Leita í fréttum mbl.is

Já Páll. Rétt hjá þér: Löskuð ríkisstjórn

Eða eins og Páll segir það hér

Þessu til viðbótar er hægt að segja að svipuð staða er sennilega meðal flokksmanna Sjálfstæðisflokksins og meðal flokksmanna breska Íhaldsflokksins, þar sem þeir segja:

54 prósent þeirra vilja frekar að Íhaldsflokkurinn tortímist og deyi en að niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar (brexit) sé ekki fylgt: Frekar Bretland en flokkinn

Og ef svo vildi til að Skotland gengi úr Bretlandi vegna bexit, þá segja 63 prósent flokksmanna Íhaldsflokksins samt já: Frekar brexit en Skotland

Og ef brexit myndi þýða efnahagslegt áfall fyrir Bretland, þá segja samt 61 prósent flokksmanna Íhaldsflokksins já: Frekar að herða sultaról en að vera áfram í ESB

Og ef Norður-Írland færi úr Bretlandi vegna brexit, þá segja samt 59 prósent já: Frekar Bretland án Norður-Írlands en að vera áfram í ESB

Þessa könnun YouGov, þann 18 júní 2019, mál lesa nánar í hér

Hvað sjálfan mig varðar, þá segi ég enn og aftur: Frekar sé ég xD-flokkinn minn dauðan en að samþykkja þriðja fasa Orkubandalags Evrópusambandsins. Og ég er ekki einn, heldur margir og reyndar flestir þeir sjálfstæðisflokksmenn sem ég þekki. Þó ekki allir, en samt flestir

Sjálfstæðismenn Íslands eru ekki bundnir við einn flokk. Þeir hafa aðra til að klæða sig í. Þeir hafa alltaf annan flokk, og sem þarf ekki að vera fullkominn, heldur aðeins betri en hinn valkosturinn. Og það sama gildir um Vesturlönd almennt: Þau þurfa alls ekki að vera fullkomin, heldur einungis betri en hitt viðurstyggðar sukkið í heiminum. Aðeins útópískir vinstrimenn biðja um fullkomnun. Þeir fá því Stalín, Maó og Hitler, sem var auðvitað sósíaldemókrati (Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei)

Stjórnmálaflokka er hægt að stofna, en fullvalda og sjálfstætt Ísland kostaði 600 slæm ár að fá til baka. Aldrei fallveldið aftur! Aldrei aldrei aftur!

Fólk hefur fengið nóg af stjórnmálum sem kalla eftir svona lausnum. Það sést ágætlega á því að 73 prósent Úkraínubúa vildu frekar óþekktan leikara fyrir forseta sinn, en meira af því gasi sem lyft hefur forystu Sjálfstæðisflokksins upp í loft-slaginn fyrir ofan skýin

Fólk á Vesturlöndum hefur fengið nóg af þjóðsvikulum stjórnmálum sem það veit að í síðasta enda munu þvinga það til að velja á milli ókostanna við Léon Blum eða Hitler, og síðan á milli Hitlers og Stalín. En það er einmitt þangað -til kjörs milli þannig valkosta- sem Vesturlönd stefna, ranki lofthjúpsmenn ekki úr rotum sínum

Tappinn í þessa eiturflösku heitir til dæmis Brexit og Trump. En í Bandaríkjunum er aflúsun þegar í hafin. Þar bað heil þjóð um kemóterapíu landi sínu til handa. Hún er svona eins og þið sjáið. Og allir skyldu vita að þegar að þjóð pantar jarðýtu, þá munu málverkin á veggjunum hristast og skjálfa á meðan á meðferðinni stendur. Dirty Harry virkar þannig: "It all ends now!" - eins og maðurinn frá Erpsstöðum sagði

Fyrri færsla

SDG spilaði hikkory dikkory dokk fyrir Fallveldið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Amen.

Ragnhildur Kolka, 20.6.2019 kl. 15:14

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er rétt hjá þér Gunnar Rögnvaldsson að þú ert ekki eini Sjálfstæðismaðurinn sem velur frekar hagsmuni Íslands og Íslendinga heldur en flokkforustunnar.

Þó eru til eintök sem ómögulega geta hugsað sér að ganga í berhögg við stefnu flokksforustunnar og þar með er þetta fyrir þeim í raun trúmál en ekki rökfræðileg stjórnmál.   

 

Hrólfur Þ Hraundal, 20.6.2019 kl. 15:30

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur.

Ættarvitar virka aldrei, eins og sést.

Eftir tvo mánuði í viðbót með því sama, mun enginn nenna að minnast á Sjálfstæðisflokkinn né hina ljóslausu ættarvita hans og þokulúðra, blikkandi sjálfan sig heyrnarlausan inni í skáp.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.6.2019 kl. 16:50

4 identicon

Bolli í Sautján hefur nú bæst í hóp þeirra ágætu sjálfstæðismanna sem hafa sagt sig úr flokknum.

Hans spá um að flokkurinn falli allt niður í 15% fylgi er alveg í stíl við það sem ég hef margsinnis spáð. 

Sannir sjálfstæðismenn geta ekki lengur fylgt forystunni og þingmönnum flokksins að málum, svo mjög hefur forystan og þingmenn afhjúpað sjálfa sig sem brusselska búrakrata og ESB sinna, leppa og hirðmenn erlends valds. 

Út með Engeyjarjarlinn og puntudúkkur hans og þingmannadruslurnar á jötu Brussel og jarlsins.

Takk fyrir enn einn þrumupistil þinn Gunnar. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.6.2019 kl. 18:46

5 identicon

Enginn, nema alvöru sjálfstæðismaður gæti skrifað svo:

Frekar sé ég xD-flokkinn minn dauðan en að samþykkja þriðja fasa Orkubandalags Evrópusambandsins.  

Og ég er ekki einn, heldur margir og reyndar flestir þeir sjálfstæðisflokksmenn sem ég þekki.

Heyr, heyr Gunnar Rögnvaldsson!

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 20.6.2019 kl. 23:41

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Glóbalískir launkratar hafa gert kú í flokknum. Sama nafnið, önnur hugsjón. Siglt undir platfánum.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.6.2019 kl. 00:21

7 identicon

Vel sagt Jón Steinar, og undan hinni glóbalísku Bjarna belju hafa tvær grobbnar kvígur komið.  Þær baula alveg eins og alltaf eins og Bjarna beljan í samræmdu og stöðluðu Brusselbauli.  Og þær eru allar kynrænt óútreiknanlegar svo enginn veit á hverju þær riðlast.  Þær kalla það Icehot.  Er það ekki næsti bær við vændi?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.6.2019 kl. 00:55

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Ekkert ungt fólk í neinum sérstökum mæli mun kjósa Sjálfstæðisflokkinn nokkru sinni. Slíkt er ekki eðli þess aldurshóps sem bæði er óreyndur, fávís, rómantískt-útópískur, flöktandi og vitsmunalega skjöktandi. Það er ekki fyrr en síðar á lífsleiðinni að fólk rankar úr roti hormónasýru-tripps þess gelgju- og vitsmunalegu úttektarára þorskans, að það byrjar að gera sér grein fyrir því hvernig heimurinn er ekki skrúfaður saman eins og það hélt að hann væri.

Unglingar tapa höfðinu um 12 ára aldur og finna það aftur í kringum 22 ára aldur, en drengir ekki fyrr en um 28 ára. Svo koma meltingarárin með massífum skattpíningum, og vonandi með smábörnum, en sífellt stærri hluti ungs fólks er samt dekur-geldur, fullorðnast aldrei og endar líf sitt sem barnlausar þunglyndisklessur á opinberri framfærslu í eilífri sorg og leit að ástarfullnægju.

Kant átti engin börn, og sömu sögu er að segja um John Locke, Descartes, Hobbes og Spinoza. Og Rousseau gaf börn sín til annarra. Þetta eru þeir pólitísku heimspekingar sem Fallhöll gengur fyrir um þessar mundir: útópískt geldneyti líberalisma og forfeður Evrópukolasambandsins, með Kant sem stofnfaðir þess og sem aldrei yfirgaf þorpið sitt í úrkynjuðu Þýskalandi.

Einu tilfellin þar sem ungt fólk kýs Sjálfstæðisflokkinn á síðari tímum var á tímum yuppies-bylgjunnar undir frú Thatcher, Reagan, pólsku Samstöðu Walesa, og pólska Páfans Jóhannesar II.

Svo það er beinlínis í andstöðu við demógrafíska vígstöðu mála á jörðu niðri að ætla sér að gera út á ungt gelt fólk úr heiðnikirkjuveldi háðskólanna, sem er ekki til og verður í sífellt minna mæli til, nema í auglýsingum fyrir Útópíu.

Elliði Vign­is­son hefur rétt fyrir sér  líka með xD-útgerðina á Tómu-miðin (í stað Selvogsbanka), enda er hann líklega á leið yfir í Miðflokkinn, sem hvorki er stjórnað af kjánum né ættarvitum undir grænum torfum loftsslagsins í auglýsingum, um hver í heimi heimskastur er.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.6.2019 kl. 12:31

9 identicon

Varðandi hina demógrafísku vígstöðu er hún í mínum huga mjög einföld Gunnar.

Um 62% íslenskra kjósenda hafa verið og eru andsnúnir því að Ísland gangi í ESB.

Hver sá flokkur, sem mun skýlaust og refjalaust vinna af öllum mætti skv. þeim algjöra meirihluta vilja þjóðarinnar, mun fá til þess nægt fylgi til að stöðva aðlögunarferlið að ESB sem hinir úrkynjuðu flokkar sem mynda núverandi ríkisstjórn hafa ástundað og svikist undan að stöðva.

Ég er sammála þér að eina leiðin fyrir okkur sjálfstæðismenn er að styðja við Miðflokkinn.  Þar eru einu sjálfstæðismennina að finna af núverandi þingflokkum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 21.6.2019 kl. 13:49

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Meinturðu þennan þekkta brag Símon Pétur; Bjarnastaðabeljurnar þær baula mikið núna,þær ætla að verða vitlausar það vantar eina kúna,það gerir ekkert til,það gerir ekkert til.

Helga Kristjánsdóttir, 22.6.2019 kl. 04:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband