Leita í fréttum mbl.is

Valhöll orðin klakmiðstöð seigfljótandi imperíalisma

EFTIR-KALDA STRÍÐIÐ (e. POST-COLD WAR)

Valhöll er núna orðin klakmiðstöð seigfljótandi imperíalisma Evrópusambandsins - eins og öll þannig veldi óhjákvæmilega verða

Formaðurinn Bjarni er e. "post-national" þ.e. eftirþjóðlegur eftirsjálfstæðismaður og nýnýlendusinni. Allt liðið í kringum hann er alveg eins, þ.e. eitt stórt tómarúm af eftirkyni. Og ekki nóg með það þá er þetta lið orðið imperíalistar sem reynir að installera hér nýju veldi hins nýja nýlenduveldis imperíal-ESB, sem þykist vita allt best og hvernig við og allar aðrar þjóðir eigum að haga okkar eigin málum, nota rafmagn eða ekki nota það, framleiða það, dreifa því og innrétta þjóðfélag okkar eða kaupa gúrkur. Alla samkeppni milli þjóða skal banna á meðan það er talið imperíal-guðlast að vilja leggja á tolla til að koma óheiðarlegum viðskiptaháttum stórra klessu- og esbkommalanda fyrir kattarnef. Heilög sé gervisamkeppni á milli fyrirtækja af óligarkakyni, en bölvuð og harðbönnuð sé samkeppni milli landa og hugmynda sem stangast á við nýnýlenduisma þessa fólks. Alla laga- og skattasamkeppni milli landa skal banna og allir skulu búa í sovét, því við í Valhöll (plebbahöll) erum nýaularnir í Eftirhöll. Allt tal þessa fólks um "fjölbreytni" er eins og varalitur á steinbít

Utan um þennan ískalda svellbunka úr aulaskap af eftirkyni syndir svo imperíalistinn Guðlaugur Þór sem er á fullu að kenna fólki hinumegin á plánetunni hvernig það á að haga sér í sínu eigin landi. Hann er með imperíal ESB+SÞ reglustrikuna á lofti og veit hvernig þetta og allt annað fólk á að stjórna sér, eða ekki stjórna sér. Boðskapurinn er að fólk/þjóðir geti ekki stjórnað sér sjálft. Það þarf Guðlaug Þór til að geta vitað það. Hann einn er með reglurnar á hreinu og alheimslögmálin fyrir alla menn á plánetunni og loftslag þeirra líka, því heima situr Bjarni Ben á bráðnandi ísjaka sem hin barngóða eftirkristna KommaKata gaf honum í afmælisgjöf

Þetta er nýja nýnýlendulið sem mótað hefur Sjálfstæðisflokkinn þannig hin síðustu 10 ár að enginn góður maður mun geta hugsað sér að koma nálægt honum nema þá kannski til að drepa hann. Framhald hans er því orðið eftirhald. Þetta lið hefur sagt ekta eldri Sjálfstæðismönnum að éta skít og það hefur gefið í skyn að þeir sem eru ekki sammála nýnýlenduhugsjónum þess séu hallærislegir og úr sér gengnir að innan sem utan. Þess vegna tala ég í athugasemd við fyrri færslu um fullnustugalla sem sennilega er ekki hægt að lækna, því nýlenduveldi eru alltaf ólæknandi á meðan þau eru

Þetta er alveg þveröfugt við allt sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson boðar, trúir á, segir og gerir. Upp fer því hann, en Spilahöllin norður og niður. SDG er nefnilega ekki e. "post" - og allra síst þarf hann að vera fullkominn. Hann þarf einungis að vera betri en valkosturinn. Og það fer hann létt með

Fyrri færsla

Samvinna er langt því frá af hinu góða


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen.

Takk Gunnar fyrir afbragðsgóðan pistil. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.7.2019 kl. 07:45

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já takk enn og aftur, þetta horfum við á og garmana við hlið þeirra sem enn eiga sprek en andlausir geta ekki blásið í aflinn.

Helga Kristjánsdóttir, 20.7.2019 kl. 08:33

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Björn Schengen Bjarnason segir að af því að Norðmenn voru og eru að berjast gegn ríkisstjórn sinni í orkupakkamálinu að þá sé um eins konar upplýsingafölsun að ræða fyrst að barátta þeirra rímar við andúð Íslendinga á nýlenduveldi ESB. Til marks um það vitnar hann í Moggagrein Konna krónu úr Arion sem kominn er yfir til veldismanna í ees-röðum atvinnurekenda. Konni notar Financialleg gubbu Times utanfrá-línuritin sem birt eru þegar greiningardeildir vita ekkert um hvað þær eru að tala um né hvað þær ættu að fjalla um.

Þarna hafið þið það lesendur góðir: EES samningurinn byggir á upplýsingafölsun af því að hann kom frá Noregi.

Öðruvísi mér brá þegar Björn Bjarnason staglaðist í heilt ár á Rússagaldri Donalds J. Trump sem reyndist vera úr höfðum rugludalla eins og þarna eru aleinir í ófærð.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2019 kl. 14:20

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Frábær pistill. Ég hallast að því að Evrópuríkin gömlu, séu pappírstígrisdýr og hafi verið það alveg frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, en lifi í afneitun á raunveruleikann.

Fyrri heimsstyrjöldin var fyrsta vísbending um að valdajafnvægið hefði flust hinum megin við Atlantshafið, til Bandaríkjanna. Seinni heimsstyrjöldin var síðan staðfestingin.

Eins og einhver sagði, þá verður sagan að endurtaka sig, því það hlustar enginn í fyrsta sinnið. Þess vegna þurfti tvær heimsstyrjaldir til að jarða gömlu nýlenduveldin og krýna BNA til forystu í heiminum. Bretland má þó eiga að það barðist hetjulega gegn nasisma Þýskalands, þegar hin Evrópuríkin lögðust flöt.

Það er erfitt að minnast ógrátandi á Styrkja-Gulla og Filippseyjafrumhlaupið. Ef hann hefur áhuga á að berjast gegn mannréttindabrotum, þarf hann ekki að leita lengra en til blóðuga harðstjórans við hliðina á honum í Mannréttindaráni SÞ, krónprins Sádí-Arabíu, en olía er honum sjálfsagt verðmætari en blóð, þegar allt kemur til alls.

Theódór Norðkvist, 21.7.2019 kl. 18:48

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Theódór.

Já 1917 markaði upphaf endaloka Gamla heimsins sem ráðandi heimsáhrifavalds. Þá gerði Nýi heimurinn innrás í Gamla heiminn í fyrsta skiptið í sögunni og sendi meira en tvær milljónir hermanna úr Nýja heiminum til að bjarga Gamla heiminum frá sjálfum sér. Enginn bandarískur hermaður missti lífið undir þeim massífa liðsflutningi frá vesturhveli jarðar yfir til austurhvels jarðar, sem er afrek, og sýndi glöggt komandi skipulagsgetu Bandaríkjanna og hreyfanleika.

Og með falli Sovétríkjanna 1989 þá hvarf síðasta heimsáhrifavaldið úr höndum Evrópu fyrir fullt og allt. Frá og með þá hefur hún aðeins heimshlutaáhrif, og varla það.

Næg imperíal-verkefni hefðu verið fyrir Guðlaug Þór í ESB. Hann hefði til dæmis getað reitt keisaralega imperíal reglu-svipu sína á loft á Spáni og svo í öllu ESB fyrir að eyðileggja Grikkland með svo gott sem berum hnefum þess glæpamanns sem réði ferð AGS þar, og sem nú er sett sem yfirbjáninn yfir Imperíal-ESB.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2019 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband