Leita í fréttum mbl.is

Hvað er þetta "samfélag þjóðanna"? - Þýskar fylgistölur

ÚR VÍNKALLARA SÓSÍALISMANS

Hvað er það fólk sem lapti kommamjólkina hvar sem hún lak niður af kommakömrum heimsins, að tala um "samfélag þjóðanna"? Hvaða "samfélag" er þetta fólk að tala um? Er það að tala um háskólaheiðnisamfélag sitt, eða ríkisjötusamfélag sitt? Eða er þetta kannski úr söngbók nallans sem boðaði alþjóðaisma (Internationalism)? Já þetta er auðvitað úr henni. Alþjóðabyltingin sjálf sem tekið hefur þeim aðferðapólitísku litninga-stökkbreytingum að vera græn í stað rauðs

Það er ekki til neitt sem heitir "samfélag þjóðanna". Eru vesturlenskir kommar hér heima nokkuð að tala um sameignarfélagið Norður-Kóreu, eða önnur samyrkjubú morðræðisins. Þar hefst allt á "sam" og endar á "alþýðulýðveldum" einræðisins og ríkisfjölmiðlum þeirra

Nei. Hér er aðeins um að ræða sömu gömlu marxísku alþjóðagubbupestina og vesturlenskir kommaflokkar viðhöfðu í Kalda stríðinu, og kölluðu "friðarhreyfingar". Þær voru skipulagðar af KGB, og sem grafa áttu undan Vesturlöndum. Nú hefur þetta orðskrípi í orwellskum orðaforða grænkommanna fengið eins konar löggildingu í hobbýsnobb-kjaftaklúbbi hinna talandi hausa hins nýja búðargluggavinstris á ríkisjötunni

Meiri hluti landanna í spillingar-gnægtabúri Sameinuðu þjóðanna eru einræðisherraríki af einu eða öðru tagi. Sú kompa vinstrimanna er að vísu ágæt að því leytinu að hún heldur þeim einangruðum frá því sem máli skiptir og er að gerast í heiminum

Ef ég sel fólki í landi X fisk, þá hef ég ekki hugsað mér að vera í neinu sérstöku "samfélagi" með því, og allra síst alþjóðasamfélagi. Félagið mitt heitir íslenska þjóðfélagið

Auðvitað er réttnefnið á alþjóðasamfélagi forsætisráðherra VG aðeins þetta: Alþjóðasamfélag vinstrimanna, nýKomintern, eða hin Nýju Alþjóðasamtök kommúnista. Grænir af öfund í framan (GÖF)

FYLKISKOSNINGAR Í ENDURGUÐLAUSU ÞÝSKALANDI

Þann 1. september næst komandi er kosið til þings í Saxlandi og Brandenburg í sambandsríki Þýskalands. Og þann 27. október er kosið til þings í Þýringalandi (Thüringen)

Hinn afkristilegi CDU-flokkur Merkels virðist vera að bíða afhroð í Saxlandi, samkvæmt nýjustu könnun þann 15. júní. Þar er CDU fallið frá 40 prósentu fylgi í kosningunum 2014, niður í 24 prósentur í dag! Þarna mælist AfD flokkurinn hafandi 24 prósentu fylgi líka. Þýskir límósínu-sossar (SPD) mælast með 8 prósentu fylgi, en fengu 12 prósentur 2014. Núverandi fylkisstjórn sédéú og sossa í Saxlandi virðist samkvæmt þessu fallin. Við gæti tekið ný fylkisstjórn undir forsæti AfD og án aðkomu sédéú og sossa

Í Brandenburg mælist AfD með mest fylgi eða 21 prósent. CDU er einnig þar fallið á prófinu og fær 17 prósentur og er í þriðja sæti, ásamt græningjum, í stað 23 prósentu fylgis 2014. Brandenburg var sterk-fylki sossa, en einnig þar eru þeir komnir á útrýmingarstigið, eða fallnir frá 32 prósentum 2014 niður í 18 prósentur núna, og mælast aðeins næst stærstir. Merkjanlegur munur á milli fylgis sossa og vinstriflokksins Linke, er varla til lengur. Linke mælist með 14 prósentur

Í Þýringalandi hefur AfD tvöfaldað fylgi sitt frá því í kosningunum 2014 og mælist með 20 prósentur. Merkelistar CDU eru fallnir úr 33,5 niður í 26 prósent og eru aðeins einu prósenti yfir Linke

Í þessum þremur fylkjum eru AfD sigurvegararnir í könnunum miðað við kosningarnar 2014. Og í öllum þremur fylkjum eru núverandi fylkisstjórnir fallnar, miðað við þessar kannanir. Og það sígur stöðugt á ógæfuhliðina fyrir flokk Merkels og límósínu-sossa (eins og xD eru undir BB hér heima) í öllu Þýskalandi og það sama gildir um efnahagshorfur í því landi. Þýski seðlabankinn sagði í gær að hagvöxtur væri neikvæður núna = samdráttur

Síðustu valdatímar Guðleysis í Þýskalandi voru í kanslaratíð Adolfs Hitlers og undir Kommúnistaflokki Austur-Þýskalands

AÐEINS AUSTAR

Í austri er Pólland að hefja Dragon-19 heræfingar sínar á meðan Rússar og Hvítarússar gera hið sama hinumegin landamæranna. Pólska æfingin er uppá 18 þúsund hermenn og 2500 hertæki, ásamt tölvunarheræfingum

Fyrri færsla

Miðflokkurinn stendur vaktina löngu [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar.

Guð láti á gott vita!

Langt síðan ég hef skemmt mér jafnvel yfir
nokkrum pistli, - heila þökk!

Húsari. (IP-tala skráð) 18.6.2019 kl. 18:11

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Húsari.

Og það máttu vita að ég samgleðst þér mjög svo.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 18.6.2019 kl. 21:04

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll! öðru hvoru verður maður fyrir nýrri reynsu. - Já hvaða samfélag,spurning hvort það er úr söngbók Nallans,? Nýlega fylgdi ég 95,ára gömlum manni til grafar í nágranna sveitafélagi höfuðborgarinnar. Leikið var "alþjóðasöngur verkamanna" (Internationalinn)við útgöngu,áráðanlega að ósk þessa látna merka manns.

Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2019 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband