkan, Gulli viðrini, Humar og Reykás?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 18:40

5 identicon

Mér virðist að allt málið varðandi 3. orkupakka ESB snúist eingöngu um að ræna þjóðina og koma henni í nauðungaráskrift Bjarna og Engeyjarklíkunnar, líkt og Borgunarmálið, Vafningurinn, N1 og Sjóvár málin benda til.  Engeyjarklíkan á orðið flesta þingmenn landsins.  Þeir eru og voru falir fyrir 45% launahækkun úr hendi kjararáðs Jónasar, stjórnarformanns Landsvirkjunar.   Svo rotið er íslenskt stjórnkerfi að manni væmir.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 19:27

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já þetta hljómar afar illa í mínum eyrum og manni sárnar meðferð þessa fólks á fullveldi Íslands og virðingarleysi þess við það sem áunnist hefur.

Þó svo að ég, enn sem komið er, líki ekki óligarkaliði Íslands og esbelíta þess við það rússneska, þá er hollt að muna að Perestroika-armur sovéska kommúnistaflokksins keypti olíu af ríkinu á 1 prósent af heimsmarkaðsverði, og seldi hana svo úr landi á heimsmarkaðsverði, og flutti hagnaðinn til baka inn í Rússland með aðstoð 100 nýrra banka sem Perestroika-armur kommúnistaflokksins hafði stofnað innanlands og svo 600 banka sem hann hafði stofnað erlendis í jöðrum þess sem áður voru jaðrar Sovétríkjanna, til að þvo svona peninga sem "vestræna fjárfestingu" til baka inn í Rússland.

Bara þetta eina atriði þýddi 30 prósent tap í landsframleiðslu Rússlands. Perestroika-armur sovéska kommúnistaflokksins og Glasnost gluggarnir sem opnaðir voru vestur til að hrinda henni í framkvæmd, var að miklu leyti í KGB-umsjá núverandi forseta Rússlands.

Engar umbætur fóru fram á KGB þegar það var endurskírt FSB. Perestroika gekk út á að framlengja lífi Sovétríkjanna. Það tókst og heita þau Rússland í dag. Þökk sé að mestu Perestroika-hagkerfinu, sem Danske Bank sést glíma við í dag, þar sem bréfin í honum sleikja hælana á bréfunum í Deutsche Bank.

Viggó er góður sjálfstæðismaður, svo ekki efa ég að hann hafi mikið til síns máls. Sjálfur þekki ég þessa sögu ekki því þá bjó ég í ESB.

Svona munu raforkuinnviðir Íslands enda ef að þetta nýlendulið fær ráðið. Þau eru alltaf svona hin óþjóðlegu öfl.

Stutt er að minnast þess að forsætisráðherra Danmerkur, Helle Thorning-Schmidt seldi með aðstoð orkupakka Evrópusambandsins útibúi Goldman Sachs í skattaskjóli hluta af raforkuinnviðum Danmerkur. Það kostaði ríkisstjórn hennar lífið, því samstarfsflokkur hennar gekk út. Núna er verið að búta raforkuinnviðaeigur dönsku þjóðarinnar niður og selja þær úr landi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.8.2019 kl. 20:26

7 identicon

Rétt Gunnar: "Núna er verið að búta raforkuinnviðaeigur dönsku þjóðarinnar niður og selja þær úr landi."

Danmörk er, illu heilli, í ESB.

Noregur fyllist núna af vindmyllum sem verða svo keyptar upp af hrægömmum og vogunarsjóðum, með norsku þjóðina í skylduáskrift.  Rétt eins og í Danmörku. Það er gert með vilja norska Sjálfstæðisflokksins og ESB brussunnar Ernu Solberg.

Og hva' nu lille Island?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 20:50

8 identicon

Auðvitað eigum við heima í samfloti með Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada.  Þar í hópi ættu Danmörk og Noregur vitaskuld einnig að vera.

Norska þjóðin man enn Vidkun Quisling og hefur engan áhuga á að liggja flöt undir þýsku frekjunni.  Hvað svo sem norsku brussunni finnst.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 21:13

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er þó að minnsta kosti kominn í bankastjórn hjá Kínverska Kommúnistaflokknum.

Þar mun dómgreindarskortur hans ekki vefjast fyrir neinum bankayfirmanna hans í þeim flokki. Þeir hlægja alla leiðina í bankann.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.8.2019 kl. 21:19

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Öflugasta þjóðríki mannkynssögunnar, Bandaríkjum Norður-Ameríku, dytti slíkt þjóðníðandi fyrirkomulag aldrei í hug. Það er aðeins á meginlandi taparanna í Evrópu og í Sovétríkjum sem slíkt tíðkast

Landsframleiðsla Þýskalands dróst saman um 0,1 prósent á 2.fj. þessa árs. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist 0,2 prósent á sama tímabili. Hann er nú 10,5 sinnum minni en í Bandaríkjunum. Hlutabréfin í Deutsche Bank hríðfalla og nálgast núll. Þau standa í 6,04 evrum og hafa fallið úr 112 evrum í maí 2007, eða um 96 prósentur

Þér bregst ekki yfirsýnin Gunnar Borgfirðingur.

Þarna í Borgarnesi var nú Gulli einu sinni en svo lagðist hann í ferðalög einsog Garðar Hólm og nú vill hann syngja fyrir heiminn en ekki okkur.

Halldór Jónsson, 14.8.2019 kl. 21:47

11 identicon

Já Gunnar, Bjarni Junior virðist lyftast upp við það að vera kominn í bankastjórn hjá kínverska Kommúnistaflokknum.  Kannski hann og Huang Nubo og Ingibjörg Sólrún lesi saman Maókverið með Ara Trausta og Steingrími Joð.  Þetta eru kraft idjótar. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 21:52

12 identicon

Hvert er gáfnafar þess formanns Sjálfstæðisflokksins sem helst vill afsala fullveldið til Þýskaland og hrynjandi Deutshe Bank og Belta og brautar banka kínverska kommúnistaflokksins?  Sá er kraft idjót, sem gerði reyndar ekkert til ef hann einn bæri ábyrgð á sínu idjótíi, vogaði einungis fé Engeyinga sem öllu tapa og eru lélegustu rekstrarmenn sem fyrirfinnast og geta ekkert nema láta Steingrím J. afskrifa klúðroð og sölsa undir sig ríkiseigur og sækja sér til þess erlent vald.  Ef ónei, hann skuldbindur ríkiasjóð og stjórnvöld lands okkar og þjóðar.  Sé hann ekki siðblindur, þá er hann alvarlega siðlaus og forhertur, en allur þingflokkurinn æpir húrra fyrir honum og eltir heilalaus í Al-heilalausu, en júrókommakratísku og stöðluðu tossabandalagi þeirra.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 22:35

13 identicon

Sæll Gunnar - sem og aðrir skrifarar og lesendur, á þinni forláta góðu síðu !

Gunnar !

Þakka þér fyrir: sem oftar, afbragðs góða greiningu, á hinu fyrirlitlega óeðli Fjórða ríkisins (ESB), sem þér og all nokkrum fleirrum gegnheilum samlöndum, er lagið.

Halldór Verkfr. !

Ég má til - að benda þér á, að GÓÐU HEILLI, fengu hin illræmdu Sovétríki (1922 - 1991) að hverfa í frumeindir sínar, þó miklu fyrr hefði mátt verða: reyndar.

Gleymum svo aldrei: að hið gamla góða Rússland (vestan Úral fjalla / sem austan þeirra) er og verður verðugur arftaki Austur- Rómverska ríkisins, eftir fall Konstantínópel, í Maí 1453, eins og við munum.

Vasily II. Moskvuhertogi - tók þá við uppihaldi hinna gömlu merkja og tákna Býzanz, sem og arftakar hans, þaðan í frá.

Því miður: skeyttu Bandaríkjamenn, sem og Bretar og Frakkar ásamt Þjóðverjum lítt, um uppivöðzlu Leníns og nóta hans:: sum Vesturlanda studdu hann beinlínis til valda því miður, og notfærðu sér ístöðuleysi Nikulásar II. Keisara í stjórnmálalegu tilliti, og því neyddist Hvíti Herinn til niðurlægjandi uppgjafarinnar fyrir Bolzévíkum árið 1922, annarrs hefði sagan farið á annan veg, Verkfræðingur góður.

Svo vel jafnvel - að hið illvíga Þriðja ríkis Adolf´s Hitler hefði aldrei náð að skjóta rótum / hvað þá: að Fjórða ríki Þjóðverjanna (Evrópusambandið) hefði nokkurn tíma náð að verða til aukinheldur, og verða að því MEINVARPI, sem við og all margir annarra erum nú að kljást við í dag, fornvinur ágætur.

Vildi bara: koma að, tilteknum sögulegum staðreyndum, piltar.

Með - sem oftar, hinum beztu baráttu kveðjum, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 23:12

14 identicon

....

Vasily II the Blind

Vasil2b.gif

Grand Prince of Moscow

Reign

27 February 1425 – 27 March 1462

Predecessor

Vasily I

Successor

Ivan III

 

Born

10 March 1415
MoscowGrand Duchy of Moscow

Died

27 March 1462 (aged 47)
MoscowGrand Duchy of Moscow

Consort

Maria Yaroslavna

Issue

Ivan Vasilievich
Anna Vasilievna
Andrey Bolshoy

Dynasty

Rurik

Father

Vasily I of Russia

Mother

Sophia of Lithuania

Religion

Eastern Orthodox

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 23:18

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Halldór.

Nú er Borgarnes í öðrum landshluta Borgarfjarðar niður úr Skorradal. En Borgarfjörður er stór, og með flóknu veðurkerfi. Hann er um það bil 75 prósent af flatarmáli Sjálands, þar sem 2,3 milljónir manna hafa sest að á leirframburði síðustu ísaldar, með norsku grjóti í á stöku stað, svo við skulum ekki tala meira um það. Þar komum við á ca. max 10-15 daga fresti til að versla það sem ekki er í frystikistunni góðu.

En Borgarnes hefur alltaf heillað mig og allur Borgarfjörðurinn líka. Við erum til dæmis enn með sömu holurnar í veginum norðan gömlu Hvítárbrúar og þær sem Hilli Steinólfs heitinn hossaðist í gegnum á sínum mektardögum þegar vöruflutningabílstjórnar lentu aldrei í slysum, vegna þess að þeir áttu bílana sína sjálfir.

Ég man sjálfur eftir þessum endingardrjúgu holunum frá því að ég fékk að fljóta með honum í sveitina norður í Fljótum, eftir að við fluttum frá Siglufirði og suður í Kópavog. Þarna væri hægt að opna brotþolsbraut fyrir bílaframleiðendur sem hafa ekki efni á nógu svæsnum tilraunastöðvum sín megin.

Kveðjur og amen

Gunnar Rögnvaldsson, 15.8.2019 kl. 00:03

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Óskar

- fyrir þessa þörfu áminningu um að virða beri móðir Rússland og hennar siði.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 15.8.2019 kl. 00:11

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"Mér virðist að allt málið varðandi 3. orkupakka ESB snúist eingöngu um að ræna þjóðina"

Mikið rétt hjá þér Símon Pétur.

Það snýst um að ræna fullveldinu frá þjóðinni og koma því fyrir í umboðslausum hólfum í Brussel og umbylta því svo yfir í bankahólf þið vitið hverra.

Engum manni með fullu viti dettur í hug að þetta mál snúist um neitt annað. Enda gerir það ekki það. Þeir sem sjá það ekki, eru að blekkja sjálfa sig.

Gunnar Rögnvaldsson, 15.8.2019 kl. 00:21

18 Smámynd: Halldór Jónsson

"1. Orkupakka-nýlendulið þetta reyndi til að byrja með að selja íslenskum almenningi það að orkupakkar 1+2 hefðu lækkað raforkuverð, sem þeir gerðu ekki. Þvert á móti, þeir hækkuðu raforkuverð og gerðu þjóðinni lífið erfiðara og flóknara. Þeir pakkar minnkuðu skilvirkni og framleiðni og drógu úr hagvexti með því að stafla upp þvaðurfyrirtækjum sem öll eltu eina og sama kílóvattið í kerfinu. Engar framfarir, aðeins afturför. Meiri skriffinnska, meiri þvæla á pari við undirmálslánasölu- og þvæluvafninga bankabólutímabilsins, enda smyglað inn á þjóðina á þeim heilaþvegna galdratíma"

Það er ósvífni að halda því fram að skipting RARIK hafi lækkað verð . Aðeins örfáir hafa skipt um orkuseljanda enda algert verðsamráð ríkjandi. Bara fliri forstjórar, fleiri forstjórajeppar, fleirifótboltalið að styrkja, það var hinn raunverulegi árangur orkupakka 1.

Aðalatrii málsins greinir þú Gunnar á þinn rökvæisa hátt.

"Viðskiptablokkin Bandaríkin + Stóra Bretland + Kanada + Mexíkó yrði þar með yfirþyrmandi sú stærsta í veröldinni, með landsframleiðslu er svarar til 24,7 billjón dala, eða nálægt tvöfalt stærra en Evrópusambandið eftir að Bretland yfirgefur það. Kína er í dag aðeins þriðja stærsta viðskiptaland Bandaríkjanna á eftir Mexíkó og færist í fjórða sætið þegar Stóra-Bretland kemur inn sem stærsta einstaka viðskiptaland Bandaríkjanna. Ekkert þessara landa hefur þurft að gefa millimetra af fullveldi og sjálfstæði sínu eftir til þess að geta átt viðskipti við hvort annað. Öflugasta þjóðríki mannkynssögunnar, Bandaríkjum Norður-Ameríku, dytti slíkt þjóðníðandi fyrirkomulag aldrei í hug. Það er aðeins á meginlandi taparanna í Evrópu og í Sovétríkjum sem slíkt tíðkast

Landsframleiðsla Þýskalands dróst saman um 0,1 prósent á 2.fj. þessa árs. Hagvöxtur á evrusvæðinu mældist 0,2 prósent á sama tímabili. Hann er nú 10,5 sinnum minni en í Bandaríkjunum. Hlutabréfin í Deutsche Bank hríðfalla og nálgast núll. Þau standa í 6,04 evrum og hafa fallið úr 112 evrum í maí 2007, eða um 96 prósentur"

Hvað er Merkel að vilja hingað í heimsókn?  Leiðbeina okkur í hagvexti? Ætlar Samfó að skipuleggja klapplið?

Ætla kommarnir ekki að mótmæla heimsóknum Pence og Boltons? 

Halldór Jónsson, 15.8.2019 kl. 10:50

19 identicon

Sæll Gunnar.

Þakka svarið!

Eins og við mátti búast líktist það
frekar litbrigðum jarðar, veröld 
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar en gráttónum neinum!

Það verður fróðlegt að fylgjast með áframhaldi
bókarinnar Heiða og skjálftahrellir Evrópu.
(ætli Johanna Spyri eða aðrar viti af þessu?)

Kannski var það enn eitt afbrigðið af
Rauðhettu og úlfinum.

Hátíðarrétturinn ætti þá að sóma sér vel í
sjálfdauðri Fjallkonunni í gervi ömmunnar
ásamt vænum skammti af vítissóta og blásýru
og hristingi af E(a)u de Porto!

Húsari. (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 11:41

20 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna kemur þú akkúrat að kjarna málsins og eins og svo oft áðurhittir þú naglann beint á höfuðið og kafnegldir hann.  Þakka þér fyrir góða grein.....

Jóhann Elíasson, 15.8.2019 kl. 15:49

21 identicon

Sæll Gunnar.

Varla getur það vafist fyrir nokkrum
að koma Angelu Merkel til landsins er
ekki kuteisisheimsókn og þá ekki tilviljun.

Þetta sést best á því að upphaflega skyldi
hún koma þann sama dag sem stendur til að
ganga frá OP 3!

Angela Merkel er greinilega toppurinn á
kræsingar þær sem auðhyggjan fær á silfurfati
í byrjun september.

Slík er firringin og gjáin sem myndast
hefur milli þings og þjóðar.

Húsari. (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 17:18

22 identicon

Sælir - á ný !

Húsari (kl. 17:18) !

Ertu ekki óþarflega hógvær í orðavali: ágæti drengur ?

Nær væri - að tala um hyldýpis GLJÚFUR, á milli þings og landsmanna, fremur en en lítilfjörlegt gil:: hvað þá gjá, Húsari minn.

Og: kemur þá ótalmargt fleirra til, en Orkupakki III (að ógleymdum nr. I og II, áður komnum) hvað þá, ef hinir:: nr. IIII og V kynnu að banka upp á, síðar.

Það er oðið tímabært - að landsmenn fari að taka á þing mönnum og ráðuneyta liðinu: og ekki, með neinum sérstökum Silkihönskum, Húsari góður:: þér, að segja !

Með sömu kveðjum: sem þeim síðustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 17:49

23 identicon

Heill og sæll fornvinur góður!

Hélt að lítilsháttar breyting á
ævintýrinu um Rauðhettu og úlfinn
mundi gleðja hjarta þitt því lengra
fæ ég tæpast gengið ef þú lest á milli línanna.

En gamanlaust er það með öllu að Angela Merkel
sýnist mestur bölvaldur sem fram hefur komið
og gildir einu hvort tekið er til 20. aldar eða
þeirrar sem nú lifir.

Ef svo fer að Bretum takist útgangan frá
Evrópusambandinu má búast við að fleiri ríki fylgi
í kjölfarið og örlög þessa sambands þar með talin, -
þó fyrr hefði verið meistari góður!

Húsari. (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 19:06

24 identicon

....

Húsari !

Ég er fyllilega sammála þér: Angela Merkel, er jú hreinræktuð afurð Austur- Þýzkalands (1949 - 1989):: þeirra Ulbricht´s og Honecker´s, og hennar framganga fyllilega, í samræmi við það

Lið - eins og Merkel / ásamt hérlendum : Bjarna Benediktssyni / Katrínu Jakobsdóttur (lesizt: Steingrími J. Sigfússyni) og Sigurði Inga Jóhannssyni, nærizt á óheftri skriffinsku og orðagjálfri, sem fellur fullkomlega að viðhorfum ESB pótintátanna, suður í Brussel og austur í Berlín, sem við sjáum dags daglega.

Fyrir utan þær ánægjulegu fréttir: að Bretar ætli nú að taka á sig rögg með Brexit- fyrirætlanir sínar í Haust, þá munu : Ungverjar - Tékkar - Slóvakar - Pólverjar - Austurríkismenn og mögulega Ítalir vera að undirbúa brottfarir sínar, undan Bláa flagginu með Gulu stjörnunum, á komandi árum.

Verði svo Húsari - höfum við til einhvers að hlakka, meðfram ýmsu öðru.

En: ............. munum, við þurfum að gjalda Orkupakka trúboðinu hérlenda Rauðu belgina fyrir hina Gráu, svo í minnum skyldi hafa, um aldirnar ókomnar, Húsari góður.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 20:24

25 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Jóhann.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.8.2019 kl. 03:12

26 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Halldór.

Ég svara síðustu spurningum þínum í athugasemd við nýja bloggfærslu mína: Stærsta viðskiptablokk veraldar að fæðast (ekki leynifjélag).

Gunnar Rögnvaldsson, 16.8.2019 kl. 03:50

27 identicon

Sæll Gunnar æfinlega: sem og aðrir gestir, þínir !

Hér vildi ég árétta - mátulega rassskellingu Arnars Þórs Jónssonar Héraðsdómara, á hendur Utanríkismálanefnd alþingis - og raunar: til allra þeirra í stjórnsýslunni, sem ánetjazt hafa ESB yfirgangnum og frekjunni.

Arnar Þór Jónsson: á heiður mikinn skilinn, fyrir einurð sína, sem heiðarleika, gagnvart illræðis öflunum.

Af vef Mbl. - fyrir stundu :

 Til snarpra orðaskipta kom á milli þing­manna og héraðsdóm­ar­ans Arn­ars Þórs Jóns­son­ar á fundi ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar um há­deg­is­bil. Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þingmaður Vinstri grænna, sagði mál­flutn­ing Arn­ars móðgun við sig og aðra nefnd­ar­menn. Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók í sama streng.

„Það sem er ekki í þriðja orkupakkanum“

Frétt af mbl.is

„Það sem er ekki í þriðja orkupakk­an­um“

„Mér finnst mjög al­var­legt að dóm­ari við Héraðsdóm komi og beri á borð fyr­ir ut­an­rík­is­mála­nefnd viðlíka van­traust á lög­gjaf­ar­valdi þjóðar­inn­ar eins og þú ert að gera hér. Mér finnst þetta móðgun við okk­ur í þess­ari nefnd, móðgun við kjörna full­trúa þjóðar­inn­ar og ég verð að segja, að ásaka okk­ur kjörna full­trúa um að við séum að fara að fram­selja vald okk­ar í hend­ur er­lendra stofn­ana, að leggja af stað í ferðalag án fyr­ir­heits, um trúnaðarbrest við þjóðina, gervirök, út­úr­snún­ing, ógn við borg­ara­legt frelsi og háska­lega upp­gjöf gagn­vart lög­un­um sem vald­beit­ing­ar­tóli,“ sagði Rósa Björk og vísaði þar í minn­is­blað sem Arn­ar Þór lagði fram fyr­ir fund­inn.

Arnar Þór Jónsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og fyrrverandi dósent ...

Arn­ar Þór Jóns­son, dóm­ari við Héraðsdóm Reykja­vík­ur og fyrr­ver­andi dós­ent við laga­deild Há­skól­ans í Reykja­vík, var harðlega gagn­rýnd­ur af þing­mönn­um á fundi ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar.mbl.is/​RAX

Í minn­is­blaðinu er meðal ann­ars talað um að að skuld­bind­ing við að laga sig að reglu­verki ESB í orku­mál­um muni fela í sér „tak­mörk­un á full­veldi þjóðar­inn­ar í raf­orku­mál­um“. Hug­ar­far á þá leið að inn­leiða and­mæla­laust er­lend­ar regl­ur, að ját­ast und­ir „óbeislaða útþenslu setts rétt­ar“ í „vilja­lausri þjónk­un“, seg­ir Arn­ar að grafi und­an til­veru­rétti lög­gjaf­arþings Íslend­inga og lag­anna sjálfra.

Rósa Björk taldi slík­ar ásak­an­ir á hend­ur alþing­is­mönn­um ótæk­ar. „Hvernig í ósköp­un­um get­ur dóm­ari við héraðsdóm leyft sér að bera svona á borð? Mér finnst þetta al­var­leg­ar ávirðing­ar. Glapræði að inn­leiða til­skip­un­ina og tak­mörk­un á full­veldi þjóðar­inn­ar í raf­orku­mál­um? Ég frá­bið mér að dóm­ari við héraðsdóm komi og beri svona á borð við okk­ur og tali hér um veik­ingu full­veld­is­ins. Veik­ingu full­veld­is­ins? Þegar lög­gjaf­ar­valdið er hluti af full­veldi þjóðar­inn­ar? Ég sé ekki annað en að þú sért að veikja lög­gjaf­ar­valdið með því sem þú ert að bera hér á borð. Mér finnst það al­var­legt,“ sagði Rósa.

„Þetta er til á upp­töku“

Eft­ir að Rósa flutti mál sitt sagðist Arn­ar vilja „bera hönd yfir höfuð sér“. „Það er mun­ur á því í mín­um huga hvort verið er að bera fram varnaðarorð eða ásak­an­ir. Í mínu minn­is­blaði er ég að vara við ákveðnum hlut­um. Ég saka ekki nokk­urn mann um eitt eða neitt. Það hins veg­ar gerði hátt­virt­ur þingmaður gagn­vart mér núna,“ sagði hann.

„Þar erum við mjög ósam­mála,“ sagði Rósa.

„Þetta er til á upp­töku, þannig að við get­um hlustað á það aft­ur,“ sagði Arn­ar. „Ég er vissu­lega dóm­ari við héraðsdóm en ég hef út frá al­menn­um mann­rétt­ind­um á þessu landi sam­kvæmt stjórn­ar­skrá tján­ing­ar­frelsi. Þess vegna er það rétt­ur minn eins og hvers ann­ars að tjá mig í riti og ræðu svo framar­lega sem ég tek ekki þátt í ein­hverju flokk­spóli­tísku máli. Þetta mál er, eins og andstaða al­menn­ings bend­ir til, al­ger­lega þver­póli­tískt,“ sagði hann.

Af fundi nefndarinnar í morgun, þegar Margrét Einarsdóttir kom fyrir ...

Af fundi nefnd­ar­inn­ar í morg­un, þegar Mar­grét Ein­ars­dótt­ir kom fyr­ir hana. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

„Mjög móðgandi“

Fyrr á fund­in­um hafði Arn­ar talað um að Alþingi ætti að fara með lög­gjaf­ar­valdið, en ekki „er­lend nefnd“. „Við eig­um ekki að lúta því að sam­eig­in­lega EES-nefnd­in fái tak á lög­gjaf­ar­vald­inu hér, bara af því að við þorum ekki að fara þarna inn og biðja um und­anþágur eða mót­mæla og gæta okk­ar hags­muna með sóma­sam­leg­um hætti,“ sagði Arn­ar Þór.

„Þetta snýst ekk­ert um að þora. Þetta er bara mjög móðgandi,“ sagði Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir þá. 

Deilt um hvort aðfara­orð í reglu­gerð hafi gildi fyr­ir dómi

Arn­ar var sá eini sem kom fyr­ir nefnd­ina í dag sem varaði við samþykkt þriðja orkupakk­ans, en boðað var til fund­ar­ins að ósk and­stæðinga hans úr röðum Miðflokks­ins. Helstu spurn­ing­ar meðal ann­ars for­manns nefnd­ar­inn­ar, Áslaug­ar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, lutu að því hvort aðfara­orð í reglu­verk­inu gætu raun­veru­lega haft laga­legt gildi fyr­ir dómi ef til þess kæmi að farið væri í mál við Ísland á þeim grund­velli að ekki væri búið að leggja sæ­streng.

Arn­ar taldi að aðfara­orðin, mark­miðalýs­ing lög­gjaf­ar­inn­ar, sem kveður meðal ann­ars á um að sam­eig­in­leg­ur raf­orku­markaður þjóða Evr­ópu­sam­bands­ins sé æski­leg­ur, gætu haft mikið gildi fyr­ir dóm­stól­um ef farið væri í mál við ís­lensk stjórn­völd fyr­ir að verða ekki hluti af þess­um raf­orku­markaði með sæ­strengi.

Næsti fund­ur er í ut­an­rík­is­mála­nefnd um málið er á mánu­dag­inn og báðu sum­ir fund­ar­menn um lengd­an fund­ar­tíma á mánu­deg­in­um, þar á meðal Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formaður Viðreisn­ar. Á leiðinni út af fund­in­um snemma sagði hún: „Þetta var nátt­úru­lega al­veg maka­laust.“ Þar var hún að tala um mál­flutn­ing Arn­ars Þórs, sem virt­ist henni ekki að skapi.

Miðflokk­ur­inn bað um Davíð Þór Björg­vins­son og Arn­ar Þór á fund­inn. Orðið var við öll­um beiðnum flokks­ins um gesti á fund­inn. Á mánu­dag­inn koma Ork­an okk­ar, Ögmund­ur Jóns­son, Bjarni Jóns­son, Tóm­as Jóns­son, Stefán Már og Friðrik Hirst, Bjarni Már Magnús­son og fleiri fyr­ir fund­inn.

 

Mbkv.;  sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.8.2019 kl. 14:00

28 identicon

.... hér er aftur annar: Davíð Þór Björgvinsson nokkur, sem treystir sér ekki með nokkru móti til, að tortryggja þingmenn né aðra þá, sem þeim eru handgengnir:: sbr. braskaranir Heiðar Már Guðjónsson og Ásgeir Margeirsson HS Orku- og Vesturverks Refur, t.d. :

Davíð Þór Björgvinsson, varaforseti Landsréttar, segir að fyrirhugaðir fyrirvarar Alþingis við þriðja orkupakkann hafi aðeins þá þýðingu að hérlendis verði ekki tekin ákvörðun um lagningu sæstrengs án aðkomu Alþingis. Að því leyti séu fyrirvararnir til heimabrúks. Hann sagði hins vegar langsótt að lesa úr þriðja orkupakkanum að í honum væri lögð skylda á íslensk stjórnvöld um lagningu sæstrengs.

 

Davíð Þór sagði á fundi utanríkismálanefndar í hádeginu að innleiðing þriðja orkupakkans væri ekki brot á stjórnarskrá, jafnvel þótt svo að sæstrengur yrði lagður í framhaldi af því. Davíð Þór sagði tækt í Evrópurétti að aðfararorð hefðu vægi á skýringu á reglum í dómsmálum. Hann sagði hins vegar langsótt að úr þriðja orkupakkanum yrði lesin þjóðréttarleg skylda Íslendinga til að leggja eða greiða fyrir því að einkaaðilar legðu sæstreng.

Davíð Þór var spurður út í orð sín á þingnefndarfundi síðasta vetur sem vitnað var í í umræðum á þingi í vor. Þar var hann spurður út í gildi fyrirvara Alþingis. Davíð Þór sagði í hádeginu að fyrirvarar við þriðja orkupakkann hefðu ekkert þjóðréttarlegt atriði sem varðar skuldbindingar Íslendinga vegna innleiðingarinnar. Hann sagði hins vegar langsótt að lesa úr skjölum þriðja orkupakkans að þar væri lögð skylda á íslensk stjórnvöld um lagningu sæstrengs.

„Ég held að út frá þjóðréttarskuldbindingunum sem hér eru undir séum við ekki að taka neina áhættu með því að gera þetta svona,“ sagði Davíð Þór.

Af vef Ríkisútvarpsins í dag (miðdegis 16. Ágúst).

 

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.8.2019 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband